Fréttablaðið - 07.04.2009, Síða 12
12 7. apríl 2009 ÞRIÐJUDAGUR
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
K
A
U
4
55
13
0
3/
09
Þú vilt aukinn ávinning.
Þess vegna er Vöxtur fyrir þig.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
K
A
U
4
55
13
0
4/
09
Tækifærin skjóta víða upp kolli. Ávinningurinn felst í því að geta nýtt sér þau
og skapa stöðugt fleiri tækifæri. Vöxtur býður þér betri kjör og ótal fríðindi.
Kynntu þér málið á www.kaupthing.is eða í síma 444 7000.
Vöxtur er Vildarþjónusta Kaupþings
EFNAHAGSMÁL Íslensku lífeyris-
sjóðirnir skiluðu neikvæðri ávöxt-
un upp á 21,5 prósent í fyrra, miðað
við tölur frá Fjármálaeftirlitinu.
Margir erlendir lífeyrissjóðir skil-
uðu verri ávöxtun en þeir íslensku
gerðu og það þrátt fyrir efnahags-
hrunið hér á landi. Norski olíu-
sjóðurinn skilaði til dæmis nei-
kvæðri ávöxtun upp á 23,3 prósent
og belgískir sjóðir skiluðu ávöxtun
upp á mínus 25 prósent árið 2008.
Írskir lífeyrissjóðir skiluðu nei-
kvæðri ávöxtun upp á 23 prósent,
meðalávöxtunin hjá OECD-sjóð-
unum var neikvæð um 19 prósent,
stærsti lífeyrissjóðurinn í Hollandi,
ABP, skilaði neikvæðri ávöxtun upp
á 20,2 prósent og AP3, sem er opin-
ber lífeyrissjóður í Svíþjóð, skilaði
19,8 prósentum í neikvæða ávöxtun
svo að dæmi séu nefnd.
Inni í ávöxtun íslensku lífeyris-
sjóðanna vantar tölur frá nokkr-
um lífeyrissjóðum. Stærstur
þeirra er sennilega Lífeyrissjóður
starfsmanna ríkisins, LSR. Hrafn
Magnús son, framkvæmdastjóri
Landssamtaka lífeyrissjóða, LL,
segir að þetta breyti ekki miklu
varðandi niðurstöðutöluna. Ekki
skipti öllu máli hvort ávöxtunin
verði -21,5 eða -22,5 prósent því að
hún sé á þessu bili.
„Við getum ekki séð að þetta sé
slæmt miðað við allt og allt,“ segir
Hrafn, „ekki síst vegna þess að inn-
lendur hlutabréfamarkaður bara
hvarf. Hann bara hrundi og þá er
þetta alls ekki slæmt.“
Hrafn segir að lífeyrissjóðirn-
ir hafi komið vel út úr efnahags-
lægðinni 2000-2002. „Þá stóðum
við okkur mjög vel. Við vorum með
neikvæða ávöxtun upp á 1,9 pró-
sent 2001, 3,0 prósent 2002 og 0,7
í mínus árið 2000. Þetta voru lágar
tölur. Þær voru mun hærri erlend-
is.“
Hrafn bendir á að fyrst 1991 hafi
byrjað að koma tölur frá Banka-
eftirlitinu um ávöxtun íslensku líf-
eyrissjóðanna. Ef horft sé á tíma-
bilið frá 1991 til og með 2008 þá
komi í ljós að raunávöxtunin sé
jákvæð yfir 3,5 prósentum sem sé
viðmiðunarmarkmið, „þrátt fyrir
svona geysilega slæmt ár eins og
var í fyrra“.
Hrafn telur útilokað að ávöxtun
lífeyrissjóðanna verði jafn slæm og
í fyrra. Það fari þó eftir þróuninni
erlendis. „Hún skiptir mestu máli í
dag og líka hvernig gengi íslensku
krónunnar verður þegar upp er
staðið. Ég held að botninum sé náð.
Það dettur engum í hug að við fáum
svona ár aftur.“
ghs@frettabladid.is
Lífeyrissjóðir með
svipað tap og aðrir
Íslenskir lífeyrissjóðir mega vel við una, að mati framkvæmdastjóra LL, ef
ávöxtunin í fyrra er borin saman við erlenda sjóði. Íslenskir lífeyrissjóðir skil-
uðu neikvæðri ávöxtun upp á 21,5 prósent meðan Belgar töpuðu fjórðungi.
