Morgunblaðið - 18.01.2008, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 2008 33
✝ Úlfur Ragn-arsson læknir
fæddist í Reykjavík
29. september 1923.
Hann andaðist á
Landspítalanum í
Fossvogi 10. janúar
síðastliðinn. Hann
var sonur Ragnars
Ásgeirssonar garð-
yrkjuráðunautar og
Grethe Harne Ás-
geirsson húsfreyju.
Hann ólst upp í
Reykjavík og síðar
að Laugarvatni. Úlf-
ur átti 4 systkini: Evu, Sigrúnu og
Hauk.
Hinn 24. desember 1944 kvænt-
ist Úlfur Ástu Guðvarðardóttur, f.
29.11.1923. Foreldrar hennar voru
María Ásgrímsdóttir húsfreyja og
Guðvarður Pétursson bóndi. Þau
eiga fimm dætur, þær eru: 1) Að-
alheiður, f. 1944. Fyrri eiginmaður
hennar var Steinarr Richard Elías-
son, f. 1937 d.1965. Sonur þeirra er
a) Ragnar Örn, kvæntur Sólrúnu
W. Kamban, þau eiga þrjú börn.
Seinni eiginmaður Aðalheiðar er
Eggert Jónsson, f. 1939. Börn
þeirra eru: b) Úlfur, kvæntur
Díönu Jósefsdóttur, þau eiga einn
son. Fyrir átti Úlfur dóttur. c) El-
ísabet, í sambúð með Jóhannesi Do-
naldsson, þau eiga tvö börn. d) Að-
Eiríkur Björn og e) Úlfhildur Ragna.
5) Eva Sólveig, f. 1959, sambýlis-
maður var Jón Stefánsson, f. 1960.
Þau slitu samvistum. Börn þeirra
eru: a) Jón Stefán, í sambúð með
Sigurlínu Stefánsdóttur, þau eiga
einn son. b) Þorgerður Kristín. Eig-
inmaður Evu er Einar Ingi Ein-
arsson, f. 1951.
Úlfur varð stúdent frá Mennta-
skólanum á Akureyri 1943 og lauk
læknaprófi frá Háskóla Íslands
1950. Hann fékk almennt lækn-
ingaleyfi hér á landi 1952. Úlfur fór
nokkrum sinnum til náms erlendis,
m.a. til Þýskalands og Sviss til að
kynna sér baðlækningar og bað-
lækningastofnanir fyrir NLFÍ.
Hann nam við sálfræðistofnun CG
Jung í Zürich og á deild fyrir
drykkjusjúka á sjúkrahúsi í Sussex
á Englandi. Þá hóf Úlfur nám í kín-
verskum nálastungulækningum hjá
dr. J. Gleditsch í München 1981 og
hélt því áfram næstu ár.
Úlfur starfaði sem héraðslæknir
víða um land, sem aðstoðarlæknir á
Kleppsspítala og sem læknir Heilsu-
hælis NLFÍ í Hveragerði. Hann var
yfirlæknir á Kristnesspítala 1975-
1984. Úlfur var frumkvöðull hinnar
kínversku nálastunguaðferðar hér
á landi.
Í tómstundum sínum fékkst Úlfur
við málaralist og ljóðagerð og sýndi
málverk sín á nokkrum einkasýn-
ingum.
Úlfur verður jarðsunginn frá
Dómkirkjunni í Reykjavík í dag og
hefst athöfnin klukkan 11.
alheiður, hún á eina
dóttur. e) Haukur, í
sambúð með Bryndísi
Steindórsdóttur, þau
eiga eina dóttur. Fyrir
átti Haukur dóttur.
Dætur Eggerts af
fyrra hjónabandi,
stjúpdætur Að-
alheiðar, eru: Kol-
brún, Heiða Lára og
Guðrún.
2) Lilja María, f.
1947. Gift Georg Vil-
berg Halldórssyni, f.
1941. Börn þeirra eru:
a) Ásta Sólveig, gift Ríkharði Egils-
syni. b) Árni Ragnar. c)Ingi Rúnar, í
sambúð með Aðalheiði Ingimund-
ardóttur, þau eiga 2 börn.
3) Greta Björg, f. 1951, var gift
Kristjáni Eysteinssyni, f. 1951. Þau
skildu. Synir þeirra eru Eysteinn, í
sambúð með Sólveigu Maríu Jörg-
ensen, og Úlfur.
4) Sigrún Ragna, f. 1956, sambýlis-
maður var Hörður Gunnarsson, f.
1945. Þau slitu samvistum. Börn
þeirra eru: a) Vala Björt, gift Jóhann-
esi Reykjalín Þórssyni, þau eiga 2
börn. b) Ásta Hrönn, í sambúð með
Þorsteini Orra Magnússyni. c) Gunn-
ar, í sambúð með Hrafnhildi Jóns-
dóttur, þau eiga einn son. Síðari mað-
ur Rögnu var Örnólfur Eiríksson, f.
