Morgunblaðið - 18.01.2008, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 18.01.2008, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 2008 31 áttu Bjarna í minn garð og fjölskyldu minnar geymi ég í hlýjum huga og fyrir þennan trausta vin vil ég þakka. Ég bið Bjarna allrar blessunar á nýjum vettvangi sem við báðir vorum sannfærðir um að tæki við að loknu jarðlífi. Ég veit að sá sem öllu ræður verndar hann áfram. Guð blessi góð- an dreng. Ástvinum Bjarna votta ég einlæga samúð. Árni Helgason, Stykkishólmi. Listamaður af Guðs náð, glæsileg- ur með fas grísku guðanna, sagna- maður og talaði mannamál bæði í orðum og myndum. Hann var einn af bestu teiknurum íslensku þjóðarinn- ar og teiknaði og málaði hluta af sögu þjóðarinnar, til að mynda sögu ára- skipanna sem nú er til í tugum mál- verka í Þjóðminjasafni Íslands þótt ekki sé enn til salur að sýna þessar gersemar. Bjarni Jónsson listmálari og teiknari með eindæmum hefur myndskreytt tugi bóka og rita með snilld sinni auk þess að leggja rækt við að festa í mynd arfinn og hefð- irnar sem tengdu Ísland við nú- tímann á miðri síðustu öld, stemmn- ingu sveitanna, lífið við sjóinn, saltfiskvinnslu á stakkstæðum, ár af afli við hlunn, bólgna hnúa, pilsfalda á túni og hrífur á lofti, úfinn sjó, æv- intýri og þjóðsögur, landið og miðin og allt þar á milli. Bjarni var ótrúlega afkastamikill listamaður og svo ná- kvæmur og flinkur í handverkinu að hann naut takmarkaðra vinsælda hjá þeim sem eru oft í hlutverki gagnrýn- anda í okkar þjóðfélagi og vilja sjálfir túlka verk listamanna. Það þurfti enga túlka á verk Bjarna Jónssonar, þau sögðu alla söguna á máli brjóst- vitsins. Á sinn hátt var hann þó alltaf einfari á samleið með listagyðjunni. Það voru ævintýralegar kennslu- stundir hjá Bjarna og Páli Stein- grímssyni kvikmyndasnillingi og list- málara í Myndlistarskóla Vestmannaeyja fyrir hart nær hálfri öld. Hver einasti aukvisi í tímum trúði því að hann væri listamaður og mikið leið okkur vel. Við dáðumst að verkunum sem við vorum látin vinna í vatnslitum, leir og olíu. Þetta var svo gaman og gefandi og kennararnir blésu okkur bárufalda af gleði í brjóst. Svo fjaraði þetta auðvitað út þegar tímarnir voru búnir og hvers- dagsleikinn blasti við, en þessi kennsla, þessi hvatning, kveikti á perunni svo bjarmaði á listagyðjuna og hefur skipt máli alla tíð síðan. Það þarf nokkuð til. Vinur minn RAX ljósmyndari sagði mér einhvern tíma að mynd Bjarna af landpóstunum hefði vakið sinn áhuga á listum. Þar hefur uppskeran orðið ríkuleg. Stundarkorni áður en Bjarni kvaddi þetta líf átti ég samtal við hann í síma og við ráðgerðum bíltúr og spjall þegar hann væri búinn að mæta til læknis síns til þess að taka naglana úr fæti eftir beinbrot við fall síðastliðið haust, fall sem kippti lík- lega meira af leið en menn áttuðu sig á. Hann var hress í samtalinu, hlakk- aði til að losna úr viðjum meiðsla, hlakkaði til að halda sínum takti og baráttugleðin leyndi sér ekki. Bjarni Jónsson var fæddur sjarm- ör, frábær listamaður og íslensk þjóð hefur misst mikið. Slíkar náttúru- perlur eru sjaldgæfar. En nú liggur blýanturinn á borðinu án fimra fingra, pensilhárin