Fréttablaðið - 07.04.2009, Page 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Karenar D.
Kjartansdóttur
Í dag er þriðjudagurinn 7. apríl,
97. dagur ársins.
6.24 13.30 20.37
6.04 13.15 20.27
Í miðbænum má oft sjá ljóshærð-an mann ganga með barnavagn
um stræti. Á göngu minni um rúst-
ir aðalverslunargötu bæjarins sé
ég hann nær undantekningalaust
og virði hann fyrir mér, enda held-
ur óalgengt að sjá karlmann einan
á gangi með vagn þótt við búum í
jafnréttissamfélagi.
OFT hef ég fussað þegar konur
mæra suðræna sveina fyrir ridd-
aramennsku og reynt að leiða þeim
fyrir sjónir að brosandi suðrænir
hurðaopnarar séu óspennandi
kostur miðað við blíða karlmenn
af norðurhjara veraldar – og vísa
til ljóshærða mannsins með barna-
vagninn máli mínu til stuðnings.
EINHVERRA hluta vegna urðu
samt sífellt fleiri íslenskir karl-
menn sannfærðir um að þeir yrðu
að fara eftir túristasögum af siða-
reglum Sturlungaaldar. Reyndar
virtist þekking á gildi Íslendinga-
sagna, Snorra-Eddu eða siglinga-
kunnáttu til forna ekki fylgja með.
Þá urðu þær raddir háværari að
fugladráp væri mælikvarði karl-
mennskunnar. Virðing fyrir nátt-
úru og velferð komandi kynslóða
væri karlmönnum ekki samboðin.
ÞETTA síðastnefnda hefur reynd-
ar lengi verið algengt viðhorf. Ef
til vill hefur það orðið til þegar
lífið snerist í raun um að lifa af
næsta vetur og rányrkja þótti rétt-
lætanleg til að bjarga lífi barnanna
á bænum. Þetta kemur til dæmis
fram þegar saga síldaráranna er
athuguð, þegar sem allt var saltað
á tunnur þar til markaðir fylltust,
verðið féll og silfur hafsins máð-
ist út.
AÐ undanförnu hafa fjölmiðla-
menn veraldarinnar svo keppst við
að gera gys að íslenska karlmann-
inum. Náðarhöggið hlaut goðsögn-
in um góða íslenska karlmanninn
svo í tímaritinu Vanity Fair fyrir
skömmu. Heimsbyggðin hlýtur nú
að vera sannfærð um að Íslending-
ar stríði við kynbundinn erfðagalla
sem geri þá að spaugilegum kján-
um sem kunni ekki með peninga
að fara.
ÉG ákvað samt að missa ekki trúna
á meðan ljóshærði maðurinn væri
enn á sveimi með barnavagn í mið-
bænum. Það má því nærri geta hve
vonbrigði mín urðu sár þegar ég
heyrði ljóshærða manninn mæla
orð af vörum um daginn. Af tungu
hans ómaði ekki hinn dýrasti arfur
heldur tungumál sem líklega til-
heyrir grundum Póllands eða Lit-
háen. Það er ég sannfærð um að
hann er ekkert með barn í þessum
vagni heldur noti hann til að flytja
smyglaðan vodka.
Gæði norrænna
guma