Morgunblaðið - 18.01.2008, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 2008 29
MINNINGAR
✝ Halldór Krist-jánsson Kjart-
ansson, markaðs-
fræðingur, fæddist í
Reykjavík, 21. nóv-
ember 1959. Hann
andaðist á heimili
sínu 12. janúar síð-
astliðinn. Foreldrar
Halldórs voru Krist-
ján G.H. Kjartans-
son, f. 22. júní 1934,
d. 30. júlí 1999 og
Iðunn Björnsdóttir,
f. 16. desember
1937, d. 25. júlí
2005. Systkini Halldórs eru: 1)
Edda Birna Gústafsson, f. 16. febr-
úar 1958, búsett í Bandaríkjunum,
gift Magnúsi Gústafssyni, f. 13.
september 1942. Börn Helga Páls-
dóttir, f. 26. júní 1979, d. 12. októ-
Coke Atlanta fyrir Bottlers (Bott-
lers Training Program) Atlanta,
Raleigh Durham í North Carolina
í Bandaríkjunum. Ýmis verkefni
og vinna fyrir Elding Trading
Company, bæði hér heima og er-
lendis, vinna, ráðgjöf og vörusýn-
ingar erlendis. 1986 stofnar Hall-
dór No Name Cosmetics með
Kristínu konu sinni. 1992 stofnar
hann ásamt fjölskyldu sinni Eld-
haka hf. og er forstjóri fyrirtæk-
isins. Eldhaka keypti áfengisfram-
leiðslu ÁTVR, og var það í fyrsta
skipti sem áfengisframleiðsla fór
undir einkarekstur á Íslandi. Eld-
haka framleiðir ýmsar áfengisteg-
undir, og flytur út Eldurís Vodka
til Bandaríkjanna, Eldhaka flytur
einnig inn ýmsar aðrar áfengis-
tegundir. 1997 var fyrirtækið selt
til Catco, sem síðar var keypt af
Ölgerðinni. Halldór vann 1997 til
dánardags við markaðsráðgjöf og
ýmis markaðsverkefni innan lands
og utan.
Útför Halldórs fer fram frá Frí-
kirkjunni í Reykjavík í dag og
hefst athöfnin klukkan 15.
ber 1983, með Páli K.
Pálssyni, og Birna
Magnúsdóttir Gúst-
afsson, f. 4. ágúst
1995, og 2) Björn
Kristjánsson Kjart-
ansson viðskipta-
fræðingur, f. 1. mars
1967, búsettur í
Reykjavík.
Halldór kvæntist
Kristínu Stef-
ánsdóttur 1989, þau
skildu.
Halldór vann hvert
sumar frá 9 ára aldri
hjá Coke á Íslandi. Hann útskrif-
aðist stúdent frá Ármúlaskóla
1980. 1981-1985 nám í Nichols Col-
lege, Dudley Massachusetts Bus-
iness Administration: Marketing
Major. Ýmsir þjálfunarkúrsar hjá
Halldór minn, elsku frændi og
vinur. Það er svo ótrúlegt og óraun-
verulegt að ég skuli vera að skrifa
minningarorð um þig. Núna þegar
allt gekk svo vel, glaður og ánægð-
ur. Lífið að byrja eins og þú sagðir
sjálfur „ég skulda engum neitt og
búinn að fá mér nýjan jeppa“. Og
svo átti að endurbæta sumarbústað-
inn á Þingvöllum, sem var paradís á
jörð hjá þér. Það átti að vera stórt
partí á Þingvöllum og endurvekja
gömlu vinina og ná skógarkórnum
saman. Já, nú var lífið að byrja.
Dóri minn, ég hef fylgst með þér frá
fæðingu enda mjög náið samband á
milli foreldra þinna og okkar
Bjössa. Þú byrjaðir ungur að hafa
áhuga á fótbolta og auðvitað fórstu í
KR, spilaðir með þeim á yngri ár-
um, og varst vel liðinn, enda mjög
greiðvikinn og alltaf tilbúinn að
hjálpa eða styðja aðra. Þú fékkst
nafnið Dóri í kók, enda ekki skrítið,
þar sem afi þinn var eigandi og
stofnandi Coca Cola á Íslandi.
