Fréttablaðið - 07.04.2009, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 07.04.2009, Blaðsíða 13
ÞRIÐJUDAGUR 7. apríl 2009 13 LONDON, AP Björgunarmenn hafa fundið sjö þeirra sem fórust með breskri þyrlu sem fórst undan ströndum Skotlands á miðviku- dag. Leit verður framhaldið en fimmtán manna áhöfn þyrlunnar fórst í slysinu. Tvö líkanna sem hafa fundist eru talin vera af flugmanni þyrlunnar og aðstoðar- flugmanni. Sólríkt og gott veður var á mið- þegar þyrlan hrapaði en hún var í flugi fyrir olíufyrirtækið BP. - rat Fimmtán fórust í þyrluslysi: Fundu sjö lík í Norðursjó VÍMUEFNI Þrátt fyrir að lögregla hafi lokað tugum kannabisrækt- ana undanfarnar vikur og lagt hald á þúsundir plantna stendur götuverð á hassi og maríjúana nokkurn veginn í stað á milli mánaða, samkvæmt nýrri verð- könnun SÁÁ. Verð á kannabis- efnum hefur verið tiltölulega stöðugt frá áramótum. Verð á amfetamíni rýkur hins vegar upp um tæplega fjórðung á milli mánaða og hefur aldrei verið hærra síðan kannanir hóf- ust. Grammið kostar nú tæplega 7.000 krónur. Kókaín lækkar í verði, en verðið á því var óvenju- hátt í síðasta mánuði. - sh Kannabisverð stendur í stað: Amfetamínverð rýkur upp SAMFÉLAGSMÁL Tæplega tvö þús- und manns dóu hérlendis í fyrra, 981 karl og 1.005 konur. Dánar- tíðni var því 6,2 látnir á hverja þúsund íbúa, samkvæmt upplýs- ingum Hagstofu Íslands. Lífslíkur karla hafa batnað á undanförnum árum. Íslenskir karlar geta vænst þess að verða 79,6 ára en konur 83 ára. Íslenskir karlar verða því elstir í Evrópu. Elstir verða utan Íslands karlar í Sviss, 79,2 ára, og Liechtenstein, 78,9 ára. Stysta meðalævi karla í Evrópu er í Rússlandi, 61,5 ár, og Úkraínu, 62,5 ár. Lífslíkur íslenskra kvenna hafa breyst. Elstar evrópskra kvenna verða konur á Spáni og í Frakk- landi, 84,4 ára að meðaltali, en íslenskar konur eru í sjötta sæti. Minnstar lífslíkur hafa konur í Moldóvu, 72,4 ár, og í Rússlandi, 73,9 ár. - ghs Lífslíkur í Evrópu: Íslenskir karlar allra karla elstir JERÚSALEM, AP Hundruð kristinna manna sem báru pálmablöð settu svip sinn á götur Jerúsalem- borgar á pálmasunnudag, þegar þeir minntust komu Jesú til borgarinnar helgu fyrir tvö þús- und árum. Kaþólskir pílagrímar, þjónar kirkjunnar og leikmenn ýmissa kirkjudeilda sóttu messu við Kirkju hinnar heilögu grafhvelf- ingar, þar sem Jesús er talinn hafa verið krossfestur og risið upp frá dauðum. Eftir messuna gengu pílagrímarnir inn í borg- ina frá Ólífufjalli, sömu leið og Jesús er talinn á sínum tíma hafa riðið inn í borgina á asna. - rat Trúaðir í Jerúsalem: Pálmadags- ganga kristinna FRÓMUR Í FÓTSPOR KRISTS Munkur heldur á pálmagrein í göngunni frá Ólífufjalli. FRÉTTABLAÐIÐ/AP DÓMSMÁL Skógræktarfélag Rangæinga á ekki veiðirétt í Eystri Rangá og Fiská vegna jarðar- innar Kotvalla í Rangárþingi eystra. Þetta var niðurstaða dóms Héraðsdóms Suðurlands, sem kveðinn var upp í gær. Karl Axelsson, lögmaður Skógræktarfélagsins, segir líklegt að málinu verði áfrýjað til Hæstaréttar. Taldi Skógræktarfélagið að það ætti veiði- rétt í Eystri Rangá vegna jarðarinnar Kot- valla, sem það fékk að gjöf frá ríkinu á níunda áratug síðustu aldar. Byggði félagið kröfu sína á því að Kotvellir væru á svokallaðri Vallartorfu en eigendur hennar eiga um fjór- tán prósenta hlut í veiðirétt Eystri Rangár og fengu fjórtán milljóna króna arð árið 2006. Héraðsdómur hafnaði kröfu skógræktar- félagsins. Í niðurstöðu dómsins segir að hugsanlegt sé að Skógræktarfélagið eigi rétt á arðgreiðslum af veiðunum án þess að til veiðiréttar hafi stofnast. Er þar vísað til þess að árið 1999 var samþykkt arðskrá sem var staðfest af landbúnaðarráðherra og birt í Stjórnartíðind- um. Hinir stefndu telja hins vegar að sú arð- skrá hafi ekki verið í samræmi við arðskrá sem var borin upp og samþykkt á aðalfundi Veiðifélags Rangæinga árið 1999. Þar sem Skógræktarfélagið krafðist einungis viður- kenningar á veiðirétti tók dómurinn ekki á þessu atriði. - th Héraðsdómur Suðurlands dæmir í máli Skógræktarfélags Rangæinga: Eiga ekki veiðirétt í Rangá ÚR RANGÁNUM Rangárnar eru meðal gjöfulustu laxveiðiáa landsins. Í Eystri Rangá veiddust ríflega sjö þúsund laxar í fyrra. Komdu í heimsóknMán til mið 10–18.30, fi m 10–21, fös 10–19, lau 10–18, sun 13–18 | Sími 517 9000 | www.kringlan.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.