Fréttablaðið - 07.04.2009, Síða 20
20 7. apríl 2009 ÞRIÐJUDAGUR
greinar@frettabladid.is
FRÁ DEGI TIL DAGS
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is
MENNING: Páll Baldvin Baldvinsson fulltrúi ritstjóra pbb@frettabladid.is VIÐSKIPTARITSTJÓRI: Óli Kr. Ármannsson olikr@markadurinn.is HELGAREFNI: Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is og Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Emilía Örlygsdóttir emilia@frettabladid.is
og Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf.
RITSTJÓRAR: Jón Kaldal jk@frettabladid.is og Þorsteinn Pálsson thorsteinn@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI:
Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á
höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur
sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871
Um daginn fór fram endurnýj-un á landsfundi Sjálfstæðis-
flokksins sem fólst í því að nýjum
mönnum var skipað í brúna. Ekki
sáu menn ástæðu til að endur-
skoða stefnu flokksins enda voru
menn almennt sáttir við stjórn
hans á efnahagsmálum. Til að
undirstrika það var fyrrverandi
formaður flokksins til margra
ára fenginn til að segja brandara
og sáust myndir af fundarmönn-
um veltast um af hlátri yfir máli
hans. Sjálfstæðismenn afneita þó
ekki hruni frjálshyggjunnar en
hún kemur þeim ekki við enda var
flokkurinn aldrei frjálshyggju-
flokkur. Segir hinn nýi formaður.
Það var eiginlega orðið löngu
tímabært að sjálfstæðismenn
fræddu okkur um þetta því að
satt að segja var maður farinn að
misskilja ýmislegt. Að hluta til
má þó kenna leiðtogum flokks-
ins sjálfum um þetta þar sem þeir
ráku félög eins og Frjálshyggju-
félagið og gáfu út bækur sem hétu
nöfnum eins og Uppreisn frjáls-
hyggjunnar. Kannski ekki skrítið
að einhverjum detti í hug að snúa
út úr og halda því fram að frjáls-
hyggjan hefði eitthvað með hug-
myndafræði Sjálfstæðis flokksins
að gera. En þetta er sem sagt mis-
skilningur eða kannski var okkur
að dreyma. Maður fær raunar
oft þá tilfinningu þegar maður
fylgist með pólitískri umræðu á
Íslandi þessa dagana.
Núna er t.d. mikið deilt um
gjaldeyrishöft en það merkilega
er að þeir sem gagnrýna þau
núna eru þeir sömu og ákváðu
að taka þau upp fyrir fáeinum
mánuðum. Núverandi ríkisstjórn
hefur ekki gert annað en að reyna
að tryggja að kerfið sem fyrri
ríkisstjórn tók upp virki eins og
það á að gera. Af einhverjum
ástæðum hindrar það samt ekki
sjálfstæðismenn í að draga fram
áratuga gamlar klisjur um hafta-
búskap og gefa í skyn að ríkis-
stjórnin hafi komið á höftum af
illmennsku sinni en ekki vegna
þess að allir íslenskir bankar
urðu gjaldþrota, ríkisstjórnin
þurfti að þjóðnýta tapið og ganga
í leiðinni til nauðasamninga við
nokkrar erlendar þjóðir. Allt á
meðan þeir stóðu vaktina.
Lausnirnar sem nú eru í boði
flokksins sem er ekki og hefur
aldrei verið frjálshyggjuflokkur
– og síamstvíbura flokksins hjá
Viðskiptaráði og Samtökum
atvinnulífsins – kallast raunar
óþægilega mikið á við málflutn-
ing sömu aðila fyrir fáeinum
misserum; málflutning tímans
þegar hinir einkavæddu og
ofvöxnu bankar voru að byggja
upp milljarðaskuldir undir því
kjörorði að menn færu alltaf
betur með eigið fé en annarra.
Man einhver eftir því þegar
bankarnir vildu gera ensku að
ríkismáli vegna þess að íslensk-
an var ekki nógu kúl fyrir þá?
