Morgunblaðið - 18.01.2008, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 18.01.2008, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 2008 35 ✝ María KarólínaGunnþórsdóttir fæddist á Skálateigi á Norðfirði 20. jan- úar 1937 en ólst upp á Borgarfirði eystra. Hún lést 10. janúar síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Gunnþór Eiríksson, f. 22. ágúst 1912, d. 9. jan. 1986 og Hild- ur Halldórsdóttir, f. 5. apríl 1914, d. 3. febr. 1966. Systkini Maríu eru Guðrún Jónína, f. 3. jan. 1936, d. 12. mars 1993, Guðný Ragna, f. 17. ágúst 1938, Eiríkur, f. 27. mars 1940, Magnús, f. 15. apríl 1941, Hulda Sigurbjörg, f. 3. maí 1945. Reynir, f. 10. maí 1948, og Hjördís, f. 1. okt. 1951. María giftist 12. júní 1960 8. febr. 1983, Eiður Ísak, f. 4. ágúst 1987 og Oddný Karólína, f. 20. jan. 1996. 5) Kári Haukur, f. 30. júlí 1962, d. 30. sept. 1964. 6) Erlingur Kristinn, f. 12. sept. 1963, d. 25. okt. 1992, sonur hans Hreinn, f. 30. des. 1984. 7) Hlynur, f. 28. nóv. 1965, sambýliskona Svanhildur Frey- steinsdóttir, dætur þeirra Hekla Diljá, f. 29. sept. 1994, og Guðlaug Erla, f. 9. sept. 2001. 8) Vignir, f. 26. sept. 1967, unnusta Nína Björnsdóttir, sonur hans Sveinn Húni, f. 21. maí 1997. 9) Ríkarður, f. 19. apríl 1970, kvændur Ödu Su- bocz, dóttir hans María Björk, f. 7. ágúst 1992. 10) Hilda Karen, f. 28. apríl 1976, dóttir hennar Maríanna Sól Hauksdóttir, f. 6. mars 2001. María og Garðar reistu sér bú á Breiðdalsvík árið 1958. Þar ann- aðist María barnmargt heimili ásamt ýmsum öðrum störfum. Síð- ustu starfsárin rak María ásamt manni sínu litla en afar farsæla út- gerð. Hún sá um bókhaldið og beitningu en Garðar var á sjónum. María bjó í Reykjavík síðustu árin. Útför Maríu verður gerð frá Heydalakirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. Garðari Þorgríms- syni vélstjóra frá Sel- nesi á Breiðdalsvík, f. 9. okt. 1932. Börn þeirra eru: 1) Oddný Þorgerður, f. 14. febr. 1956, gift Ingva Sig- urgeirssyni, sonur hennar Garðar Þor- steinsson, f. 28. mars 1975, börn þeirra Sig- urbjörg, f. 12. des. 1980, Kári, f. 23. maí 1987, og Erlingur Geir, f. 23. júlí 1994, d. 26. febr. 2000. 2) Hilmar Gunnþór, f. 21. febr. 1957, sambýliskona Arnhildur Arnalds- dóttir, synir þeirra Dagur, f. 11. febr. 1989 og Hugi 14. jan. 1994. 3) Óskírð, f. /d. 28. febr. 1958. 4) Björk Sigríður, f. 27. okt. 1960, sambýlismaður Hafsteinn Sveins- son, börn þeirra Garðar Marvin, f. Mig langar bara að kveðja þig, elsku mamma mín, með nokkrum orðum. Það fyrsta sem kemur upp í hugann er hversu dásamlega æsku við systkinin áttum á æsku- heimilinu í litla þorpinu okkar á Breiðdalsvík. Á Selnesi bjugguð þig pabbi fjölskyldunni gott heimili og þar var allt til alls og ekki yfir neinu að kvarta. Við lærðum það líka fljótt af þér mamma mín að það væri ekki leiðin til lífsins að vera sífellt kvartandi og kveinandi. Það kom að mestu í þinn hlut að annast heimilið vegna þess að pabbi var mikið að heiman vegna útgerðar og sjómennsku og það gerðir þú með miklum myndar- brag. Þú varst blíð og góð og um- hyggjusöm móðir, ákveðin og röggsöm sem uppalandi. Meðfram heimilsstörfunum rakst