Morgunblaðið - 18.01.2008, Side 24
Heitt og kalt Guðmundur Fannar Guðjónsson með gúllassúpu.
Austurlensk fiskisúpa Krydduð og lítrík súpa sem passar vel á veisluborðið.
Seiðandi súpur
á köldum
vetrarkvöldum
Gúllassúpa Matarmikil súpa sem á vel við á köldum vetrarkvöldum.
Fylgifiskar Sveinn Kjartansson og austurlenska fiskisúpan.
Árvakur/Kristinn Ingvarsson
La Primavera Leifur Kolbeinsson lagar minestrone súpu.
Árvakur/Golli
Minestrone súpa Holl og góð grænmetissúpa fyrir fjölskylduna.
fiskum, Mosfellsbakaríi, Melabúðinni, Friðriki
V og á fleiri stöðum)
1 stk. kaffirlimeblað fæst í austurlenskum búðum
½ búnt kóríander
nýmulinn pipar
600 g fínskorinn ferskur fiskur
1 búnt vorlaukur
Setjið fisksoðið í pott til suðu. Bætið út í Tom
yum-kryddmauki, mildu Curry paste-
kryddmauki, kókosmjólkinni og sætu chilli-
sósunni, grænmetiskraftinum, Oriental rub frá
Nomu, söxuðu kaffirblaðinu og söxuðu kórían-
der. Gott er að geyma um 1 msk. af kóríander
til að strá yfir þegar súpan er tilbúin. Látið allt
sjóða í 1½ klst. við lágan hita og piprið. Skerið
ferska fiskinn í litla bita og saxið vorlaukinn
smátt. Setjið fiskinn og vorlaukinn í súpupott-
inn rétt áður en á að bera súpuna fram eða
beint í súpudiskana og hellið sjóðandi súpunni
yfir. Stráið kóríander yfir í lokin.
Ítölsk minestrone-súpa
1 gulrót, skorin í teninga
2 sellerístilkar, skornir í teninga
1 fennel, skorið í teninga
1 laukur, saxaður
1 lítill grænn kúrbítur, skorinn í teninga
2 hvítlauksgeirar, saxaðir
1 bökunarkartafla, skorin í teninga
1 dós niðursoðnir saxaðir tómatar, ókryddaðir
maldon-salt og pipar
100 g rifinn parmesan-ostur
1 lítið búnt fersk basilíka
ólífuolía
1 lítri grænmetissoð (teningur og vatn)
Þegar laga á góða grænmetissúpu er aðal-
atriði að steikja skorið grænmeti í ólífuolíu í víð-
um potti við vægan hita í að minnsta kosti 35-40
mínútur. Þannig náum við fram dásamlegu
bragði úr öllu grænmetinu. Nota má fleiri teg-
undir af grænmeti en hér er gefið upp, en þetta
er einfaldlega blanda sem hefur virkað vel hjá
matreiðslumeisturum La Primavera.
Setjið vel af ólífuolíu í víðan pott. Setjið svo
allt harða grænmetið nema kartöfluna út í pott-
inn og eldið við mjög vægan hita í 35-40 mín.
Hrærið reglulega í pottinum og gætið þess að
grænmetið brúnist ekki mikið. Að því búnu eru
tómatarnir og kartöflurnar settar út í ásamt
grænmetissoðinu og suðan látin koma upp.
Sjóðið súpuna í 30 mínútur til viðbótar og
kryddið með salti og pipar. Látið súpuna standa
í 15 mínútur. Setjið ferska basilíku út í og skipt-
ið súpunni á diska. Stráið parmesan-osti yfir um
leið og súpan er borin fram.
Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur
join@mbl.is
Rjúkandi súpur, matarmiklar og meðgóðum krafti, geta verið afskaplegafreistandi á köldum vetrarkvöldumog þá með góðu og grófu hollustu-
brauði. Daglegt líf sneri sér til þriggja mat-
reiðslumeistara, sem allir luma á ljúffengum,
vinsælum en afar ólíkum súpuuppskriftum, sem
vert er fyrir matgæðinga að prófa sig áfram
með. Matgæðingar Daglegs lífs að þessu sinni
eru þeir Guðmundur Fannar Guðjónsson hjá
veitingaþjónustunni Heitu og köldu sem bjó til
gúllassúpu, Sveinn Kjartansson hjá Fylgi-
fiskum sem bjó til austurlenska fiskisúpu og
Leifur Kolbeinsson á La Primavera sem bjó til
ítalska minestrone-súpu. Uppskriftirnar eru
allar fyrir fjóra.
Gúllassúpa
300 g nautagúllas
1 laukur, sneiddur
1 meðalstór blaðlaukur
40 g nautakraftur
5 meðalstórar gulrætur, sneiddar
1 sellerístöngull
2 bökunarkartöflur, flysjaðar
2 rauðar paprikur
50 g tómatpuré
2-3 hvítlauksgeirar, saxaðir
3-4 msk. brauðkúmen
salt og pipar
matarolía
Nautagúllasið er steikt í matarolíu á pönnu
og sett til hliðar. Pottur er settur yfir eldavél og
1 msk. af matarolíu sett í ásamt lauknum. Síðan
er gulrótum, selleríi, blaðlauk og papriku bætt
út í pottinn í þessari röð og loks kúmeninu og
hvítlauknum. Þetta er ristað í pottinum án þess
að það sé brúnað og þá er gúllasinu, vatninu,
kjötkraftinum og tómatpuré bætt saman við.
Suðan er látin koma upp áður en kartöflurnar
eru settar út í. Látið malla rólega í um 40 mín-
útur. Kryddið til með salti og svörtum pipar áð-
ur en súpan er borin fram með góðu brauðmeti.
Austurlensk fiskisúpa
1 lítri fiskisoð
3 tsk. Tom yum-kryddmauk frá Thai choice
2 msk. milt Curry paste-kryddmauk
800 ml kókosmjólk
30 ml sæt chilli-sósa
2 tsk. grænmetiskraftur
1 msk. Oriental rub frá Nomu (fæst m.a. í Fylgi-
matur
24 FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