Diddi og Jón Kjartan, synir okk-
ar, urðu bestu vinir og hélst sá vin-
skapur fram á síðasta dag ég veit að
mörg prakkarastrik voru framin á
yngri árum hjá ykkur frændum og
vinum sem ekki verða talin, eða
ljóstrað upp um. Þegar pabbi þinn
lést árið 1999 varst þú hjálparhella
og stoð móður þinnar. Edda var og
er búsett í Bandaríkjunum og
Bjössi var að vinna hjá Coca Cola í
Noregi en síðan kom hann alfluttur
heim.
Fljótlega eftir lát Teddý bróður
varð mamma þín veik, og upp frá
því byrjaðir þú að vera hjá henni og
varst henni stoð og stytta. Við Addý
töluðum saman 2-3 sinnum í síma á
dag og aldrei hefur verið hlýrra á
milli okkar en síðustu árin. Þú fórst
með hana á Þingvöll þar sem hún
vildi helst vera. Þar var sæluríki
ykkar og þar kvaddir þú þennan
heim í svefni.
Við Dóri töluðum saman 1-2 á dag
í síma eftir að mamma þín lést 2005.
Og hér var heimilið á Grenimel þitt
annað heimili, þú komst og fórst
þegar þú vildir. Þú sagðir „hér þarf
ég ekkert boðskort“. Síðastliðin
þrjú ár hafið þið Bjössi verið hér á
aðfangadag og gamlárskvöld. Og
um jólin komuð þið bræður með 2
fulla svarta plastpoka af gjöfum.
Hver pakki pakkaður inn með
stórum slaufum eins og af lista-
manni. „Við höfum enga aðra til að
gefa,“ sögðuð þið. Svona sýndu þeir
þakklæti sitt. Eins og ég sagði áðan
töluðum við Dóri í símann mjög oft,
og oftast um fótbolta, KR á sumrin
og svo var það Arsenal um vetur.
Stuðningur þinn við KR var að
kaupa flugelda og á nýársdag var
sprengt upp á Þingvöllum fyrir 200
þúsund ásamt vinum þínum.
Í dag kveðjum við þig, elsku
frændi og vinur, það verður tekinn
rúntur og stoppað við Stórveldið í
Vesturbænum, til að kveðja.
Hvíldu í friði, Dóri minn.
Áslaug H. Kjartansson.
Kæri vinur, þetta er nú ekki
óskabyrjun á nýju ári. Það er und-
arlegt að hugsa til þess að fyrir að-
eins 12 dögum síðan vorum við sam-
an á Nýársnótt að gleðjast yfir nýju
ári og þakka fyrir gömlu árin. Eins
og alltaf var margt spjallað enda er
margs að minnast. Minningar sem
við höfum haldið við með því að rifja
þær reglubundið upp. Við þreytt-
umst aldrei á því að tala um tímana
okkar í Boston. Frábær tími, kom-
inn föstudagur, þú rúllar frá Worc-
hester inn til Boston, á svarta
Bronco-jeppanum, einhver gleði í
uppsiglingu, tilbreyting frá skóla-
bókum og námi.
Við að fara á Kebab N Curry.
Við að fara í veislu til Bobby og
Shirley.
Við á St. Botolph, þú með cokedós
í hendi.
Við að fara í Garðinn á leik með
Boston Celtics.
Við að kíkja niðrí bæ á veitinga-
hús, Quincy Market, North End.
Við saman í spring break á Flo-
rida.
Fjölmargar sögur eru til frá þess-
um tíma og ef minningar skoluðust
eitthvað til í tímans rás þá gat mað-
ur treyst því að þú myndir stað og
stund, hver sagði hvað og hvenær
og í hvaða röð. Og alltaf hægt að
treysta því að þú stæðir með þeim
sem halloka fór í rökræðunum, enda
mikið séntilmenni. Kurteisari mann
verður erfitt að finna.
Það var fúlt að Arsenal vann ekki
á laugardaginn, svona bara fyrir
þig, en Patriots bættu það upp.
Bara ef hægt væri að gleðjast með
þér yfir sigrinum og eins og alltaf
hefðir þú látið sem tapleikurinn
hefði aldrei verið spilaður.
Gegnum árin hefur þú verið hluti
af okkur, okkar gleði og sorg, tekið
þátt í lífi okkar enda varst þú alltaf
hluti af því. Við höfum gegnum árin
skálað fyrir vináttunni á Þakkar-
gjörðarhátíðinni og við munum
halda áfram að skála fyrir þér og
vináttu okkar.
