Morgunblaðið - 18.01.2008, Qupperneq 20
20 FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
HRAFNHILDUR Schram
listfræðingur verður með
leiðsögn um sýningu Lista-
safns Íslands á verkum úr
safni Markúsar Ívarssonar,
járnsmiðs sem kenndur er
við Vélsmiðjuna Héðin, á
sunnudaginn kl. 14.
Hrafnhildur er þekkt fyr-
ir störf sín í þágu mynd-
listar sem höfundur fræði-
rita og heimildamynda um
íslenska myndlistarmenn. Í spjalli sínu um
sýninguna mun hún fjalla um stöðu íslenskrar
myndlistar á þriðja og fjórða áratug tutt-
ugustu aldarinnar.
Myndlist
Hrafnhildur leiðir
um Markúsarsafn
Hrafnhildur
Schram
ÁSDÍS Arnardóttir selló-
leikari og Aladár Rácz pí-
anóleikari flytja tónlist um
konur og eftir konur í há-
degistónleikaröð Tónlistar-
félags Akureyrar og Karól-
ínu kl. 12.15 í dag. Þarna
gefst færi á að njóta léttrar,
sígildrar tónlistar og fá um
leið léttan hádegisverð í
amstri dagsins. Ásdís lauk
meistaragráðu í sellóleik
frá Boston University 1995 og starfar nú sem
sellókennari við Tónlistarskólann á Akureyri.
Aladár Rácz er frá Rúmeníu en hefur búið hér
í um áratug og kennir píanóleik á Húsavík.
Tónlist
Tónlist um konur
og eftir konur
Ásdís
Arnardóttir
MAGNÚS Helgason
opnar málverkasýn-
inguna Yfirdráp í Salt-
félaginu á morgun, laug-
ardaginn 19. janúar, kl.
14. Magnús vinnur með
djarfa liti og óræðan
texta í málverkum sínum.
Verkin eru kraftmikil og
oft húmorísk. Nokkur
þeirra eru máluð á lit-
aðan striga, sem gefur
þeim aukna dýpt og sérkenni. Magnús segir að
sá yfirgengileiki sem einkenndi samfélagið síð-
astliðið ár hafi veitt honum innblástur og er
titill sýningarinnar, Yfirdráp, þaðan kominn.
Myndlist
Djarfir litir og
yfirdrepsskapur
Eitt verka
Magnúsar.
„Í MÍNUM huga er ljós-
myndun meira en einungis
aðferð til að festa augna-
blik. Ég nýti mér miðilinn á
tvenns konar hátt: Til að
fanga þætti í umhverfinu
sem vekja hjá mér ein-
hverjar kenndir, eða sem
mér einfaldlega finnst fal-
legir eða áhugaverðir, og
einnig sem einskonar fram-
lengingu á hugarfluginu,
tæki sem gerir mér kleift að búa til og miðla
áfram hugmyndum sem birtast mér,“ segir
Rebekka Guðleifsdóttir, sem opnar ljósmynda-
sýningu í Norræna húsinu á morgun kl. 16
Hugarflugið
framlengt
Ein mynda á
sýningunni.
Myndlist
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
VETRARHÁTÍÐ í Reykjavík nálg-
ast óðum, hún verður nú haldin í sjö-
unda sinn dagana 7.-9. febrúar.
Þema hátíðarinnar nú verður ljós og
hreyfing, og miðað við dagskrána
sem kynnt var í Ásmundarsafni í
gær, verður hátíðin samfellt sjón-
arspil gleði og gamans. Sif Gunn-
arsdóttir forstöðumaður Höfuðborg-
arstofu segir að draumurinn sé að
Vetrarhátíð verði æ sýnilegri í
hversdagslífi fólks; það sé lang-
tímamarkmið. „Með það í huga
finnst okkur rosalega gaman hvað
þátttaka ýmissa stofnana hefur auk-
ist í ár. Þjónustumiðstöðvar með frí-
stundafulltrúum og öllu því góða
fólki sem þar er, félagsmiðstöðvar,
sundlaugarnar og margir fleiri, taka
miklu meiri þátt í hátíðinni en áður.
