Fréttablaðið - 07.04.2009, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 07.04.2009, Blaðsíða 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans BAKÞANKAR Karenar D. Kjartansdóttur Í dag er þriðjudagurinn 7. apríl, 97. dagur ársins. 6.24 13.30 20.37 6.04 13.15 20.27 Í miðbænum má oft sjá ljóshærð-an mann ganga með barnavagn um stræti. Á göngu minni um rúst- ir aðalverslunargötu bæjarins sé ég hann nær undantekningalaust og virði hann fyrir mér, enda held- ur óalgengt að sjá karlmann einan á gangi með vagn þótt við búum í jafnréttissamfélagi. OFT hef ég fussað þegar konur mæra suðræna sveina fyrir ridd- aramennsku og reynt að leiða þeim fyrir sjónir að brosandi suðrænir hurðaopnarar séu óspennandi kostur miðað við blíða karlmenn af norðurhjara veraldar – og vísa til ljóshærða mannsins með barna- vagninn máli mínu til stuðnings. EINHVERRA hluta vegna urðu samt sífellt fleiri íslenskir karl- menn sannfærðir um að þeir yrðu að fara eftir túristasögum af siða- reglum Sturlungaaldar. Reyndar virtist þekking á gildi Íslendinga- sagna, Snorra-Eddu eða siglinga- kunnáttu til forna ekki fylgja með. Þá urðu þær raddir háværari að fugladráp væri mælikvarði karl- mennskunnar. Virðing fyrir nátt- úru og velferð komandi kynslóða væri karlmönnum ekki samboðin. ÞETTA síðastnefnda hefur reynd- ar lengi verið algengt viðhorf. Ef til vill hefur það orðið til þegar lífið snerist í raun um að lifa af næsta vetur og rányrkja þótti rétt- lætanleg til að bjarga lífi barnanna á bænum. Þetta kemur til dæmis fram þegar saga síldaráranna er athuguð, þegar sem allt var saltað á tunnur þar til markaðir fylltust, verðið féll og silfur hafsins máð- ist út. AÐ undanförnu hafa fjölmiðla- menn veraldarinnar svo keppst við að gera gys að íslenska karlmann- inum. Náðarhöggið hlaut goðsögn- in um góða íslenska karlmanninn svo í tímaritinu Vanity Fair fyrir skömmu. Heimsbyggðin hlýtur nú að vera sannfærð um að Íslending- ar stríði við kynbundinn erfðagalla sem geri þá að spaugilegum kján- um sem kunni ekki með peninga að fara. ÉG ákvað samt að missa ekki trúna á meðan ljóshærði maðurinn væri enn á sveimi með barnavagn í mið- bænum. Það má því nærri geta hve vonbrigði mín urðu sár þegar ég heyrði ljóshærða manninn mæla orð af vörum um daginn. Af tungu hans ómaði ekki hinn dýrasti arfur heldur tungumál sem líklega til- heyrir grundum Póllands eða Lit- háen. Það er ég sannfærð um að hann er ekkert með barn í þessum vagni heldur noti hann til að flytja smyglaðan vodka. Gæði norrænna guma

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.