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær
aldrei ég skal þér gleyma.
(Bubbi Morthens)
Takk fyrir allt og allt.
Ásta og Hjörtur Nielsen.
Skemmtilegur hópur stráka
mætti jafnan á fótboltaæfingar hjá
KR í fimmta og fjórða flokki um og
upp úr 1970. Tíminn leið ánægju-
legur og laus við áhyggjur á fé-
lagssvæðinu þar sem æfingar voru
stundaðar af kappi. Einnig var farið
út fyrir bæinn eins og í æfingabúðir
við Laugarvatn og að Leirá í Leir-
ársveit að ógleymdum keppnisferð-
um. Einn af þessum hressu strákum
var Halldór K. Kjartansson eða
Dóri Kók eins og hann var jafnan
kallaður af því að faðir hans Krist-
ján var annar af forstjórum Vífil-
fells eða Kók ásamt Pétri Björns-
syni sem var móðurbróðir Dóra. Á
þessum tíma var Coca Cola auglýs-
ing á búningum KR-inga og verður
sá stuðningur seint að fullu þakk-
aður.
Aldrei naut Dóri þess í fótbolt-
anum að fyrirtæki fjölskyldu hans
styddi við okkur með þessum hætti.
Eins og aðrir varð hann að berjast
fyrir sinni stöðu í liðinu. Hann ætl-
aðist heldur aldrei til þess, krafðist
engra forréttinda, var góður félagi
eins og tíðkaðist í þessum hóp og
hélst vinskapurinn sem myndaðist á
KR svæðinu alla tíð. Hlutverk Dóra
varð í reynd oftar á varamanna-
bekknum en inni á vellinum en hann
lét það aldrei á sig fá og mætti glað-
ur með félögum sínum til leiks.
Stuðningur hans lá því ekki ein-
göngu í að spila leiki heldur einnig
og ekkert síður í þeim eiginleika
hans að standa af festu með sínu liði
og sínum mönnum. Með einlægni
sinni, hnyttni og ljúfu brosi,
skemmtilegum frásagnarmáta,
mýkti hann skap félaga sinna og
fékk marga til að njóta líðandi
stundar.
Nú hefur Dóri Kók kvatt okkur
langt um aldur fram.
Systkinum hans og öðrum ætt-
ingjum sendi ég innilegar samúðar-
kveðjur.
Með KR-kveðju,
Kristinn Jónsson.
Góður drengur er fallinn frá langt
fyrir aldur fram. Halldór Kristjáns-
son hefði orðið 49 ára á þessu ári.
Leiðir okkar Halldórs – Dóra –
lágu saman fyrir nær tuttugu árum.
Við urðum vinir frá fyrstu kynnum.
Dóri var þannig – hann annað hvort
hleypti fólki að sér og faðmaði í
orðsins fyllstu merkingu eða hélt
því frá sér. Faðmlögin voru föst og
fölskvalaus. Dóri var vinur vina
sinna og þoldi ekki þegar þeim var
hallmælt eða eitthvað gert á þeirra
hlut – brást illa við.
Við áttum líka skap saman og
vorum oftar sammála en ósammála.
Dóri hafði ákveðnar skoðanir á
mönnum og málefnum. Gat á stund-
um verið einstrengingslegur án
þess að verða ósanngjarn og hann
tók rökum. En hann var erfiður í
rökræðum, enda ágætlega lesinn og
fylgdist vel með öllu, allt frá fót-
bolta til stjórnmála.
Lífið var ekki alltaf dans á rósum
en Dóri var ekki maður sem kvart-
aði og aldrei bar hann eigin mál á
torg. Hann hafði meiri áhuga á sam-
ferðamönnum en fyrst og fremst
hafði hann áhuga á vinum sínum.
Dóra þótti vænna um vini og vanda-
menn en sjálfan sig.
Að leiðarlokum rifjast upp marg-
ar skemmtilegar stundir sem við
áttum saman og ég tók sem sjálf-
sögðum hlut. Dauðinn kennir manni
að ganga að engu sem vísu og fresta
aldrei vinafagnaði.
Ég sendi systkinum Halldórs og
fjölskyldum þeirra mínar innileg-
ustu samúðaróskir. Minningin um
traustan vin og skemmtilegan fé-
laga lifir og fyrir það er þakkað.
Óli Björn Kárason.