Eða þegar Viðskiptaráð sam-
þykkti ályktanir um að Íslend-
ingar mættu ekki bera sig saman
við Norðurlöndin vegna þess
að við stæðum þeim „framar á
flestum sviðum“? Já, ótrúlegt
en satt: Fyrir fáeinum mánuðum
fannst Viðskiptaráði það mark-
tækt innlegg í pólitíska umræðu
að Ísland væri svo miklu betra
en hin Norður löndin. Og frjáls-
ara, gleymum því ekki. Samt
var Sjálfstæðisflokkurinn aldrei
frjálshyggjuflokkur. Ekki í raun.
Núna hafa sjálfstæðismenn
gleymt frjálshyggjunni og við
eigum að gera það líka. Við-
skiptaráð minnist ekki lengur
á ályktanirnar um að við séum
miklu betri en Norðurlöndin.
Þeir hafa gleymt þessu og vilja
að við gerum það líka. Og hinir
frjálsu fjölmiðlar vilja auðvitað
stuðla sem mest að þess konar
minnisleysi enda eru það sömu
aðilar sem eiga þá. Minnisleysi
getur verið þægilegt ef ætlunin
er að læra ekkert af mistökum.
Annars er það hins vegar ekkert
sérlega sniðugt.
Núna virðist drjúgur hluti
þjóðar innar vera ákveðinn í að
halla sér aftur að stólbakinu og
gleyma á meðan hlegið er að
uppistandi Kristgervingsins.
Hann leiðir þá aftur í gömlu góða
dagana þegar þeir voru mennirn-
ir með svörin – eða raunar hann
með svörin fyrir þá. Kannski
koma þeir aftur ef við skiptum
um merkimiða, látum eins og
ekkert hafi gerst og reynum að
kenna manninum sem kom á eftir
að þrífa upp það sem við gerðum
sjálf? Jafnvel hrópa á skúringa-
manninn af þjósti: Af hverju ertu
ekki búinn að þrífa upp það sem
ég sullaði niður? Þannig er veröld
hinna minnislausu. En ef þrifin
eiga að ganga upp er kannski
betra að við hin vísum sóðanum
á dyr og leyfum honum að standa
úti; a.m.k. rétt á meðan verið er
að þrífa.
Minnisleysingjarnir
SVERRIR JAKOBSSON
Í DAG | Endurnýjun
Sjálfstæðisflokksins
UMRÆÐAN
Ögmundur Jónasson skrifar um al-
þjóðaheilbrigðisdaginn
Afar öflugur jarðskjálfti, 6,1 stig á Richt-er, skók Suðurland í maí á síðasta ári.
Töluverðar skemmdir urðu á þeim svæðum
sem næst lágu skjálftaupptökunum. Lítils-
háttar skemmdir urðu á Sjúkrahússinu
á Selfossi og var það rýmt að hluta. Eftir
skoðun kom í ljós að engar skemmdir voru á
burðarþoli byggingarinnar og var því hægt
að halda uppi eðlilegri starfsemi á sjúkrahúsinu.
Mikilvægt er að byggingar heilbrigðiskerfisins
standi af sér hamfarir og neyðarástand til að geta
veitt þá þjónustu sem þörf er á. Í ár er alþjóðaheil-
brigðisdagurinn tileinkaður áhrifum neyðarástands
á sjúkrahús og viðbúnað þeirra en Alþjóðaheilbrigðis-
málastofnunin (WHO) heldur upp á daginn 7. apríl ár
hvert. Í tilefni dagsins leggur WHO sérstaka áherslu
á að sjúkrahús séu hönnuð til að standa af sér neyðar-
ástand, að þau hafi viðbragðsáætlanir og að þeim
séu tryggð nauðsynleg aðföng. Einnig leggur WHO
áherslu á að heilbrigðisstarfsfólki sé gert kleift að
takast á við afleiðingar neyðarástands.
