Fréttablaðið - 07.04.2009, Blaðsíða 10
10 7. apríl 2009 ÞRIÐJUDAGUR
MOLDÓVA, AP Kommúnistaflokkur-
inn í Moldóvu, sem heldur þar um
stjórntaumana, fór með sigur af
hólmi í þingkosningum sem fram
fóru í landinu á sunnudag, sam-
kvæmt opinberum úrslitum sem
tilkynnt voru í gær.
Kommúnistar fengu samkvæmt
því 49,9 prósent greiddra atkvæða.
Framámenn flokksins segja að
hann styðji nánari tengsl bæði við
Rússland og Evrópu.
Tveir stjórnarandstöðuflokkar,
sem báðir beita sér fyrir nánari
tengslum í vestur, fengu samtals
um 35 prósent atkvæða.
Meirihluti Moldóvubúa er rúm-
enskur að uppruna, en frá því að
landsvæðið var innlimað í Sovét-
ríkin árið 1940 hefur það verið í
nánum tengslum við Rússland. - aa
Fermingargjöf sem gefur
Fermingarskeyti eða gjafabréf frá Hjálparstarfi kirkjunnar er gjöf
sem heldur áfram að gefa. Fermingarbarnið fær skeytið eða bréfið
í hendurnar en andvirðið rennur til jafnaldra fermingarbarnsins
sem býr við fátækt.
Sendu skeyti, það kostar 1.990 kr.
Eða gefðu fermingargjafabréf að upphæð 5.000 kr.
Þú færð skeytin og gjafabréfin á www.gjofsemgefur.is
eða pantar þau á skrifstofunni okkar, 528 4400.
Þú prentar út, sækir til okkar – eða við sendum fyrir þig.
Einfalt og gleðilegt.
Óskalistinn minn:
Rúm
Myndavél
Svefnpoki
iPod
Vefmyndavél
Handklæði
Teppi
Orðabók
Hálsmen
Svo væri gaman að fá
pening og „Gjöf sem
gefur“. Mig langar til
að einhver sem er ekki
eins heppinn og ég fái
að njóta með mér.
www.gjofsemgefur.is
Við systkinin erum munaðarlaus.
1.990 kr. fermingarskeyti á
Íslandi dugar fyrir 4 hænum.
Þær gefa okkur fullt af eggjum.
Eða við gætum fengið sparhlóðir.
Þá færi ekki allur dagurinn í að
leita að eldsneyti og við
hefðum meiri tíma til að læra.
5.000 kr. gjafabréf á Íslandi
myndi gefa okkur 2 geitur.
Namm! Mjólk og kjöt, ekki
lengur bara maísgrautur!
Eða kannski reiðhjól. Þá
kæmist ég á markað með
uppskeruna okkar og við
fengjum pening fyrir ýmsu
sem okkur vantar.
Óskalistinn minn:
ALÞINGI Íslensk stjórnvöld hafa
ekki rætt um það við Alþjóða-
gjaldeyrissjóðinn að taka einhliða
upp evru hér á landi. Þetta sagði
Steingrímur J. Sigfússon fjár-
málaráðherra á Alþingi í gær.
Tilefnið var fyrirspurn Sig-
urðar Kára Kristjánssonar um
málið. Sigurður vísaði til skýrslu
AGS, sem breska blaðið Financi-
al Times hefur birt upplýsingar
úr, þar sem sjóðurinn ráðlegg-
ur ESB-ríkjum í Mið- og Austur-
Evrópu sem hafa orðið verst úti
í kreppunni að skipta gjaldmiðli
sínum út fyrir evru án þess að
ganga í myntbandalagið.
Sigurður spurði Steingrím að
því hvort viðræður af þessu tagi
hefðu átt sér stað við AGS hér
og hvort leið sem þessi kæmi til
greina fyrir Íslendinga.
Steingrímur svaraði því til
að staða umræddra landa væri
ósambærileg stöðu Íslands. Þetta
væru lönd sem þegar væru aðil-
ar að Evrópusambandinu. Þau
hefðu verið að bíða eftir að fá að
taka upp evru og mörg hver þegar
tengt gjaldmiðil sinn við evruna.
Þau hefðu þurft að verja stórum
hluta gjaldeyrisvaraforða síns í að
verja þá tengingu.
Sigurður Kári sagði athyglis-
vert að þessi möguleiki, sem mælt
væri með hjá öðrum ríkjum, hefði
ekki verið ræddur við Íslendinga.
- sh
AGS mælir með einhliða upptöku evru í sumum Evrópulöndum en ekki hér:
Einhliða upptaka ekki rædd
ALLT ÖNNUR STAÐA Steingrímur sagði
Ísland í allt annarri stöðu en löndin í
Mið- og Austur-Evrópu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
BANDARÍKIN Í sunnudagsútgáfu dag-
blaðsins The New York Times fjall-
ar blaðamaðurinn Brian Stelter,
sem skrifar um fjölmiðla, um grein
sem skrifuð var í tímaritið Van-
ity Fair um ástandið á Íslandi eftir
bankahrunið.
Rithöfundurinn Michael Lewis
skrifaði greinina í Vanity Fair en
hann er meðal annars þekktur fyrir
bók sína Liar‘s Poker, sem fjallar
um ástandið á Wall Street á níunda
áratugnum.
Stelter segir að greinin í Vanity
Fair hafi vakið hörð við-
brögð á Íslandi, sérstak-
lega í bloggheimum.
„ K a n nsk i k u n nu
Íslendingar því illa að
vera sagðir klunnalegir
og með músarlitt hár,“ segir Stelter.
„Kannski vildu þeir ekki að þjóð-
sögur um huldufólk væru prentaðar
í virtu tímariti eða kannski skamm-
ast þeir sín bara fyrir efnahagslegt
fall þjóðfélagsins.“
Í símaviðtali við Stelter segir
Lewis að í greininni hafi hann verið
að reyna að sýna fram á að Ísland
væri yndislegt og áhugavert þjóð-
félag sem í fáein ár hafi villst af
leið. „Ég býst við því að það hafi
verið smá háðung í greininni. Hún
var hins vegar hvorki óverðskulduð
né fjandsamleg,“ segir Lewis.
- th
New York Times fjallar um hörundsára Íslendinga:
Klunnalegir með
músarlitt hár
GREININ Í NEW YORK TIMES
Michael Lewis segir að greinin í
Vanity Fair hafi hvorki verið óverð-
skulduð né fjandsamleg.
SOVÉTARFLEIFÐ Kommúnistar fara með
völd í þessu fátækasta landi Evrópu.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
HELGUVÍK Framkvæmdir við álverið eru komnar á veg en ekki var mikið um að vera
á framkvæmdasvæðinu þegar ljósmyndari átti leið hjá síðdegis í gær. MYND/VÍKURFRÉTTIR
Úrslit kynnt í þingkosningum í Moldóvu:
Kommúnistar sigruðu
BRUGÐIÐ Á LEIK Meðlimir Alþjóða
náttúruverndarsamtakanna WWF
komu fyrir sextán hundruð pappírs-
pöndum í Nantes í Frakklandi til að
tákna þann fjölda pandadýra sem talið
er að til séu í heiminum. Pöndurnar
freistuðu ungra stúlkna. NORDICPHOTOS/AFP
VIÐSKIPTI Áhyggjur af fjárhags-
stöðu Century Alumininum eru
óþarfar, segir Ágúst F. Hafberg
hjá dótturfyrirtækinu Norður-
áli en minnihluti iðnaðarnefndar
Alþingis gerir tap fyrirtækisins á
síðasta ári að umtalsefni í nefnd-
aráliti.
Í nefndaráliti minnihluta Vinstri
grænna um frumvarp til samninga
við Norðurál – Century Aluminium
Corporation um álver í Helguvík
er bent á mikla lækkun hlutabréfa
í móðurfyrirtækinu nýverið auk
taps á síðasta ári og lokun álvers í
Bandaríkjunum vegna lágs heims-
markaðsverðs á áli.
Minnihlutinn hefur auk þess
áhyggjur af því að samningurinn
við Norðurál geti runnið til kröfu-
hafa og gengið kaupum og sölum,
fari móðurfyrirtækið á hausinn.
Þessar ályktanir byggja að mati
Ágústs á misskilningi. Móður-
fyrirtækið hafi vissulega tapað fé
á síðasta ári en það tap skýrist af
uppgjöri á framvirkum samning-
um auk afskrifta á skatta inneign.
Ekki hafi verið tap á rekstri
fyrirtækisins. Auk þess hafi
móður fyrirtækið aukið við eigið fé
sitt samanlagt um 1.060 milljónir
dollara árið 2008 og 2009.
Álverinu sem hafi verið lokað í
Bandaríkjunum hafi verið hálfrar
aldar gamalt og óhagkvæmt eftir
því. Ný álver séu mun hagkvæm-
ari og framlegð þeirra miklu
meiri. „Álverið á Grundartanga
er með best reknu álverum í heimi
og Norðurál stendur mjög vel, er
skuldlaust fyrirtæki.“ - sbt
VG efast um samning við álfyrirtæki sem illa standi:
Norðurál segir fjár-
haginn traustan
ANKARA, AP Barack Obama, forseti
Bandaríkjanna, tók sér ekki orðið
þjóðarmorð í munn þegar hann
talaði um umfangsmikil dráp á
Armeníumönnum á síðustu árum
Ottóman-veldisins, í ávarpi sínu
fyrir framan
tyrkneska þing-
menn í gær.
Obama var
staddur í Tyrk-
landi í opin-
berri heimsókn.
Obama stað-
hæfði á síðasta
ári að drápin,
sem áttu sér
stað fyrir nærri öld, jafngiltu
þjóðarmorði. Forsetinn gætti sín
að nota ekki orðið þjóðarmorð í
gær, en hvatti þess í stað Tyrki
til að leysa ágreiningsmál sín við
nágrannaríkið Armeníu. - kg
Obama í Tyrklandi:
Minntist ekki á
þjóðarmorð
BARACK OBAMA
UMHVERFISMÁL Ofanflóðanefnd
hefur óskað eftir heimild fjár-
málaráðuneytisins til að bjóða út
framkvæmdir við varnargarða
í Neskaupstað og Ólafsfirði. Er
það gert í kjölfar tillögu Kol-
brúnar Halldórsdóttur umhverfis-
ráðherra, sem samþykkt var í
ríkisstjórn, að framkvæmdum
við ofanflóðavarnir yrði hraðað.
Þetta kemur fram í tilkynningu
frá umhverfisráðuneytinu.
Umhverfisráðherra lagði til við
ríkisstjórn að tæpum 1.100 millj-
ónum króna yrði varið í ofanflóða-
varnir til viðbótar við þær 700
milljónir sem ákveðið var að
veita samkvæmt fjárlögum. - kg
Framkvæmdir boðnar út:
Ofanflóðavörn-
um hraðað