Morgunblaðið - 18.01.2008, Síða 16
16 FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
Í HNOTSKURN
» Tryggingaálag á fimm áraskuldabréf Kaupþings og
Glitnis hækkaði í gær en álagið
á bréf Landsbankans lækkaði.
» Álag Kaupþings er nú447,5 punktar, Glitnis 345
punktar og Landsbankans 250
punktar.
FRÉTTASKÝRING
Eftir Guðmund Sverri Þór
sverrirth@mbl.is
GLITNIR tilkynnti í gær að
lausafé bankans væri meira en sex
milljarðar evra en endurfjármögnun-
arþörf á yfirstandandi ári næmi alls
3,5 milljörðum evra fyrir alla sam-
stæðuna. Þar með er ljóst að bankinn
þarf ekki að gefa út skuldabréf til
þess að fjármagna sig í bráðina en
eins og fram kom í Morgunblaðinu í
gær var fallið frá hugmyndum um að
ráðast í skuldabréfaútgáfu að svo
stöddu vegna erfiðra markaðsað-
stæðna.
Almennt er lausafjárstaða íslensku
bankanna góð en eins og fram kom í
tilkynningu frá Landsbankanum fyrr
í vikunni var lausafjárstaða hans hinn
10. janúar 8,9 milljarðar evra en end-
urfjármögnunarþörf á árinu 800 millj-
ónir evra. Að sögn Guðna N. Aðal-
steinssonar, framkvæmdastjóra
fjárstýringar Kaupþings, er bankinn
fjármagnaður til 360 daga og er inni í
þeirri tölu gert ráð fyrir að þeirri
greiðslu sem bankinn þarf að inna af
hendi vegna kaupanna á hollenska
bankanum NIBC á næstu vikum.
Straumur-Burðarás tilkynnti í byrjun
árs að bankinn væri fjármagnaður í
270 daga en hvorki Straumur né
Kaupþing gefa upp hversu miklu
lausafé þeir hafa yfir að ráða.
Miðað við það sem fram kemur hér
að framan er ættu bankarnir að geta
þreyð þorrann eitthvað áfram og beð-
ið þess að óveðrinu sloti á fjármagns-
mörkuðum en engu að síður er eðli-
legt að spyrja sig hvaða úrræði þeir
hafa fari svo að ástandið verði lang-
varandi.
Eins og fram hefur komið hefur
Seðlabanki Íslands rýmkað veðheim-
ildir vegna endurhverfra veðlána
sinna. Fyrir vikið er ljóst að þar geta
bankarnir náð í fjármagn en þá ber að
hafa í huga að endurhverf lán eru að-
eins til viku í senn en þau bera stýri-
vexti Seðlabankans, sem nú eru
13,75% á ári. Vegna hins stutta tíma
væru slík lán því aðeins skammtíma-
fjármögnun. Í máli Ingólfs Bender,
forstöðumanns Greiningar Glitnis, á
fundi fyrr í vikunni kom fram að hjá
Seðlabankanum gætu bankarnir ef til
vill sótt 3-5 milljarða evra.
Einhverjir bandarísku bankanna
hafa á undanförnum vikum gripið til
þess ráðs að gefa út nýtt hlutafé eða
breytanleg skuldabréf til þess að
bæta stöðu sína en að sögn Gylfa
Magnússonar, dósents við viðskipta-
og hagfræðideild HÍ, er ósennilegt að
íslensku bankarnir grípi til þeirra
ráða. Staða þeirra sé yfir heildina litið
sterk auk þess sem markaðsaðstæður
séu lítið fýsilegri á hlutabréfamarkaði
en skuldabréfamarkaði og kjör á
breytanlegum skuldabréfum ekki
freistandi. Líklegast sé að bankarnir
muni bíða og sjá hvernig markaðir
þróast en í millitíðinni geti þeir gripið
til aðgerða til þess að láta féð endast
lengur. Til dæmis með því að leita
leiða til hagræðingar og draga úr arð-
greiðslum.
Lausafjárstaða bank-
anna almennt góð
Gætu reynt að láta féð endast betur, t.d. með hagræðingum
ÞETTA HELST ...
● ÚRVALSVÍSITALA kauphallarinnar
hækkaði um 1,14% í frekar dræmum
viðskiptum með hlutbréf í gær. Velta
í viðskiptum með hlutabréf nam 4,3
milljörðum króna í gær en heild-
arvelta dagsins var 26,8 milljarðar.
Mest hækkun í gær varð á hlutabréf-
um FL Group en þau hækkuðu um
3,3% og jafnframt var mest velta
með bréf félagsins, 907 milljónir
króna. Mest lækkun varð á bréfum
færeyska flugfélagsins Atlantic Air-
ways en þau lækkuðu um 4,22%.
Lokagildi úrvalsvísitölunnar var
5.514,7 stig.
FL Group hækkaði
mest í gær
● HELSTU vísitölur vestanhafs
lækkuðu verulega í gær, Dow Jon-
es um 2,5%, Nasdag um 2,0% og
S&P um 2,9%.
Meðal þess sem dró kjarkinn úr
markaðnum var 9,8 milljarða dala
tap fjárfestingabankans Merrill
Lynch á fjórða ársfjórðungi nýliðins
árs, jafnvirði um 640 milljarða
króna, ollu titringi á Wall Street í
gær. Sem og tölur um fjölda nýrra
húsbyggjenda í Bandaríkjunum, en
þær sýndu mestu niðursveiflu í ný-
byggingum í 27 ár. Á sama tímabili
árið 2006 skilaði Merrill Lynch
2,35 milljarða dollara hagnaði. Á
fjórða ársfjórðungi þurfti bankinn
að afskrifa 11,5 milljarða dollara
vegna tapaðra undirmálslána til
bandarískra húseigenda en alls
nema afskriftir síðasta árs um
16,7 milljörðum dollara, jafnvirði
um 1.085 milljarða króna. Allt síð-
asta ár nam tap ML 7,8 milljörðum
dollara.
Samkvæmt Financial Times hef-
ur sá ótti gripið um sig meðal
markaðsaðila að fyrirtæki sem
tryggja skuldabréf búi ekki yfir
nægilegum styrk til þess að stand-
ast ölduganginn. Átti það sinn þátt
í lækkunum gærdagsins.
Verulegar lækkanir
vestanhafs
● NORSKA fjármálaráðuneytið hefur
hafnað ósk Kaupþings um heimild til
þess að fara með allt að 25% eign-
arhlut í norska tryggingafélaginu
Storebrand. Samkvæmt tilkynningu
frá ráðuneytinu er þetta gert í samráði
við Kredittilsynet, norska fjármálaeft-
irlitið. Þar segir jafnframt að ráðu-
neytið hafi ekki séð ástæðu til þess
að breyta ákvörðun sinni frá 19. mars
sl. þess efnis að Kaupþing mætti fara
með allt að 20% hlut.
Gengi hlutabréfa Storebrand hækk-
aði um 7,8% í gær í kjölfar þess að
fjármálaráðuneytið samþykkti ósk
tryggingafélagsins Gjensidige um að
fara með allt að 20% eignarhlut.
Ósk Kaupþings
hafnað í Noregi
● MERRION, dótturfélag Landsbank-
ans á Írlandi, varð nýverið hlutskarp-
ast írskra verðbréfafyrirtækja í ár-
legu vali viðskiptatímaritsins
Finance Magazine í Dublin. Þátttak-
endur í valinu eru írskir og alþjóðlegir
sjóðsstjórar. Samkvæmt tilkynningu
Landsbankans var þetta í 21. sinn
sem val tímaritsins fór fram. Að mati
tímaritsins sýni niðurstaðan að Mer-
rion Landsbanki, sem varð efst í 13
flokkum, sé farið að bjóða stærstu
verðbréfafyrirtækjum Írlands birginn.
Merrion fremst írskra
verðbréfafyrirtækja
Bankastjórar Landsbankans ásamt
forstjóra Merrion á Írlandi . DANSKI kaupsýslumaðurinn Mort-
en Lund segist hafa keypt ráðandi
hlut í fríblaðinu Nyhedsavisen af
Baugur Group með hagnað í huga. Í
samtali við business.dk, viðskiptavef
Berlingske Tidene segir hann að mik-
il verðmæti séu í rekstrinum og
spennandi verkefni framundan.
Vonir standa til þess að rekstur
Nyhedsavisen nái núllpunkti í nóvem-
ber nk. og fari í kjölfarið að skila
hagnaði. En til þess þarf að hagræða
mikið í rekstri auk þess sem lesend-
um þarf að fjölga, án þess að upplagið
stækki. Samkvæmt business.dk var
420 milljón danskra króna tap á síð-
asta ári og reiknað er með að tapið á
þessu ári verði 700 milljónir danskra
króna til viðbótar áður en núllpunktur
næst.
„Við teljum þetta vera mjög já-
kvæðar fréttir fyrir okkur og blaðið í
heild sinni,“ segir Þórdís Sigurðar-
dóttir, framkvæmdastjóri fjölmiðla-
og tæknisviðs Baugur Group. „Við
vildum fá fjárfesta með okkur í rekst-
urinn en það þurfti að vera einhver
sem hafði trú á hugmyndinni. Nú hef-
ur það gerst,“ bætir hún við. „Nyhed-
savisen er stórt verkefni og við höfum
sett í það mikið fé en ekki tapað pen-
ingum á blaðinu. Með því að selja
Morten Lund 51% hlut teljum við
fjárfestingu okkar verða enn betri því
nú er kominn aðili að félaginu sem
getur tekið það upp á næsta stig.“
„Höfum ekki tapað
peningum á blaðinu“
STEINUNN Sigurðardóttir fata-
hönnuður fékk FKA-viðurkenn-
inguna 2008 frá Félagi kvenna í at-
vinnurekstri, en verðlaunin voru
afhent við athöfn í Perlunni í gær
af Björgvini G. Sigurðssyni við-
skiptaráðherra og Birnu Ein-
arsdóttur, framkvæmdastjóra hjá
Glitni.