Á Íslandi hefur verið byggt upp traust
viðbúnaðarkerfi til að takast á við náttúru-
hamfarir og aðrar ógnir. Samkvæmt lögum
um almannavarnir er heilbrigðisstofnun-
um skylt að útbúa viðbragðsáætlanir og
er nú unnið að samræmingu þessara áætl-
ana. Ísland er þátttakandi í norrænu sam-
starfi um heilbrigðisviðbúnað og hefur að
auki innleitt alþjóðaheilbrigðisreglugerð
WHO sem hefur það að markmiði að hindra
alþjóðlega útbreiðslu hættulegra smitsjúk-
dóma og sjúkdóma af völdum eiturefna og
geislavirkra efna.
Á hverjum tíma standa lönd heims frammi fyrir
einhvers konar neyðarástandi hvort heldur sem
það eru náttúruhamfarir, átök, smitsjúkdómar eða
efnahagsþrengingar. Mikilvægt er að heilbrigðis-
þjónustan sé örugg, öflug, búin réttum aðföngum
og tryggð fjármögnun til að geta brugðist við þeim
aðstæðum sem upp koma.
Við getum ekki fyrirbyggt neyðarástand en við
getum reynt að tryggja að þegar neyðarástand
skapast séum við tilbúin að takast á við það svo
það hafi sem minnsta röskun í för með sér.
Höfundur er heilbrigðisráðherra.
Í
sjónvarpsumræðum leiðtoga stjórnmálaflokkanna undir lok
síðustu viku kom aðeins fram ein yfirlýsing sem hafði pólit-
ískt gildi fyrir framtíðina. Það var staðfesting forsætisráð-
herra á að umsókn um aðild að Evrópusambandinu yrði ekki
forgangsverkefni þegar að loknum kosningum.
Hvers vegna er þessi yfirlýsing afdrifarík? Svarið er: Lítil von er
til að Ísland losni úr viðjum gjaldeyrishafta og hárra vaxta meðan
krónan er gjaldmiðill landsins. Við þær aðstæður er hætt við að
atvinnuleysisskráin vaxi hraðar en verðmætasköpunin.
Því er haldið fram að með því að semja við erlenda eigendur
krónubréfa verði unnt að opna fyrir frjáls gjaldeyrisviðskipti á
ný. Ekki er þó á vísan að róa í þeim efnum. Þeirri spurningu hefur
ekki verið svarað í því samhengi hvers vegna Íslendingar ættu
betur að treysta gjaldmiðlinum en þeir útlendingar sem hér hafa
lokast inni með krónur.
Stefnan í peningamálum er óbreytt. Af fundargerð nýju pen-
ingastefnunefndarinnar verður tæpast annað ráðið en að hún meti
meir hagsmuni erlendra eigenda krónubréfa en íslenskra atvinnu-
fyrirtækja.
Bæði ríkisstjórnin og stjórnarandstaðan lýsa því yfir að hávext-
irnir og höftin séu til bráðabirgða og skapa þurfi skilyrði til þess að
tuttugu þúsund ný störf verði til. Vandinn er sá að á hvorugt borð
eru menn með aðgerðir á prjónunum sem glæða von um að þær
aðstæður komi þegar til lengri tíma er litið sem leyst geta þjóðina
undan oki gjaldeyrishafta og böli atvinnuleysis.
Hvernig má það vera að raunhæfar framtíðarlausnir eru ekki í
boði í aðdraganda kosninga? Sennilegasta skýringin er að enginn
þungi er í kröfunni um úrbætur, hvorki frá fólkinu né fyrirtækj-
unum. Nauðsynlegt uppgjör við fortíðina á allan huga fólks. Af því
leiðir að lítil orka er aflögu til að knýja á um lausnir.
Vinstri grænt og Sjálfstæðisflokkurinn eru alfarið á móti evru
með aðild að Evrópusambandinu. Í báðum flokkum liggja að baki
mismunandi rök þjóðernishyggju og hagsmunagæslu. Óhagræði
sjávarútvegs og landbúnaðar af Evrópusambandsaðild sýnist
þyngra á vogarskálum hagsmunamatsins en ávinningur af frjáls-
um gjaldeyrisviðskiptum og samkeppnishæfri mynt.