svigna ekki leng- ur en minningin lifir um frábæran dreng sem bar fegurð íslenskrar menningar í brjósti sér og fangaði hana í verkum sínum fyrir framtíð- ina. Minning sem er hvatning og Guðs gjöf. Megi vinir og vandamenn Bjarna eiga styrk og von, megi almættinu nýtast vel að fá til liðs listamann af Guðs náð. Árni Johnsen. Kveðja frá Rótarýklúbbi Hafnarfjarðar Góður félagi okkar í Rótarýklúbbi Hafnarfjarðar, Bjarni Jónsson list- málari, lést þriðjudaginn 8. janúar sl. Það er ótrúlegt að hann skuli vera farinn frá okkur svona skyndilega. Hann mætti á rótarýfund eins og venjulega fimmtudaginn 3 janúar sl. Bjarni gekk í Rótarýklúbb Hafn- arfjarðar 22. júní 1962 og var í honum til dauðadags að frátöldum tólf árum á sjöunda og áttunda áratugnum er hann tók sér frí frá rótarýstörfum. Bjarni var áhugasamur og aðgætinn félagi sem mætti 100% á alla fundi, ef hann gat ekki mætt hjá okkur var hann duglegur að sækja fundi í öðr- um rótarýklúbbum, það eru ekki margir sem geta státað af slíkri mæt- ingu. Félagar virtu hann mikils fyrir þetta. Bjarni mætti alltaf snemma á fundi, helst hálftíma fyrr og hafði gaman að því að hitta aðra félaga sem mættu snemma til að ræða ýmis mál- efni sem efst voru á baugi á hverjum tíma. Þessi hópur er kallaður „bar- hópurinn“ því þeir settust í hæginda- stóla við barinn áður en gengið var í fundarsalinn Það hefur örugglega verði mikið rætt á þessum forfund- um. Bjarni var einlægur rótarýmaður sem vildi Rótarýhreyfingunni allt hið besta. Hann var ósérhlífinn og fórn- fús að leggja fram vinnu í þágu klúbbsins í sinni listgrein og teiknaði meðal annars myndir af öllum fé- lögum klúbbsins. Bjarni var ávallt reiðubúinn að leggja sitt af mörkum sem kæmi sér vel fyrir klúbbinn og þegar ákveðið var að hefja fjáröflun með því að búa til jólamerki þá lét Bjarni sitt ekki eftir liggja. Hann teiknað jólamerki 27 sinnum. Jólamerkið 2007 teiknaði Bjarni. Bjarni teiknaði líka borðfána fyrir klúbbinn. Fyrir alla þessa vinnu erum við félagarnir ávallt þakklát. Bjarni gegndi ýmsum trúnaðar- störfum fyrir klúbbinn. Hann var stallari 1963-1964, ritari 1994-1995 og forseti klúbbsins 1997-1998. Hann var lipur og vinsæll stjórnandi og undir hans stjórn voru meðal annars fyrstu konurnar teknar inn 1998 sem var töluvert umdeilt þá og alls ekki auðvelt viðureignar. Bjarni var gerður að Paul Harris- félaga árið 1996 í virðingarskyni fyrir ómetanleg störf sín í þágu klúbbsins. Bjarni Jónsson var ákaflega fé- lagslyndur maður og þægilegur í allri framkomu við félagarnir í Rótarý- klúbbi Hafnarfjarðar munum sakna hans og minnast hans með hlýhug og virðingu. Félagar í Rótarýklúbbi Hafnar- fjarðar senda aðstandendum Bjarna innilegar samúðarkveðjur. Gunnhildur Sigurð- ardóttir forseti. Kveðja frá Víkinni – Sjóminjasafninu í Reykjavík Í dag er til moldar borinn Bjarni Jónsson listmálari. Þar er genginn einstakur hæfileika- og heiðursmað- ur. Hann var kennari að aðalstarfi framan af ævi en það sem lengst mun halda nafni hans á lofti er myndlist hans, einkum tengd sjávarútvegi og sjómennsku. Hann teiknaði skýring- armyndir við stórvirki þeirra Lúð- víks Kristjánssonar „Íslenskir