Morgunblaðið - 01.12.2007, Qupperneq 32
Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur
annaei@mbl.is
Allir fá þá kerti og spil …“Það hafa líklega flestirsungið þessar jólalags-línur einhvern tímann á
ævinni og víst er að kertaljós eru
fastur hluti aðventunnar í huga
margra. Ekki er heldur verra ef
kertunum er fyrirkomið í fal-
legum stjökum, enda flökt-
andi birta frá lifandi ljósi
góð leið til að skapa hlýlega
stemningu.
Hún ætti því að verða ansi
hlýleg stemningin í Grens-
áskirkju nú um helgina, en
eftir messu þennan fyrsta
sunnudag í aðventu er
opnuð þar sýning á
kertastjökum. Stjak-
arnir eru í öllum stærð-
um og gerðum og eiga
það sameiginlegt að
vera handgerðir, enda
verk félaga í Leirlista-
félaginu.
„Lengi vel hélt Leir-
listafélagið bara sýn-
ingar þegar stór tilefni
voru til, afmæli til
dæmis,“ segir Ragn-
heiður Ingunn Ágúst-
dóttir sem tekur á
móti blaðamanni og
ljósmyndara í Grens-
áskirkju ásamt El-
ísabetu Magn-
úsdóttur. Þær eru
báðar félagar í leir-
listafélaginu ásamt 48
öðrum konum sem
spanna breitt aldursbil
og segja samsýningar á
borð við þessa góða
leið til að kynnast því
hvað hinar séu að gera.
„Fyrir ekki svo löngu tókum við
síðan þann pól í hæðina að við yrð-
um að vera sýnilegri, jafnvel þó að
tilefnið væri minna,“ segir Ragn-
heiður og bætir við að aðventan sé
þar af leiðandi tilvalinn tími til að
sýna kertastjaka, enda eru þegar
komnar upp hugmyndir um aðra
kertastjakasýningu að ári.
Nokkur hefð virðist
líka vera að skap-
ast fyrir þessum smærri sýningum
innan félagsins og má nefna að í
ár hafa verið haldnar bollasýning,
sem gestir Kringlunnar kannast
e.t.v. við, og vasasýning í Ketilhúsi
á Akureyri. Þessar samsýningar
hvetja líka, að sögn þeirra Ragn-
heiðar og Elísabetar, félagsmenn
til að takast á við nýja hluti.
„Við þessi tækifæri komum við
út úr vinnustofunni og sjáum hvað
hinar eru að gera. Sumar sýna til
að mynda ekki það oft að maður
viti að hverju þær hafa verið að
vinna,“ segir Ragnheiður og El-
ísabet bætir við: „Þetta er
áhugavert fyrir bæði þá sem
vinna af krafti og eins fyrir þá
sem sinna leirnum minna.“ Sjálf
er hún myndmenntakennari og
vinnur með leirinn í hjá-
verkum, en Ragnheiður
vinnur sem auglýs-
ingahönnuður meðfram
sinni list.
Tími huggulegheita
Veggljós, borð- og
gólfstjakar sem ýmist eru
litsterkir, ljósir, fínlegir eða
grófir gefa sýningunni í
Grensáskirkju fjölbreytilegt
yfirbragð, en alls eiga 30
leirlistamenn þar verk.
Þær Elísabet og Ragn-
heiður sýna þar báðar ljósa
borðstjaka þótt verk þeirra
séu að öllu jöfnu mjög ólík.
„Yfirleitt eru mín verk lit-
ríkari og undanfarið hef ég
verið að vinna með stóra
hluti með upphleyptum
skreytingum, þannig að
kertastjakarnir eru ólíkir því
sem ég hef verið að gera,“
segir Elísabet. „Mér fannst
hins vegar passa kerta-
Morgunblaðið/Frikki
Leirlistamenn Ragnheiður Ingunn Ágústsdóttir og Elísabet Magnúsdóttir segja samsýningar Leirlistafélagsins
gefa þeim gott tækifæri til að fylgjast með því sem aðrir félagar eru að gera.
Þjóðlegar Frúrnar eru sparilegar og fínar sem ljósberar.
Logaglóð Rakú-brennd leirkúlan skapar óneitanlega skemmtilega um-
gjörð um lifandi loga kertisins sem í kúlunni hvílir.
Voldugir Þeir taka sig vel út í kirkjunni þessir stóru stjakar og gætu alveg
hafa verið sérhannaðir inn í kirkjulegt umhverfið.
Lifandi ljós á aðventu
Við þessi tækifæri kom-
um við út úr vinnustof-
unni og sjáum hvað hinar
eru að gera. Sumar sýna
t.a.m. ekki það oft að
maður viti að hverju þær
hafa verið að vinna.
Postulín Örþunnt postulínið skapar hlýlegan blæ er það hleypir við-
kvæmnislegri birtunni í gegn og því alvöru jólasvipur á kertastjökunum.
Sýningin er opin frá kl. 10-15 virka
daga og á messutíma um helgar.
Hún stendur fram til jóla.
Þeim sem hafa áhuga á verkunum
er bent á að hafa samband beint
við listamanninn, en upplýsingar
um hvern þeirra er að finna við
verk hans.
stjakanum að nota hvítan glerung.
Síðan fannst mér líka tilheyra að-
ventunni að gefa honum tvöfalt
hlutverk. Því að þegar við höfum
það huggulegt á aðventunni
kveikjum við gjarnan á kertum og
fáum okkur síðan jafnvel eitthvert
góðgæti í skál og skálarbotn stjak-
anna hentar vel til þess.“
Verk Ragnheiðar byggjast hins
vegar mikið á endurvinnslu. „Ég
geri mikið af því að nota það sem
til er og vinn talsvert út frá um-
hverfinu. Undir hærri kertastjak-
anum sem ég sýni í Grensáskirkju
er til að mynda stjaki sem ég fann
í Góða hirðinum. Þessi endur-
vinnsla er ráðandi í verkum mín-
um núna og til að mynda hef ég
undanfarið gert mikið af því að
nota styttur sem handföng á got-
terísskálar.“
Þær eru líka ánægðar með þá
miklu grósku sem er í íslensku
handverki þessa dagana. „Fólk er
farið að átta sig á því að það er
eitt að kaupa kertastjaka og annað
að kaupa kertastjaka sem einhver
hefur lagt sál sína í. Það eru
nefnilega oft á tíðum einstakir
hlutir.“
|laugardagur|1. 12. 2007| mbl.is
daglegtlíf
Það verður æ erfiðara að velja
jólagjafir fyrir vini og vanda-
menn vegna þess hversu kresn-
ir þeir eru. » 35
Völin og kvölin
Bleikt, appelsínugult og gyllt er
áberandi í raðhúsinu sem rithöf-
undurinn Marta María Jónsdóttir
hefur hreiðrað um sig í. » 38
Litir og viður
Litur jólasveinanna er líka litur
ástríðunnar og hleypir hita á
sál og kropp í vetrarkuldunum í
desember. » 34
Rautt og heitt