Fréttablaðið - 07.04.2009, Side 16
16 7. apríl 2009 ÞRIÐJUDAGUR
FRÉTTASKÝRING: Valdaskipti í Danmörku
Lars Løkke Rasmussen
átti sinn fyrsta vinnudag
sem nýr forsætisráðherra
Danmerkur í gær. Hann er
þriðji danski ríkisstjórnar-
leiðtoginn í röð sem ber
ættarnafnið Rasmussen,
en sá fyrsti sem á fær-
eyska eiginkonu.
Aðstæður gætu sannar-
lega verið hagstæðari fyrir
stjórnmálamann að taka við
sem ríkisstjórnar leiðtogi.
Efnahagskreppan er eitt og það
að hafa ekki þurft að sannfæra
kjósendur um að hann væri rétti
maðurinn til að gegna valda-
mesta embætti landsins áður en
hann fékk það upp í hendurnar
er annað. Þess vegna er það nú
forgangsverkefni hjá hinum nýja
forsætisráðherra Dana að sýna
og sanna það fyrir almenningi að
hann sé rétti maðurinn í starfið.
Ekki miklar væntingar
Samkvæmt skoðanakönnunum
sem gerðar hafa verið síðustu
mánuði gera Danir sér almennt
ekki miklar væntingar til Lars
Løkke sem forsætisráðherra.
Það er nokkuð síðan ljóst varð
að hann væri arftakaefni flokks-
bróður síns úr Vestre, Anders
Fogh Rasmussen, sem var um
helgina valinn til að verða næsti
framkvæmdastjóri NATO. And-
ers Fogh hafði farið fyrir sam-
steypustjórn Venstre og Íhalds-
flokksins frá því árið 2001, en
hún er minnihlutastjórn sem
nýtur stuðnings Danska þjóðar-
flokksins á þingi.
Lars Løkke hefur átt sæti í
ríkis stjórninni síðan borgara-
flokkarnir báru sigurorð af jafn-
aðarmönnum og bandamönnum
þeirra í kosningunum 2001. Hann
var innanríkis- og heilbrigðisráð-
herra fyrstu tvö kjörtímabilin
en eftir kosningarnar í nóvem-
ber 2007 tók hann við fjármála-
ráðuneytinu. Því embætti gegnir
hann líka áfram, unz hann hefur
haft ráðrúm til að stokka upp í
stjórninni eftir brottför Anders
Fogh.
Það er ímynd Løkke nokkur
fjötur um fót, og á eflaust sinn
þátt í því hve litlar væntingar
eru til hans gerðar, að fyrir
um ári var það upplýst í fjöl-
miðlum að hann hefði stundað
það í allnokkrum mæli að setja
útgjöld sem almennt væru talin
prívatútgjöld eins og veitinga-
staðamáltíðir, hótelgistingar og
leigubílaakstur utan vinnutíma,
sígarettur og fleira smálegt, á
opinberan útgjaldareikning sinn
sem ráðherra.
Uppstokkun
Til að byrja með hafði Lars
Løkke ekki ætlað sér að gera
miklar breytingar á stjórninni
– „stóru“ uppstokkunina hafði
hann ætlað að geyma sér fram
á haustið eða jafnvel fram yfir
loftslagsráðstefnu Sameinuðu
þjóðanna sem fram fer í Kaup-
mannahöfn í desember og Danir
leggja metnað í að takist vel.
En óvænt tilkynning Karenar
Jespersen á föstudag um að hún
óskaði eftir að víkja úr embætti
hins umfangsmikla velferðar-
ráðuneytis veldur því að upp-
stokkunin nú verður umfangs-
meiri en svo að það komi bara
einn nýr ráðherra í stað Løkke
í fjármálaráðuneytið. Jesper-
sen segir velferðarráðuneytið of
stórt; reyndar deilir Lars Løkke
þeirri skoðun með henni og vill
skipta því upp í innanríkis- og
húsnæðis málaráðuneyti ann-
ars vegar og félagsmálaráðu-
neyti hins vegar. Auk þess vill
hann leggja niður bæði ráðu-
neyti aðlögunarmála og rann-
sókna, að því er Politiken.dk
hefur eftir „vel upplýstum heim-
ildum“. Þessa stóru uppstokkun
vildi hann annars geyma þar til
síðar, eins og áður segir.
Í bili þykir því talið líkleg-
ast að hann láti nægja að skipa
nýjan fjármálaráðherra – senni-
lega Claus Hjort Frederiksen,
núverandi atvinnumálaráð-
herra. Við hans ráðuneyti tæki
Peter Christensen, núverandi
tals maður þingflokks Venstre í
ríkisfjármálum.
Sagður vanmetinn
Danskir stjórnmálaskýrendur
telja að ekki sé að vænta mikilla
breytinga á stjórnarstefnunni við
mannaskiptin í brúnni. En þar
sem Lars Løkke er sagður býsna
ólíkur Anders Fogh að skapgerð
og upplagi verður óhjákvæmilega
allnokkur breyting á stjórnunar-
stílnum. Hann er talinn nokkru
frjálslyndari en Fogh, án þess þó
að það komi í veg fyrir að hann
eigi góð tengsl við Piu Kjærs-
gaard, leiðtoga Danska þjóðar-
flokksins. Að vissu leyti er það
talið kostur fyrir hann að Danir
geri litlar væntingar til hans, því
það skapar möguleika á að koma
þægilega á óvart, sem er miklu
betra en að valda vonbrigðum ef
væntingarnar eru miklar.