sjáv- arhættir“ sem er 5 binda verk og ómetanleg heimild um þennan und- irstöðuatvinnuveg okkar. Þá málaði hann meðal annars 60 málverk sem varðveita sögu áraskipanna og eru í eigu Þjóðminjasafnsins. Happdrætti Háskóla Íslands gaf út í tilefni af 70 ára afmæli þeirra árið 2004 „Sjávar- spilin“, með teikningum Bjarna um forna sjávarhætti og útgerð á Íslandi. Þegar Sjóminjasafnið Víkin tók til starfa á Grandagarði 8, sýndi Bjarni safninu mikinn hlýhug og áhuga. Hann varð næstum daglegur gestur í safninu, óþreytandi að fræða og upp- örva okkur starfsmenn. Safnið naut góðs af list hans og strax á fyrsta starfsári þess stóð þar sölusýning á verkum hans „Sjósókn fyrrum“ þar sem hann hafði m.a. teiknað beinin í þorskhausnum af miklum næmleik. Þá var veturinn 2007 sýningin „Á Flyðruvelli“ og var hún einnig tengd árabátaútgerðinni. Báðar þessar sýn- ingar og þau 12 verk sem Bjarni færði safninu að gjöf voru mikill fengur en þó var vinátta hans og góð- vild safninu og okkur sem þar vinnum miklu dýrmætari. Nú söknum við vinar í stað. Við kveðjum þennan ágæta mann með virðingu og þökk og vottum aðstand- endum okkar dýpstu samúð. Sigrún Magnúsdóttir, forstöðumaður. ✝ Ágúst Bjarna-son bifreiða- stjóri fæddist á Grund á Kjalarnesi 10. ágúst 1924. Hann lést á Hjúkr- unarheimilinu Víð- inesi 1. janúar síð- astliðinn. Foreldrar Ágústs voru hjónin Bjarni Árnason sjó- maður, f. 21. nóv- ember 1883, d. 7. febrúar 1925, og kona hans Helga Finnsdóttir, f. 25. desember 1891, d. 11. mars 1967, sem þá voru búsett á Grund á Kjal- arnesi. Fósturfaðir Ágústs var Guðjón Sigurjónsson, bóndi á Grund, f. 14.9. 1888, d. 2.8. 1972. Alsystkini Ágústs í aldursröð eru þessi, Ásta Friðmey, f. 30.12. 1912, d. 30.3. 1913, Sigurður Árni, f. 15.12. 1913, d. 17.9. 1992, Guð- ríður, f. 19.9. 1914, d. sama dag, Stefán, f. 18.10. 1915, d. 18.6. 1977, Margrét Fanney, f. 27.7. 1917, d. 28.3. 1989, Sigríður, f. 1.7. 1919, d. 4.4. 1998, Fjóla, f. 9.3. 1921, og Ólafur, f. 13.5. 1923, d. 7.11. 2004. Sammæðra systir er Bjarney Guð- jónsdóttir, f. 28.2. 1933. Ágúst kvæntist 24.10. 1947 Hrefnu Pétursdóttur, f. í Tungu- Ágústs og Hrefnu eru sex. Sambýliskona Ágústs Bjarna- sonar til margra ára var Dagbjört Elíasdóttir, f. á Ísafirði 16.9. 1929, d. 8.11. 2005. Börn hennar eru: 1) Margrét Sigmundsdóttir, f. 23.4. 1951, börn hennar eru Eygló Dröfn, f. 31.5. 1968, Vera Björk, f. 25.9. 1969, og Anna Margrét f, 12.3. 1977. 2) Anna Alexía Sig- mundsdóttir, f. 3.5. 1953, d. 9.7. 1997, börn hennar eru Lúðvík Sveinn, f. 30.12. 1972, Guðmundur Ragnar, f. 9.10. 1975, og Snorri Valur, f. 5.2. 1980. 3) Lúðvík Sveinn Sigmundsson, f. 1.1. 1955, d. 17.5. 1970. 4) Sigrún Jónína Sig- mundsdóttir, f. 10.1. 1961, í sam- búð með Einari Sveinssyni, f. 20.1. 1965, sonur hennar er Friðrik Örn, f. 30.9. 1980. 5) Sigmundur Örn Sigmundsson, f. 4.9. 1963, börn hans eru Oddur Andri, f. 12.12. 1983, og Charlotta Rós, f. 16.11. 1990. 6) Dagbjört Erna Sigmunds- dóttir, f. 29.6. 1966, maki Jóhann Grétarsson, f. 4.6. 1961, börn þeirra eru Róbert Andri, f. 3.11. 1997, og Birta Marín, f. 30.8. 2001. Dóttir Ernu er Íris Tara, f. 28.3. 