þú svo út- gerð og sinntir saumaskap af mikl- um áhuga og innlifun. En önnur eins saumakona og þú mamma er vandfundin. Þeir voru ófáir sem leituðu til þín og báðu þig um að sauma á sig hversdagsföt, spariföt, samkvæmiskjól og jafnvel brúðar- kjól. Þú varst allt í senn heima- vinnandi, útivinnandi, í aukavinnu og yndisleg móðir. Og það var sama á hverju gekk, alltaf var stutt í brosið og alltaf var rúm fyr- ir glettni og spaug. Einnig vekja stundirnar sem við eyddum á æskuheimili þínu á Bakkastekk á Borgarfirði eystra upp ljúfar minningar. En þangað fórum við oft á sumrin og dvöldum hjá Gunnþóri afa á Stekk. Það var mikið líf og fjör á gamla Stekk þegar allur hópurinn var þar sam- an kominn, þú og systkini þín og öll frændsystkinin. Þú varst stolt af æskustöðvum þínum og það smitaðist út í börnin þín enda lít- um við líka á okkur sem Borgfirð- inga. Það var fátt sem þú kveiðst fyrir mamma og engin þraut var svo erfið að ekki væri hægt að yf- irstíga hana. En í ólgusjó lífsins þá barst þú hag barnanna þinna alltaf fyrir brjósti. Þú hugsaðir alltaf fyrst og fremst um velferð okkar og svo síðar barnabarnanna. En barnabörnum þínum reyndist þú góð amma. Þú studdir vel við bakið á þeim í leik og starfi og tókst virkan þátt í því sem þau tóku sér fyrir hendur hvort sem það var ballett, fimleikar, fótbolti, frjálsar íþróttir, handbolti, hestamennska eða eitthvað annað. Alltaf voru þið pabbi mætt til þess að styðja við bakið á þeim. Elsku mamma mín, þú ert það bjarg sem við byggjum tilveru okkar á. Góða nótt, góða nótt mamma þetta er aldrei eins og það virðist aldrei eins auðvelt og maður telur. Sofðu vel, sofðu rótt því á morgun mun ég vaka yfir þér. Eins og stelpurnar mínar mundu segja: „Guð geymi þig vel, amma!“ Kveðja, Hlynur. Þegar ég minnist Maríu tengda- móður minnar dettur mér fyrst í hug dugnaður, glaðværð og æðru- leysi. Þessum kostum var hún búin og það í ríkum mæli. Þessir eig- inleikar hafa án efa hjálpað henni mikið í gegnum lífið og nú undir það síðasta í erfiðum veikindum. Að sumu leyti var lífið henni óvægið. Þau hjónin gengu í gegn- um þá erfiðu lífsreynslu að missa tvisvar ung börn, son á þrítugs- aldri og svo síðar barnabarn. Eng- inn veit hvernig það er nema hafa reynt það sjálfur. Þessa lífsreynslu ræddi hún lítið enda ekki í hennar skapgerð að bera sorg sína á torg. Einu sinni ræddi hún þennan missi við mig og sagði þá: „Ég varð að halda áfram, það voru svo margir sem þurftu á mér að halda.“ Mér finnst þessi orð lýsa henni vel. María lærði að lifa með því óbærilega og þrátt fyrir allt tel ég að hún hafi verið ánægð með líf sitt. Hún skilaði góðu ævistarfi ásamt manni sínum, kom upp myndarlegum börnum og átti stór- an hóp af barnabörnum. Hún ræktaði garðinn sinn vel bæði í eiginlegri og óeiginlegri merkingu þess orðs. Maríu fannst fátt skemmtilegra en að hafa fólkið sitt í kringum sig og á síðasta ári vildi svo vel til að mörg tilefni gáfust til þess að hitt- ast. Við sem eftir erum eigum því margar góðar minningar um sam- verustundir, afmæli, grillveislur, utanlandsferðir og áramótapartí. Veikindi Maríu ágerðust síðasta haust en virtust þó ekki