Fréttablaðið - 07.04.2009, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 07.04.2009, Blaðsíða 1
ÞRIÐJUDAGUR 7. apríl 2009 — 84. tölublað — 9. árgangur Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447 TÓLF ÞÚSUND manns, eða sex þúsund pör, hafa frá árinu 1996 tekið þátt í hjónanámskeiðum séra Þórhalls Heimissonar. Námskeiðin hafa verið fastur liður í starfi Hafnarfjarðarkirkju í öll þessi ár. Hjónanámskeiðin eru ókeypis, sem og viðtölin sem þeim fylgja. Námskeiðin hefjast á ný í Hafnarfjarðarkirkju í september á komandi hausti. Magnús Samúelsson eða MSam ei Kraftajötnar læra að pósa Magnús Samúelsson tekur þátt í Íslandsmeistaramóti í vaxtarrækt og fitness á Akureyri um páskana Þa etur hann kappi við marga af helstu kraftajötnum Íslands og telur sig eiga óð Maggi hefur undanfarna mánuði verið önnum kafinn við kennslu og undirbúning fyrir ýmis vaxtarræktarrmót. Fram undan er þátttaka í Íslandsmótinu í vaxtarrækt og fitness á Akureyri, mót í Danmörku 18. apríl og alþjóðlegt Grand Prix mót í Reykjavík 25. apríl. Svo heldur hann námskeið fyrir byrjendur í nóvember. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN 466 1016www.ektafiskur.is frumkvöðlafyrirtæki ársins  - fiskvinnsla frá árinu  - Lifið heil www.lyfja.is LÍFOLÍA er ilmandi og djúpvirk fyrir vöðva og liði. BIRKIOLÍA mýkir og græðir þurra húð og exem. www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25 Rafknúnir hæginda- stólar • standa upp • Einfaldar stillingar og fjölbreytt úrval VEÐRIÐ Í DAG MAGNÚS SAMÚELSSON Kann listina að pósa • heilsa ALLT Í MIÐJU BLAÐSINS Lifir í núinu Andrea Jónsdóttir dagskrár gerðar- maður heldur upp á sextugs- afmælið með pompi og prakt. TÍMAMÓT 24 Hebbi slær taktinn Spilar í spinning-tíma í Sporthúsinu í Kópavogi. FÓLK 42 Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI ÞÓRARINN LEIFSSON Ósvífinn þjófur stal tölvu teiknarans Nánast fyrir augum eigandans FÓLK 42 FÓLK „Þetta er vara sem Pepsi framleiðir og auglýsingin verður væntanlega sýnd í Mið-Evrópu,“ segir Þór hallur Sævarsson aug- lýsingaleik- stjóri. Hann þeysist heims- hornanna á milli við að leikstýra aug- lýsingum fyrir stórfyrirtæki. Hann var ný verið stadd- ur í Ölpunum að taka upp tannkremsauglýs- ingu fyrir þýska snyrtivöruris- ann Henkel. Hann hefur einnig gert auglýsingar fyrir T-Mobile og Peugeot. Þá vann Þórhallur nýverið til verðlauna á stórri auglýsinga- hátíð í slóvensku borginni Portoroz. - fgg / sjá síðu 32 Þórhallur Sævarsson: Leikstýrir aug- lýsingu í Chile Meiri þægindi og aukið geymsluþol Nú er MS rjóminn í ½ l umbúðum með tappa. 12 daga geymslu-þol H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 0 9 – 0 4 8 7 Sendu persónul eg fermingarskeyt i á www.postur.is VERÐ 890 kr. H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA – 0 9 – 0 4 1 5 ALÞINGI Nær öruggt er að Alþingi mun koma saman eftir páska, segir Lúðvík Bergvinsson, þingflokks- formaður Samfylkingar innar. Hann segir að jafnvel þótt sjálf- stæðismenn létu þegar af málþófi sínu væri tíminn til að koma nauð- synlegum málum í höfn í dag og á morgun sennilega of naumur. Átján dagar eru nú til kosninga og hefur þing aldrei starfað eins nálægt kjördegi og nú. Styst hefur liðið frá þingslitum til kosn- inga árið 1991, þá 31 dagur. Verði þingað eftir páska eins og allt stefnir í kemur þing saman þriðju- daginn 14. apríl, ellefu dögum fyrir kjördag. Sjálfstæðismenn héldu upp- teknum hætti á þingi í gær og streymdu í ræðustól í umræðum um breytingar á stjórnarskránni. Þeir, ásamt Kristni H. Gunnars- syni, standa einir gegn breytingar- tillögum á stjórnarskránni og vilja afgreiða önnur mál áður en hald- ið verður áfram