Morgunblaðið - 01.12.2007, Síða 54
54 LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
KIRKJUSTARF
Sigurjónsson og undirleikari Bjarni
Þór Jónatansson. Ræðumaður
kvöldsins er dr. Einar Sigurbjörns-
son. Kaffisala verður í kirkjunni að
aðventukvöldi loknu til styrktar
Hjálparstarfs kirkjunnar. Veitingar
eru í boði safnaðarins, Reynis bak-
ara og Ömmubaksturs.
Kirkjudagur
Árbæjarkirkju
Það er mikið að gerast í Árbæj-
arkirkju fyrsta sunnudag í aðventu.
Sunnudagaskólinn er kl. 11 og þar
verður tendrað á fyrsta aðventu-
kertinu. Eftir sunndagaskólann
verða boðnir til sölu miðar í skyndi-
happdrætti líknarsjóðsins. Fjöldi
vinninga er í boði. Hátíðarguðsþjón-
usta er kl.14. Aron Cortes syngur
einsöng og Guðmundur Haf-
steinsson leikur á trompet. Prestar
safnaðarins, sr. Þór Hauksson og sr.
Sigrún Óskarsdóttir, þjóna fyrir alt-
ari. Kirkjukórinn leiðir almennan
safnaðarsöng undir stjórn Kriszt-
inar K. Szklenár. Eftir guðsþjón-
ustuna er árleg kaffisala kven-
félagsins í safnaðarheimilinu og
líknarsjóðskonur verða með skyndi-
happdrætti til styrktar bágstöddum
í söfnuðinum.
Aðventukvöld
í Seltjarnarneskirkju
Árlegt aðventukvöld verður í Sel-
tjarnarneskirkju kl. 20. Ólafur Þ.
Stephensen, ritstjóri 24 stunda, flyt-
ur hugvekju. Blásarasveit Tónlist-
arskóla Seltjarnarness leikur, Val-
geir Guðjónsson tónlistamaður og
Seltirningur syngur, Selkórinn flyt-
ur tvö lög og Kammerkór Seltjarn-
arneskirkju syngur jólalög. Ragn-
heiður Steindórsdóttir, leikkona og
Nesbúi, les ljóð og Guðmundur Ein-
arsson, formaður sóknarnefndar,
flytur ávarp. Boðið verður upp á
jólakaffi í safnaðarheimilinu í lok
aðventukvöldsins.
Jólatréð skreytt
í Fríkirkjunni
í Reykjavík
Fyrsta aðventuguðsþjónusta í Frí-
kirkjunni í Reykjavík verður kl. 14.
Þetta er guðsþjónusta fyrir alla fjöl-
skylduna í umsjá Hjartar Magna Jó-
hannssonar safnaðarprests. Kveikt
verður á fyrsta kerti aðventukrans-
ins, sungið og börnin hjálpa til við
að skreyta jólatréð. Anna Sigríður
Helgadóttir og Carl Möller leiða
tónlistina en auk þeirra kemur
heimsókn frá Mánakórnum sem
syngur nokkur lög undir stjórn Vio-
lettu Schmidt.
Kl. 11 verður fjölskylduguðsþjón-
usta. Yngri barnakór Breiðholts-
kirkju syngur ásamt hinum nýstofn-
aða Kór Breiðholtskirkju. Við
tendrum fyrsta kertið á aðventukr-
ansinum, börn setja upp líkan af
fjárhúsinu í Betlehem, sögð verður
saga sem á erindi bæði við börn og
fullorðna og brúður koma í heim-
sókn.
Aðventuhátíð
Breiðholtssafnaðar
Árleg aðventuhátíð Breiðholtssafn-
aðar verður síðan haldin kl. 20 og
verður dagskrá miðuð við alla fjöl-
skylduna. Börn tendra ljós á fyrsta
kertinu á aðventukransinum. Söng-
hópurinn Norðurljósin og Eldri
barnakór Breiðholtskirkju flytja
aðventu- og jólasöngva undir stjórn
organistans, Julian Edward Isaacs,
og Gunnhildar Höllu Baldursdóttur,
sem sömuleiðis syngur einsöng.