Vetrarhátíð er til vegna þess að
borgarbúar taka þátt í henni, við
viljum að hún verði stærri að þessu
leyti. Mér finnst við hafa náð skrefi í
þá átt í ár. Auðvitað viljum við svo
líka alltaf bjóða upp á stærri og flott-
ari viðburði“.
Opnunarhátíðin á fimmtudags-
kvöldinu verður sérlega litrík ef að
líkum lætur; þegar uppljómaðir
dansarar og lýsandi verur leiða
mannskapinn niður Skólavörðuholt-
ið gegnum óvænta undraheima og
niður að Tjörn.
Eftir setningu taka dagskrárlið-
irnir við hver af öðrum skemmtun og
alþýðlegir listviðburðir sem allir
ættu að geta notið.
Á fimmtudagskvöldinu verður til
dæmis hægt að skella sér á gamal-
dags fiðluball í Iðnó, undir yfir-
skriftinni Vín, grín og fíólín, eða í
Ljóðaslamm á Borgarbókasafninu
með lífrænum flutningi ljóða. Fyr-
irtæki í borginni hafa mörg hver op-
ið frameftir.
Vísindasmiðja barna
Vetrarhátíð er hátíð fyrir krakka
og krakkar taka þátt í henni. Í Ráð-
húsi Reykjavíkur verður sett upp
sérstök vísindasmiðja fyrir börn á
öllum aldri þar sem unnið er með
fjölbreytilegan efnivið til byggingar
og ljós. Skoðað er hvernig hægt er
að nota ljós til að gefa byggingum
annað líf. Hvernig sumt efni hleypir
ljósi í gegnum sig og annað ekki. Í
vísindasmiðjunni fá sköpunargáfan
og fróðleiksfýsnin að njóta sín.
Safnanótt
Á föstudeginum er Safnanótt. Þá
munu upp ljúkast söfnin stór og smá
og mörg þeirra verða með sérstaka
dagskrá og viðburði í tilefni Vetrar-
hátíðar. Þjóðminjasafnið verður til
dæmis með kynngimagnað kvöld
fyrir þá sem þora að leggja þangað
leið sína – með magnþrungnum leik-
lestri á sögum af mórum og skottum,
draugum, vættum og öðru handan-
hyski. Náttúrugripasafnið verður
hins vegar í birtunni þessa heims
með dagskrána Þú ert ljós lífs míns,
en hún er helguð ljóstillífun, grund-
velli tilvistar okkar á jörðinni.
Laugardagurinn er Heimsdagur á
Vetrarhátíð, en þá fá börn og ung-
lingar tækifæri til að kynna sér
menningu fjarlægra og stundum
framandi þjóða í listsmiðjum.
Tangómaraþon hefst á hádegi laug-
ardags í Iðnó og verður dansað svo
lengi sem dansarar standa, eða fram
á sunnudagsmorgun. Þetta er í
fyrsta sinn sem tangómaraþon er
haldið hér, en fyrirbærið er vel
þekkt víða erlendis. „Það er einmitt
einkenni á Vetrarhátíð að þar er
fræjum sáð sem sum vaxa og verða
gríðarstór og falleg blóm. Vetrar-
hátíð á að vera þannig vettvangur.
Þar eigum við að prófa nýja hluti og
þora að framkvæma skemmtilegar
hugmyndir.“
Esjuganga verður við sólsetur á
laugardag þar sem göngufólk verður
með höfuðljós til að lýsa veginn. Það
má búast við því að það verði kostu-
leg sjón fyrir þá sem heima sitja að
sjá ljósaorminn sniglast upp Esjuna.
Hér er einungis upp talið brot af
þeirri dagskrá sem í vændum er á
Vetrarhátíð. Áhersla er á að stórir
og smáir, ungir sem gamlir geti not-
ið sín og fundið glaðning við sitt
hæfi. Dagskránni lýkur á laugar-
dagkvöld með tónleikum á Nasa þar
sem afar sérstök stelpnahljómsveit,
Iva Nova frá Rússlandi, leikur kraft-
mikla tónlist – blöndu þjóðlagatón-
listar og rokks.