SKERA SIG EKKI ÚR HÓPNUM Lífeyrissjóðir skiluðu neikvæðri ávöxtun upp á fimmt-
ung til fjórðung á síðasta ári víða um heim, líka á Íslandi.
ÁVÖXTUN LÍFEYRISSJÓÐA
Ávöxtun í %
Belgískir sjóðir -25
Lífeyrissjóðir í OECD -19*
Lífeyrissjóðir í heiminum -18
ATP (danskur sjóður) -3,2
ABP (hollenskur sjóður) -20,2
AP3 (sænskur sjóður) -19,8
Calpers (bandarískur sjóður) -27,1
Norski olíusjóðurinn -23,3
British Railways pension scheme -21,5
Meðaltal verðbréfasafna (í BNA) -22,5
* Meðalávöxtun í OECD-löndunum
fyrstu tíu mánuði ársins 2008.
Heimildir: Vefsíða LL og greinin Um
ávöxtun lífeyrissjóða eftir Gunnar
Baldvinsson.
VINNUMARKAÐUR Ögmundur
Jónasson heilbrigðisráðherra átti
í gær fundi með trúnaðarmönn-
um verkalýðs-
félaga innan
heilbrigðisþjón-
ustunnar,
BSRB og SGS,
til að ræða
stöðu hennar
og framtíðar-
horfur.
Ráðherrann
bauð samvinnu
við stéttar-
félögin.
Útgjöld til heilbrigðismála eru
áætluð 120 milljarðar króna.
Skera þarf niður um sjö millj-
arða á þessu ári og meira á því
næsta. Vinnufundur verður á
Nordica í dag þar sem heilbrigðis-
stéttir geta komið sínum skoðun-
um á framfæri.
Fundur verður með forsvars-
mönnum BSH eftir páska. - ghs
Heilbrigðisráðherra:
Býður samstarf
við starfsfólkið
SUÐUR-AFRÍKA, AP Dómari í Suður-
Afríku lét niður falla spillingar-
kæru á hendur Jacob Zuma,
leiðtoga
Afríska
þjóðar ráðsins, í
gær. Ástæða
niðurfellingar-
innar var sögð
sú að málinu
hefði verið
hagrætt af
pólitískum
ástæðum.
Í kjölfarið bendir flest til að
Zuma verði næsti forseti Suður-
Afríku. Forsetakosningar verða
haldnar í landinu hinn 22. apríl
næstkomandi.
Zuma var sakaður um aðild að
peningaþvætti og fleiri brot.
Hann hefur alla tíð haldið fram
sakleysi sínu og segist vera
fórnarlamb pólitísks samsæris,
sem hafi verið skipulagt af
andstæðingum sínum innan
Afríska þjóðarráðsins. - kg
Leiðtogi Afríska þjóðarráðsins:
Mál Zuma látið
niður falla
ZUMA
FJÁRMÁL Fjármálaráðuneytið
beindi í gær þeim tilmælum til
skattstjóra að fellt yrði tíma-
bundið niður álag vegna skila á
virðisaukaskatti sem voru á
gjalddaga í gær, 6. apríl. Niður-
fellingin gildir í átta daga, eða til
14. apríl næstkomandi.
Ráðuneytið hefur í tvígang
beint sams konar tilmælum til
skattstjóra vegna síðustu
uppgjörstímabila virðisauka-
skatts. Á heimasíðu ráðuneytis-
ins kemur fram að vonir standi
til að ekki reynist þörf á frekari
tilslökunum vegna skila á
virðisaukaskatti á næstu
mánuðum. - kg
Skil á virðisaukaskatti:
Álög felld niður
í átta daga
ÖGMUNDUR
JÓNASSON
MÓTMÆLT HJÁ BIG BEN Um eitt
hundrað mótmælendur söfnuðust
saman fyrir utan þinghúsið í miðborg
London í gær til að mótmæla því sem
þeir kalla þjóðarmorð á Tamíltígrum á
Srí Lanka. NORDICPHOTOS/AFP