Fermingarbörn flytja helgileik og
Elín Elísabet Jóhannsdóttir, kenn-
ari og fræðslufulltrúi, flytur að-
ventuhugleiðingu. Hátíðinni lýkur
með helgistund við kertaljós. Á eftir
verður boðið upp á heitt súkkulaði
og smákökur í safnaðarheimili
kirkjunnar. Einnig munu ferming-
arbörn selja friðarkerti til styrktar
Hjálparstarfi kirkjunnar. Aðventu-
samkomurnar hafa löngum verið
miklar hátíðarstundir í safnaðarlíf-
inu og eru sóknarbúar og aðrir sem
áhuga hafa hvattir til að koma á at-
höfnina og hefja þannig jólaund-
irbúninginn.
Kvennakirkjan
í Háteigskirkju
Kvennakirkjan heldur aðventu-
messu í Háteigskirkju á sunnudag-
inn kl. 20.30. Jóhanna Vigdís Hjalta-
dóttir fréttakona flytur
aðventuhugleiðingu. Inga Backman
syngur einsöng og kynnir nýjan
geisladisk með lögum eftir Jakob
Hallgrímsson. Kór Kvennakirkj-
unnar leiðir söng á aðventu- og jóla-
lögum við undirleik Aðalheiðar
Þorsteinsdóttur. Á eftir verður
kaffi í safnaðarheimilinu.
Aðventuhátíð
fjölskyldunnar
í Hjallakirkju
Fyrsta sunnudag í aðventu verður
aðventuhátíð fjölskyldunnar í
Hjallakirkju kl. 17. Börn eru sér-
staklega velkomin til að taka þátt í
jóladagskrá með söngvum og sög-
um sem jólunum tengjast. Barnakór
úr Hjallaskóla kemur í heimsókn og
syngur undir stjórn Guðrúnar
Magnúsdóttur. Einnig verður sýnt
leikritið Vinátta sem Brúðuleik-
húsið flytur. Þá munu allir syngja
saman jólasöngva. Þau sem vilja
geta mætt fyrr, upp úr kl. 16, og
fengið kakó og piparkökur í safn-
aðarsal áður en hátíðin hefst.
Aðventukvöld
í Fella- og Hólakirkju
Guðsþjónusta í Fella- og Hólakirkju
kl. 11. Prestur sr. Svavar Stef-
ánsson og Ragnhildur Ásgeirsdóttir
djákni þjóna fyrir altari og sr. Guð-
laug Helga Ásgeirsdóttir predikar.
Konur úr kvenfélaginu Fjallkon-
urnar tendra ljós á fyrsta aðventu-
kertinu og lesa ritningartexta. Kór
Fella- og Hólakirkju leiðir almenn-
an safnaðarsöng undir stjórn Guð-
nýjar Einarsdóttur. Aðventukvöld
kirkjunnar hefst kl. 20. Börn úr
listasmiðjunni Litróf dansa jóladans
og syngja jólalög undir stjórn Ragn-
hildar Ásgeirsdóttur og kór Fella-
og Hólakirkju syngur og leiðir al-
mennan safnaðarsöng undir stjórn
Guðnýjar Einarsdóttur, kantors
kirkjunnar. Gry Ek Gunnarsson,
varaformaður Fellasóknar, hefur
hugvekju. Sr. Svavar Stefánsson og
sr. Guðmundur Karl Ágústsson
leiða stundina. Kirkjuverðir og
meðhjálparar eru Kristín Ingólfs-
dóttir og Jóhanna Freyja Björns-
dóttir.
Sænsk aðventu-
guðsþjónusta
í Dómkirkjunni
Messa er kl. 11 í Dómkirkjunni. Dr.
Einar Sigurbjörnsson prófessor
predikar og þjónar fyrir altari.
Dómkórinn syngur undir stjórn
Marteins H. Friðrikssonar. Sænsk
aðventuguðsþjónusta veður í Dóm-
kirkjunni kl. 14, í umsjá séra Önnu
Sigríðar Pálsdóttur. Stig A. Waden-
toft, Kristina Andersson og Masia
Hederman lesa ritningarlestra og
fara með bænir. Maria Cederholm
leikur á flautu og stjórnar kór. Séra
Anna Sigríður prédikar og Mar-
teinn H. Friðriksson leikur á orgel.
Aðventukvöld verður kl. 20.
Svandís Svavarsdóttir borg-
arfulltrúi flytur hugleiðingu. Bragi
Bergþórsson syngur einsöng við
undirleik Marteins H. Friðrikssonar
og Dómkórinn flytur fyrstu að-
ventu- og jólastef aðventunnar.