Það kvað reyndar vera útbreidd
skoðun, bæði innan Venstre og í
öðrum flokkum á danska þinginu,
að Lars Løkke væri vanmetinn
stjórnmálamaður. „Lars Løkke
er ekki bara vanmetinn. Hann er
mjög vanmetinn,“ hefur Politik-
en eftir ónafngreindum forystu-
manni úr stjórnarandstöðunni.
„Løkke er ekki bara manneskju-
legri en Anders Fogh Rasmussen.
Hann er persóna í þrívídd, ólíkt
Fogh; manneskjulegheit hans
geta nýtzt honum vel.“
Þeir sem starfað hafa með
Lars Løkke bera honum líka
vel söguna, hvort sem þar er
um flokks systkin að ræða eða
pólitíska mótherja. Með einni
undantekningu; það kvað alls
ekki fara vel á með honum og
stjórnarandstöðuleiðtoganum
Helle Thorning-Schmidt, for-
manni Jafnaðarmannaflokksins
og forsætisráðherraefni.
Løkke þarf að sanna sig
FRÉTTASKÝRING
AUÐUNN ARNÓRSSON
audunn@frettabladid.is
NÝR MAÐUR Í BRÚNNI Lars Løkke Rasmussen talar við fjölmiðla fyrir utan Kristjánsborgarhöll í Kaupmannahöfn eftir að hann
var útnefndur arftaki Anders Fogh Rasmussen sem forsætisráðherra Danmerkur. NORDICPHOTOS/AFP
Lars Løkke Rasmussen fæddist í
Vejle á Jótlandi árið 1964. Hann
nam lögfræði við Kaupmanna-
hafnarháskóla og var virkur í
ungliðahreyfingu Venstre; formaður
hennar var hann 1986-1989.
Hann var fyrst kjörinn á þing
haustið 1994. Hann var jafnframt
sveitarstjóri í Frederiksborg-sýslu
á Sjálandi frá 1998-2001. Eftir kosn-
ingasigur Venstre þá um haustið
varð hann ráðherra innanríkis- og
heilbrigðismála í ráðuneyti Anders
Fogh Rasmussen. Þessu tvöfalda
ráðherraembætti gegndi hann
fram yfir kosningarnar í nóvember
2007. Þá tók hann við fjármála-
ráðuneytinu og varð opinbert
arftakaefni Anders Foghs bæði sem
forsætisráðherra og flokksformaður
Venstre.
Løkke Rasmussen og færeysk
eiginkona hans, Sólrun Jákups-
dóttir, kynntust á námsárum þeirra
í Kaupmannahöfn. Hún starfar sem
kennari. Þau eiga þrjú börn.
ÁGRIP AF FERLI LARS LØKKE
Það vekur athygli að Lars Lökke Rasmussen er þriðji danski forsætis-
ráðherrann í röð sem ber sama ættarnafn, á eftir flokksbróður sínum úr
Venstre, Anders Fogh Rasmussen, og jafnaðarmanninum Poul Nyrup
Rasmussen. Þeir eru þó ekki skyldir, í það minnsta ekki svo vitað sé.
■ Upprunalega föðurnafnið Rasmus-son
Nafnið er upprunalega föðurnafnið Rasmusson, það er sonur Rasmusar.
Skírnarnafnið Rasmus er rakið til „Erasmus“, nánar tiltekið Erasmus frá Rotter-
dam, heimspekingsins og guðfræðingsins fræga sem uppi var á 16. öld.
Rasmussen er eitt algengasta ættarnafnið í Danmörku. Samkvæmt dönsku
þjóðskránni bera það um 100.000 Danir. Algengustu dönsku ættarnöfnin
eru þessi: 1) Jensen, 2) Nielsen, 3) Hansen, 4) Pedersen, 5) Andersen, 6)
Christensen, 7) Larsen, 8) Sörensen, 9) Rasmussen og 10) Jörgensen.
■ Þekkt fólk með Rasmussen-nafninu
Af öðrum þekktum Dönum sem einnig hafa borið þetta ættarnafn má nefna
skáldið Halfdan Rasmussen, heimskautarannsóknafrumkvöðulinn Kjeld
Rasmussen, knattspyrnumennina Morten „Duncan“ Rasmussen og Troels
Rasmussen og dansk-bandarísku leikkonuna Rie Rasmussen. Í upptalningu
á þekktu fólki með þessu nafni er líka vert að nefna Sunleif Rasmussen, eitt
þekktasta tónskáld Færeyinga.
FBL-GREINING: DANSKA NAFNIÐ RASMUSSEN
Níunda algengasta
ættarnafnið
bílaperur frá
Quarts
bílaperur
NÝJAR
allt að 80% meira ljós
SKYLDIR? Lars Lökke Rasmussen, Anders Fogh Rasmussen og Poul Nyrup Rasmussen.
Blaðberinn
bíður þín
Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24
alla virka daga frá kl. 8-17.
óðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn...