Fréttablaðið - 07.04.2009, Blaðsíða 11
ÞRIÐJUDAGUR 7. apríl 2009 11
STJÓRNSÝSLA Dómsmálaráðuneytið
á að taka aftur fyrir mál karl-
manns frá Venesúela sem Útlend-
ingastofnun vísaði úr landi eftir
að hann hafði lokið afplánum
dóms fyrir líkamsárás. þetta
segir umboðsmaður Alþingis.
Maðurinn á íslenska unnustu
og búa þau nú saman í Venesúela.
Hann kom til Íslands í maí 2006.
Í byrjun ágúst sama ár lenti hann
í áflogum á skemmtistaðnum í
Traffic í Keflavík og skar þar
illa með flösku Bandaríkjamann
úr varnarliðinu. Venesúelamaður-
inn hlaut átján mánaða fangelsis-
dóm en þar af voru fimmtán mán-
uðir skilorðsbundnir. Á meðan
hann afplánaði á
Litla-Hrauni barst
honum bréf á ensku
frá Útlendingastofn-
un. Þar kom fram að
honum væri vísað úr
landi og mætti ekki
koma aftur næstu
sjö árin. Ef hann
væri með athuga-
semdir hefði hann
þrjá daga til að skila
greinargerð.
Venesúelamaður-
inn kærði máls-
meðferð i na t i l
dóms málaráðuneytis ins, sem
hins vegar staðfesti ákvörðun
Útlendinga-
stofnunar. Þá vísaði
maðurinn málinu
til umboðsmanns
Alþingis, sem nú
hefur kveðið upp
úr um að andmæla-
réttur hafi verið
brotinn á mannin-
um með því að hann
hafi ekki fengið túlk
og allt of stuttan
tíma til andsvara.
Ráðuneytið fær
síðan ákúrur fyrir
að hafa ekki sótt
nauðsynleg svör frá Útlendinga-
stofnun. - gar
SAMFÉLAGSMÁL Ungbarnadauði
hefur verið lágur hér á landi
miðað við önnur lönd undanfar-
inn áratug. Í fyrra dóu ellefu
börn á fyrsta ári hér á landi. Það
þýðir að af hverjum þúsund lif-
andi fæddum börnum dóu að
meðaltali 2,5 börn. Þetta kemur
fram hjá Hagstofunni.
Á Norðurlöndunum er hlutfall
ungbarnadauða einungis lægra
í Svíþjóð, eða 2,2. Ungbarna-
dauði er 2,7 af hverjum þúsund
í Finnlandi, 3,2 í Noregi og 4,0 í
Danmörku. Ungbarnadauði hefur
lækkað jafnt og þétt hér á landi
úr 27,3 börnum árið 1951 niður í
tæp þrjú af hverjum þúsund síð-
ustu ár. - ghs
Ungbarnadauði:
Einna lægst
hlutfall hér
ÖRYGGISMÁL Ný flugvél Land-
helgis gæslunnar, TF-SIF, kemur
til landsins 9. júlí og er það
nokkuð á undan áætlun. Smíði
flugvélarinnar hefur gengið
afar vel miðað við að þarna er
á ferðinni fullkomnasta eftir-
litsflugvél þessarar tegundar í
heiminum.
Vélin er af gerðinni Dash-
8 Q300 og eru sams konar
flugvélar notaðar hjá strand-
gæslum og eftir lits- og
björgunaraðilum víða um heim.
Kaupsamningur var undirrit-
aður í maí 2007 og var samn-
ingsverð 32,2 milljónir dollara.
Allar áætlanir um tíma og verð
hafa staðist.
Þjálfun á flugvélina er að hefj-
ast og fara fyrstu flugmennirnir
utan nú um helgina. - shá
Bylting í öryggismálum:
TF-SIF tilbúin á
undan áætlun
TF-SIF Ein allra fullkomnasta björgunar-
vél sinnar tegundar. MYND/LHG
Meira húsnæði vantar
Icelandair hótel á Kirkjubæjarklaustri
fær ekki að kaupa einbýlishús í eigu
sveitarfélagsins. Sveitarstjórnin segir
beiðni Icelandair hotel hins vegar
undirstrika þann húsnæðisvanda sem
sé á Kirkjubæjarklaustri og nauðsyn
þess að byggt verði meira íbúðarhús-
næði.
KIRKJUBÆJARKLAUSTUR
LÖGREGLUMÁL Bandarískur her-
maður hlaut skurði í hópslags-
málum utan við skemmtistaðinn
Traffic við Hafnargötu í Reykja-
nesbæ á þriðja tímanum í fyrri-
nótt. Hermaðurinn fór svo sjálf-
ur ásamt félögum sínum með
leigubíl á hersjúkrahúsið á her-
stöðinni þar sem hann gekkst
undir aðgerð. Hann er ekki tal-
inn vera í lífshættu.