Halldór Kristjánsson
Kjartansson
með járnhendi frá Belgrad og
t.a.m. voru allir embættismenn í
Kosovo af serbneskum uppruna.
Albönum var bannað að starfa
innan stjórnsýslu héraðsins, en
eru þó yfir 90% íbúanna!
Landfræðilega, sem og sögu-
lega, gætu einnig íbúar Kosovo
sótt það að sameinast Albaníu,
enda hafa verið uppi raddir um
slíkt. Albanía er hinsvegar ekki
fýsilegur kostur til að sameinast,
enda landið í rúst eftir einræð-
isherrann og stalínistann Enver
Hoxha (sem lést árið 1985 eftir að
hafa stýrt landinu í 40 ár). Alban-
ía er eitt af fátækustu ríkjum
Evrópu.
Flest bendir einnig til þess að
Albanir séu upprunalegir íbúar
þess svæðis sem nú er Kosovo, en
Serbar komu mun seinna til þessa
svæðis, eða á 6. öld.
Rúnar missir sig síðan í lítt
málefnalega umræðu um Þingvelli
og innflytjendur, sem ég ætla ekki
að svara hér, enda þarf í raun
aðra grein til þess.
Í átökunum í Júgóslavíu (1991-
1995) og Kosovo (1996-1999)
gerðu bæði Serbar, Króatar,
múslímar í Bosníu, Bosníu-Serbar,
sem og Kosovo-Albanir (í Kosovo-
stríðinu), sig seka um hryllilega
hluti. Því skal ekki stungið undir
stól. Hinsvegar bera Serbar
þyngstu byrðina og eiga ,,heið-
urinn“ af Srebrenica, en sá litli
staður verður um aldur og ævi
beintengdur Serbum, því miður.
En rétt skal vera rétt.
Varðandi hina ýmsu minni-
hlutahópa sem berjast fyrir sjálf-
stæði í Evrópu og sem Rúnar vís-
ar óbeint til í grein sinni, er hægt
að hafa mörg orð. Þessi mál eru
yfirleitt afar flókin og eldfim, rétt
eins og dæmið um Kosovo sann-
ar. Og því er alls ekki lokið.
Hinsvegar vil ég leiðrétta það
sem Rúnar lætur í skína í grein
sinni, þegar hann segir að Kos-
ovo-Albanir stefni að því að
leggja undir sig Kosovo, sem er
ekki rétt. Þeir telja sig einfald-
lega hafa verið miklu misrétti
beittir og það er staðreynd. Það
var t.d. Slobodan Milosevic, sem
árið 1989 afnam þau sjálfstjórn-
arréttindi sem héraðið hafði
smám saman fengið í valdatíð
Jóseps Títo. Og Rúnar, Tító var
ekki bara Króati, heldur var hann
einnig hálfur Slóveni! Reyndar
fjallaði ég ekkert um þjóðerni
hans í grein minni, enda ekki lyk-
ilatriði. Rétt skal hinsvegar vera
rétt.
Eftirköst átakanna á Balkan-
skaga og afleiðingar þeirra eru
enn ljóslifandi meðal vor. Kosovo
og frelsisþrá íbúa þar er dæmi
um það. Það liggur í eðli manns-
ins að leita eftir frelsi, ráða sér
sjálfur. Hrun kúgunarkerfis
kommúnismans (sem Júgóslavía
var hluti af, þó þar hafi ástandið
lengi vel verið betra en í öðrum
kommúnistaríkjum) er gott dæmi
þess. Þessi frelsisþrá sást ef til
vill best með hruni Berlínar-
múrsins árið 1989, sem var eitt
helsta tákn þessa kerfis.
Sem betur fer eru til lönd sem
eru tilbúin til þess að styðja aðra
hópa eða þjóðir til frelsis (þ.á.m.
við Íslendingar, við höfum okkar
eigin reynslu af kúgun). En ef ég
skil þig rétt Rúnar, þá finnst þér
það hættulegt að Kosovo fái sjálf-
stæði og vilt viðhalda úreltu kerfi
sem er gengið sér til húðar. Það
kallast afturhaldssemi.
» Í umfjöllun um Balkan-skagann,
átök og sögu þess
svæðis ber að fara
varlega. Þá ber einnig
að fara rétt með
staðreyndir. Svo er
ekki alltaf raunin.
