Morgunblaðið - 18.01.2008, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 18.01.2008, Blaðsíða 32
32 FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Jónína ÁgústaBjarnadóttir, kölluð Nína, fæddist í Reykjavík 17.10. 1940. Hún lést á Landspítalanum 10.1. síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Hulda Guð- mundsdóttir, f. 21.9. 1919, d. 16.7. 1979 og Bjarni Þorvarð- arson, f. 1.7. 1916, d. 29.6. 1941. Hálf- systkini Jónínu sam- mæðra eru María Magnúsdóttir, f. 30.4. 1936, d. 20.12. 1996 og Elías Bjarni Jó- hannsson, f. 20.9. 1948. Eiginmaður Jónínu er Áki Jóns- son, fv. framkvæmdastjóri, f. 4.6. 1938. Börn þeirra eru: a) Bjarni Þorvarður Ákason, f. 30.12. 1961, í sambúð með Evu Dögg Sig- urgeirsdóttur, fyrir átti Bjarni þrjár dætur, þær Áróru Huld, f. 21.7. 1992, Sædísi, f. 30.4. 1994 og Heklu, f. 30.11. 1994. b) Jón G. Ákason, f. 26.3. 1966, kvæntur Fa- ribu Salemi Seifedd- in, sem er frá Íran. Börn Jóns úr fyrri sambúð eru Berg- ljót Busk Jónsdóttir, f. 26.12. 1994 og Baldur Busk Jóns- son, f. 18.4. 2002. c) Andri Ákason, f. 16.7. 1980. Jónína bjó alla tíð í Reykjavík og síðast í Garðabæ. Hún starfaði við ýmis skrifstofustörf, jafnhliða því að stýra heimili og ala upp börn. Jónína verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. Elsku hetjan mín, mikið var nú gaman að fá þann heiður að alast upp hjá þér. Það er bara til ein svona „Nína“. Þú hafðir svo margt sem aðrir þrá að hafa, þitt mikla baráttuþrek á engan sinn líka, ef íþróttamenn hefðu þetta magn af baráttuþreki sem þú hafðir þá væru þeir stöðugt meistarar. Ef fólk hefði þennan kærleik sem einkenndi þig þá væri friður á öllum heimilum. Þú varst eitthvað svo góð í gegn, það dáðu þig allir sem kynntust þér. Þú hugsaðir alltaf fyrst um aðra, það var einhvern veginn það hlutverk sem þú ætlaðir þér í þessu lífi. Drengirnir þínir fengu svo kær- leiksríkt uppeldi, alltaf varstu til staðar fyrir þá bæði í sigrum og ósigrum, sama hvaða axarskaft kom upp þá stóðstu með þínum. Ekki misstu barnabörnin af þess- um kærleik þínum því ávallt varstu til staðar fyrir þau. Þú varst nú ekki mikið fyrir það að barma þér þó einhver veikindi væru á ferðinni, varst meira að vorkenna þeim sem voru með kvefið. Aldrei lagðistu í það að tala illa um annað fólk, sást alltaf fallegu hliðina á öllum. Mikið varstu nú falleg og sæt þeg- ar þú komst frá Spáni núna rétt fyrir jólin, brún og brosandi og maður fékk það á tilfinninguna að þú hefðir unnið einn sigurinn enn. Sjúkdómurinn lagði þig snarlega og maður fær það á tilfinninguna að guðina hafi vantað verulega góðan engil í sína þjónustu, því þú varst engill í lifanda lífi. Ég held þú hafir ákveðið að svindla smá til að sjá litla drenginn sem þú beiðst eftir og farið aðeins fyrr til að sjá hann á undan okkur hinum. Minningin er svo sterk og heim- urinn er allur annar án þín en við sem eftir sitjum getum vonandi nýtt okk- ur þá þekkingu hvernig gott fólk hag- ar sínu lífi. Mín kæra, takk fyrir allt, takk fyrir öll þau góðu gildi sem þú kenndir mér og mínum. Bjarni Ákason. Elsku amma mín, vaknaði á fimmtudaginn og ákvað að þetta yrði góður dagur, jafnvel sá besti, það var ekkert mál fyrir mig að vakna. Svo var ég búin að ákveða að ég ætlaði að hitta þig í dag, svo fékk ég þær fréttir að þú værir farin og þá breyttist sá besti í þann versta. En eitt get ég sagt sem er gott, að nú líður þér bet- ur og þú þarft ekki að þjást lengur, og þá líður mér betur. Þetta á eftir að vera erfitt, því nú get ég ekki komið til þín að fá kanilsnúða og kakó, fer aldrei með þér að kaupa jólagjafir og þú færð ekki að sjá litla bróður sem fer að koma í heiminn. En ég veit að þú átt eftir að fylgjast með mér og vera viðstödd þegar ég þarf þig og ég veit að þú hjálpar pabba og Evu í gegnum líf barnsins. Ég vildi að þú hefðir getað séð fyrsta kærastann, fyrsta barnið, fyrsta húsið, fyrsta bíl- inn, mætt í útskriftina, brúðkaupið, ferminguna. Ég hefði viljað margt, en ég hugsa til þín í öllu þessu. Ég bið þig amma að vera með okkur þegar við förum upp í sumó og til útlanda og alltaf. Þú varst svo góð amma. Alltaf hugsaðirðu um aðra frekar en þig sjálfa. Manstu eitt skiptið þegar ég átti afmæli og þá fannst þér svo leið- inlegt að hafa ekki getað bakað fyrir mig að þú fórst með mér í bakaríið og keyptir 18 kleinuhringi fyrir allan fimleikahópinn minn. Það verður erf- itt að venjast því að ég get bara hugs- að til þín, ekki hitt þig. Ég ætla að halda áfram að vera dugleg í fimleik- um og dansi, því það varst alltaf þú sem studdir mig, að ég gæti æft svona mikið, þótt það væri frekar ómögulegt, þegar ég ætlaði að æfa 3 íþróttir, öllum fannst það út í hött en ekki þér. Ég veit það ekki, en alla- vega sýndir þú það ekki eins og aðrir, þú vildir ekki særa mig. Ég var alltaf svo viss um að þú yrð- ir með mér alveg þangað til ég yrði tvítug. Ég verð samt að segja að þú ert búin að vera svo sterk að berjast við allt sem hefur komið í veg fyrir góða heilsu og alltaf sigrast á því og núna ætla ég að sleppa þér. Þú verð- ur hjá mér alltaf, ekki bara að tví- tugsaldri. Ég hugsa til þín hvar sem er og hvenær sem er, bara alltaf þangað til við hittumst á ný uppi í himnaríki. Þú munt leiða mig, systur mína og litla bróður í gegnum lífið svo við endum alveg eins og þú, góðhjört- uð og best í heiminum. Amma, þú ert fyrirmynd mín. Ég elska þig og sakna þín. Hafðu það gott uppi í himnaríki, amma. Þetta er ekki allt, ég bið til þín á hverjum degi og þá er ég að bæta við þennan texta. Viltu hlusta á bænir mínar til þín? Bænin sem ég samdi fyrir þig amma, verndarengilinn minn, er svona: Elsku amma, þú ert lítill verndarengill, sem verndar alla nema þig, hver verndar þig? Þú verndar alla sem þú elskar, en hver fær það hlutverk að vernda þig? Mér þykir það leiðinlegt að hafa ekki verndað þig nóg. Afi stóð sig vel, nú söknum við þín, en einn dag verður fjölskylduboð með öllum, líka þér. Það verður haldið á himnum þegar við höfum öll sameinast þar. Bíddu, amma mín. Á meðan þú bíður eftir okkur hinum, haltu