1953. Þau skildu. Börn þeirra eru: d)
Kæri afi, nú ert þú farinn frá okkur
og mun ég sakna þín afar sárt. Við
áttum saman margar frábærar
stundir í lífinu og þú ert sá maður
sem ég hef ætíð litið á sem fyrirmynd.
Ég mun alltaf muna eftir flugdreka-
ferðunum, bátssiglingunum, snjóhús-
unum, útilegunum og sumarbústaða-
ferðunum með þér. Þarna er samt
bara nefndur svo lítill hluti þess sem
þið amma gerðuð fyrir mig þegar ég
heimsótti ykkur.
Mér þykir sérstaklega gaman að
hann Aron Geir, sonur minn, hafi
fæðst á þínum afmælisdegi og að þú
hafir náð að sjá hann í þetta eina
skipti sem þið hittust þegar við kom-
um í heimsókn rétt fyrir jólin.
Eins og ég sagði þér og ömmu, þá
ætla ég svo sannarlega að ala hann
upp þannig að hann verði sem líkast-
ur þér. Í það minnsta mun ég svo
sannarlega gæta þess að hann viti
hver þú ert og hann mun heldur betur
fá að heyra sögur af því sem ég og þú
gerðum saman. Þú munt að sjálf-
sögðu fylgjast með okkur, það veit ég.
Kveðja,
Jón Stefán.
Í dag er fjölhæfur snillingur
kvaddur: Læknir, listmálari, hug-
sjónamaður, en ekki hvað sízt –
„mannvinur“.
Læknir – eins og áður gerðist í
dreifbýlinu, var allan sólarhringinn á
vakt, hafði engum öðrum til að dreifa
– alltaf reiðubúinn, þegar kallið
kæmi, burt séð frá veðri, vindum,
flaumi farvatna, sem fyrr á tíð voru
jafnan óbrúuð. En lækninn mátti
ekkert hindra, þegar mikið lá við,
jafnvel lífið sjálft, sbr. ljóðið „Sveinn
Pálsson og Kópur“ eftir Grím Thom-
sen, kvæði, sem ég lærði smádreng-
ur, og gagntók mig til innstu inna.
Þar fannst mér ég sjá sanna mynd af
sönnum lækni – lækni, sem ekki lét
náttúruhamfarir hefta för sína, kall-
aður til að bjarga lífi barns og móður
eins og segir í næst seinasta erindinu:
Úr barns og móður bætti hann þraut,
blessun upp því skar hann.
Önnur laun hann engin hlaut,
ánægður þó var hann.
(kynnið ykkur kvæðið).
Í þessu ljóði finn ég hugsjónalækn-
inn Úlfar Ragnarsson, sem fús var til
þjónustu í strjálbýlinu fremur en að
hjúfra sig í hægindum þéttbýlisins.
Vafalítið hefur hann oft þurft að
þreyta fang við veðráttuna, því þegar
ófærðin var hvað mest, ofurauki
mönnum og skepnum, brá hann skíð-
unum sínum fyrir sig – fór í lækn-
isvitjanir á skíðum! Hér mætti því
réttilega minnast hans sem „skíða-
læknisins“. – Skyldi þetta vera eins-
dæmi í læknasögu landsins? Mikla
aðdáun vakti þetta mér.
Já, sjálfsagt hefur Úlfur bjargað
mörgu lífinu, sem annars hefði jafn-
vel ekki litið ljós dagsins, og í örlæti
sínu, því örlátur var hann og óspar á
sjálfan sig, fengið álíka há laun og
Sveinn Pálsson – ánægjuna af að
þjóna og lækna.
Með okkur var náin, kær vinátta og
alltaf auðgaði ljúf návist hans. Dag-
farslega var hann hæverzkur, prúður
og lét ekki mikið yfir sér, en fróðleiks-
brunnur vel lesins og hámenntaðs
manns.
En nú er hann farinn. Blessuð veri
minning hans með þakklæti fyrir allt,
sem hann var samfélagi okkar.
Kæra Ásta og aðrir ástvinir. Við
sendum ykkur hjartkæra samúð. Guð
blessi ykkur öll.
Sólveig, Jón Hjörleifur, börn,
tengda- og barnabörn.
Úlfur Ragnarsson hefur kvatt
þetta jarðlíf. Það eru forréttindi að
hafa fengið að þekkja og umgangast
mann eins og hann. Það eru að verða
tveir áratugir síðan okkar kynni hóf-
ust og sá tími skapaði okkur lífsfyll-
ingu og lífssýn sem ekkert okkar
hefði viljað fara á mis við. Það er eins
og sumt í lífinu sé fyrirskrifað. Þann-
ig var það með kynni okkar af þeim
hjónum Úlfi og Ástu. Við vitum ekki
hvort eitthvað í lífinu er tilviljun en
það að við kynntumst Úlfi virðist hafa
verið skrifað í skýin. Strax frá fyrsta
degi var eins og við hefðumst alltaf
þekkst.
