Fréttablaðið - 07.04.2009, Síða 30
26 7. apríl 2009 ÞRIÐJUDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Hvað er
langt á
milli sam-
dráttanna?
Ég fæ á
milli 12-15
mínútna
á minni
klukku.
Þá
ættum
við að
hringja á
bíl!
Eigum við ekki
að sjá hversu
fljót kasólétt
kona er að
hlaupa 60
metra?
... eins fljótt og
auðið er takk!
Varirnar þínar eru eins
og tveir glæsilegir,
blíðir, fullkomnir...
... blóm-
vendir.
Það er sagt að stelpur
falli fyrir því þegar maður
er ljóðrænn, en ég hef
ekki orðið var við það.
Hvað er eiginlega
á frílistanum
mínum í dag?
Ég elska
frílista.
Mamma,
Hannes sakn-
ar leikskólans
og hann vill
bjóða kennar-
anum sínum
í heimsókn til
að leika!
Ég sagði honum að það
væri heimskulegt, en
hann hlustar ekki.
Æ, þú ert svo yndislegur!
Ég skal finna númerið
hennar.
„Yndislegur“ þýðir í raun
„auli“.
Hafðu þetta
mjúka lendingu.
Engan
gusugang!
1. Nákvæmlega
ekkert.
Alþingishúsið minnir meira á fjölleika-hús en sjálfa æðstu stofnun þjóðar-innar þessa dagana. Maður hefur oft
borið lotningarfulla virðingu fyrir þing-
mönnum og húsinu sjálfu en þeim sem þar
sitja inni um þessar mundir hefur svo sann-
arlega tekist – með betri árangri en mót-
mælendum tókst nokkurn tímann – að skíta
út innanstokksmuni. Ekki með eggjum og
málningar bombum heldur með þvættingi.
Manni nægir í raun og veru að grípa
niður í fyrirsagnir vefmiðla úr þingsal
til að sannfærast um að hinir réttkjörnu
fulltrúar þjóðarinnar hugsa fyrst og
fremst um þingsætið sitt. „Hættum
nú þessum kjánaskap góðir
þingmenn“ var fyrirsögn
Vísir.is. Reyndar voru
þingmennirnir ekki í eftir-
hermukeppni heldur skegg-
ræddu hvort fresta þyrfti
þingstörfum á meðan bein útsending frá
borgarafundi á Ísafirði færi fram. „Þing-
menn syngja og dansa darraðardans“ var
önnur fyrirsögn á mbl.is. Og þar mátti sjá
í útsendingu hversu óhæfir þingmennirn-
ir eru þrátt fyrir að þreytast seint á því að
skrifa um mikilvægi þeirra mála sem þyrfti
að afgreiða á kosningabloggum sínum. Því
miður fyrir þá eru kjósendur ekki með dóm-
arapróf í Morfís þótt ræðulistin sé þeim
hjartfólgnari en málefnið sjálft.
Vel getur verið að þingmönnum þyki
óskaplega gaman að stunda framíköll.
Og það er skiljanlegt að þeim skuli vera
umhugað um sína vinnu enda átján þúsund
manns á atvinnuleysisskrá. En það er með
hreinum ólíkindum að þingmenn skuli ekki
nálgast vinnu sína af auðmýkt og iðrun. Því
það eru um það bil einu verkfærin sem geta
unnið á því samviskubiti sem þeir ættu með
réttu að vera þjakaðir af.
Hið vonda samviskubit
NOKKUR ORÐ
Freyr Gígja
Gunnarsson
Sett upp í samstarfi við
„Ef eitthvað er áfallahjálp,
þá er það þetta leikrit.“
„Ég hef ekki hlegið annað
eins í lengri tíma ...“
Guðný Halldórsdóttir, kvikmyndaleikstjóri,
Lostafulli listræninginn, Rúv
„... ég gæfi sýningunni fimm stjörnur,
væri ég ekki alfarið á móti stjörnugjöf
í samskiptum manna ...“
María Kristjánsdóttir, Morgunblaðið
„Þetta var háðsk sýning en hún
var líka einlæg." „Mér finnst
þetta vera mjög vel heppnað ..."
Bjarni Jónsson, Lostafulli listræningin, Rúv
„... það fer hrollur um
hlæjandi kroppinn ..."
Silja Aðalsteinsdóttir, TMM
Miðasala er í síma 568 8000
og á borgarleikhus.is
Sýningum
lýkur í apríl
tryggðu þér
miða!