áfram að vernda okkur því annars föllum við eins og þrífættur stóll sem missir einn fótinn. Við elskum þig og við sjáumst í himnaríki. Amma, ég kveð að þessu sinni. Sædís B. Ung og bjartsýn sextán eignalítil hjón tóku sig saman 1963 um að byggja í samvinnu blokkina Fells- múla 17-19. þar sem allir lögðu sitt af mörkum. Út frá þessu varð náið samfélag, húsið fylltist brátt af börnum og í þessu nokkurra ára samfélagi styrkt- ust vinabönd sem hafa mörg haldið til dagsins í dag. Ótímabær fráföll hafa vissulega sett sín mörk og nú er Nína fallin frá. Við þrenn hjón höfum hlúð að okk- ar samskiptum reglulega, hist hver hjá öðrum undir heitinu „matar- klúbbur“ eldað saman og átt góðar stundir heima hjá hvert öðru og á Þingvöllum, Hjalteyri og Hnaus. Við höfum einnig farið saman í leikhús og gert okkur glaðan dag á jólaföstunni. Því er okkur vinkonunum nú brugðið þótt ljóst væri fyrir nokkru að hverju stefndi. Æðruleysi Nínu hefur vakið að- dáun okkar og umhyggja Áka hefur snert okkur djúpt. Við kveðjum nú á þessum tímamót- um, vottum Áka og fjölskyldu samúð okkar og fjölskyldna okkar. Tilveran er vissulega eitt undar- legt ferðalag! Lena og Kolbrún. Í dag er mæt kona kvödd í hinsta sinn. Jónína Bjarnadóttir, hefur um langt árabil átt við alvarleg veikindi að stríða, af ýmsum toga, en að end- ingu var það krabbamein sem varð henni að aldurtila. Hún tókst á við þessa erfiðu lífsreynslu af ótrúlegu æðruleysi og dugnaði og var maður hennar, Áki Jónsson, styrk stoð hennar alla tíð, sem og synirnir þrír. Heimilið og fjölskyldan hefur verið hennar starfsvettvangur síðastliðin 25 ár eða lengur og þar var ekki sleg- ið slöku við. Elskulegt viðmót þeirra hjóna, viðurgerningur allur og heim- ilið sjálft bar henni fagurt vitni, fag- urkeri sem hún var og myndarskapur ríkjandi í hvívetna. Barnabörnin, sem þegar eru orðin fimm voru henni afar kær og meðan heilsan leyfði prjónaði hún af miklu listfengi glæsilegan fatnað, kjóla, peysur og annað handa þeim og held ég að fátt hafi veitt henni meiri gleði. Því miður auðnað- ist henni ekki að sjá ófætt barn elsta sonarins sem væntanlegt var í heim- inn um það leyti sem hún andaðist. Það var raunalegt að fylgjast með hvernig bágt líkamsástand hennar dvínaði smám saman, en aldrei kvart- aði hún eða fylltist vorkunnsemi vegna örlaga sinna. Hún átti góðan mann og þrjá góða syni og þannig hefur hún sjálfsagt metið stöðu sína nokkuð góða, enda greind kona og skemmtileg, víðlesin og fróðleiksfús. Við biðjum góðan Guð að styrkja Áka og synina Bjarna, Jón og Andra og þeirra fjölskyldur og þökkum Jónínu góða viðkynningu. Hvíl í friði, góða vinkona. Gunnar og Ásdís. Nínu hitti ég fyrst þegar við Vaddi giftum okkur árið 1981, en það var ekki fyrr en 10 árum síðar, að með okkur tókst vinskapur, en það var þegar við báðar stunduðum nám í Ferðamálaskóla Verslunarskóla Ís- lands. Vinskapur okkar hélst alla tíð síðan þó svo að oft liði langt á milli funda okkar. Elsku Nína, ég á marg- ar góðar minningar um þig, þú hafðir