Morgunblaðið - 18.01.2008, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 2008 9
FRÉTTIR
Opið virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
Meiri verðlækkun
40-70% afsláttur
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
sími 557 1730 sími 554 7030
Opið virka daga 10.00-18.00
Laugard. Bæjarlind 10.00-16.00 og Eddufell 10.00-14.00
Útsala - útsala
Enn meiri verðlækkun
Mjódd, sími 557 5900
m
bl
9
60
80
3Verið velkomnar
Útsala, Útsala
í fullum gangi
Útsala - Útsala
Enn meiri afsláttur
50-70%
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
HUGSANLEGA verður vinstri
beygju af Bústaðavegi norður
Reykjanesbraut lokað í vor og lokið
við mótvægisaðgerðir á Réttarholts-
vegi í lok ársins, að sögn Þorleifs
Gunnlaugssonar, formanns um-
hverfissviðs Reykjavíkurborgar.
Hann segir ennfremur, að talið sé að
lokun vinstri beygjunnar auki um-
ferðina um Réttarholtsveg frá Bú-
staðavegi um að minnsta kosti 10%.
Á fjárhagsáætlun 2008
Í fjárhagsáætlun Reykjavíkur-
borgar fyrir 2008 er gert ráð fyrir
framkvæmdum við að loka vinstri
beygju frá Bústaðavegi norður
Reykjanesbraut og fara í mótvæg-
isaðgerðir við Réttarholtsveg.
Þorleifur segir að mótvægisað-
gerðirnar feli í sér að gangandi um-
ferð verði í göngum undir Réttar-
holtsveginum á móts við Réttar-
holtsskólann en eins sé í athugun að
setja bílaumferðina í stokk og gang-
brautir fyrir ofan.
Skiptar skoðanir
Vegagerðin lagði fram tvær tillög-
ur um mislæg gatnamót á mótum
Bústaðavegar og Reykjanesbrautar.
Í báðum var gert ráð fyrir að ekki
væri hægt að beygja til vinstri af Bú-
staðavegi norður Reykjanesbraut.
Borgarráð hafnaði tillögunum sem
og stjórn íbúasamtaka Bústaða-
hverfis. Í yfirlýsingu íbúasamtak-
anna í byrjun desember sl. kom fram
að mislæg gatnamót myndu hafa í
för með sér mikla aukningu umferð-
ar um Bústaðaveg, sem myndi kljúfa
hverfið endanlega í sundur og myndi
auk þess auka slysahættu þar og við
Réttarholtsveg.
Stjórn íbúasamtakanna Betra
Breiðholts (ÍBB) skoraði á borgar-
yfirvöld að láta endurhanna tillög-
urnar. „Þessi gatnamót eru fjár-
mögnuð af ríkinu og hefur fjár-
veiting upp á 600 milljónir króna
verið eyrnamerkt í þetta verkefni á
samgönguáætlun ríkisins fyrir árið
2008. Við óttumst að verði ekki farið í
framkvæmdina á næsta ári falli fjár-
veitingin niður,“ var haft eftir Helga
Kristóferssyni, formanni ÍBB, í
Morgunblaðinu 2. desember sl.
Talið að umferð um Réttar-
holtsveg aukist um 10%
HJÖRLEIFUR Stefánsson arkitekt
kynnti stöðu mála vegna gerðar
nýrrar borgarverndunaráætlunar á
fundi skipulagsráðs Reykjavíkur-
borgar á miðvikudag.
Svandís Svavarsdóttir, formaður
skipulagsráðs, segir að stjórnar-
menn hafi í meginatriðum tekið
undir framlögð sjónarmið og auk
þess lagt fram nokkrar ábendingar
um það í hvaða farveg þeir vildu sjá
málið fara. Í því sambandi væri
helst verið að ræða um að þyngja
vægi fagurfræðilegs samhengis og
sögu í borgarskipulaginu.
Gerð nýrrar borg-
arverndunaráætl-
unar kynnt
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111