Morgunblaðið - 18.01.2008, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 17. TBL. 96. ÁRG. FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 2008 LANDSPRENT EHF. mbl.is
DRAUMURINN
LEIÐIR ÞEIRRA MAY Í FOOL FOR LOVE OG
ÞÓRU KARÍTASAR LÁGU LOKS SAMAN >> 42
FRÉTTASKÝRING
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is
ERU að skapast svipaðar aðstæður á
gjaldeyrismarkaði og sköpuðust í ársbyrjun
2006 þegar gengi krónunnar féll um 28% á
tveimur mánuðum? Þessari spurningu velta
menn nú fyrir sér en gengið hefur verið að
lækka síðustu daga.
Gengi krónunnar ræðst í dag mun meira af
spákaupmennsku en áður. Þetta sést kannski
best af því að þegar sjávarútvegsráðherra til-
kynnti um mikinn niðurskurð á þorskkvóta
hafði það engin áhrif á krónuna. Fyrir fáum
árum hefðu svona vondar fréttir strax leitt til
gengislækkunar.
Gríðarleg útgáfa af svokölluðum jöklabréf-
um hefur hins vegar orðið afgerandi áhrif á
þróun krónu. Það sem knýr spákaupmenn
áfram eru háir vextir hér á landi, mun hærri
en annars staðar.
Í upphafi árs 2006 skapaðist eins konar
hræðsluástand á gjaldeyrismarkaði. Erlendir
greiningaraðilar sendu frá sér skýrslur þar
sem fullyrt var að miklir veikleikar væru í ís-
lensku fjármálalífi og sumir gengu svo langt
að spá kreppu. Þetta leiddi til lækkunar á
hlutabréfum og lækkunar á gengi krónu.
Gengislækkunin var 28% á aðeins tveimur
mánuðum. Sérfræðingar töluðu um að á þess-
um tíma virtist sem enginn vildi taka stöðu
með krónunni vegna ótta við að hún ætti eftir
að veikjast enn frekar. Spákaupmennska
með krónu varð þannig til að ýkja sveifluna
og gera hana dýpri en hún hefði annars orðið.
Eiga ekki kost á ódýru lánsfé
Þótt allir viðurkenni að staða íslensku
bankanna sé traust, liggur einnig fyrir að
þeir eiga ekki kost á ódýru lánsfé. Þetta kann
að valda þeim erfiðleikum við að fjármagna
sig ef staðan á fjármálamörkuðum batnar
ekki. Þetta ásamt fleiru getur haft áhrif á
gengi krónunnar.
Veiking krónu leiðir til þess að verð á inn-
fluttum vörum hækkar og þar með verð-
bólga. Seðlabankinn hefur reynt að hamla á
móti verðbólgu með háum vöxtum en margir
hafa vonast eftir að það færi að styttast í að
bankinn byrjaði að lækka vexti. Geng-
islækkun og verðbólguskot gæti því orðið til
að tefja lækkun vaxta.
Gengislækkun eykur tekjur útflutnings-
atvinnuvega en eykur skuldir þeirra sem
skulda í erlendum gjaldmiðli. Það á jafnt við
um fyrirtæki og heimili. Eignir þeirra sem
fjárfest hafa erlendis aukast hins vegar við
gengislækkun krónu. Það á t.d. við lífeyr-
issjóðina.
Krónan að
veikjast
Spákaupmenn ráða
miklu um gengi krónu
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur
og Gunnar Pál Baldvinsson
TIL greina kemur að endurskoða verðmat á hlut
Hafnarfjarðarbæjar í Hitaveitu Suðurnesja
(HS) sem samþykkt hefur verið að selja Orku-
veitu Reykjavíkur (OR). OR vill kanna hvort for-
sendur samnings sem gerður var við bæjar-
félagið í sumar séu breyttar í ljósi aðildar
Hafnarfjarðarbæjar að Suðurlindum ohf.
