Morgunblaðið - 18.01.2008, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 18.01.2008, Blaðsíða 10
10 FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ Það þýðir ekkert fyrir þig að hjóla í hann, þú verður bara að grafa þín göng sjálf, eins og ég. VEÐUR Þeir sem áhuga hafa á annað borðá málefnum Orkuveitu Reykja- víkur og starfi stýrihópsins svo- nefnda, undir forystu Svandísar Svavarsdóttur, hljóta að hafa glaðst mjög í gær, við lestur fréttar hér í Morgunblaðinu undir fyrirsögninni „Niðurstaða í REI-málinu að fæð- ast“.     Þegar setn-ingar eins og „Það má segja að niðurstaða sé að fæðast“ eða „ann- ar sagði ekki hægt að tala um niðurstöðu heldur skref – þetta væri viðvarandi verk- efni sem lyki aldr- ei“ eru lesnar, hlýtur mönnum að létta ósegj- anlega.     Auðvitað, hvað var ég eiginlega aðhugsa, kann að hvarfla að ein- hverjum, sem hefur hugsanlega ekki áttað sig á því, að „þetta væri viðvarandi verkefni sem lyki aldr- ei“!     Nú hefur verið lagður grunnur aðþví að þögnin sem ríkt hefur um störf stýrihóps Svandísar er ekki bara tímabundin, hún er varanleg.     Og hvers vegna?    Jú, vegna þess að samkvæmt heim-ildum Morgunblaðsins „er stefnt að því að flytja stefnumótun OR frá stýrihópnum inn í stjórn OR og er það rökstutt með því að þar liggi öll gögn fyrir“!     Starf stýrihópsins verður því, einsog segir í fréttinni, „einskorðað við að pakka saman lærdómnum af uppákomunni í haust“. Mikið leggst fyrir kempur stýri- hópsins, sem í einu vetfangi svipta sér úr stefnumótun í innpökkunar- störf, ekki satt?! STAKSTEINAR Svandís Svavarsdóttir Stýrihópur og innpökkun SIGMUND                      ! " #$    %&'  (  )                            *(!  + ,- .  & / 0    + -                       !           12     1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  (  "  " ##$ !        ##$ !            :  3'45 ;4 ;*<5= >? *@./?<5= >? ,5A0@ ).? "%  %"& '%      '% &%     '% '% "% "%" %" %"                              *$BC ##                            !" #  $  "     *! $$ B *! ( ) * #  #) #     +  <2 <! <2 <! <2 ( * $ #,!-#. $/ 2 D                B  % &  ' (  )   "*   # $ $  *  & ) +     "* # $ $   ,   ! /    - . ) +    "  !"   -"*  ".    )% .  # $   01$$ ##22  $# #3   #,! Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Sigurður Þór Guðjónsson | 17. janúar Fyrir neðan allar helllur Veðurstofan er með tvo vefi í gangi á netinu, annan nýjan og hinn gamlan. Ekki er allt sem er á hinum gamla enn komið inn á þann nýja. Þegar það hefur gerst mun sá gamli verða tekinn úr umferð. Á þeim gamla er t.d. hægt að sjá upp- lýsingar frá skeytastöðvum á þriggja klukkutíma fresti og það er ekki enn komið á nýja vefinn með sama sniði. En þetta er alltaf að detta út. … Meira: nimbus.blog.is Matthildur Helgadóttir | 17. janúar Mínar innri afsakanir Ég hef verið að velta fyr- ir mér afsökunum. Lík- lega er áhuginn til kom- inn vegna þess að það tók sig upp gamall siður hjá mér á dögunum og ég er nú farin að hreyfa mig reglulega. Ég hef svo sem aldrei getað verið kyrr lengi og geng frekar en nota bíl í daglegu amstri. Á það jafnvel til að ráfa langt upp á fjöll og inn um firði. Núna aftur á móti er ég farin að hreyfa mig það hratt að ég svitna. Hleyp rennsveitt og rauðflekk- ótt … Meira: matthildurh.blog.is Gestur Guðjónsson | 17. janúar Gullfiskaminni fjármálaráðherra Árni M. Mathiesen sagði á Alþingi í dag að þenslan undanfarið væri vegna ákvarðana félagsmálaráðherra Framsóknar í íbúða- lánamálum. Ég vissi ekki betur en hann hefði nú sjálfur setið í þeirri ríkisstjórn og ég trúi ekki að málið hafi verið afgreitt gegn vilja hans. Minni fjármálaráð- herra er greinilega heldur ekki gott. Það var nefnilega ekki ... Meira: gesturgudjonsson.blog.is Marta B. Helgadóttir | 17. janúar Það síast inn Ég hef þá trú að mikið af þeirri tónlist sem maður er látinn hlusta á í uppeldinu skili sér síð- ar, að það þroski eyrað og stuðli smám saman að breiðari tónlist- arsmekk. Flest okkar sem eigum upp- komin börn, þekkjum tilsvörin sem oft heyrast hjá krökkum og unglingum þegar foreldrarnir spila „sína tónlist“ á heimilinu. Sumt finnst þeim „gjör- samlega glaaatað!“, annað er kallað „eitur“ eða „hvaða steypa er nú þetta“ og enn annað fær í besta falli forvitniseinkunnina „hvað er nú þetta?“ og þá er skorað hátt í virðing- arstiganum. Sjaldnast hef ég hlustað á svona athugasemdir nema með hálfu eyra eða svo, nema ef próf- lestur var í gangi, þá tekur maður tillit, en annars spila ég mína tónlist eftir því í hvaða stemningu ég er hverju sinni og þar kennir ýmissa grasa. Heimilisfólkið hefur fengið að líða eins og það lysti. Ég nefni nokkur tóndæmi: þegar húsmóðirin ryksugar er Eric Clapton oft nærtækur eða Pink Floyd, ein- stöku sinnum Gypsy Kings eða safn- diskar með gömlum rokklögum, Roy Orbison, Presley, arfur frá eldri systk- inum mínum, hresst og skemmtilegt sem heldur takti við ryksuguna. Ég mæli sérstaklega með Blue Suede Shoes, það er frábært ryksugulag! Þegar konan er að elda góðan mat er ljúfari tónlist valin þegar sá gállinn er á henni, t.d. Dire Straits, Eva Cassidy, Ragnheiður Gröndal, Eyvör Pálsdóttir og stundum spænsk gítartónlist. Nokkuð oft er svo klassísk tónlist yfir geislanum og þá helst Beethoven eða Bach. Stundum þegar konan fer í bað þá setur hún eitthvað öðruvísi nota- legt yfir geislann, slökunartónlist Frið- riks Karlssonar eða letilegan vand- aðan djass, jafnvel dásamlegan óperusöng Andrea Bocelli eða æv- inlega uppáhalds yndislegan Pav- arotti. Á öðrum stundum heyrist svo ýmislegt annað, gleðipopp eða diskó, Boney M, Duran Duran o.fl. Af upptalningunni má sjá nokkuð breiðan tónlistarsmekk einnar mömmu. Vissulega hefur þessi skólun inni á heimilinu stundum virst nokkuð von- laus þegar athugasemdirnar eru sem neikvæðastar: úff, æ, ohh, hvað- þettaerleiðinlegt, ... Meira: martasmarta.blog.is BLOG.IS FRÉTTIR UM 80 manns hafa brugðist við hóp- pósti sem sendur var fyrir skömmu til um 3.000 manns, sem voru beðnir um að áframsenda bréfið, til að sporna við niðurrifi húsa í miðbæ Reykjavíkur. Ekki alls fyrir löngu sendu Óttar M. Norðfjörð og Fannar Ásgríms- son bréf til tæplega 3.000 íslenskra myndlistarmanna, leikstjóra, leik- ara, dansara, rithöfunda, arkitekta, tónlistarmanna og listaháskóla- manna auk ýmissa annarra, þar sem þeir vöktu athygli á stöðu húsamála í miðbæ Reykjavíkur og þeim mögu- leikum sem við blöstu. Sagt er að tveir andstæðir hagsmunahópar tak- ist á í málinu, félög eins og Torfu- samtökin sem vilji varðveita húsin og lóðaeigendur sem vilji rífa þau. Séu móttakendur bréfsins ósam- þykkir fyrirhugðu niðurrifi eru þeir beðnir um að senda borgarstjóra línu þess efnis og eru sýnd dæmi um hvað skrifa megi í bréfið. Bréfið var sent til listamanna og ástæðan sögð sú að þeir fengjust við menningartengd störf og ættu því að skilja best allra það menningarslys sem í vændum væri í miðbæ Reykja- víkur. Viðtakendur voru beðnir um að áframsenda bréfið til allra sem þeir þekktu, að því gefnu að þeir væru samþykkir innihaldi þess. Frá því að bréfið var sent í byrjun mánaðarins hafa borist um 80 erindi til borgarstjóra, samkvæmt upplýs- ingum frá skrifstofu hans. Lítil viðbrögð til varnar niðurrifi húsa Árvakur/Valdís Thor Fáir ósammála niðurrifi Miðað við viðbrögð um 3.000 viðtakenda við hóp- pósti virðist flestum sama um niðurrif húsa í miðbænum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.