Morgunblaðið - 01.12.2007, Page 35
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vandasamt Jólapakkarnir mega víst ekki innihalda hvað sem er að mati
nútímamanna sem verða æ vandlátari þegar kemur að því að þiggja gjafir.
Sælla er að gefa en þiggja, en erf-
iðara, ef marka má Per Østergaard,
lektor við Háskólann í Suður-
Danmörku, en sérgrein hans er
hegðunarmynstur neytenda. Hann
segir fólk orðið svo vandlátt að það
vilji helst velja eigin jólagjafir sjálft.
„Allt í lífinu er hannað í botn,“
segir hann í grein á vefsíðu Aften-
posten. „Eldhúshnífur er ekki leng-
ur bara til að skera með heldur þarf
að hann að hafa útlitið með sér að
auki.“ Hann segir hönnunarofstæki
valda vinum og vandamönnum erf-
iðleikum við að finna gjafir. Um það
vitni langar biðraðir við þjónustu-
borð verslana í byrjun árs þegar
fólk hópast þar að til að skipta gjöf-
unum sínum.
„Það má segja að við höfum raðað
lífi okkar upp líkt og púsluspili. Að-
eins við sjálf vitum hvaða púsl vant-
ar og þess vegna er svo erfitt að
gefa gjafirnar,“ heldur Østergaard
áfram.
84 prósent óánægð
Undir þetta tekur kollegi hans
Trond Blindheim við norska mark-
aðsháskólann. „Eiginlega ættum við
að sleppa gjöfum og frekar kaupa
eitthvað sem okkur sjálf vantar,“
segir hann.
Sennilega hefur hann nokkuð til
síns máls. Ný norsk rannsókn sýnir
að æ fleiri Norðmenn eru óánægðir
með jólagjafirnar sínar. Heil 84 pró-
sent svarenda, 30 ára og yngri,
segjast hafa þóst vera ánægð með
pakkana sem þau fengu. 62 prósent
þeirra sem eru komnir yfir fimm-
tugt segja það sama.
Þetta kemur Blindheim ekki á
óvart. „Við erum kurteis og þykj-
umst vera ánægð með skrúfjárnið
frá börnunum, jafnvel þótt við eig-
um annað fyrir.“ Sjálfum finnst
honum best að kaupa bækur, vín og
tónlist. „Það er miklu skynsamlegra
að nota peningana í eitthvað sem
okkur vantar en að eyða þeim í jóla-
gjafir fyrir fólk sem vill þær ekki,“
segir hann.
Geit eða leikhús
Vegna þessara vandræða við
gjafainnkaup kjósa æ fleiri að gefa
óhefðbundnar jólagjafir, s.s. and-
virði geita og annars búpenings sem
hjálparsamtök sjá svo um að ráð-
stafa til einstaklinga í fátækum ríkj-
um. Blindheim mælir sterklega með
slíku. „Eitt árið átti ég að sjá um
jólagjafakaupin og þá gaf ég Hjálp-
ræðishernum alla peningana,“ segir
hann en viðurkennir að þótt vinum
og vandamönnum hafi öllum þótt
þetta góð hugmynd hefðu nokkrir
gjarnan viljað fá persónulega jóla-
gjöf að auki. Danski félagsfræðing-
urinn Henrik Dahl er ósammála
Blindheim. „Með því að gefa slíkar
gjafir er maður að segja óbeint að
gjafir séu heimskulegar. Um leið
gerir maður viðtakandanum upp
sömu skoðanir og maður sjálfur
hefur.“ Hann telur hins vegar að
vinsældir gjafa í formi upplifana á
borð við leikhúsmiða og lúx-
uskvöldverð muni aukast.
Blindheim finnst tími þó besta
gjöfin. „Það er það besta sem við
getum gefið hvert öðru,“ segir
hann. „Jólin eru orðin ein allsherjar
verslunarorgía og mörgum gremst
öll sölumennskan í kringum þau.
Sennilega hefðu verslunarmenn
fundið upp jólin hefðu þau ekki ver-
ið til. Kannski ættum við einfald-
lega að sleppa öllum innkaupum í
ár?“
Úr vöndu að ráða við
val á jólagjöfunum
Helst viljum við
velja eigin jóla-
gjafir sjálf
daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2007 35
tilefni snemma á 20.
öldinni.