Aðrir eigendur HS hafa tvo mánuði til að
ákveða hvort þeir nýta forkaupsrétt að hlut
Hafnarfjarðar en á þeim tíma ætlar OR ræða við
Hafnarfjarðarbæ um verðmat hlutarins. Hjör-
leifur Kvaran, forstjóri OR, segir ljóst að orku-
sölusamningur HS vegna álvers í Helguvík hafi
vegið þungt í verðmati OR á sínum tíma. „Við er-
um að skoða hvort einhverjar forsendur hafa
breyst,“ segir hann. „Það þarf að skoða hvort
Hafnfirðingar hafi tekið einhverjar ákvarðanir
sem kunni að hafa breytt því sem samið var um.“
Á Hjörleifur þar einkum við stofnun Suður-
linda ohf. nú seint á síðasta ári. Að félaginu
standa Hafnarfjörður, Grindavík og Vogar og er
tilgangur þess að „standa vörð um sameiginlega
hagsmuni sveitarfélaganna“ varðandi náttúru-
auðlindir við Trölladyngju, Sandfell og Krýsuvík
Hjörleifur segir að Hafnarfjarðarbær þurfi að
svara því hvort tilgangurinn með stofnun Suð-
urlinda hafi að einhverju leyti verið sá að koma í
veg fyrir að unnin verði orka í landi fyrrnefndra
sveitarfélaga en slíkt gæti haft áhrif á orkusölu-
samning vegna álversins í Helguvík. „Ef svo
væri, og ég er ekki að segja að svo sé, þá hefur
það náttúrlega áhrif á verðmatið. Þá eru þær
forsendur sem við lögðum til grundvallar við
verðmatið ekki lengur til staðar.“
„Við viljum bara vera vissir“
Hjörleifur tekur fram að hann telji fyrirfram
ekki að þetta hafi verið tilgangurinn með stofn-
un Suðurlinda ohf. „Við viljum bara vera vissir
um þetta áður en við göngum frá samningum við
Hafnfirðinga.“ Nú þegar hafi einn fundur verið
haldinn með fulltrúum Hafnarfjarðarbæjar um
málið og þar hafi ríkt góður andi.
Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar-
bæjar, kannast við að forsvarsmenn OR hafi
lauslega spurt um áform Suðurlinda ohf. en seg-
ist ekki sjá að þau ættu að hafa áhrif á mat OR á
HS. „Enda kemur það þessu máli ekki við. Það
liggur fyrir samningur og hann er skjalfestur.“
Forsendurnar breyttar?
Í HNOTSKURN
» OR skuldbatt sig í sumar til að kaupaallan eignarhlut Hafnarfjarðarbæjar í
HS, um 15,4% á genginu 7.
» Um miðjan desember sl. samþykktibæjarstjórn Hafnarfjarðar svo að selja
OR 95% af þeim hlut fyrir rúma 7,6 millj-
arða króna.
OR vill svör um framtíðaráform Hafnarfjarðarbæjar áður en kaup á hlutnum
í HS ganga í gegn Bæjarstjórinn segir skjalfestan samning liggja fyrir
ÍSLENSKA landsliðið í hand-
knattleik mátti þola tap gegn
Svíum, 24:19, í fyrsta leik sín-
um á Evrópumótinu í hand-
knattleik í Noregi í gærkvöld.
Þrátt fyrir dyggan stuðning frá
fjölmörgum Íslendingum sem
lögðu leið sína til Þrándheims
náðu íslensku leikmennirnir sér
ekki á strik. Sóknarleikur liðs-
ins var afleitur og enn og aftur
gerðu sænskir markverðir okk-
ar mönnum lífið leitt.
Á ýmsu gekk hjá landsliðinu í
gær. Í gærkvöldi kviknaði eld-
ur í Hotel Britannia þar sem
landsliðshópurinn dvelur í
miðbæ Þrándheims. „Það fór
allt viðvörunarkerfið í gang og
hótelið var rýmt, en það var áð-
ur en við komum, þá var allt
búið. Mér skilst að skemmdir
hafi verið minni háttar en reyk-
urinn fór upp á næstu hæðir,“
sagði Einar Þorvarðarson,
framkvæmdastjóri HSÍ, í gær-
kvöldi, um 20 mínútum eftir að
landsliðið mætti á hótelið eftir
leikinn.
„Það kviknaði í hérna í kjall-
ara en það var fyrst og fremst
reykur.“ | Íþróttir
Reuters
Svíagrýlan gerði
aftur vart við sig
Gleði og vonbrigði Kim Andersson, sem skoraði 7 mörk fyrir Svía, fagnar í leikslok. Guðjón Valur Sigurðsson getur ekki leynt vonbrigðum sínum.
Lík í óskilum >> 44
Komdu í leikhús
Leikhúsin í landinu