Fréttablaðið - 07.04.2009, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 07.04.2009, Blaðsíða 18
18 7. apríl 2009 ÞRIÐJUDAGUR Umsjón: nánar á visir.is KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf] Fjöldi viðskipta: 20 Velta: 29 milljónir OMX ÍSLAND 15 OMX ÍSLAND 6 215 +0,23% 634 -0,04% MESTA HÆKKUN FØROYA BANKI 0,40% MESTA LÆKKUN MAREL FOOD SYS. -2,25% ÖSSUR -1,20% HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Alfesca 3,30 +0,00% ... Atlantic Airways 171,00 +0,00% ... Atlantic Petroleum 251,00 +0,00% ... Bakkavör 1,26 +0,00% ... Eik Banki 91,50 +0,00 ... Eimskipafélagið 1,00 +0,00% ... Føroya Banki 126,50 +0,40% ... Icelandair Group 5,00 +0,00% ... Marel Food Systems 41,35 -2,25% ... Össur 90,50 -1,20% Fýkur í skattaskjólin Á hádegi í dag hefst kynningarfundur Efna- hags- og framfarastofnunarinnar (OECD) og Evrópusambandsins (ESB) um skattamál og skattaskjól. Fundurinn er í höfuðstöðvum OECD í París í Frakklandi. Þar verða kynntar niðurstöður viðræðna László Kovács, sem fer með skatta- og tollamál í framkvæmdastjórn ESB og Angels Gurría, framkvæmdastjóra OECD. Fundur þeirra var settur á dagskrá í kjölfar stefnumörkunar á sviði skattamála á fundi helstu iðnríkja (G-20 fundinum) í Lundúnum sem haldinn var 7. apríl. Samkvæmt tilkynn- ingu stendur til að kynna áframhaldandi starf OECD og ESB á sviði skattheimtu og hvernig brugðist skuli við starfsemi skattaskjóla. Mál sem snertir alla Hvernig staðið er undir samneyslu þjóða er vitanlega mál sem snertir alla landsmenn og því ekki óeðlilegt að þegar stofnanir á borð við Evrópusambandið og OECD taka sig saman um að loka á svonefnd skattaskjól þá veki það nokkra athygli. Líklegt verður samt að teljast að þeir sem á annað borð eru með umsvif af því tagi að þeir vilji nýta sér þessi skattaskjól hafi ráð á því að mæta í eigin persónu á kynn- ingarfundinn við rue André Pascal í París. (Þeir efnaminni í þeim hópi geta tekið neðanjarðarlestina, leið níu, að Rue de la Pompe, eða strætó númer 63 að La Muette.) Vilji sauðsvartur almúginn fylgj- ast með því í beinni hvaða ákvarðanir hafa verið teknar á fundinum, þá verður hann í beinni útsendingu á netinu á slóð- inni: http://interwebcast.oecd.org/con- ferences/6_475/en/video/video.wvx. Peningaskápurinn ... Níu lönd á norðurslóðum hafa tekið höndum saman um að bjóða verslunareigendum í fámennum byggðar lögum ráðgjöf og fræðslu til að styrkja stöðu þeirra. Í til- kynningu Rannsóknaseturs versl- unarinnar við Háskólann á Bifröst (RSV) kemur fram að RSV hafi átt frumkvæði að verkefninu og stjórni því hér á landi í samstarfi við Byggðastofn- un og nokkur atvinnuþróun- arfélög. Verk- efnið styrkja Norðurslóða- áætlunin (NPP) og Norður-Atl- antshafsnefnd- in (NORA). „Önnur lönd sem taka þátt í verkefninu eru Finnland, Svíþjóð, Noregur, Írland, Norður-Írland, Skotland, Færeyjar og Grænland. Í öllum þessum löndum eru sambærileg- ar aðstæður hvað varðar dreifð- ar byggðir og það lykilhlutverk sem dreifbýlisverslun gegnir til að viðhalda byggðinni. Alþekkt er í öllum þessum löndum að þegar verslunin hverfur úr byggðar- laginu flyst fólkið einnig. Víða er þessum verslunum því haldið gangandi með opinberum stuðn- ingi og því er mikilvægt að styðja þær til sjálfbærni,“ segir Emil B. Karlsson, forstöðumaður RSV, í tilkynningu. Fram kemur að einkum verði horft til þess að nýta hagræðingu sem hlýst af því að sameina versl- un við ýmsa aðra þjónustuþætti sem íbúar þurfi á að halda, svo sem bensínafgreiðslu, bankaþjón- ustu, veitingaþjónustu og fleira. „Þá verður tekið tillit til hagræð- ingar í vöruflutningum, skipulags birgðahalds og ýmissa annarra þátta.“ Byrjað verður á þarfagreiningu meðal verslana í öllum þátttöku- löndunum og síðan verður ráðgjaf- arstarfið mótað. - óká EMIL B. KARLSSON Samstarf um ráðgjöf til verslana í dreifbýli AUSTUR Á HÉRAÐI Samkaup keyptu nýverið rekstur Kaupfélags Héraðsbúa á Austurlandi, en rekstur þess síðarnefnda var kominn í þrot. MYND/KHB Stýrivextir lækka um eitt prósentu- stig á aukavaxtaákvörðunardegi Seðlabankans á morgun, gangi eftir spá Greiningar Íslandsbanka. „Vaxtaákvörðunin í vikunni er aukavaxtaákvörðunardagur en næsti vaxtaákvörðunardagur sam- kvæmt áætlun bankans frá því í upphafi árs er 7. maí næstkomandi. Vegna óvissu um horfur í hagkerf- inu og samspil vaxta og gengis taldi nefndin á síðasta fundi sínum rétt að fjölga vaxtaákvörðunarfundum sínum. Verður vaxtaákvörðun því í fyrstu viku hvers mánaðar frá apríl til júlí og í annarri