Fermingarbörn lesa ritningarorð.
Kirkjunefnd kvenna býður til kaffi-
veitinga í Safnaðarheimili kirkj-
unnar en kirkjunefndin hefur frá
upphafi haft veg og vanda af að-
ventukvöldunum í Dómkirkjunni.
Bandalag íslenskra skáta, sem er að
ljúka sérstöku afmælisári, kemur
með friðarljós sitt inn við upphaf
aðventukvöldsins.
Aðventukvöld
í Digraneskirkju
Aðventan hefst með tónlistarflutn-
ingi á vegum kórs Digraneskirkju
kl. 20. Á fyrri hluta dagskrár eru
jóla- og aðventulög en á seinni hlut-
anum kórverk eftir Vivaldi og
Bach. Stjórnandi kórsins er Kjartan
Kantötuguðsþjónusta
í Hjallakirkju
Við tónlistarguðsþjónustuna kl. 11
verður flutt kantatan Nú kemur
heimsins hjálparráð nr. 61 eftir J.S.
Bach. Félagar úr kór Hjallakirkju
syngja, einsöngvarar eru Kristín R.
Sigurðardóttir sópran, Árni J. Egg-
ertsson tenór og Gunnar Jónsson
bassi, Julian Hewlett leikur með á
orgelið. Einnig verður fluttur kant-
ötuþátturinn, Slá þú hjartans hörpu
strengi eftir Bach ásamt fleiri að-
ventusálmum. Prestur er séra Íris
Kristjánsdóttir og organisti og
söngstjóri Jón Ólafur Sigurðsson.
Aðventukvöld í Stóra-
Núpsprestakalli
Aðventukvöld sóknanna verður
haldið fyrsta sunnudag í aðventu, í
félagsheimilinu Brautarholti á
Skeiðum kl. 20. Bjarni Ármannsson
flytur hugleiðingu og kórfólk syng-
ur aðventusálma, skólabörn syngja
og spila. Ritningarlestur og bæn. Í
lokin er kaffi og piparkökur. Prest-
ur er Axel Árnason.
Upphaf aðventu
í Hallgrímskirkju
Upphaf aðventu í Hallgrímskirkju
hefst 1. desember kl. 12 með „Org-
elandakt“ þar sem Björn Steinar
Sólbergsson, organisti leikur á Kla-
is-orgel Hallgrímskirkju. Flutt
verða verk tengd aðventunni. Sr.
Birgir Ásgeirsson les úr ritningunni
og flytur bæn. Málverkasýning Arn-
gunnar Ýrar Gylfadóttur, sem ber
yfirskriftina „Land ég sá“, verður
opnuð í forkirkjunni kl. 14. Þar
verður um leið tekin í notkun ný lýs-
ing, sem er sérhönnuð fyrir slíkar
sýningar. Á sama tíma hefst jóla-
fundur Kvenfélags Hallgrímskirkju
í Suðursal.
Fyrsta sunnudag í aðventu verð-
ur hátíðarmessa kl. 11 þar sem bisk-
up Íslands predikar og þjónar fyrir
altari ásamt prestum og djákna
Hallgrímskirkju. Mótettukórinn
syngur undir stjórn Harðar Áskels-
sonar en organisti er Björn Steinar
Sólbergsson. Messuþjónar aðstoða.
Þessi messa er jafnframt upphaf
jólasöfnunar Hjálparstarfs kirkj-
unnar. Jólatónleikar Mótettukórs-
ins verða kl. 17. Sungin verður
frönsk jólatónlist og Betlehems-
söngvar. Gestur tónleikanna er
Gissur Páll Gissurarson tenór. Org-
anisti er Björn Steinar Sólbergsson.
Strengjasveit sem Guðný Guð-
mundsdóttir leiðir leikur með.
Stjórnandi á tónleikunum er Hörð-
ur Áskelsson, cantor og söng-
málastjóri þjóðkirkjunnar.
Aðventustund
í Þorlákskirkju
Ása Björk Ólafsdóttir, prestur í Frí-
kirkjunni í Reykjavík, er ræðumað-
ur á aðventustund í Þorlákskirkju
kl. 16. Eldri barnakór Grunnskóla
Þorlákshafnar syngur undir stjórn
Gests Áskelssonar og Esterar
Hjartardóttur og Lúðrasveit
Grunnskólans undir stjórn Gests
auk kirkjukórs Þorlákskirkju og
organista Hannesar Baldurssonar
og fermingarbarna sem lesa ritn-
ingalestra. Kirkjugestir halda svo
að ráðhúsi Þorlákshafnar þar sem
kveikt er á jólatré bæjarins við at-
höfn kl. 18.