kvelja hana mikið en sennilega hefur henni oft liðið verr en hún lét uppi. Hún náði að halda jólin heima með fjölskyldunni og lét engan bilbug á sér finna. Í dag þakka ég Maríu samfylgd- ina og er þakklát fyrir allt sem hún gerði fyrir mig og syni mína. Ég tel mig lánsama að hafa fengið að kynnast henni. Arnhildur Arnaldsdóttir. Elsku María. Í dag er sunnudagur og ef þú værir ennþá hérna hjá okkur hefð- um við kíkt í kaffi til þín. Það er óbærilegur tómleiki sem ég finn fyrir að fá ekki að hitta þig og heyra glettinn húmor þinn. Þú varst einstök kona í alla staði og engin venjuleg manneskja á ferðinni. Þvílíkt æðruleysi sem þú bjóst yfir og hvað þú gafst börn- unum þínum og barnabörnum mik- ið. Ég dáðist alltaf að því þegar við komum öll saman hvað þú náðir að fylgjast vel með hvað allir voru að gera og vera þátttakandi í því en hópurinn er ekki lítill. Þú passaðir vel upp á börnin þín en þau voru þér allt. Þú gerðir þér grein fyrir því í uppeldi þeirra að menntun væri mikilvæg enda afburðavel greind kona. Þú varst alltaf með á nótunum alveg sama hvert mál- efnið var enda varstu víðlesin. Ekki má gleyma hvað allt lék í höndum þér alveg sama hvað það var og eigum við mikið til af fal- legum fatnaði og hlutum sem þú bjóst til. María mín, þú varst einstaklega skemmtileg kona og húmor þinn einstakur. Við eigum okkur marg- ar ógleymanlegar setningar sem þér tókst að segja án þess að særa neinn. Þú sagðir alltaf hlutina eins og þeir eru og aldrei með neinum æsingi. Eitt verð ég að minnast á í lokin en það er handtak þitt. Þú gerðir alltaf allt með mikilli hlýju, rósemi og myndarskap, alveg sama hvað það var. Elsku Garðar minn, ég veit að það myndast mikill tómleiki hjá þér núna en við verðum að trúa því að tíminn lækni öll sár. Guð gefi þér styrk í þinni miklu sorg. Kveðja, Svanhildur. Elsku amma, þegar litið er yfir farinn veg kemur margt upp í hug- ann. Síðustu daga hefur allt gerst svo hratt að stundum finnst mér þetta ekki vera raunverulegt. Ég á margar góðar æskuminn- ingar um þig og heimsóknir mínar til þín og afa á Breiðdalsvík eru ógleymanlegur þáttur í uppvexti mínum. Það var yndislegt að leika sér allan daginn úti í náttúrunni og koma svo inn í hlýjuna til ykkar afa. Ég man eftir að hafa upplifað mig svo frjálsa þegar ég var að leika mér í fjörunni eða vaða í læknum. Þú tókst alltaf sallaróleg á móti mér þegar ég kom inn þótt ég væri oft annaðhvort rennandi blaut eftir að vaða eða svo skítug að það þurfti að hátta mig á pall- inum fyrir utan húsið. Ég man að oft var ástandið þannig að ég átti ekki hrein föt að fara í því þau voru öll í þvotti. Þá fórstu í skáp- inn á ganginum og fannst á mig gömul föt af strákunum þínum en varst samt ekkert að reyna að tak- marka uppátæki mín utandyra. Enda þarf ekki að spyrja að því að þú varst ýmsu vön eftir að hafa al- ið upp allan krakkaskarann þinn. Af sögunum að dæma var ansi mikið fjör á Selnesi í þá daga og systkinin þar skorti víst ekki uppá- tækjasemina. Mér skilst að gang- urinn hafi oftar en ekki verið not- aður sem fótboltavöllur og ýmislegt brothætt orðið fyrir bolt- anum. En húsmóðirin alltaf jafn