viku ágústmán- aðar,“ segir í umfjöllun bankans. Bent er á að frá vaxtaákvörðun- inni í mars hafi verðbólga hjaðnað úr 17,6 prósentum í 15,2 prósent, en gengi krónunnar um leið gefið eftir. „Framundan er enn meiri lækkun verðbólgunnar enda slakinn mikill og vaxandi í hagkerfinu. Atvinnu- leysi hefur færst í aukana frá því í mars og framleiðsluslakinn er orðinn sýnilegri. Allt þetta ætti að hvetja nefndina til að lækka vexti Seðlabankans enn frekar,“ segir í greiningunni, en um leið bent á að veiking krónunnar kunni að draga úr vilja nefndarinnar til að lækka vexti. „Í fundargerð pen- ingastefnunefndarinnar frá síðasta fundi nefndarinnar í mars segir að þótt verðbólgumarkmiðið sé áfram langtímamarkmið peningastefn- unnar sé markið hennar við núver- andi aðstæður að tryggja gengis- stöðugleika.“ - óká Búast við lækkun um eitt prósentustig SETTUR SEÐLABANKASTJÓRI Svein Harald Øygard seðlabankastjóri er formaður peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands. Nefndin fundar nú vegna ákvörðunar um stýrivexti sem kynnt verður í fyrramálið. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Fjármálaeftirlitið (FME) hefur lækkað verð í yfirtökutilboði BBR í Exista um 4,60 krónur, niður í tvo aura á hlut. Beiðni þar að lútandi barst FME 6. janúar síðastliðinn. „Aðstæður Exista hf. breyttust augljóslega til hins verra í kjölfar hruns Kaupþings banka hf. o.fl. Þá var hlutafé félagsins nær fimm- faldað þann 8. desember þannig að eldri hlutir og verðmæti þeirra þynntust verulega. Þar sem lokað var fyrir viðskipti með fjármála- gerninga félagsins frá 2. október og þar til tilboðsskylda stofnað- ist, lækkaði opinbert markaðsvirði bréfanna ekki þrátt fyrir þessar miklu breytingar,“ segir í tilkynn- ingu FME. - óká Yfirtökutilboð lækkað í 2 aura Gildi - lífeyrissjóður Sætúni 1 105 Reykjavík Sími 515 4700 www.gildi.is gildi@gildi.is Á R S F U N D U R Ársfundur Gildis-lífeyrissjóðs verður haldinn á Grand Hótel, Reykjavík þriðjudaginn 21. apríl kl. 17.00. Dagskrá fundarins: 1. Venjuleg ársfundarstörf. 2. Tillaga til breytinga á samþykktum sjóðsins. 3. Tillaga um lækkun réttinda. 4. Önnur mál, löglega upp borin. Tillögurnar munu liggja frammi á skrifstofu sjóðsins og birtar á heimasíðunni, www.gildi.is tveimur vikum fyrir ársfundinn. Allir sjóðfélagar eiga rétt til setu á ársfundinum með málfrelsi og tillögurétti. Sérstakt fulltrúaráð, að jöfnu skipað fulltrúum stéttarfélaga og samtaka atvinnurekenda sem að sjóðnum standa, fer með atkvæði á ársfundinum. Reykjavík 6. apríl 2009, lífeyrissjóður Stjórn Gildis-lífeyrissjóðs. 2 0 0 9 Landsbankinn hefur komið til móts við gagnrýnendur verðtryggingarinnar og býður nú óverðtryggð fast- eignalán með sjö prósenta vöxtum. „Nú verða neytendur að hugsa sjálf- ir og taka sjálfstæða og upplýsta ákvörðun,“ segir Ásmundur Stef- ánsson, bankastjóri Landsbankans, um óverðtryggð íbúðalán til allt að fjörutíu ára sem bankinn kynnti í gær. Hann segir þetta nýjan kost sem bankinn bjóði upp á og geti hugnast þeim sem séu með verð- tryggð fasteignalán og vilji skoða aðra möguleika eða með fasteigna- lán í erlendri mynt og vilji skipta því yfir í lán í íslenskum krónum. Með möguleikanum bregst bank- inn við gagnrýni á verðtrygging- una með auknum valmöguleikum, að sögn bankastjórans. Vextir lánanna eru sjö prósent og taka mið af stýrivöxtum Seðla- bankans. Vextir þar standa í sautj- án prósentum og gerir Lands- bankinn ráð fyrir því að þeir muni lækka hratt á næstu mánuðum. „Við gerum ráð fyrir því að vext- irnir verði komnir niður fyrir sjö prósent um mitt næsta ár,“ segir Ásmundur og bendir á að bankinn sé tilbúinn til að taka áhættuna. Þetta nýja lánaform Landsbank- ans er ólíkt öðrum að því leytinu til að bankinn býður greiðsluaðlögun fram í maí á þarnæsta ári. Aðlög- unartíminn bætir tveimur árum við lánstímann. Á aðlögunartímanum greiða viðskiptavinir ekki afborganir af höfuð stól og ekki hærri vexti en sjö prósent. Mismunurinn kemur til hækkunar á höfuðstól lánsins og greiðist niður á afborgunartíma- bilinu. Mögulegt er að velja á milli þess að greiða jafnar afborganir eða inn á höfuðstól. Seinni mögu- leikinn felur í sér að viðskiptavin- ir geta greitt lánið hraðar niður en ella. jonab@markadurinn.is Landsbankinn býður óverðtryggð fasteignalán ÁSMUNDUR STEFÁNSSON Bankastjóri Landsbankans segir mikilvægt að fólk vegi og meti kosti þess að taka óverðtryggð lán umfram þá möguleika sem standa til boða. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.