Við kynningu á dagskrá hátíðar-
innar í gær undirrituðu og innsigl-
uðu borgarstjórinn í Reykjavík,
Dagur B. Eggertsson, forstjóri
SPRON, Guðmundur Hauksson og
forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur,
Hjörleifur Kvaran, samstarfssamn-
inga um Vetrarhátíð með táknræn-
um gjörningi. „Með samningnum
leggja Orkuveitan og SPRON fé í
miðlægan sjóð hátíðarinnar, en
munu líka taka þátt í hátíðinni.
SPRON mun til dæmis taka virkan
þátt í Safnanóttinni, eins og þeir
gerðu í fyrra þegar þeir opnuðu sýn-
ingu á Skólavörðustígnum. Við vilj-
um ekki bara segja: „Takk kærlega
fyrir styrkinn,“ við óskum eftir
skapandi samstarfi við þau fyrirtæki
sem vilja vinna með okkur,“ segir
Sif. „Það er gaman að handsala svo-
leiðis samninga. Næstu þrjú ár verð-
um við ekki á byrjunarreit, heldur
getum við þróað þettta skapandi
samstarf áfram á metnaðarfullan
hátt.“
Lifandi ljósormur liðast upp Esjuna
Morgunblaðið/Ómar
Vetrarhátíð Ljósenglar leiða ljósálfana Guðmund Hauksson sparisjóðs-
stjóra, Dag B. Eggertsson borgarstjóra og Hjörleif Kvaran Orkuveitu-
stjóra til undirrutnar samtarfssamnings.
Vetrarhátíð haldin í sjöunda sinn 7.-9. febrúar, með ljósi, hreyfingu, gleði og fróðleik
TENGLAR
..............................................
www.reykjavik.is
www.visitreykjavik.is
LISTASJÓÐUR Dungals, sem
nefndist áður Listasjóður Pennans,
var stofnaður til minningar um for-
eldra Gunnars B. Dungal, þau Mar-
gréti og Baldvin P. Dungal. Sjóðn-
um er einkum ætlað að styrkja
unga myndlistarmenn.
Við afhendingu styrkjanna í gær
tilkynnti Gunnar, sem fjármagnar
sjóðinn ásamt Þórdísi A. Sigurð-
ardóttur eiginkonu sinni, að í tilefni
af fimmtán ára afmæli listasjóðsins
hefðu þau ákveðið að ganga lengra
í þá átt að varpa ljósi á íslenska
myndlist.
„Á næstu árum munum við
standa að útgáfu nokkurra bóka
um íslenska myndlistarmenn sem
náð hafa langt á sínum ferli og við
trúum á að geti náð lengra, en eru
að okkar mati ekki nægilega vel
kynntir hjá þjóðinni,“ sagði Gunn-
ar. Bækurnar munu fjalla um feril
listamannanna og verða á íslensku
og ensku og ef allt gengur eftir
mun fyrsta bindið koma út á þessu
ári.
„Það er von okkar að þessi út-
gáfa skipti máli í þeirri samræðu
milli listamanna og samfélags sem
þarf að fara fram. Þá vonum við að
svona útgáfa ýti undir vandaða
kynningu og útflutning á íslenskri
myndlist og menningu.“
Varðandi þá ákvörðun þeirra
Þórdísar að styrkja ungt listafólk,
sagði Gunnar: „ Allt er hverfult og
það er ekki síst með nýjum hug-
myndum sem okkur tekst að skilja
heiminn sem við lifum í.“
Bækur um
myndlistarmennGEFÐU
PENINGUNUM
ÞÍNUM
STÖÐUHÆKKUN
ALLT AÐ
14,5%*
VEXTIR
* Ársvextir skv. vaxtatöflu 11.01.08: Vextir eru stighækkandi eftir innstæðu.Grunnþrep 0–250 þús. = 9,75% 1. þrep 250–1.000 þús. = 12,35% 2. þrep 1–5 millj. = 13,00% 3. þrep 5–20 millj. = 13,50% 4. þrep 20–75 millj. = 14,00% 5. þrep 75 millj.+ = 14,50%