Jólasamvera eldri borg-
ara í Laugarneskirkju
Aðventuhátíð kl. 20. Kristinn Ein-
arsson, formaður Þróttar, flytur
ræðu kvöldsins og aðventusálmar
óma í flutningi kórs Laugarnes-
kirkju. Barnakór Laugarness kem-
ur fram með stjórnanda sínum,
Huldu Guðrúnu Geirsdóttur, og
flytur jólasyrpu en fermingarbörn
vetrarins annast alla bænagjörð.
Sóknarnefndin býður súkkulaði og
smákökur í aðventukaffi í safn-
aðarheimilinu á eftir.
Árviss jólasamvera eldri borgara
í Laugarneskirkju verður fimmtu-
daginn 6. desember kl. 14. Gengið
verður inn um aðaldyr til kirkju þar
sem Þráinn Bertelsson mun lesa úr
nýrri bók sinni Englar dauðans og
nemendur úr Tónskóla Sigursveins
leika á hljóðfæri auk þess sem sókn-
arprestur hefur hugvekju og bæn.
Að stundinni lokinni eru kaffiveit-
ingar yfir í safnaðarheimlinu. Allt
fólk yfir sextugu hvatt til að fjöl-
menna.
Aðventukvöld
í Grensáskirkju
Aðventukvöld verður í Grens-
áskirkju kl. 20. Ræðumaður kvölds-
ins verður Þorsteinn Pálsson, rit-
stjóri og stjórnarformaður
Hjálparstarfs kirkjunnar. Kirkju-
kór Grensáskirku syngur undir
stjórn organistans, Árna Arinbjarn-
arsonar. Sr. Hreinn S. Hákonarson
fangaprestur kynnir englatréð. Að
dagskrá lokinni er boðið upp á
kaffiveitingar.
Aðventuhátíð
í Grafarvogskirkju
Barna- og fjölskylduguðsþjónusta
verður kl. 11 í Grafarvogskirkju.
Prestar séra Vigfús Þór Árnason og
séra Bjarni Þór Bjarnason. Barna-
kór Grafarvogskirkju flytur helgi-
leik eftir John Høby, stjórnandi:
Svava Kristín Ingólfsdóttir org-
anisti: Aðalheiður Þorsteinsdóttir.
Barnakórinn heldur kökubasar eft-
ir messu. Sunnudagaskóli verður í
Borgarholtsskóla kl. 11. Prestur er
séra Lena Rós Matthíasdóttir,
Krakkakórinn syngur, stjórnandi
og organisti: Gróa Hreinsdóttir.
Aðventuhátíð er kl. 20. Strengja-
sveit Tónskóla Grafarvogs leikur
frá kl. 19.30, ræðumaður er Guð-
laugur Þór Þórðarson heilbrigð-
isráðherra. Einar Már Guðmunds-
son rithöfundur les úr nýútkominni
bók sinni Rimlar hugans. Ferming-
arbörn flytja helgileik og kirkjukór
og unglingakór kirkjunnar syngja,
stjórnendur eru Hörður Bragason
og Svava Kristín Ingólfsdóttir. Ein-
söngvarar: Ragnar Bjarnason, Sig-
rún Hjálmtýsdóttir og Árni Þór
Lárusson, 12 ára, ásamt 14 manna
hljómsveit. Prestar safnaðarins
flytja bænarorð.
Jólafundur safnaðarfélags Graf-
arvogskirkju verður mánudaginn 3.
desember kl. 20. Edda Andrésdóttir
fréttamaður fjallar um og les upp
úr nýútkominni bók sinni, Í öðru
landi. Þorvaldur Halldórsson
söngvari flytur jólalög og Sigrún
Árnadóttir matreiðslumeistari sýn-
ir nokkrar tillögur að forréttum á
jólaborðið. „Jólalegar“ veitingar,
súkkulaði og smákökur.
Hátíðarguðsþjónusta
í Hafnarfjarðarkirkju
Í tilefni af fyrsta sunnudagi í að-
ventu verður hátíðarguðsþjónusta á
vegum Hafnarfjarðarkirkju kl. 11. Í
upphafi guðsþjónustunnar bera St.
