Morgunblaðið - 18.01.2008, Blaðsíða 14
Viðhorf til þess að lífeyrissjóðurinn
byggi eða reki húsnæði
Breyting á viðhorfi ef kostnaður
sjóðsins gæti rýrt höfuðstól hans
Ertu hlynnt(ur) því að það geti haft
kostnað í för með sér fyrir sjóðinn
og rýrt höfuðstól hans?
Ertu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) því að lífeyrissjóðurinn
þinn byggi og reki húsnæði fyrir þá eldri borgara
sem hafa greitt í sjóðina?
Árið 2006 var innkoma lífeyrissjóðanna um 277 milljarðar. Eign
þeirra til greiðslu lífeyris var 1439 milljarðar eða um 4,9 milljónir
á hvern íbúa landsins.
Í maí 2006 gerði Capacent, Gallup könnun að minni ósk, sem
sýnir að um 70% landsmanna á aldrinum 16-75 ára eru hlynnt því
að lífeyrissjóðir byggi og reki húsnæði fyrir þá eldri borgara sem
greitt hafa í þá. Til að taka af allan vafa voru þeir, sem hlynntir
voru byggingu slíks húsnæðis, spurðir að því hvort þeir væru
hlynntir því þrátt fyrir rýrnun höfuðstóls lífeyrissjóðanna.
Yfirgnæfandi meirihluti svaraði játandi og staðfesti vilja þjóðarinnar
til að hlúa betur að öldruðum, sem enn þurfa að láta óviðunnandi
aðstæður yfir sig ganga.
Það skal tekið fram að hér er ekki verið að óska eftir gjöf eða
ölmusu af hendi lífeyrissjóðanna heldur snýst óskin um að byggt
verði hagkvæmt húsnæði til leigu fyrir aldraða. Bygging slíks
húsnæðis yrði því fjárfesting til framtíðar fyrir lífeyrissjóðina.
Jóhanna,
Íslendingar eru sammála þér!