umræðum um þær. Það vilja þingmenn annarra flokka ekki. Sautján sjálfstæðis- menn voru enn á mælendaskrá á ellefta tímanum í gærkvöldi. Tillaga Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur um að umræða um álver í Helguvík færðist fram fyrir umræðu um stjórnarskrár- breytingarnar var felld á fundi þingflokksformanna. Sjálfstæðismenn lögðu til síð- degis í gær að hlé yrði gert á þing- fundi um kvöldmatarleytið svo þingmenn gætu fylgst með fram- boðsfundi RÚV á Ísafirði. Mörður Árnason, varaþingmaður Sam- fylkingarinnar, sagðist aldrei hafa heyrt aðra eins hugmynd. „Hættum nú þessum kjánaskap, góðir þingmenn,“ sagði Mörður. Þingflokksformenn annarra flokka en Sjálfstæðisflokks tala um að sjálfstæðismenn haldi þinginu í gíslingu með því að endur taka í sífellu sömu ræðuna. Sjálfstæðismenn segja meirihlut- ann aftur á móti standa í vegi fyrir því að þjóðþrifamál komist á dag- skrá með því að vilja ekki hvika frá því að taka stjórnarskrár- breytingarnar fyrir fyrst. Siv Friðleifsdóttir segist vona að sjálfstæðismenn sjái fljótt að sér og leyfi atkvæðagreiðslu um málið að fara fram svo ekki þurfi að þinga allt fram að kjördegi. - sh / sjá síðu 6 Alþingi hefur aldrei áður fundað jafn nærri kjördegi Alþingi hefur aldrei starfað eins nærri kosningum og nú. Óvíst er hvenær þingstörfum lýkur en nokkurn veginn er útséð um að það verði fyrir páska. Sjálfstæðismenn ræddu enn stjórnarskrármálið fram á nótt. 7 2 6 6 8 VÍÐA ÚRKOMA Í dag verður hæg austlæg átt, en strekkingur nyrst og vestast á Vestfjörðum. Rigning eða skúrir um miðjan dag í flest- um landshlutum en þó slydda á Vestfjörðum. Hiti 1-10 stig. VEÐUR 4 ÞÓRHALLUR SÆVARSSON Hrollur betri en Youtube Alexander Kárason hefur opnað myndbanda- vefsíðu fyrir áhugafólk um jaðarsport. FÓLK 34 NÁTTÚRUHAMFARIR Fjöldi björgunar- fólks leitaði að lífsmarki með hjálp flóðljósa í gærkvöldi eftir að harð- ur jarðskjálfti reið yfir Mið-Ítalíu í fyrrinótt. Í gærkvöldi var talið að 150 hið minnsta hefðu farist í skjálftanum, sem er sá mann- skæðasti í landinu í þrjá áratugi. Auk þess var tuga fólks enn sakn- að, um 1.500 slasaðir og yfir 50.000 eru heimilislausir. Jarðskjálftinn, sem mældist 6,3 á Richter, átti upptök sín í fjalla- héraðinu Abruzzo, um hundrað kílómetra norðaustur af Róm. Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, lýsti yfir neyðarástandi og björgunarsveitir hvaðanæva að á Ítalíu voru kallaðar til hjálpar. Suðurlandsskjálftarnir sem riðu yfir 17. og 21. júní árið 2000 mæld- ust 6,5 og 6,6 á Richter. Alþjóða- björgunarsveit Slysavarnafélagsins Landsbjargar var sett í vaktstöðu vegna skjálftans á Ítalíu í fyrri- nótt, sem er lægsta stig viðbragðs sem skilgreint er. Um kvöldmatar- leytið í gær var sveitin svo kölluð úr vaktstöðu, þar sem sýnt þótti að björgunarliðsafli Ítala væri nægjanlegur. Gísli Rafn Ólafsson, stjórnandi Alþjóðabjörgunar sveitar- innar, segir Ítala hafa yfir að búa góðu viðbragðsteymi. „Um kvöld- mat fréttum við að 1.640 björgunar- menn væru komnir á staðinn. Við fylgjumst þó áfram með stöðunni ef eitthvað skyldi breytast,“ segir Gísli. - sbt, kg / sjá síðu 4 Að minnsta kosti 150 létu lífið í mannskæðasta jarðskjálfta Ítalíu í þrjá áratugi: Leitað að lífsmarki í rústum MANNSKÆÐUR JARÐSKJÁLFTI Björgunarfólk leitaði enn í gærkvöldi með aðstoð fljóðljósa að lífsmarki í rústum. Mannskæðasti jarðskjálfti á Ítalíu í þrjá áratugi reið yfir í fyrrinótt og er talið að 150 hið minnsta hafi farist í skjálftanum. NORDICPHOTOS/AFP Grindavík vann Staðan í einvígi Grindavíkur og KR er 1-1 eftir sigur fyrrnefnda liðsins á heimavelli í gær. ÍÞRÓTTIR 38

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.