Úlfur var þessi hlýi umvefjandi
leiðtogi sem strax var farinn að fræða
og gefa af sinni reynslu og þekkingu í
andlegum málum. Hann hreif alla í
kringum sig í ferðalag um ókunnar
lendur hugans og hið óræða og
ókannaða. Við áttum einnig því láni
að fagna að ferðast með honum og
Ástu, sem lifir mann sinn, um víðlend-
ur þessa heims og þar var hann ekki
síður vel að sér og fræðandi. Við í litla
hugleiðsluhópnum þökkum honum
kærlega fyrir alla handleiðsluna og
lífsspekina sem hann gaf okkur.
Kynnin við Úlf hafa gert líf okkar
innihaldsríkara og gefið okkur þá
vissu að ekki er allt sem sýnist. Við
vitum að Úlfur mun halda áfram að
miðla af visku og þekkingu sinni hvar
sem hann fer.
Við vottum Ástu og fjölskyldu okk-
ar dýpstu samúð.
Anna og Guðbjartur, Baldur
og Þórey, Hjördís og Gísli.
Úlfur Ragnarsson ✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
SVEINN KRISTJÁNSSON,
fyrrum bóndi á Drumboddsstöðum
í Biskupstungum,
andaðist á Hjúkrunarheimilinu Ási, Hveragerði,
13. janúar.
Útförin fer fram frá Skálholtskirkju laugardaginn 19.
janúar kl. 13:30.
Jarðsett verður í Bræðratungukirkjugarði.
Svavar Ásmundur Sveinsson, Laufey Eiríksdóttir,
Ragnheiður Sveinsdóttir,
Guðríður Sveinsdóttir,
Gísli Rúnar Sveinsson, Sigurveig Helgadóttir,
Baldur Indriði Sveinsson, Betzý Marie Davíðson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Hugheilar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa
og langafa,
MAGNÚSAR JÓNSSONAR
frá Kollafjarðarnesi.
Ágústa Eiríksdóttir,
Ragnheiður Magnúsdóttir, Sverrir Þórðarson,
Guðný Margrét Magnúsdóttir, Pétur R. Siguroddsson,
Ingibjörg Magnúsdóttir, Einar Pétursson,
Jón Gunnar Magnússon, Carmen Magnússon,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar,
ELSE A. V. ANDREASEN PROPPÉ,
lést á Hjúkrunarheimilinu Eir mánudaginn
14. janúar.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Björn Halldórsson,
Anna Dagný Halldórsdóttir,
Eva Þórunn Halldórsdóttir.
✝
Faðir okkar, afi og langafi,
SIGURÐUR B. GUÐBRANDSSON,
lést á Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi
þriðjudaginn 15. janúar.
Útför fer fram frá Borgarneskirkju föstudaginn
25. janúar kl. 14.00.
Ásta Sigurðardóttir,
Sigþrúður Sigurðardóttir,
Sigríður Helga Sigurðardóttir,
barnabörn og langafabörn.
✝
Bróðir okkar og mágur,
ÁRNI GUÐMUNDSSON,
Múlakoti í Fljótshlíð,
lést á heimili sínu föstudaginn 11. janúar.
Útförin verður laugardaginn 19. janúar frá
Hlíðarendakirkju kl. 14.00.
Nikulás Guðmundsson, Sigrún Jóhannsdóttir,
Ingibjörg Guðmundsdóttir, Sigurður Símon Sigurðsson
og fjölskyldur.
✝
Faðir minn, tengdafaðir, afi og langafi,
PÁLL GUÐMUNDSSON,
lést þriðjudaginn 8. janúar á Hrafnistu.
Jarðarförin hefur farið fram.
Þökkum auðsýnda samúð.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sigríður Clark, Ralph Clark
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
SIGRID ØSTERBY,
listmeðferðarfræðingur og kennari,
Dunhaga 15, Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi laugar-
daginn 12. janúar.
Útför hennar verður gerð frá Neskirkju laugar-
daginn 19. janúar kl. 14.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vildu
minnast hennar er bent á Vin, athvarf Rauða kross Íslands,
wwww.raudikrossinn.is, sími 570 4000.
Atli Konráðsson, Anne Berit Valnes,
Sif Konráðsdóttir, Ólafur Valsson,
Huld Konráðsdóttir, Sigurður Tómas Magnússon,
Ari Konráðsson, Þóra Guðmundsdóttir,
Andri Konráðsson
og barnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
SIGMUNDUR SIGURGEIRSSON
húsasmíðameistari,
Þorragötu 9,
Reykjavík,
lést þriðjudaginn 15. janúar.
Ásdís Sigurðardóttir,
Sigurgeir Ó. Sigmundsson, Ingunn Mai Friðleifsdóttir,
Margrét Sigmundsdóttir, Bjarni Ólafur Ólafsson
og barnabörn.