Gildisskátar inn friðarljósið sem
loga mun um jólin í safnaðarheim-
ilinu, þar sem sjálf kirkjan er lokuð
vegna viðgerða. Eftir að kveikt hef-
ur verið á fyrsta ljósinu á aðven-
tukransinum verður barn borið til
skírnar að viðstöddum börnum úr
sunnudagaskólanum. Prestur er sr.
Þórhallur Heimisson og mun hann
predika út frá spurningunni: „Hvert
stefnir kirkjan?“ Eftir predikun
syngur Margrét Árnadóttir ein-
söng. Kantor er Guðmundur Sig-
urðsson en Barbörukór Hafn-
arfjarðarkirkju leiðir söng. Kórinn
var stofnaður á liðnu vori og ber
nafn st. Barböru en kapella hennar
fannst í hrauninu sunnan Hafn-
arfjarðar.
Upphaf aðventu
í Garðasókn
Hátíðarguðsþjónusta í Vídal-
ínskirkju í Garðabæ er kl. 11. Blás-
aranemendur úr Tónlistarskól-
anum í Garðabæ koma í heimsókn
og leika á hljóðfæri sín. Sr. Jóna
Hrönn Bolladóttir predikar og þjón-
ar fyrir altari ásamt Nönnu Guð-
rúnu Zoëga djákna. Sunnudaga-
skóli á sama tíma undir stjórn
æskulýðs- og forvarnafulltrúa
Garðasóknar. Félagar úr Skátafé-
laginu Vífli í Garðabæ bera frið-
arljós að altarinu í upphafi mess-
unnar. Lionsklúbbar Garðabæjar
reiða fram súpu og brauð að lokinni
messu í safnaðarheimilinu.
Aðventuguðsþjónusta með þátt-
töku kvenfélags Garðabæjar verður
í Garðakirkju kl.14. Helguð verða
ný altarisklæði eftir listakonuna
Herborgu Sigtryggsdóttur. Það er
kvenfélag Garðabæjar sem gefur
þetta listaverk til kirkjunnar. Auð-
ur Ingimarsdóttir kvenfélagskona
predikar og sr. Jóna Hrönn Bolla-
dóttir þjónar fyrir altari. Boðið
verður upp á akstur frá Vídal-
ínskirkju kl. 13.30, frá Jónshúsi kl.
13.35 og frá Hleinum kl. 13.45.
Ljósastund verður í Garða-
kirkjugarði kl. 16. Samveran hefst á
helgistund í Garðakirkju þar sem
sr. Jóna Hrönn Bolladóttir þjónar
fyrir altari og Jóhann Baldvinsson
organisti leiðir tónlistina. Að lok-
inni helgistund verður tendrað á
friðarljósum og þau borin á leiði
ástvina.
Vígsludagur
og aðventuhátíð
í Bústaðakirkju
Fyrsti sunnudagur í aðventu er
vígsludagur Bústaðakirkju og er
dagsins minnst í helgihaldi kirkj-
unnar. Fjölskyldumessa er kl. 11 og
er ein sameiginleg messa. Félagar
úr kór kirkjunnar syngja og ung-
menni leika á hljóðfæri, organisti er
Renata Ivan. Eftir messu er boðið
upp á vöfflukaffi og sjá karlar í
sóknarnefnd um framkvæmd þess.
Aðventukvöld verður kl. 20, tónlist í
flutningi kóra kirkjunnar, kór Bú-
staðakirkju, einsöngvarar og hljóð-
færaleikarar. Stjórnandi Renata Iv-
an. Jóhanna V. Þórhallsdóttir
stjórnar barna- og unglingakórum
ásamt einsöngvurum, bjöllum og
hljómsveitinni Pink Rosewood.
Ljósin tendruð. Einnig munu allir
kórarnir syngja saman að ógleymd-
um almennum söng safnaðarins.
Ræðumaður kvöldsins er Dagur B.
Eggertsson, borgarstjóri í Reykja-
vík. Ávarp í upphafi flytur Guðrún
Sigríður Jakobsdóttir, formaður
sóknarnefndar. Í lok athafnarinnar
verða ljósin tendruð. Pálmi Matt-
híasson.
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Þorlákskirkja, Þorlákshöfn.