Höfundur er MA í stjórnmálafræði.
haldi sig kannski fara eftir því síð-
arnefnda.
Kristin trú geri ráð fyrir því að
fólk brjóti leikreglurnar, segir
Gunnar. Gott hjá henni. Vonandi
heldur Gunnar ekki að Jesús hafi
fundið upp frávikshegðun. Ég veit
ekki hvaðan Gunnar hefur þá hug-
mynd að húmanistar geri sér grill-
ur um fullkomið fólk. Eins og aðr-
ir húmanistar sem ég þekki kann
ég bara vel að meta fólk eins og
það er – með öllum sínum göllum
en samt yfirleitt bestu skinn.
Enda þykir það yfirleitt ekki
fréttnæmt þegar mannleg sam-
skipti ganga vel.
Gunnar heldur að „eftir því sem
við fjarlægjumst Guð meira þeim
mun auðveldara [sé] að virða fólk
að vettugi“. Það væri nær sanni
að segja að eftir því sem við fjar-
lægjumst FÓLK meira, þess frek-
ar virðum við það að vettugi. Guð
er óþarfur milliliður.
Dæmin sanna að kristnir menn
og kirkjan hafa ekki minni
breyskleika en aðrir, þrátt fyrir
sinn eilífa sannleika. Sá sem hefur
ekki reynst ratvísari en aðrir þyk-
ist samt geta vísað þeim veginn.
Þar liggur nefnilega hundurinn
grafinn: Þau mennsku lög sem rit-
uð eru á hjarta okkar, og eru æðri
lögum ríkisins, hafa reynst jafn
vel óháð því hvort kirkjan túlkar
þau eða ekki. Og til hvers er þá
kirkjan?
Tilgangurinn
Þótt Gunnar viðurkenni að trúin
geti verið erfið viðureignar líst
honum þó ekki á tilhugsunina um
heim án tilgangs. Hann vill að
guð sé til, svo að lífið hafi tilgang.
Þessar forsendur, ef forsendur
skyldi kalla, eru veikar. Hver seg-
ir að það þurfi tilgang? Hafa nátt-
úruhamfarir og drepsóttir til-
gang? Auðvitað ekki.
Tilgangurinn er mannasetning.
Það sem kemst næst eiginlegum
tilgangi er það að koma erfðaefni
sínu til næstu kynslóðar. Sá sem
finnst hann þurfa sérstakan til-
gang með lífinu velur sér hann
bara sjálfur. Ég geri það, Gunnar
gerir það líka. Öllum er samt
hollt að temja sér það lítillæti að
við erum bara ein af mörgum
dýrategundum að heimurinn er
ekki skapaður sérstaklega með
okkur í huga og að blind nátt-
úruöflin hafa engan sérstakan
áhuga á okkur.
Gunnar spyr hvernig okkur
hefði dottið tilgangur lífsins í hug
til að byrja með ef hann væri
enginn. Ég spyr á móti hvernig
hefði okkur dottið jólasveinar,
drekar og Baal í hug ef þeir væru
ekki til í alvörunni? Svarið er í
stuttu máli: Frjótt ímyndunarafl,
kannski í sambland við ofskynj-
unarefni.
Ég lifi jarðbundnu lífi og finnst
ekkert vanta í samræmið eða
samhengið. Ég sé ekki hvers
vegna ætti að þakka goðmagni
fyrir það sem við erum ánægð
með eða kenna því um það sem
við erum óánægð með. Því síður
að við getum ályktað um æðri til-
gang, þótt lífið geti stundum verið
erfitt. Þótt óvissa geti verið
óþægileg tel ég samt best að
venja sig við hana. Við þurfum
nefnilega að lifa með henni hvort
sem okkur líkar betur eða verr.
Áður en sannleikurinn frelsar
okkur þurfum við að frelsa hann –
úr reifum dulúðar og forneskju.
Það ferli er sem betur fer vel á
veg komið þótt enn séu þeir til
sem standa á bremsunni.
» Þau mennsku lög sem rituð
eru á hjarta okkar,
og eru æðri lögum
ríkisins, hafa reynst
jafn vel óháð því
hvort kirkjan túlkar
þau eða ekki.
Höfundur er sagnfræðingur og félagi
í Vantrú.
Fleiri minningargreinar um Hall-
dór Kristjánsson Kjartansson bíða
birtingar og munu birtast í blaðinu á
næstu dögum.