svo gaman af lífinu. Þú hafðir mikla ánægju af því að ferðast, sérstaklega man ég eftir skemmtilegum frásögn- um þínum um Flórida. Frábærar eru minningar okkar um heimsóknir til ykkar hjóna bæði í sumarbústaðinn á Þingvöllum og einnig í sumarhús ykkar á Hjalteyri. Heimili ykkar Áka ber þess merki hversu mikill fagur- keri þú varst og einnig allt það sem þú vannst í höndunum, allar fallegu peysurnar og kjólarnir sem þú prjón- aðir á litlu barnabörnin þín. Ég get stolt sagt frá því að það varst þú sem vaktir upp löngun mína til að prjóna, ég hafði lagt þá iðju á hilluna, en mig fór að klæja í puttana þegar ég sá all- ar fallegu flíkurnar hjá þér. Það er mismikið lagt á fólk í lífinu, veikindi þín voru löng og ströng. Það er aðdáunarvert og til eftirbreytni hversu vel þú barst þig þrátt fyrir alla þína erfiðleika. Nú ert þú farin í þitt hinsta ferðalag, þar sem þú ert laus við allar þínar þrautir. Að leiðarlokum viljum við þakka þér fyrir þær samverustundir sem við áttum með þér. Kæri Áki, missir þinn og sona þinna er mikill, megi guð gefa þér styrk í sorg þinni. Minningin um góða konu mun lifa áfram í hjörtum okkar. Þórlaug og Þorvarður. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Við eigum margar góðar minning- ar úr ferðalögum með Áka og Nínu og yndislegar samverustundir í gegnum árin. Við þökkum þó sér- staklega fyrir þann tíma sem við fengum með Nínu núna í desember og áttum góða daga með þeim hjón- um á Kanarí. Við sendum okkar innilegustu samúðarkveðju til Áka, Bjarna, Jóns Gunnars og Andra og fjölskyldna og biðjum guð að blessa ykkur á þessum erfiðum tímum. Erla og Örn. Okkur systrum varð mikið um þeg- ar við fréttum að Nína væri dáin. Minningarnar brutust út og við vor- um harmi slegnar yfir þeirri stað- reynd að samverustundir okkar með Nínu yrðu ekki fleiri. Veikindi þín síðustu ár barst þú ótrúlega vel og aldrei heyrðum við þig kvarta. Við rifjuðum upp hvað okkur fannst gaman að passa strákana ykk- ar Áka þegar þið bjugguð í Fellsmúl- anum en þú bakaðir alltaf þá bestu súkkulaðiköku sem við fengum. Þú varðst sönn vinkona þegar önn- ur okkar var ófrísk á sama tíma og þú en þá gekkst þú með Andra og þegar þú komst og prjónaðir kjóla á barna- börnin þín. Þá var ekki komið að tóm- um kofanum í spjalli og ráðlegging- um. Allt sem þú tókst þér fyrir hendur var einstaklega vel gert og heimilið þitt sýndi það svo sannar- lega. Nína horfði á björtu hliðarnar og gladdist yfir því sem varpaði ljósi á líf hennar. Og þar veittu strákarnir hennar og barnabörnin henni mikla gleði. Þeirra og Áka er harmurinn mestur. Við sendum þeim samúðar- kveðjur og biðjum góðan Guð um að gefa þeim styrk. Kristín og Kristjana Arnardætur. Jónína Á. Bjarnadóttir ✝ Klara Guð-mundsdóttir fæddist í Fífilgerði í Öngulstaðahreppi í Eyjafirði hinn 28. ágúst 1920. Hún lést á heimili sínu að Hjúkrunarheimilinu Hlíð hinn 7. janúar síðastliðinn. For- eldrar Klöru voru Guðmundur Rögn- valdsson, f. í Fjósa- tungu í Fnjóskadal 1891, d. 1966 og Kristín Björg