Morgunblaðið - 18.01.2008, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 18.01.2008, Blaðsíða 46
46 FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ Sími 564 0000Sími 462 3500 Sími 551 9000 Þú færð 5 % endurgreitt í Borgarbíó Þú færð 5 % e n d u r g r e i t t í Regnboganum Þú færð 5 % endurgreitt í Smárabíó * Gildir á allar sýningar merktar með rauðu 450 KRÓNUR Í BÍÓ* SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI Dagbók fóstrunnar Stórskemmtileg gamanmynd með Scarlett Johansson í aðalhlutverki sem fóstra hjá ríka liðinu í New York og lífið á toppnum því ekki er allt sem sýnist! ÁST. SKULDBINDING. ÁBYRGÐ. HANN HLEYPUR FRÁ ÖLLU! eee - S.V. MBL SÝND Í SMÁRABÍÓI NÚ VERÐUR ALLT VITLAUST! SÝND Í SMÁRABÍÓI eee FLAUELSMJÚK OG ÞÆGILEG - DÓRI DNA. D.V. - Kauptu bíómiðann á netinu - Alvin og íkornarnir ísl. tal kl. 4 Alvin and the C.. enskt tal kl. 4 - 6 Duggholufólkið kl. 3:45 B.i. 7 ára Golden Globe verðlaun Cate Blanchett Besta leikkonan í aukahlutverki „Skemmtilegasta og áhrifaríkasta „ævisaga” frægrar rokkstjörnu sem færð hefur verið á hvíta tjaldið á síðustu árum!“ - S.S. MBL eeee - H.J. MBL eee - A.F.B. 24 STUNDIR MÖGNUÐ SPENNUMYND EFTIR FRÁBÆRRI SÖGU STEPHEN KING ÓTTINN BREYTIR ÖLLU! MISTRIÐ FRÁ FRANK DARABONT, HANDRITSHÖFUNDI OG LEIKSTJÓRA „THE GREEN MILE“ OG „THE SHAWSHANK REDEMPTION“ “... trúlega besta Stephen King mynd í tæpan áratug.” T.V. - Kvikmyndir.is SÝND Í REGNBOGANUM eeee - Ó.H.T., RÁS 2 Þetta er frumleg, úthugsuð, vönduð og spennandi barna- og fjölskyldumynd, besta íslenska myndin af sínu tagi. eeee - B.S., FBL „...ein besta fjölskyldu- afþreyingin sem í boði er á aðventunni” eee - S.V., MBL „Duggholufólkið bætir úr brýnni þörf fyrir barnaefni” SÝND Í REGNBOGANUMSÝND Í REGNBOGANUM eee - T.S.K. 24 STUNDIR SÝND Í SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI HILMIR SNÆR GUÐNASON MARGRÉT VILHJÁLMSDÓTTIR LAUFEY ELÍASDÓTTIR JÓHANN SIGURÐARSON ÓLAFÍA HRÖNN JÓNSDÓTTIR ÞRÖSTUR LEÓ GUNNARSSON ÓLAFUR DARRI ÓLAFSSON ÓLAFUR EGILL EGILSSON ILMUR KRISTJÁNSDÓTTIR eee - A.S. MBL FRÁBÆR NÝ GAMANMYND EFTIR BALTASAR KORMÁK! LANDSLIÐ LEIKARA FER Á KOSTUM Í MYND SEM ENGIN MÁ MISSA AF! Nú mætast þau aftur! Tvö hættulegustu skrímsli kvikmyndasögunnar í tvöfalt betri mynd! Missið ekki af einum flottasta spennutrylli ársins!! Brúðguminn kl. 6 - 8 - 10 B.i. 7 ára Alien vs Predator 2 kl. 8 - 10 POWERSÝNING B.i. 16 ára The Golden Compass kl. 6 B.i. 10 ára Brúðguminn kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 Brúðguminn kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 LÚXUS Alien vs. Predator 2 kl. 6 - 8 - 10:10 B.i.16 ára The Mist kl. 8 - 10:40 B.i.16 ára The Golden Compass kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.10 ára Brúðguminn kl. 6:30 - 8:30 - 10:30 B.i. 7 ára Lust, Caution kl. 6 - 9 B.i. 16 ára I´m not there ath. ótextuð kl. 6 - 9 B.i. 12 ára We own the night kl. 8 - 10:30 B.i. 16 ára Run fat boy run kl. 5:30 SÝND Í SMÁRABÍÓI, REGNBOGANUM, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBBÍÓI SÝND Í SMÁRABÍÓI OG HÁSKÓLABÍÓI Besta íslenska fíl-gúdd myndin fyrr og síðar “ - .ss , X-ið FM 9.77 eeee - Kauptu bíómiðann á netinu - Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú borgar bíómiðann með Kreditkorti tengdu Aukakrónum! JÓN (Hilmir Snær Guðnason) er lífsleiður og frekar ábyrgðarlaus há- skólakennari sem stendur á kross- götum í lífi sínu. Hann er að fara að kvænast í annað sinn. Þá leitar hug- urinn aftur til endaloka fyrra hjóna- bands. Þannig hefst ný íslensk kvik- mynd Brúðguminn. (Kannski má velta því fyrir sér í framhjáhlaupi hvers vegna háskólakennarar hafa svona lélega ímynd í þjóðfélaginu? Samanber fyrirverandi