Fréttablaðið - 07.04.2009, Page 24
„Hún Karólína veit alveg hvað
klukkan slær þegar ég set á hana
rauða klútinn, því þá er hún að
fara í vinnuna og verður afskap-
lega ánægð með tilheyrandi væli
fagnaðar og spennings þegar við
beygjum upp að Sunnuhlíð,“ segir
Guðleifur Magnússon, bókbindari
og heimsóknarvinur Kópavogs-
deildar Rauða krossins, sem fer
með tík sína Karólínu í heimsókn-
ir á hjúkrunarheimilið Sunnu-
hlíð.
„Ég þurfti að finna mér eitt-
hvað til dundurs þegar ég missti
heilsuna síðsumars 2006, en
skömmu síðar fór verkefnið af
stað hjá Rauða krossinum. Í kjöl-
farið fór ég með Karólínu í úttekt
til Brynju Tomer hjá VÍS, en hún
tekur hundana til kostanna, athug-
ar geðslag þeirra og taugar, með
því að bregða þeim og fara með þá
í lyftu, og prófið stóðst hundurinn
minn ágætlega,“ segir Guðleifur
sem síðan hefur farið í félagi við
Karólínu á milli deilda Sunnuhlíð-
ar til að heilsa upp á heimilisfólk-
ið. „Það er afskaplega gefandi því
fólkið er farið að þekkja okkur
og tekur komu okkar fagnandi.
Það lifnar yfir fólkinu, marg-
ir vilja klappa tíkinni og sumir
gefa henni hundanammi til að fá
að launum kúnstir, eins og handa-
band og setur.“
Þau Guðleifur og Karólína fara
einnig á fund barna af ýmsu þjóð-
erni þegar þau koma saman hjá
Kópavogsdeild RKÍ í Hamraborg.
„Þær heimsóknir vekja heilmikla
lukku og virðast gefa krökkunum
mikið. Karólína er skemmtileg
og brýtur upp dag barnanna sem
flest glíma enn við tungumála-
örðugleika en finna í hundinum
málleysingja sem þau geta gefið
sig að, klappað og knúsað,“ segir
Guðleifur og bætir við að heim-
sóknarvinnan sé gefandi fyrir
alla sem að henni koma.
„Margir í Sunnuhlíð eru af
gömlu bændakynslóðinni og segja
mér frá hundum sínum í sveit-
inni forðum, en það virðist gefa
þeim mikið að endurnýja kynnin
við besta vin mannsins. Félags-
skapur Karólínu er ómetanlegur
og henni fylgir andleg upplyft-
ing líka, því hún kemur alltaf og
minnir á sig, án þess að vera frek
eða krefjandi. Mín vegna mætti
útfæra heimsóknarvináttuna enn
meira og ég vildi gjarnan fara til
fleira fólks með Karólínu. Það er
svo ljúft að fara út á meðal fólks,
láta gott af sér leiða og njóta þess
í leiðinni.“
thordis@frettabladid.is
Spennt að fara í vinnuna
Stundum hefur verið sagt um hunda að þeir sér bestu vinir mannsins. Viðmót þeirra er fals- og fordóma-
laust en ávallt hlýtt og gefandi, enda vinsæll félagsskapur ungra sem aldinna, veikra sem frískra.
Guðleifur Magnússon með tíkina Karólínu sem er fimm og hálfs árs blendingur Border og Springer. Skapgerð hennar er ljúf og
stöðug, og henni finnst gott að fá klapp og vera innan um fólk. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ÓFRJÓSEMISAÐGERÐIR á Íslandi voru 486 árið 2007, 190 konur og 296
karlar. Þetta eru töluvert færri aðgerðir en framkvæmdar hafa verið mörg undanfarin
ár, en þær voru flestar tæplega 800 um síðustu aldamót. Fækkunin hefur einkum
orðið meðal kvenna. Frá þessu greinir í Talnabrunni, fréttabréfi Landlæknis.
Húðin í kringum
augun er fimm sinnum
þynnri en andlitshúð-
in og að minnsta kosti
tvisvar sinnum við-
kvæmari. Því
er mikil-
vægt að
nota góð
augn-
krem til að vernda
hana fyrir ótímabærri
öldrun.
500 hollráð
www.balletskoli.is
Vornámskeið fyrir 3 – 4 ára
og 5 – 6 ára börn.
Kennt er í Skipholti 35,
Reykjavík
Innritun í síma 567 8965
B A L L E T
N Á M
S K E I Ð
Næstu fyrirlestrar og námskeið
07. apríl Erum við andleg og líkamleg eiturefna-
úrgangs-ruslaskrímsli?
Edda Björgvins leikkona
14. apríl Sætuefnið Aspartam - Er Diet kók betra
en venjulegt kók?
Haraldur Magnússon osteópati
16. apríl Hvað er málið með aukakílóin?
Matti Ósvald heilsufræðingur
18. apríl Hláturjóga með jákvæðu styrkjandi ívafi
Ásta Valdimarsdóttir hláturjógakennari
21. apríl Spa dekur
Kolbrún Björnsdóttir grasalæknirwww.madurlifandi.is
Curaden (www.curaden.ch) vörurnar fást í verslunum Lyfju en nú einnig í sjálfstæðu apótekunum;
Árbæjarapóteki, Garðsapóteki, Laugarnesapóteki, Lyfjaveri, Reykjavíkurapóteki og Rimaapóteki.
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki