Morgunblaðið - 18.01.2008, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 2008 19
AKUREYRI
AKRALAND M/BÍLSKÚR
Ármúla 21 • 108 Reykjavík • Sími 533 4040
kjoreign@kjoreign.is • www.kjoreign.is
Dan V.S. Wiium hdl., lögg. fasteignasali gsm 896 4013
Kristinn Valur Wiium Ólafur Guðmundsson
sölumaður s. 896-6913 sölustjóri s. 896-4090
jöreign ehf
Falleg, rúmgóð og vel innréttuð 3ja herb. endaíbúð á 1.hæð í litlu
fjölbýlishúsi með sér inngangi og góðum bílskúr. Stærð alls
119,8 fm. þ.e. íbúð 89,8 fm og bílskúr 30,0 fm.
Fyrir 50 ára og eldri. Laus fljótlega.
Verð: 34,9 millj.
Eftir Skapta Hallgrímsson
skapti@mbl.is
NÚ er ljóst í aðalatriðum hvernig
uppbygging aðstöðu verður á fé-
lagssvæði íþróttafélagsins Þórs í
Glerárhverfi, í samstarfi Akureyr-
arbæjar, Þórs og Ungmennafélags
Akureyrar áður en Landsmót Ung-
mennafélags Íslands fer þar fram
sumarið 2009.
Lögð verður fram tillaga á fundi
bæjarstjórnar eftir helgi um að aug-
lýsa deiliskipulag svæðisins og í bæj-
arráði var í gær samþykktur samn-
ingur um kaup bæjarins á
íbúðarhúsinu Steinnesi, en eftir um-
ræddar breytingar verður það inni á
miðju umráðasvæði Þórsara. Á
myndinni vinstra megin hér að ofan
sést Steinnes hægra megin og ofan
við hlaupabrautina. Húsið með
rauða þakinu þar við hliðina er Ham-
ar, félagsheimili Þórs og stóra húsið
næst Hamri fjölnota húsið Boginn.
Akureyrarbær fær Steinnes ekki
afhent strax og reyndar er ekki end-
anlega ljóst hvenær það verður.
Heldur er ekki ákveðið hvernig hús-
ið verður nýtt í framtíðinni en ekki
er ólíklegt að þar verði starfsemi
tengd vallarsvæðinu.
Efst á myndinni er svokallað
Sunnuhlíðarsvæði, þar sem Þórs-
arar fá æfingaaðstöðu en keppn-
isvöllur fyrir frjálsíþróttir og knatt-
spyrnu verður á vellinum sem rauði
hringurinn (hlaupabrautin) markar.
Vestan keppnisvallarins (ofan
hans á myndinni) verður áhorf-
endastúka – sem nær um það bil frá
miðri klöppinni sem þarna er nú og
langleiðina norður að Steinnesi, eins
og sjá má á myndinni vinstra megin.
Stúkuna á að byggja í áföngum
þar sem frágangi innanhúss og utan
á að vera að mestu lokið fyrir lands-
mótið en reiknað er með að þak
verði sett á stúkuna síðar. Áhorf-
endastúka keppnisvallar verður þá
undir þaki og rúmar um 1.000 manns
í sæti. Aðgengi áhorfenda verður um
göngustíg frá bifreiðastæði við
Hamar og frá Glerárskóla og inn-
gangur í stúkuna úr vestri – ofan frá
séð á vinstri myndinni. Á tölvu-
myndinni hægra megin sér úr lofti
ofan á völlinn úr vesturátt, frá Borg-
arhlíðinni. Áðurnefndur göngustígur
er neðst á myndinni.
Akureyrarbær kaupir íbúðarhús sem stendur að lokinni uppbyggingunni á miðju æfingasvæðinu
Í HNOTSKURN
»Landsmót UMFÍ fer fram ásvæðinu 2009.
»Umhverfis keppnisvöllinnliggja 8 hlaupabrautir. Hluti
þeirra verður með snjóbræðslu
og yllagnir undir grasvellinum.
» Í stúkunni verða búnings-klefar og geymslur fyrir völl-
inn. Á efstu hæðinni verður þjón-
usta við áhorfendur og
mótstjórn.
Endanlegt samkomulag um Þórssvæðið
Eftir Andrés Skúlason
Djúpivogur | Þegar gengið er með
fjörum má stundum sjá ýmislegt
sem ekki er liggur dags daglega
fyrir fótum manna.
Í ágúst á síðasta ári rak hvalateg-
und er nefnist andanefja að landi
við eyju eina á Búlandsnesi í Djúpa-
vogshreppi. Eyjan ber nafn með
rentu, þ.e. Hvaley.
Ástæða þess að hvalhræið var
ekki grafið þar sem það rak á land
á sínum tíma, er sú að vegna þess
að það var töluvert frá alfaraleið
taldist víst að það yrði engum til
ama. Því var ákveðið að láta hval-
inn bera beinin í sendinni fjörunni.
Nú fimm mánuðum síðar er hins
vegar lítið eftir af hinni sjö metra
löngu skepnu, þar sem grindin ein
liggur eftir. Hrafnar og aðrar
hræætur hafa því verið duglegar
við þetta matborð á undanförnum
vikum og mánuðum.
Gnægta-
borðið
tæmt
Morgunblaðið/Andrés Skúlason
Uppetinn Andanefjan, sem rak á fjörur í Hvaley, er nú aðeins skininbeinin.
Hvalurinn étinn
upp til agna á
fimm mánuðum
Eftir Andrés Skúlason
Djúpivogur | Frá því elstu menn
muna hefur skautaíþróttin verið
vinsæl meðal barna og unglinga á
Djúpavogi. Skyldi engan undra þar
sem vötnin leggur sléttu svelli í
næsta nágrenni við bæinn á hverj-
um vetri. Ekki þarf að hræðast dýpt
vatnsins þar sem bestu aðstæð-
urnar eru til að renna sér og því
geta börnin rennt sér áhyggjulaus
hring eftir hring.
Á góðum dögum þegar vel viðrar
má sjá krakkana renna sér í sólinni
sem slær oft litríkum slæðum niður
á svellið og þá er oft tilkomumikið
að líta þetta skemmtilega skauta-
svæði.
Að þessu sinni voru systkinin
Gabríel Örn Björgvinsson og Kam-
illa Marín Björgvinsdóttir á fullu
við æfingar og var Elín Eik Stef-
ánsdóttir þeim til halds og trausts á
svellinu.
Gabríel Örn tók léttan snúning
að hætti listdansara fyrir ljósmynd-
ara. Aðspurður hvort hann stefndi
á Ólympíuleikana sagðist Gabríel
þurfa að æfa sig aðeins betur. Kam-
illa systir hans sýndi einnig frá-
bæra takta, hafði fullt vald á skaut-
unum og var með jafnvægið í góðu
lagi þótt ung sé að árum.
Morgunblaðið/Andrés Skúlason
Svellköld Þau Kamilla Marín, Gabríel Örn og Elín Eik nota hvert tækifæri
til að bregða sér á skauta á rennisléttum svellunum við Djúpavog.
Skauta sér til yndis
AUSTURLAND
Reyðarfjörður | Haldið verður upp á
100 ára afmæli Verkalýðsfélags
Reyðarfjarðar kl. 15 á morgun á
Fjarðahóteli á Reyðarfirði. AFL
stendur fyrir fagnaðinum.
Verkalýðsfélag
100 ára gamalt