Morgunblaðið - 01.12.2007, Side 39
svanir færu alltaf um í pörum, og það
væri hreinlega hættulegt fyrir hjóna-
bandið að láta svaninn vera einan.
Endirinn varð sá að við eignuðumst
annan svan. Og þeir urðu auðvitað að
vera bleikir. Annað kom ekki til
mála.“
Sterkir litir
Marta María hefur áhuga á mynd-
um því yfir hillu í borstofunni er mál-
verk eftir Ingólf Þór Árnason, tón-
listarmann og listmálara, sem hún
keypti fyrir einum 10 árum þegar
hún flutti að heiman. „Mér fannst
vanta eitthvað menningarlegt inn í
litlu íbúðina mína.“ Yfir sófanum í
stofunni hangir risastór mynd frá
New York sem Marta María rakst á í
Ikea og keypti strax. „Hún passar
svo vel á þennan vegg.“
Í stofunni er líka hilla sem hún
smíðaði sjálf. „Ég mældi allt sem
þurfti að fara í hilluna og lét svo saga
efnið niður fyrir mig. Upphaflega átti
hillan að vera svört en svo kom vin-
kona mín sem er arkitekt og sagði:
„Nei, nei, nei, þú verður að hugsa út
fyrir rammann. Hillan á ekki að vera
svört. Ég myndi hafa hana ómálaða.“
Hún er í viðarlitnum en alltaf má
mála hana síðar, ef vill.“
Augljóslega hefur húsmóðirin
áhuga á sterkum litum því bleikt og
appelsínugult er áberandi á heimilinu
en appelsínuguli sófinn í stofunni er
úr Ikea. „Bleikt og appelsínugult,
fjólublátt og gyllt eru mínir litir, ekta
ég. Ég hef verið svona frá því ég var
lítil, finnst bleikt alltaf fallegast. Svo
tók hjartað í mér aukakipp þegar ég
hnaut um gullhnífapör í sumar. Ég
varð að eignast þau. Það er vel hægt
að vera með gyllt án þess að það sé
kerlingalegt. Ég held að gullið verði
mjög vinsælt hjá fólki næstu árin.“
Hér hefur frúin gaman af að
breyta, færa til hluti og búa til upp-
stillingar. Hún segir eiginmanninn
alveg hættan að spá í hvort eitthvað
nýtt sé komið á heimilið. Hann haldi
bara að það hafi verið í næsta her-
bergi. „Hann hefur enga yfirsýn yfir
hvað til er á heimilinu. Í fyrra fjölgaði
borðstofustólunum um helming.
Hann tók ekki eftir neinu,“ segir
Marta María og skellihlær. Við mæl-
um með að Jóhannes líti vel í kring-
um sig á næstunni og kanni hvað hún
hafi verið að bralla.
Miðpunktur Borðstofan er kannski ekki rólegasti hluti hússins en reyndist
vinkonunum Mörtu Maríu og Þóru Sigurðardóttur frábær vinnustaður í
sumar þar sem þær sátu við borðstofuborðið og lögðu lokahönd á bókina,
þú bara vissir…, sem þær skrifuðu í sameiningu.
Veggfóður og bleikur gafl Húsmóðirin bólstraði gaflinn en húsbóndinn
fékk það verkefni að festa hann á vegginn. Svo var keypt flott veggfóður
og sett á vegginn. Það á áreiðanlega eftir að veggfóðra meira í húsinu.
Ég hef verið svona frá því ég var lítil, finnst bleikt
alltaf fallegast. Svo tók hjartað í mér aukakipp
þegar ég hnaut um gullhnífapör í sumar.
Morgunblaðið/Kristinn
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2007 39
Einar Falur Ingólfsson. Kjartan Þorbjörnsson.
Komin er út bókin Í fyrsta kasti
eftir ljósmyndarana og stangveiðimennina
Einar Fal Ingólfsson og Kjartan Þorbjörnsson.
Jólagjöf stangveiðimannsins
Í þessari glæsilegu bók er að finna fjölda skemmti-
legra veiðisagna frá tugum viðmælenda þeirra félaga
ásamt óviðjafnanlegum ljósmyndum frá mörgum
helstu veiðisvæðunum hringinn í kringum Ísland.
Áskrifendum Morgunblaðsins býðst að fá þessa stórglæsilegu
bók á sérstöku verði með 25% afslætti. Fullt verð er 4.990
krónur en verð til áskrifenda er 3.750 krónur.
Bókina geta áskrifendur fengið í afgreiðslu Morgunblaðsins að
Hádegismóum 2, 110 Reykjavík eða pantað hana á mbl.is.
M
bl
9
40
60
2
„Feiknamerkileg bók, stútfull af spennandi
upplýsingum um veiðiár- og vötn.“
Bjarni Brynjólfsson, Veiðimaðurinn