Morgunblaðið - 01.12.2007, Qupperneq 63
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2007 63
Þvert ofan í spár um andlátgeisladisksins virðist hannlifa góðu lífi hér á landi ef
bornar eru saman tölur um útgáfu
á milli ára. Hingað inn á blaðið bár-
ust til að mynda tæplega 140 ís-
lenskar plötur á síðasta ári, og
verða þær álíka margar þetta árið –
137 eru komnar og enn þrjár vikur
til jóla.
Tuttugu fyrirtæki gefa út þettaárið, tíu færri en á síðasta ári,
en stærstan hlutann gefa lista-
mennirnir sjálfir út, tæplega sjötíu
plötur, sem er hærra hlutfall en á
síðasta ári þegar fimmtíu listamenn
eða hljómsveitir gáfu út sjálfar.
Skýringar á breyttu útgáfu-mynstri er að hluta að leita í
því að á síðasta ári gáfu 12 tónar út
tuttugu plötur, sumar í samvinnu
við listamennina, en ekki nema fjór-
ar plötur að þessu sinni. Sena send-
ir líka frá sér eitthvað færri titla að
þessu sinni, en Smekkleysa ívið
fleiri, svo stærstu fyrirtækin séu
nefnd.
Fleiri ástæður má tína til. Til aðmynda er auðveldara fyrir
einstaklinga að annast alla þætti út-
gáfunnar, taka tónlistina upp
heimavið, í æfingahúsnæði eða
heimasmíðuðu hljóðveri, hljóð-
blanda og gera frumeintak, hanna
umslag og síðan brenna sjálfir eða
láta framleiða ytra. Margir kjósa
því að gera allt sjálfir og eiga fyrir
vikið allt sjálfir, allan útgáfurétt,
og geta gert við upptökurnar það
sem þeir vilja, til að mynda samið
við erlend fyrirtæki um útgáfu.
Samkvæmt heimildum mínum erplötusala hér á landi áþekk og
á síðasta ári þegar litið er til ís-
lenskrar tónlistar, jafnvel meiri,
þótt ekki séu öll kurl komin til graf-
ar, nema hvað. (Þess má geta í
þessu sambandi að sala á erlendri
tónlist er áþekk og á síðasta ári.)
Plötuútgáfa hér á landi hefurekki reynst gróðabisness í
gegnum árin þótt dæmi séu um
plötur sem selst hafa í bílförmum
og skilað góðum hagnaði. Allajafna
reyna fyrirtæki að gefa út sem
flesta söluvænlega titla, vona síðan
að nógu margir seljist nógu vel til
að þeir skili arði svo hægt sé að
reka fyrirtækið með hagnaði og
borga hallann af slæmri sölu.
Tónlistarmenn hafa væntanlegaflestir annað í huga en hagnað
þegar þeir gefa út sínar plötur
sjálfir, þótt eflaust ætli allir að hafa
upp í kostnað. Sá kostnaður er og
mun minni hjá einyrkja en hjá stór-
fyrirtæki þar sem meiri markaðs-
kostnaður kemur eiginlega af sjálfu
sér.
Þeim íslensku tónlistarmönnumhefur fjölgað ört undanfarin
ár sem náð hafa að hasla sér völl á
erlendum vettvangi og geta fyrir
vikið lifað af tónlistinni þótt kaupið
sé ekki hátt. Margir líta þeir enn á
Ísland sem sinn heimamarkað og
treysta á að ná kostnaði af upp-
tökum inn hér heima, til að mynda
með því að selja plöturnar sjálfir
eða með því að semja við íslenskt
fyrirtæki um útgáfu og ná sam-
komulagi um fyrirframgreiðslu
sem dekkað getur upptökukostnað.
Þeim finnst síðan mörgum í fínu
lagi að semja við erlendan útgef-
anda um að sá fái útgáfuréttinn
frítt, enda finnst þeim þá meira í
húfi.
Einyrkjum fjölgar í plötuútgáfu
AF LISTUM
Árni Matthíasson
» Plötusala hér á landier áþekk og á síðasta
ári þegar litið er til ís-
lenskrar tónlistar, jafn-
vel meiri.
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
Dugnaður Magnús Þór Jónsson gerir sitt til að halda íslenskri plötuútgáfu lifandi – gaf út tvær plötur á árinu.
arnim@mbl.is
Aðventusýningin
Leitin að jólunum
Eftir Þorvald Þorsteinsson með tónlist eftir Árna Egilsson
Leikstjóri Þórhallur Sigurðsson
Barnasýning ársins 2006
Í dag 1/12 kl. 13.00 og 14.30 uppselt
2/12 kl. 11 uppselt
8/12 kl. 13.30 og 14.30 uppselt
9/12 kl. 11 uppselt
15/12 kl. 13.30 og 14.30 örfá sæti laus
16/12 kl. 13.30 og 14.30 uppselt
22/12 kl. 13.30 og 14.30 örfá sæti laus
23/12 kl. 13.30 og 14.30
Miðasala í síma 551 1200 og á www.leikhusid.is