Fréttablaðið - 07.04.2009, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 07.04.2009, Blaðsíða 8
8 7. apríl 2009 ÞRIÐJUDAGUR 1. Heima hjá hverjum voru sjö mótmælendur handteknir á sunnudag? 2. Hvað heitir ný mynd Júlíus- ar Kemp, sem hætt hefur verið við að frumsýna á Cannes? 3. Hvaða táningur tryggði Manchester United sigur á Aston Villa um helgina? SVÖRIN ERU Á SÍÐU 42 DÓMSMÁL Jóhannes Þór Ólafsson, meindýraeyðir á Selfossi, hefur höfðað mál gegn sveitarfélaginu Árborg og Ræktunarsambandi Flóa og Skeiða. Jóhannes krefst bóta vegna tjóns sem hann segir að hafi orðið á iðnaðarhúsnæði Mein- dýravarna Suðurlands þegar sprengt var fyrir áveituskurði við Gagnheiði á Selfossi. Jóhannes segir að hitalagnir séu hættar að virka, sprungur séu í gólfi og að það leki meðfram gluggum. Auk ofangreindrar málsóknar undirbýr Jóhannes Þór mál gegn Viðlagasjóði vegna tjóns sem varð á klæðningu íbúðar- húss hans í jarðskjálftanum í fyrra. - th Héraðsdómur Suðurlands: Meindýraeyðir höfðar mál og krefst bóta                                               !    " #        " $  "     "#      $    %  &  %  '( ") #     *+ ( #  "+, ( #  (    "       "   # - ( ./0,1  /  ++,2,,,/34++,2,0,/555           %  &  %   678  9 *,,.  %  :     ; ' 679 *,,+  <=7>?   #  %  &  % <('$  !      "      '    @(     >  A      BC,.1 ""  D              D7  "       # '     8E7   7! '(                  %  &  % <=7 3 "  '  # 7  A>  '  # 6  A>' '  # 3 '  # 8E    '( :  '  (     "  & = ;  7 F  G 6   , I , 2 ÖRYGGISMÁL Aðeins ein þyrluáhöfn verður á vakt í tuttugu daga í hverjum mánuði eftir að uppsagnir þriggja flugmanna taka gildi í sumar og haust. Þessa tuttugu daga getur Landhelgisgæslan (LHG) ekki sinnt neyðarköllum skipa sem eru lengra en tuttugu sjómílur frá landi. Sigurður Heiðar Wiium, yfir- flugstjóri hjá LHG, segir björgunar- getu flugrekstrardeildar LHG skerðast verulega vegna uppsagn- anna sem boðaðar hafa verið, en um þrjá yngstu flugmenn LHG er að ræða. „Það er verið að sníða stakkinn afar þröngt og eftir að uppsagnirnar taka gildi má ekk- ert út af bregða. Þetta þýðir að tvo þriðju af tímanum erum við bara með eina áhöfn á vakt.“ Vaktakerfi flugmanna er þannig byggt upp að ein þyrluáhöfn verður á vakt í átta daga af hverjum tólf. Þá fjóra daga sem hægt er að senda tvær þyrlur er ekki tekið tillit til þess möguleika að tvær þyrlur verði frá vegna bilana eða ann- arra orsaka. Eins og Frétta- blaðið sagði frá í gær hefur sú staða komið upp í níu daga á þessu ári. Þá er ótalið að þyrlur sinna einnig eftirliti á hafsvæðinu við Ísland, en það dregst einnig saman. Flugáhafnir LHG hafa ályktað um öryggismál sín vegna breyttra rekstraraðstæðna. Kemur fram að ekki verði vikið frá þeim öryggis- reglum sem starfað hefur verið eftir. Því verður ekki flogið lengra en tuttugu mílur á haf út þegar aðeins ein þyrla kemst í loftið. Hins vegar er hægt að fara í björgunar- flug yfir landi í öllum tilvikum. Þýðing þessa er einfaldlega sú að ef skip lendir í sjávarháska utan tuttugu sjómílna mun ekki verða hægt að koma þeim til aðstoðar, án þess að brjóta öryggisreglur LHG. Í ályktun flugmannanna kemur fram að ekki verði gefinn afslátt- ur á öryggi áhafna björgunarþyrl- na. „Við verðum að hafa tryggingu fyrir því að hægt sé að bjarga áhöfn þyrlu ef illa fer,“ segir Sig- urður Heiðar. Miðað er við að hægt sé að koma áhöfninni til bjargar innan þriggja klukkustunda en ólíklegt er að maður lifi lengur í sjó við Ísland, þrátt fyrir sérstakan hlífðarfatnað. Fjögur slys erlendis á þessu ári, nokkur á þyrlum sömu tegundar og LHG notar, segir Sig- urður að sýni hversu áhættan er mikil. svavar@frettabladid.is Sjóbjörgun möguleg í um 120 daga á ári Það kostar um 120 milljónir á ári að halda þrem þyrluflugmönnum hjá Gæslunni. Brotthvarf þeirra í sumar og haust þýðir mjög skerta björgunargetu. SIGURÐUR HEIÐAR WIIUM BJÖRGUNARÞYRLUR TF-LÍF á flugi en TF-SIF á jörðu niðri. SIF þurfti að nauðlenda í sjónum við álverið í Straumsvík í júlí 2007. Mannbjörg varð. FR ÉTTA B LA Ð IÐ /VA LLI PARÍS, AP Frumgerðin af Frelsis- styttunni var í gær fjarlægð úr heimkynnum sínum í Lúxem- borgargarðinum í París, skammt frá franska þinghúsinu, og flutt í útjaðar borgarinnar þar sem stendur til að sýna stytt- una gestum og gangandi. Styttan, sem er nærri þrír metrar á hæð og vegur um tvo tonn, var gerð af franska högg- myndalistamanninum Frederic Auguste Bertholdi, árið 1870. Bertholdi var einnig, ásamt verk- fræðingnum Gustave Eiffel, maðurinn á bak við smíði hinnar Frelsisstyttunnar sem staðið hefur við höfnina í New York síðan 1886. - kg Frumgerð í París: Frelsisstyttan flutt úr stað FRELSISSTYTTAN Í NEW YORK PARÍS Fjöldi lækna, sem unnu í mörgum hópum í yfir þrjátíu klukkustundir, framkvæmdi um helgina fyrstu aðgerðina sem vitað er um þar sem hluti úr andliti og báðar hendurnar eru græddar samtímis á mann. Aðgerðin var framkvæmd á Henri Mondor-sjúkrahúsinu í Creteil, úthverfi Parísar. Þetta mun vera í fyrsta sinn sem efri hluti andlits; höfuð- leður, enni, nef, eyru og augn- hár, er græddur á sjúkling. Hann brenndist illa í slysi árið 2004. - kg Tímamót á skurðarborðinu: Nýtt andlit og báðar hendur VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.