Samfylkingin og Framsóknarflokkurinn hafa aðild á dagskrá.
Báðir flokkarnir hafa vikið henni til hliðar af mismunandi ástæð-
um. Samfylkingin metur þá hagsmuni meiri að tryggja frið í
ríkisstjórnarsamstarfinu en að setja aðild sem skilyrði. Í Fram-
sóknarflokknum er andstaðan rík þrátt fyrir stefnuyfirlýsinguna.
Flokksforystan lítur þar af leiðandi svo á að meiri hagsmunir séu
í því að rugga ekki bátnum en róa að stefnumiðinu.
Mikill meirihluti Samtaka atvinnulífsins telur óhjákvæmilegt að
taka upp nýja mynt með Evrópusambandsaðild. Andstaða útvegs-
manna hefur hins vegar lamað afl samtakanna. Fyrir vikið hafa
þau lítið fram að færa til lausnar og kjósa þögnina. Alþýðusam-
bandið styður eðlilega aðild. Forysta þess ákvað hins vegar að
fresta því um sinn að knýja á um framgang málsins til að trufla
ekki stjórnarsamstarfið. Þeir hagsmunir voru taldir brýnni en von
fólksins um vöxt í atvinnulífinu.
Spurningin er: Á að bíða eftir að atvinnuleysisskráin fylli töl-
una þrjátíu þúsund? Stundaglas andvaraleysisins tæmist fyrr en
varir. Nokkur ár tekur að innleiða nýjan gjaldmiðil. Fyrir þá sök
má engan tíma missa. Heildarhagsmunirnir eru skýrir. Víst er að
upplokið verður fyrir þeim sem knýja á. Hvar eru þeir?
Um meiri hagsmuni og minni:
Króna = höft
ÞORSTEINN PÁLSSON SKRIFAR
Ekki svara
Alþingiskosningar nálgast óðfluga og
flokkarnir keppast við að uppfæra
heimasíður sínar. Samfylkingin tók
einmitt nýlega í notkun mikinn vef
þar sem kennir ýmissa grasa. Undir
liðnum notendaskilmálar, sem gengi
frá meðalstórum finnskum
skógi væri hann prentaður
út, er fólk hvatt til að setja
sig í: „samband við Sam-
fylkingin [sic] með því að
skrifa tölvupóst á ekkis-
vara@mailer.samfylking.is.
Við munum bregðast við með
viðeigandi hætti.” Traust-
vekjandi það.
Við bjóðum betur
Mörgum þótti vel í lagt þegar
Sjálfstæðisflokkurinn kvaðst mundu
skapa tuttugu þúsund störf kæmist
hann til valda. Ekki þó Samfylking-
unni. Um helgina kom út kosninga-
bæklingur frá henni, þar sem segir:
„Við viljum skapa fleiri en 20
þúsund störf í fjölbreyttum
atvinnugreinum
um land
allt!“ Býður
einhver
betur?
Einfalt mál
Samfylkingin lætur ekki þar við sitja.
Í sama kosningabæklingi er líka farið
í saumana á því hvernig Ísland getur
rétt úr kútnum. Þar dugar ekkert hálf-
kák: „Fyrst leysum við tímabundinn
vanda með markvissum aðgerðum
sem fela ekki í sér óábyrga skulda-
söfnun sem dregur harðindin á
langinn.“
Já, hvaða mótleik eiga þeir í
pokahorninu, talsmenn ómark-
vissra aðgerða sem fela í sér
óábyrga skuldasöfnun sem
draga harðindin á langinn, nú
þegar vopnin hafa verið slegin
úr höndum þeirra?
bergsteinn@frettabladid.is
Alþjóðaheilbrigðisdagurinn 2009
ÖGMUNDUR
JÓNASSON
SMÁLÚÐA, LAXAFLÖK OG
FULLT AF ÖÐRU GÓMSÆTU
FYRIR PÁSKA
SELJUM EINNIG FISK Í MÖTUNEYTI
ATH ERUM ALDREI FISKLAUSIR
GLÆNÝ
STÓRLÚÐA