Ein- arsdóttir, f. á Brautarhóli í Svarf- aðardal 1894, d. 1981. Fóst- urbróðir Klöru er Hreinn Gunnlaugsson, f. 1931. Árið 1964 giftist Klara Katli Péturssyni frá Ófeigsfirði á Ströndum, f. 1912, d. 1975. For- eldrar hans voru Pétur Guð- mundsson, f. í Ófeigsfirði 1890, d. 1974 og Ingibjörg Ketilsdóttir, f. á Ísafirði 1889, d. 1976. Klara og Ketill eignuðust einn son, Kristin, f. 1965. Fyrir átti Klara Guðmund Sigurbjörnsson, f. 1949, d. 1998. Ekkja hans er Bjarney Sig- valdadóttir, f. 1951, börn þeirra eru: Einar Már, Bjarni Freyr og Klara. Uppvaxtarár sín öll bjó Klara í ná- grenni Akureyrar, lengst af á Hrafns- stöðum í Lögmanns- hlíð, uns fjölskyldan flutti í bæinn er hún var rúmlega tvítug. Áður en Klara fluttist á Hlíð bjó hún tæpa tvo áratugi í Tjarnarlundi 13. Hún starfaði lengst af við ýmis afgreiðslu- og þjónustustörf, síð- ustu 15 árin við heimaþjónustu hjá Akureyrarbæ. Útför Klöru fer fram frá Höfða- kapellu í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Elsku amma mín, mér finnst skrít- ið að ég skuli aldrei eftir að sjá þig aftur. Þegar ég hugsa til þín kemur fyrst upp í huga mínum hvað þú varst alltaf hlý og góð við þegar ég var stelpa. Það var svo gaman að gista hjá þér um helgar, alltaf var svarið já, já. Við brölluðum svo mikið saman, þær voru nú nokkrar súkku- laðikökurnar sem við bökuðum, sem ég kallaði alltaf súkkuköku, þetta var „spes“ kaka, sem þú gast bara bakað. Það var eitt skiptið sem þú passaðir okkur í Borgarhlíðinni, eins og þú gerðir oft þegar mamma og pabbi skruppu í frí, þá bökuðum við kökuna góðu, þú fórst alltaf með gaffal í kremið sem var sett ofan á til að gera rákir í. Ég hef verið 6 ára og Bjarni bróðir 10 ára, hann kominn með smá meira vit en ég. Ég segi, „amma þú ert eins og súkkukaka í framan“ þá var Bjarni fljótur að segja, „henni finnst þú svo brún í framan“ en ég átti við hrukkurnar í andlitinu sem voru farnar að mynd- ast. Það er gaman að minnast góðu tímanna, eins og þegar þú varst að tala við blómin þin, þá hló ég stund- um inni í mér. Það voru líka mörg skiptin sem við tókum upp spil og spiluðum olsen. Elsku amma, síðustu átta árin varstu ekki lík sjálfri þér, þú varst orðin lasin og mikið breytt, en ég hef þig í minningunni eins og þú varst. Amma mín, pabbi hefur eflaust tekið vel á móti þér og þið komið til með að fylgjast með okkur. Hvíldu í friði, elsku amma, og Guð geymi þig. Í bljúgri bæn og þökk til þín, sem þekkir mig og verkin mín, ég leita þín, Guð, leiddu mig, og lýstu mér um ævistig. (Pétur Þórarinsson.) Klara Guðmundsdóttir. Klara Guðmundsdóttir ✝ Elsku hjartans eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi, sonur og tengdasonur, RÍKHARÐUR CHAN, Breiðagerði 33, Reykjavik, lést á líknardeildinni í Kópavogi þann 16. janúar. Anna Greta Gunnarsdóttir, Sonja Arna Chan, Haraldur Svavarson, Gunnar Davíð Chan, Unnur Lárusdóttir, Stefanía Chan, Helga Chan, Ho Thai, Þórdís G. Magnúsdóttir, Gunnar B.H. Sigurðsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.