1987. Ágúst starfaði við hin ýmsu störf en lengst af var hann bif- reiðastjóri en aðalstarf hans var að aka leigubíl sem hann gerði í rúm 40 ár. Útför Ágústs fer fram frá Foss- vogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. koti á Vatnsnesi 28.2. 1926, d. 31.5. 1982. Foreldrar hennar voru hjónin Pétur Theodór Jónsson, bóndi í Tungukoti á Vatnsnesi, f. 6.3.1892, d. 21.9. 1941, og Kristín Jóns- dóttir, f. 12.7.1891, d. 31.7. 1961. Börn Ágústs og Hrefnu eru: 1) Pétur, f. 8.5. 1949, d. 29.10. 1992, maki Þórdís Rann- veig Guðmunds- dóttir, f. 26.6. 1949, d. 25.11. 1988, börn þeirra eru Rann- veig Lilja, f. 4.6. 1970, og Magnús, f. 17.12. 1974. 2) Guðjón, f. 24.4. 1952, maki Selma Dóra Þorsteins- dóttir, f. 27.6. 1953, d. 27.3. 1993, börn þeirra eru Þorsteinn Pétur, f .9.11. 1976, og Hrefna Ýr, f. 13.5. 1983. Sambýliskona Guðjóns er Hrönn Valentínusdóttir, f. 30.9. 1957. 3) Bjarni, f. 16.6. 1958, maki Ingibjörg Hafsteinsdóttir, f. 2.4. 1958, börn þeirra eru Hildur Ósk, f. 23.6. 1983, Davíð Örn, f. 5.9. 1984, og Atli Már, f. 24.2. 1991. 4) Hrönn, f. 11.11. 1964, maki Ágúst Eiríksson, f. 29.6. 1962, börn þeirra eru Jóhanna Sæunn, f. 23.10. 1985, og Ágúst Hrafn, f. 19.6. 1987. Barnabarnabörn Í dag verður til moldar borinn elskulegur faðir minn Ágúst Bjarnason. Hann lést á hjúkrunar- heimilinu Víðinesi þar sem hann hafði dvalið í u.þ.b. ár. Pabbi var stór og mikill maður með gott hjartalag. Hann var hress en svo- lítið hávær. Minningar mínar tengdar honum og mömmu frá mínum æskuárum eru ferðalögin sem við fórum í á sumrin um land- ið. Pabbi var með mikla veiðidellu og mamma var mikill náttúruunn- andi sem þurfti mikið að skoða sig um hvar sem stoppað var. Áhugi pabba á bílum er eitt af því sem stendur uppúr, hann var mjög laghentur maður. Oftar en einu sinni fann maður hann liggj- andi undir bílum við viðgerðir. Mamma og pabbi höfðu mikinn áhuga á garðrækt og ræktuðu þau sínar eigin kartöflur alla tíð, þori ég að fullyrða. Þau voru alltaf með kartöflurækt á hinum ýmsu stöð- um, svo bættust við rófur, gulræt- ur, blómkál og fleira. En það var alltaf hægt að koma kartöflum til vina og vandamanna, það var ekki málið. Þessi áhugi var óþrjótandi og þurfti pabbi jafnvel að skríða á hnjánum til að tína upp síðustu kartöflurnar þegar bakið hlýddi ekki lengur. Ég gæti haldið enda- laust áfram að rifja upp hinar ýmsu minningar, en læt staðar numið hér og kveð pabba með þessum fallega sálmi. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Vald. Briem.) Elsku pabbi, megi englar Guðs vera með þér, hvíl í friði. Þín dóttir, Hrönn. Nú er hann fallinn frá, hann Ágúst. Ég kynnist honum fyrir rúmlega tuttugu árum þegar hann og móðir mín Dagbjört rugluðu saman reytum sínum. Okkur systk- inunum fannst það hálf fyndið að sjá þau saman, hún lítil og grönn og hann þessi stórvaxni maður, það var allt stórt við þennan mann og hann hafði einnig stórt hjarta. Fljótlega eftir að hann og móðir mín tóku saman lögðust þau í ferðalög um landið á leigubíl sem hann átti en Ágúst hafði verið leigubílstjóri til margra ára. Seinna eignuðust þau lítið hús í Skammadal og var hafist við að breyta skúr í höll. Þar voru þau mörg sumur við kartöflurækt og