Fjórir Íslendingar og einn er-
lendur ríkisborgari voru í kjöl-
farið handteknir og vistaðir í
fangageymslum lögreglunnar í
Keflavík í fyrrinótt. Þeir voru
svo yfirheyrðir í gær af rann-
sóknalögreglunni í Keflavík og
höfðu tveir verið látnir lausir í
gær þegar blaðið fór í prentun.
Til slagsmála hafði komið
milli tveggja hópa, annars vegar
sex varnarliðsmanna og hins
vegar þeirra fimm sem hand-
teknir voru. Lögregla telur lík-
legt að hermanninum hafi verið
veittir áverkarnir með brotinni
glerflösku. Talsvert blæddi úr
honum á götuna og var Hafnar-
götunni því lokað um tíma í
gærnótt á meðan lögregla kann-
aði vettvang. Margt fólk var á
ferli í miðbæ Keflavíkur þegar
atvikið átti sér stað. Skurðirnir
sem maðurinn hlaut voru nokkr-
ir, misalvarlegir og djúpir.
Í nóvember í fyrra lést
danskur hermaður í kjölfar
hnefahöggs sem honum var
veitt í deilum sem upp komu á
skemmtistaðnum. Þá er tæpt ár
síðan kærð var líkamsárás sem
framin var á staðnum en þá
braut ungur Keflvíkingur glas í
andliti manns með þeim afleið-
ingum að hann hlaut alvarlegan
skurð á gagnauga. Þá eru enn
ótalin nokkur önnur líkamsárás-
armál sem upp hafa komið
vegna ryskinga inni á staðnum á
því rétt rúma ári sem hann
hefur verið starfræktur í nú-
verandi mynd.
Lögregla leitar enn fólks sem
getur gefið upplýsingar um at-
burði næturinnar og bendir
þeim öllum á sem eitthvað vita
að hafa samband í síma 420
2400.
oddur@frettabladid.is
Skorinn lífshættulega
me› brotinni glerflösku
Rá›ist var á bandarískan hermann vi› skemmtista›inn Traffic í Keflavík. Ma›urinn
var skorinn lífshættulega en kom sér sjálfur á sjúkrahús. Fimm voru handteknir
vegna málsins. fietta er flri›ja hættulega líkamsárásin á skemmtista›num á einu ári.
SKEMMTISTAÐURINN TRAFFIC Fimm menn voru handteknir vegna hnífstungu við skemmtistaðinn í gærnótt.
VÍ
KU
R
FR
ÉT
TI
R/
ÞO
RG
IL
S
Bankinn greiðir á móti
Kaupþing greiðir 0,3 prósent af inn-
eign þeirra sem greiða séreignasparn-
að í lífeyrissjóðinn Vista og vegur
það upp á móti þeim kostnaði sem
sparifjáreigendur verða fyrir í upphafi.
LÍFEYRISMÁL
Umboðsmaður segir brotið á líkamsárásarmanni sem var vísað úr landi:
Fékk ekki færi á andmælum
SRÍ LANKA, AP Mahinda Rajapaksa,
forseti Srí Lanka, útilokaði í gær
að samið yrði um vopnahlé við
Tamíltígra. Enn fremur beindi
forsetinn þeim skilaboðum til
meðlima hópsins að uppgjöf væri
eina mögulega leiðin fyrir þá til
að bjarga lífum sínum og tugþús-
unda óbreyttra borgara.
Tala fallinna Tamíltígra fór
upp í 453 hið minnsta í gær, eftir
þriggja daga átök. Tamíltígrar
hafa verið króaðir af á tuttugu
ferkílómetrum lands á norðaustur-
ströndinni. Ríkis stjórnin hafði
áður lýst því yfir að það svæði
væri griðastaður óbreyttra borg-
ara fyrir átökunum. - kg
Forseti Srí Lanka:
Ekki vopnahlé
við Tamíltígra
JERÚSALEM, AP Benjamin Netan-
yahu, forsætisráðherra Ísraels,
hét því í gær að vinna með
Bandaríkjunum að friði í Mið-
Austurlöndum. Netanyahu forð-
aðist þó að víkja orðum sínum
að friðarviðræðum milli Ísraels
og Palestínu eða von Baracks
Obama Bandaríkjaforseta um að
palestínskt ríki yrði að veruleika.
Í ræðu sinni á tyrkneska þing-
inu í gær sagði Obama að stjórn
hans myndi vinna að ofannefnd-
um markmiðum. „Bandaríkin
styðja heilshugar það markmið
að ríkin tvö, Ísrael og Palestína,
geti lifað hlið við hlið í friði og
öryggi,“ sagði Obama. - kg
Forsætisráðherra Ísraels:
Minntist ekki á
friðarviðræður