Steinunn hefur starfað með
mörgum heimsþekktum hönnuðum
en frá árinu 2000 hefur hún starf-
rækt eigið fyrirtæki og framleitt
tískufatnað undir eigin merki, sjá
nánar vefinn steinunn.com.
Þakkarviðurkenningu FKA fékk
Guðrún Agnarsdóttir, forstjóri
Krabbameinsfélags Íslands, fyrir
störf sín í þágu félagsins, sem þing-
maður og fyrir að hafa í sínum
læknisstörfum komið á fót og
skipulagt neyðarmóttöku vegna
nauðgunar.
Hvatningarviðurkenningu FKA
hlaut Sigríður Margrét Guðmunds-
dóttir, framkvæmdastjóri Land-
námssetursins í Borgarnesi, en hún
hlaut einnig í nóvember sl. nýsköp-
unarverðlaun Alþjóðasamtaka
kvenna í atvinnurekstri. Loks féllu
verðlaunin Gæfusporið 2008 í skaut
fyrirtækisins Veritas Capital, sem
er móðurfélag Vistor, Distica og
Artasan. Hefur Veritas þótt skara
fram úr við að virkja kraft þeirra
kvenna sem þar starfa, en 18 konur
eru í stjórnunarstöðum af 170
starfsmönnum Veritas.
Steinunn hlaut viðurkenningu FKA
Árvakur/Ómar
FKA Frá vinstri Birna Einarsdóttir, Glitni; Hreggviður Jónsson, Veritas; Sigríður Margrét Guðmundsdóttir, Stein-
unn Sigurðardóttir, Guðrún Agnarsdóttir, Björgvin G. Sigurðsson og Margrét Kristmannsdóttir, formaður FKA.
!"# $
% & '( (
!"#$
%& !"#$
'("#$
) !"#$
*((+("#$
,#$(-(!#.*/0*
12
* ( !"#$
3 !4(/"#$
) +(0* "#$
*"#$
56 - 7 89 :9#$+$"#$
;-("#$
< "#$
!!" #$%&
=>"#$
*#
2"#$
*(2(
;
*(25
*
-5?
((
*/ !"#$
@ ;
12
* (2 !"#$
A"
:("#$
;//(/-(8&8("#$
B(* &8("#$
'($) !*
C
;* -( - , ("#$
,-!(8:"#$
+&,-
.&
B(8(!(
/(
(*+ 8D* /E
3 !*
=$F>$F
GG$H>$
H>$HG$GH
I>$H>F$GGF
H$IF$=>G
$H$=
G$G$=>>
>$G>$=F
H$I$>H
G$I>$=>
H$FI$IG
G=$=$>
=G$HF$>
=$IG$I>
=$==$GGF
>>$H
$G$=G
G$I>$F
H$GG$H
I$HG
$G$=I
$F$>
7
7
7
F$F$
7
7
IJ
GJ
JH
JF
IJI
=J
GHJ=
HJ
=JI
J
HJ=F
=J=>
JF>
IJ>
GJ
>JH=
HIJ
=IJ
HJ
J
J
=J>
G=JG
7
7
=J
7
7
IJ
=J
JF=
JF
GJ
=J=
GHJ
HFJ
=GJ
J
HJ
=J=
JI
I>J>
GJG
>JHF
FGJ
>J
FJ
J
FJ
=J>
7
7
7
=FJ
7
>J
:&* (
%(8(!
>
=>
G
=
>
>
F
G
=H
F
=
H
G
=
H
F
F
G
7
7
7
I
7
7
/
(/
%(8$%
8
H$$GF
H$$GF
H$$GF
H$$GF
H$$GF
H$$GF
H$$GF
H$$GF
H$$GF
H$$GF
H$$GF
H$$GF
H$$GF
H$$GF
H$$GF
H$$GF
H$$GF
H$$GF
H$$GF
H$$GF
H$$GF
H$$GF
I$$GF
>$G$GH
GG$F$GH
H$$GF
$$GF
$$GF
FRESTUR til að samþykkja tilboð
eignarhaldsfélagsins London Acquis-
tion - sem er í eigu Eyris Invest,
Landsbankans og Candover - í allt
hlutafé hollenska iðnfyrirtækisins
Stork er runninn út og samþykktu
hluthafar 98% hluta í Stork tilboðið.
Önnur skilyrði yfirtökunnar hafa ver-
ið uppfyllt, samkvæmt tilkynningu til
kauphallar, og yfirtökutilboðið því
orðið skuldbindandi en uppgjör við-
skipta fer fram 22. janúar nk.
Þar með hefur eitt af skilyrðunum
fyrir kaupum Marel Food Systems á
dótturfélagi Stork, Stork Food Sys-
tems, verið uppfyllt. Önnur skilyrði
tilboðs Marel eru umsögn Stork
Works Council og heimild samkeppn-
isyfirvalda fyrir kaupunum. Gert er
ráð fyrir að niðurstaða liggi fyrir um
miðjan mars næstkomandi.
Árvakur/Brynjar Gauti
Yfirtaka Árni Oddur Þórðarson
stjórnarformaður og Hörður Arn-
arson, forstjóri Marel.
Tilboðið
orðið skuld-
bindandi