yfirveguð. Lífið var þó ekki alltaf dans á rósum og þau voru ófá áföllin sem þú gekkst í gegnum. Þegar ég var að alast upp fannst mér þú alltaf svo sterk af því að þú stóðst eins og klettur þrátt fyrir allt sem þú hafðir upplifað. Þess vegna fannst mér þú alltaf vera amma dreki. Þegar litli bróðir minn dó fann ég ómetanlegan styrk í fyrirmynd þinni. Þú vissir ekki hvað það var að gefast upp þó á móti blési og það hjálpaði mér að halda áfram á erfiðum tímum. Það er ekki hægt að hugsa um þig öðruvísi en að sjá þig fyrir sér sitjandi við saumavélina. Þú varst algjör listakona í höndunum og ég naut góðs af því. Ég þótti eiga sér- staklega mikið af fínum dúkkuföt- um þegar ég var lítil og þau saum- aðir þú. Svo fékk ég mikið af fallegum fötum frá þér sem þú saumaðir á mig að ógleymdum fermingarfötunum. Fyrir mér varst þú engin venju- leg kona. Þú hafðir litríkasta per- sónuleika sem ég hef komist í kynni við. Þú talaðir hreint út og varst ekkert að tvínóna við hlutina. Svo var alltaf mjög stutt í húm- orinn hjá þér og nærveru þinni fylgdu oft á tíðum mikil hlátra- sköll. Enda þóttir þú svo skemmti- leg að það fór orð af því í vinkon- uhópnum mínum hvað ég ætti einstaka ömmu. Það er erfitt að ímynda sér lífið án þín og stórt skarð höggvið í stórfjölskylduna eftir fráfall þitt. En við erum rík af yndislegum minningum um þig og þær veita okkur mikla gleði. Ég er einstak- lega þakklát fyrir að hafa fengið að vera samferða þér í lífinu. Nær- vera þín hefur verið mér ómet- anleg og minning þín verður ljós í lífi mínu um ókomna tíð. Elsku amma, hvíldu í friði hjá Guði í faðmi engla og ástvina sem farnir eru á undan þér. Þín dótt- urdóttir, Sigurbjörg Yngvadóttir. María Karólína Gunnþórsdóttir  Fleiri minningargreinar um Maríu Karólínu Gunnþórsdóttur bíða birt- ingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST Þegar andlát ber að höndum Önnumst alla þætti útfararinnar ÚTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður og ömmu, HLÍFAR INGIBJARGAR RAGNARSDÓTTUR, Víkurbraut 26, Hornafirði. Guð blessi ykkur öll. Guðrún Ester Þorsteinsdóttir, Ragnhildur Þorsteinsdóttir, Hallfríður Þorsteinsdóttir, Þór Ingólfsson, Hlynur Wüum, Páley Sonja Wüum, Særós Ester Leifsdóttir, Ingibjörg Erla Þórsdóttir, Þorsteinn Þórsson. ✝ Þökkum samúð og hlýhug við andlát og útför okkar elskulegu móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÁGÚSTU JÓNSDÓTTUR, Langholtsvegi 18, sem jarðsett var í kyrrþey þann 9. janúar síðastliðinn. Jón B. Kjartansson, Jóhann Ó. Kjartansson, Erla S. Kjartansdóttir, Kristján Þórarinsson, Brynja Kjartansdóttir, Oddur Kjartansson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Hugheilar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför eiginkonu minnar, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, HREFNU MAGNÚSDÓTTUR, áður til heimilis að Rauðalæk 23, Reykjavík. Jónas Valdimarsson, Valdemar Steinar Jónasson, Unnur Kristinsdóttir, Hrafnkell Tjörvi Stefánsson, Arndís Reynisdóttir, Hrólfur Þór Valdemarsson, Valdís Karen Smáradóttir, Hilda Valdemarsdóttir, Steinar Smári Hrólfsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.