eiginmann aðalsöguhetjunnar í sjónvarpsþátt- unum Pressunni.) Baltasar Kormákur og Ólafur Eg- ill Egilsson mega eiga það að þeir ráðast ekki á garðinn þar sem hann er lægstur. Það er ekki lélegt að hafa Anton Tsjekov sem fyrirmynd þegar maður skrifar handrit. Brúð- guminn – sem er lauslega byggð á Ivanov eftir Tsjekov – er fyrst og fremst gamanmynd, og sem slík heppnast hún ágætlega. Salurinn virtist taka vel í grínið í bíó. Myndin reynir einnig að höndla dramatík en tekst það ekki. Höfundar ná ekki að vekja djúpa samúð með persónum. Tsjekov var meistari þess að blanda saman hárfínum hlátri og gráti, hinu ljúfsára í lífinu. Hinn mikli undir- liggjandi tregi sem þarf að vera til staðar í þögninni er ekki hér. Leikhópurinn sem Baltasar stýrir er í marga staði skemmtilega sam- settur. Hann er um þessar mundir að leika Ivanov í Þjóðleikshúsinu. Það hlýtur að teljast sérstætt að sami leikhópurinn sýni samtímis kvikmynd og leikverk sem byggjast á sama leikritinu. Frammistaða leik- aranna er líka yfir línuna mjög góð. Sérstaklega var öryggi Laufeyjar Elíasdóttur eftirtektarvert. Svo er það Anna (Margrét Vil- hjálmsdóttir). Öll táknmyndin í kringum hana er svo þreytt. Karl- lægur skilningurinn á trufluðu lista- konunni sem getur ekkert annað en búið til listaverk af legi og étið pillur. Leikkonan er líka sú eina í hópnum sem er föst í sviðsleiknum af því hún er á 19. öldinni í sinni tjáningu – brjálaða konan í risherberginu – á meðan aðrir eru alveg á 21. öldinni í léttu gríni. Þetta er auðvitað mest áberandi í samskiptunum við Jón. Og hverjum datt í hug að breyta tæringu í andlega kröm? Sinnuleysi Jóns og þunglyndi er alveg nóg. Það þurfti ekki að bæta meiri geðveilu við, heldur sýna meira hugmynda- flug þegar kom að því að færa sjúka hefðarkonu yfir á 21. öldina og finna henni hlutverk. Sérstaklega þegar haft er í huga að drykkjuskapur, af- skiptaleysi og framhjáhald er alveg nóg til þess að fara með hjónaband. Hvað útlit kvikmyndarinnar varð- ar þá er hún sérlega áferðarfalleg. Byggðin á Flatey hefur tekið gíf- urlegum breytingum á síðustu ára- tugum. Uppgerð húsin stilla sér hér upp eins og krúttlegt kvikmyndasett fyrir myndina og minna á opnu í Hús og hýbýli. Nema kannski þar sem leikmyndaliðið hefur búið til villta vestrið á Íslandi með smá Wim Wenders-ívafi. Hvers vegna þessi þörf hrjáir suma íslenska kvik- myndaleikstjóra meira en aðra væri merkileg stúdía! Annars er golfvöll- urinn skemmtilegt grín. Kvik- myndatökuliðið missir sig aðeins í yfirfluginu eins og í Syndir feðr- anna, en mikið svakalega hafa þau verið heppin með veður. Best að taka fram að ég er ættuð úr Stykk- ishólmi og átti mín æskusumur þarna í kring. Svo mér finnst þarna fegurst í heimi og er gjörsamleg hlutdræg. Gráa slikjan yfir endurminningum Jóns, og „fiffið“ í kaflaskilum ramm- ar einnig endurlitið prýðilega. Jón sviptir sig ekki lífi eins og Ivanov. Reynt er þó að skapa íróníu með því að enda myndina með hann ramm- aðan inn í glugga, ekki ósvipað og Anna var oft sviðsett. Þessi uppsetn- ing hefur bara svo lítinn hljómgrunn af því að Jón hefur ætíð verið svo hlutlaus, sérstaklega innan heimilis- ins. Fangi lífsins KVIKMYND Háskólabíó Leikstjóri: Baltasar Kormákur. Leikarar: Hilmir Snær Guðnason, Margrét Vil- hjálmsdóttir, Laufey Elíasdóttir, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Jóhann Sigurðarson, Ilmur Kristjánsdóttir, Þröstur Leó Gunn- arsson, Ólafur Darri Ólafsson, Ólafur Egill Egilsson. 105 mín. Ísland. 2008. Brúðguminn bbbmn Efnileg „Sérstaklega var öryggi Laufeyjar Elíasdóttur eftirtektarvert,“ segir um frammistöðu leikkonunnar. Anna Sveinbjarnardóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.