Morgunblaðið - 18.01.2008, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 18.01.2008, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is BRÁÐALÆKNAR og fleiri hafa áhyggjur af þeirri ákvörðun að hætta að láta lækni fylgja neyð- arbílnum. Kristín Sigurðardóttir bráðalæknir segir að verið sé að taka lækni úr fyrsta viðbragði utan spítala, lengja útkallstíma læknis, skerða þjónustu við sjúklinginn og vega að öryggi veikustu sjúklinga á vettvangi. Breytingin tók gildi í gær og sinna háskólamenntaðir bráða- tæknar því hlutverki sem læknar sinntu áður en læknar geta farið í útköll frá LSH í Fossvogi ef þörf krefur. Árangurinn með því besta Kristín leggur áherslu á að gagn- rýnin snúi ekki bráðatæknunum og sjúkraflutningamönnunum, því þeir vinni mjög gott starf, en það sé teymið í heild sem skipti máli. Það sé mjög öflugt, vinni vel saman og vinnubrögð á vettvangi séu mjög öguð og góð. Stundum sé það þó þannig að þekking og reynsla lækn- is skipti máli og það komi fyrir að það skipti sköpum að hann sé í teyminu. Hafa beri í huga að þótt endurlífgun sé aðeins um 3% af starfinu í neyðarbílnum, sé árang- urinn með því besta sem gerist í heiminum. Hins vegar er jafnvel vandasamara að vinna við allra veikustu sjúklingana. Kristín segir að misvísandi um- mæli í fjölmiðlum frá yfirstjórn slysa- og bráðadeildar Landspít- alans og lækningaforstjóra í fjöl- miðlum, um að ýmist sé verið að spara, hagræða eða efla þjónustuna séu undarleg. Ekki sé hægt að sjá hvernig þjónustan eflist við það að taka lækni úr teyminu. Upphaflega hafi átt að spara með því að taka lækninn úr neyðarbílnum og setja hann í vinnu á slysa- og bráðadeild en taka þaðan sérfræðing í burtu. Hún bætir við að það geti verið var- hugavert að láta þennan lækni hlaupa fyrirvaralaust frá veikum sjúklingum inni á spítala til að sinna neyðartilvikum á vettvangi. Auk þess geti hann mætt of seint á stað- inn, þegar hann fari ekki með neyð- arbílnum og töfin geti skipt máli. Ennfremur bendir Kristín á að nú sé rætt um að kaupa nýjan, sér- útbúinn og hraðskreiðan bíl, ráða bílstjóra og útbúa aðstöðu á slysa- og bráðadeild LSH til að flytja svo lækninn á vettvang. Eitthvað hljóti þetta að kosta og þessar 30 millj- ónir sem rætt hafi verið um að spara hljóti að hverfa fljótt. Að sögn Kristínar væri nær að samnýta áfram núverandi neyð- arbíl, sem sé hraðskreiður og sér- útbúinn, til að koma sjúkraflutn- ingsmanni eða bráðaliða og lækni á vettvang. Einnig kæmi til álita að flytja neyðarbílinn og hafa hann staðsettan á slysa- og bráðadeild- inni frekar en hjá slökkviliðinu og samnýta þannig sjúkrabílinn í stað þess að leggja út í kostnað fyrir nýj- um bíl og bílstjóra. Læknismeðferð utan spítala Jón Magnús Kristjánsson, einn þriggja íslenskra sérfræðinga í slysa- og bráðalækningum og að- stoðaryfirlæknir á bráðamóttöku háskólasjúkrahússins í Lundi í Sví- þjóð, segir að frá 2005 hafi neyð- arbílar verið gerðir út frá fjórum bráðasjúkrahúsum á Skáni. Í skýrslu frá því í haust um áfram- haldandi þörf á neyðarbílnum séu færð sterk rök fyrir því að lækn- ismeðferð, sem hafin er utan spít- ala, hafi áhrif á þjáningar og jafnvel lífsmöguleika sjúklinga. Ennfremur sé margt í sambandi við gæðaeft- irlit, rannsóknir og þróun á utan- spítalaþjónustu sem krefjist þess að læknir sinni þeim þáttum. Nið- urstaðan sé sú að klárlega eigi að vera neyðarbíll mannaður lækni við hlið sjúkrabíla og mikilvægt sé að auka verkefni hans. Þetta sé í takt við það sem sjáist í Kaupmanna- höfn, þar sem verið sé að fjölga neyðarbílum sem mannaðir eru læknum, og í Noregi, þar sem verið sé að auka hlut lækna í utanspít- alaþjónustu, bæði í þyrlum og sjúkrabílum. Í Finnlandi hafi komið fram í skýrslu að á einu svæði hafi læknir verið tekinn af neyðarbíl og í kjölfarið hafi dánarhlutfall eftir hjartastopp hækkað. „Ég held að það sé ákjósanlegt að það sé læknir í neyðarbíl,“ segir Jón. Hann bætir við að þótt hægt sé að breyta ríkjandi kerfi sé mikilvægt í öllum kerfum að hafa möguleika á að kalla út lækni. Mikilvægt sé að hann leggi af stað samtímis sjúkrabílnum og hann megi ekki vera fastur í ann- arri sjúklingavinnu. Segja mikilvægt að læknir fylgi alltaf neyðarbílnum Læknum fjölg- að í utanspít- alaþjónustu á Norðurlöndum Árvakur/Golli Ávallt viðbúnir Áhöfn neyðarbílsins bíður tilbúin að fara í útkall án læknis í gær. BISKUP Íslands, Karl Sigurbjörnsson, vígir tvo djákna sunnudaginn n.k. Vígsluathöfnin fer fram kl. 14 í Dóm- kirkjunni í Reykjavík. Vígsluþegar eru Aðalheiður Jóhanns- dóttir, kölluð til djáknaþjónustu í Lög- mannshlíðarsókn, Eyjafjarðar- prófastsdæmi, og Ármann Gunnarsson, kallaður til djáknaþjónustu í Garðasókn, Kjalarnessprófastdæmi. Vígsluvottar verða: Sr. Gunnlaugur Garðarsson, Pét- ur Björgvin Þorsteinsson, djákni, sr. Jóna Hrönn Bolladóttir, sr. Friðrik Hjartar, Nanna Guðrún Zoëga, djákni og Hólmfríður Margrét Konráðsdóttir, djákni. Djáknavígsla á sunnudag FRAMKVÆMDIR við endurnýjun efri hluta Skólavörðustígs, frá Týsgötu að Njarðargötu, hefjast í mars. Ráðgert er að þeim verði lokið í ágúst. Snjóbræðslukerfi verður sett í götu og gangstéttar, lagnir verða endurnýjaðar, sem og allt yfirborð. Framkvæmdirnar eru á vegum Fram- kvæmdasviðs Reykjavíkur, Orkuveitu Reykjavíkur, Gagnaveitu Reykjavíkur og Mílu ehf. Skólavörðustígur endurnýjaður UNDANFARNA daga hafa starfsmenn Land- helgisgæslunnar og áhöfn danska varð- skipsins Vædderen verið við sameig- inlegar æfingar hér við land. Á þriðjudag var haldin samæfing milli eininga Land- helgisgæslunnar og danska varðskipsins Vædderen. Varðskipið Týr tók þátt í æfingunni, en settur var á svið eldsvoði á aft- urskipi Týs þar sem tveggja manna var saknað. Gæslan æfir með áhöfn Vædderen ÁRANGUR af bólusetningum gegn men- ingókokkum C hér á landi hefur reynst frábær, að því er fram kemur í Farsótt- arfréttum. Í fyrra greindust fjórir einstaklingar með sýkingu af völdum meningókokka hér á landi eða jafnmargir og árið 2006. Eng- inn dó hér á landi af völdum slíkra sýkinga í fyrra. Árangur af bólusetningum É g stend á því fastar en fótunum að það hafi verið meiri borg- arbragur á Reykjavík fyrir 40 árum en í dag. Því borg er ekki hús og bílar, borg er fyrst og fremst fólk. Mannlíf. Fólk streymdi eftir götum og gang- stéttum, fyllti strætisvagna, hvað ætli sé langt síðan vagnstjóri æpti í kallkerfið þetta fyrrum viðkvæði dag- anna: „Færið ykkur aftar í vagninn!“. Í dag yrði setningin sennilega í ein- tölu – af því að hann óttaðist að vera laminn í hausinn og rændur. Ég geri mér grein fyrir því að þetta mannlíf var ekki ávöxtur skipulags heldur miklu fremur afleiðing vöntunar, því eins og Þórbergur segir á einum stað: „Flestar merkilegar sögur á Ís- landi hafa orðið til af því að eitthvað vantaði.“ Og það sem vantaði var einkabíllinn. Einkabílavæðingin keyrði hina manniðandi Reykjavík um koll. Eins og hendi væri veifað hurfu verslanir af götuhornum, fólk af götum og gangstéttum og Reykja- vík – hún var komin til Hafnarfjarðar og á hraðri leið upp í Mosfellssveit sem breyttist í bæ. Allir voru komnir í yfirbyggða fjórhjóla stóla. Bílvæð- ingin fór með Reykjavík út í móa, sem reyndar varð að algengu götu- heiti. En það væri ekki sanngjart að kenna einkabílavæðingunni alfarið um afborgarvæðingu Reykjavíkur. Fleira kemur til. Hver til dæmis lagði niður Aðalpósthúsið? Þetta mik- ilfenglega hús sem ljær nafn stræt- inu sem það stendur við og var þann- ig úr garði gert að bið í röð varð kærkomin. Þar sem borgarbúar höfðu mann fram af manni komið með bréfin sín og jólakort, sleikt frí- merki eða þrýst í svamp. Og hver eyðilagði hið stórkostlega Reykjavík- urapótek hinumegin við götuna með himinborinni innréttingu þar sem kynslóðirnar höfðu í eftirvæntingu beðið eftir lyfinu sem læknaði, eða bara flösusjampói. Og hver kveikti í Nýja bíói? Ég geri ekki ráð fyrir að við þessum spurningum sé neitt ein- hlítt svar. Almennur sljóleiki? Einka- væðing? Einbeittur brotavilji? En um fram allt ríkjandi skeytingarleysi borgaryfirvalda um miðbæinn. Ein- staklingar virðast auðveldlega geta eignast hvaða sögufrægt hús sem er og hengt á það mannhæðarhá auglýs- ingaskilti um Coca Cola og SS– pylsur eða hvað annað sem þeim kann að detta í hug. Breytt því í búllu eða rutt því um koll. Borg- arstjórn virðist ekki hafa umboð til að láta sig það varða. Þessu þyrfti að breyta. Miðbær Reykjavíkur ætti að hafa svipaðan status og Þingvellir, þjóðin á hann. Sem þýðir ekki að enginn megi koma í hann, þvert á móti, allir eru velkomnir. En á sama hátt og menn efna ekki til rall-keppni á Þingvöllum ættu svonefndir „at- hafnamenn“ að finna sér annan vett- vang. Í stað auglýsingaskiltanna ættu að koma skilti sem herma frá sögu húsanna. Og þyrfti ekki að einskorða sig við sjálfa miðbæjartorfuna. Í Garðastræti stendur til að mynda hús sem kallast á við Spítalastíg 7, en í þessum tveimur húsum voru um árabil starfræktar helstu aflstöðvar íslenskrar menningar: Unuhús og Mjólkurfélag heilagra. Fyrir alla muni segja frá því! Og við Stýri- mannastíg 9 stendur fallegt timb- urhús, í því bjó Þórbergur Þórðarson PISTILL »Miðbærinn þarf að gangast við sögu sinni. Það er hún sem er sálin í öllu heila móverkinu. Að öðrum kosti getur svo far- ið að afkomendur okkar eigi eftir að lúta höfði yfir minnisskildi greyptum í malbikið: „Hér stóð mið- bær Reykjavíkur“. Pétur Gunnarsson Ó, Reykjavík… um ellefu ára skeið og skrifaði þar m.a. tímamótaverkið í íslenskum nú- tímabókmenntum: Bréf til Láru. Segja endilega frá því! Og svona má halda áfram flestar götur miðbæj- arins. Bærinn þarf að gangast við sögu sinni, það er hún sem er sálin í öllu heila móverkinu. Að öðrum kosti getur svo farið að afkomendur okkar eigi eftir að lúta höfði yfir minn- isskildi greyptum í malbikið: „Hér stóð miðbær Reykjavíkur“. ÞORGRÍMUR Þórðarson, vélstjóri, segir ákvörðunina um að hætta að láta lækni fylgja neyðarbílnum vera sem blaut tuska framan í Hjarta- vernd, sem hafi gert mjög mikið fyrir spítalana. „Þetta er lélegt þakk- læti,“ segir hann. Þorgrímur hefur oft þurft á þjónustu neyðarbílsins að halda. Hann segir að eitt sinn hafi hjartað stoppað 17 sinnum og læknir í neyðarbílnum hafi þá bjargað lífi sínu sem oftar. „Það vill nefnilega svo til að þó þeir séu alveg yndislegir strákarnir á þessum bílum, duglegir og allt það, þá hafa þeir ekki læknaleyfi,“ segir hann og bendir á að það takmarki það sem þeir megi gera. En umræðuna vanti. „Það er mikið meira talað um þessa helvítis kofa niður á Lauga- vegi sem mættu þó gjarnan fara. Það er meira vit í því að hjálpa fólki eitthvað heldur en einhverjum fúaspýtum.“ Mikilvægara að hjálpa fólki en fúaspýtum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.