að smíða og laga. Öllum börnum í fjöl- skyldunni fannst æðislegt að heim- sækja ömmu og Ágúst upp í Skammadal. Ágúst var alltaf að smíða og ég get alveg séð hann fyr- ir mér sólbrenndan og sællegan með hamar í annarri hendi og sög í hinni. Seinna þegar heilsunni fór að hraka létu þau af búskapnum í Skammadal. Þegar móðir mín Dag- björt lést árið 2005 var Ágúst einn- ig farinn að missa heilsuna og átti erfitt. Hann fór á dvalarheimili og virtist líða ágætlega það til hann lést. Hvíli hann í friði Margrét Sigmundsdóttir og fjölskylda. Kallið er komið, komin er nú stundin, viðskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðasta blund. Margs er að minnast margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Valdimar Briem.) Með þessum orðum kveð ég Ágúst Bjarnason sem var sam- býlismaður móður minnar í tæp 24 ár. Megi Guð blessa minningu þína og styrkja aðstandendur þína á sorgarstundu. Kveðja, Erna Sigmundsdóttur. Elsku afi, okkur systkinin langar að kveðja þig með nokkrum orðum. Okkur er minnisstæðast úr bernskunni þegar við fengum að koma til þín og Dagbjartar og gista hjá ykkur. Þú hafðir gaman af því að fara með okkur út í gönguferðir og eða í bíltúr. Það var þá stundum farið upp í sveit og þá var dreginn upp ferðabrjóstsykurinn sem vakti mikla lukku. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum) Hvíl í friði, elsku afi. Þín afabörn Jóhanna Sæunn og Ágúst Hrafn. Ég var svo heppin að eiga afa og ömmu sem ég var mikið hjá þegar ég var yngri. Þegar ég rifja upp þann tíma er margt sem kemur upp í hugann. Alltaf þegar ég kom til afa og ömmu sagði afi. Jæja, er heima- sætan komin. Reyndar kallaði hann mig alltaf heimasætuna sem mér þótti vænt um nema smátíma á unglingsárunum sem mér fannst það hallærislegt. Ég fékk oft að gista hjá afa og ömmu. Þá mátti ég vaka lengi og horfa á bíómyndir í sjónvarpinu og afi útskýrði alla myndina fyrir mér en amma var ekki eins ánægð með það og ég. Ég man eftir leigubílnum hans afa og stundum fékk heimasætan að fara með í bíltúr að kaupa got- terí eins og afi kallaði það, og ef amma var ekki með fékk ég að sitja í framsætinu sem var mjög merki- legt fyrir litla stelpu. Ég man eftir öllum skemmtilegu stundunum í Skammadal þegar afi tók sér pásu frá smíðunum til að koma í kaffiboð til mín í Dallas, þegar ég fór með ömmu og afa að taka upp kartöflur en það var ár- legur viðburður hjá fjölskyldunni og allir mættu, þá var oft mikið fjör. Jarðarförin sem ég fékk að halda í garðinum hjá afa þegar hamstur- inn minn dó er fyndin minning. Ég tók þetta mjög alvarlega, bauð allri fjölskyldunni. Amma sá um að baka vöfflur og afi bjó til gröf með fallegum krossi í garð- inum. Þar stóð öll fjölskyldan og söng Ó Jesú bróðir besti en það heyrðist nú ekki í neinum nema mér og afa þar sem allir aðrir voru að halda niðri í sér hlátrinum yfir dramatíkinni. Elsku afi, nú ert þú kominn til ömmu og ég mun halda fast í all- ar góðu minningarnar um þig. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfin úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Kveðja Þín, Íris Tara. Ágúst Bjarnason

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.