Loksins tekur ein-
hver sig til og segir
hingað og ekki lengra
um þá fáheyrðu fram-
komu aðallega upp-
rennandi æsku Íslands,
sem hendir drasli út um
bílglugga eins og ekk-
ert sé sjálfsagðara. Það
er greinilega röggsamt
yfirvald á Selfossi.
Bezta forvörnin gegn
þessari háttsemi er að
fjölmiðlar kynni þenn-
an dóm mjög rækilega
þannig að hann fari
ekki fram hjá nokkrum
manni á Íslandi. Kannski er þá ein-
hver von um að menn stoppi við og
velti því fyrir sér hvort pylsan eða
pylsubréfið séu þess virði að borga
10 þúsund krónur fyrir að renna bíl-
rúðunni niður og henda draslinu út.
Þessi háttsemi fólks hefur verið til
umfjöllunar hér í Víkverja oftar en
einu sinni og fram til þess að dóm-
urinn var birtur hefur Víkverji verið
vondaufur um að takast mætti að
stöðva þessa óheillaþróun. En nú
horfir málið öðru vísi við.
Nú þarf einhver að taka sig til og
kaupa auglýsingar á alla stræt-
isvagna, þar sem á stendur: Það
kostar tíu þúsund krónur að henda
pylsubréfi út um bílglugga.
Eða þekja fjölfarnar umferð-
aræðar með borðum eins og íbúar
við Kársnesbraut gerðu í sumar og
minna fólk á að það kosti 10 þúsund
krónur að henda pylsubréfi út um
bílglugga.
Þessi dómur á að geta markað
þáttaskil í baráttu gegn vondri um-
gengni um umhverfi okkar. Hann á
að geta valdið straumhvörfum í um-
gengni fólks við umhverfi sitt.
Svona eiga dómarar að vera. Þeir
geta tugtað náungann til með mjög
athyglisverðum hætti.
Einn athyglisverð-asti dómur síðari
ára féll í Héraðsdómi
Suðurlands í fyrradag,
þegar tvítugur karl-
maður var dæmdur til
þess að greiða 10 þús-
und krónur í sekt fyrir
að henda pylsu og
pylsubréfi út um
glugga á bifreið eða
sæta tveggja daga
fangelsi ef sektin verð-
ur ekki greidd innan
fjögurra vikna.
Þetta framferði
piltsins var talið varða
við 18. grein, sbr. 2.
mgr. lögreglu-
samþykktar fyrir sveitarfélagið Ár-
borg.
Um þennan dóm Héraðsdóms
Suðurlands má segja: Loksins!
Loksins! eins og Kristján Albertsson
sagði í tímaritinu Vöku af allt öðru
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
Össur Skarphéðinsson hefursvarað þeirri gagnrýni sem
Sigurður Kári Kristjánsson setti
fram vegna skrifa Össurar um
sjálfstæðismenn í Reykjavík. Össur
svaraði í bundnu máli á vefsíðu
sinni:
Agavöndinn úfinn skekur,
alþingismaðurinn klári.
Orðvar sjálfur svo undrun vekur,
– elsku Sigurður Kári!
Sigurður Kári segist ekki geta
annað en hrósað
iðnaðarráðherranum fyrir þetta
elskulega svar „og aldrei að vita
nema ég setjist niður við gott
tækifæri og semja vísu, jafnvel
vísnabálk, um ráðherrann“.
Erlingur Sigtryggsson varð fyrri til
og orti í orðastað Sigurðar Kára:
Elskulegt var yðar svar.
Á það skilið þökk og hrós (því miður).
Orða minna verð ég var,
en vísur kveð samt undir rós (um yður).
pebl@mbl.is
VÍSNAHORNIÐ
Af Össuri og Sigurði Kára
H
eim
ilis
vö
ru
r
Laugavegi 7 • 101 Reykjavík • Sími 561 6262 • www.kisan.is
Opið MÁN - FIM 10:30 - 18:00 FÖS 10:30 - 19:30 LAU 10:30 - 18:00
C O N C E P T S T O R E
Tse & Tse, Design House Stockholm,
Rigmor Als, Tonfisk
1. Meiri virkni.
2. Mun meiri andoxunarefni.
3. Minni líkur á aukaverkunum.
4. Meiri stöðugleiki og mun lengra geymsluþol eða 10 ár
samanborið við 3ja ára geymsluþol hvíts ginsengs.
!
" #
$ # $
%
# &
% ' ( ) www.ginseng.is
LAURAASHLEY
Faxafeni 14 108 Reykjavík sími 5516646