Morgunblaðið - 01.02.2008, Side 1

Morgunblaðið - 01.02.2008, Side 1
STOFNAÐ 1913 31. TBL. 96. ÁRG. FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2008 LANDSPRENT EHF. mbl.is Fáðu þér rjóma inn á milli Bolludagsbragðið H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 0 8 – 0 1 3 5 Hetjur >> 44 Komdu í leikhús Leikhúsin í landinu DRAMATÍK Í LOKIN ARNAR GUÐJÓNSSON Í LEAVES Á LAG Í BRESKU HRYLLINGSMYNDINNI THE BROKEN >> 42 FRÉTTASKÝRING Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is ÞRÍR stærstu kostnaðarliðir við rekstur kúabúa, áburður, kjarnfóður og fjármagns- kostnaður, hafa hækkað mikið á síðustu misserum og hefur afkoma búanna því stór- versnað. Baldur Helgi Benjamínsson, fram- kvæmdastjóri Landssambands kúabænda, segir að það sé ekkert annað í spilunum en að velta þessum hækkunum út í verðlagið. Undanfarna daga hafa innflytjendur á áburði verið að birta verð. Baldur Helgi segir að um 60% af þeim áburði sem kúa- bændur noti séu áburðarblöndur, en verð á þeim hefur hækkað um 70-80% frá síðasta ári. Verð á Kjarna, sem er hreint köfnunar- efni, hækkar hins vegar langminnst eða um 33%. Það kann að vera að einhverjir bænd- ur reyni að kaupa ódýrari áburð og nýta betur húsdýraáburð, en slíkur sparnaður er hins vegar varasamur þegar um nýræktir er að ræða því það getur leitt til þess að grasuppskera bregðist og túnin gangi fyrr úr sér. Meðalkúabú keypti á síðasta ári áburð fyrir rúmlega 900 þúsund kr., en miðað við 70% hækkun verður þessi kostnaður ekki undir 1,7 milljónum á þessu ári. Kostnaður margra af stærri búunum mun hækka um meira en eina milljón á þessu ári. Verð á fóðri hefur einnig verið að hækka. Á einu ári er hækkunin um 25%, en síðustu tveimur árum hefur fóðurverð hækkað um 40-50%. Þá hefur fjármagnskostnaður hækkað gríðarlega mikið á síðustu misserum. Þetta kemur illa við bændur sem staðið hafa í fjárfestingum á seinni árum, en þeir eru fjölmargir. Þetta kemur líka illa við bændur sem þurfa nú að taka lán á um 20% vöxtum til að kaupa áburð. Sömuleiðis hefur olíu- verð hækkað, en olía er þó lítill hluti af kostnaði við búrekstur í samanburði við hina liðina, áburð, fóður og vexti. Kemur enn verr við sauðfjárbændur Hækkun á áburði kemur illa við kúa- bændur, en kemur þó enn verr við sauð- fjárbændur vegna þess að áburður er stærri hluti af rekstrarkostnaði sauð- fjárbúa. Verð á áburði hefur ekki bein áhrif á rekstur svína- og kjúklingabúa, en þar er fóðurverð ráðandi þáttur í rekstrarkostn- aði. Verð á kjöti hefur verið að hækka og mjólkurafurðir hækkuðu um áramót. Útlit er hins vegar fyrir enn meiri hækkanir á bæði kjötvörum og mjólk. Hækkanir framundan Verð á fóðri og áburði hækkar mjög mikið Árvakur/RAX Áburður Bændur standa frammi fyrir miklum hækkunum á áburðarverði. Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is YFIRDRÁTTARLÁN heimilanna jukust um 8,3 milljarða á síðasta ári og námu 75,7 milljörðum. Samtals skulduðu heimilin í árslok 838,2 milljarða. Heimilin tóku ný lán á síð- asta ári fyrir 130 milljarða. Helm- ingur af þessari aukningu er til kominn vegna lána sem heimilin tóku í erlendri mynt. Mikil hækkun varð á yfirdráttar- lánum heimilanna árið 2005, en þau stóðu í stað árið 2006. Í fyrra lækk- uðu yfirdráttarlán framan af ári, en í júlí fóru þau að hækka og hafa hækkað nær stöðugt síðan. Yfirdráttarlán eru dýrustu lán sem heimilunum standa til boða, en vextir af slíkum lánum eru núna 25%. Einstakir viðskiptamenn njóta kortafyrirtækjunum sem ekki bera vexti. En jafnvel þó að þessi hluti yf- irdráttarlánanna sé dreginn frá greiddu heimilin í desembermánuði einum rúmlega 1,2 milljarða í vexti af þessum lánum. Skuldir heimilanna jukust um 130 milljarða í fyrra Í lok síðasta árs skulduðu heim- ilin samtals 838,2 milljarða hjá bankakerfinu, en það er aukning um rúmlega 130 milljarða á einu ári. Um áramótin höfðu heimilin tek- ið 138 milljarða að láni í gengis- bundnum lánum. Aukningin á síð- asta ári var 65 milljarðar sem er 47% aukning. Íbúðalán í erlendri mynt námu um áramótin 35,9 millj- örðum króna og höfðu hækkað um 13,2 milljarða á síðari helmingi árs- ins. staðan sú að hver Íslendingur skuldar um 327 þúsund krónur í slík lán. Árlegir vextir af slíku láni eru tæplega 82 þúsund krónur. Ljóst er að margir eru með mun hærri yf- irdrátt og greiða þar af leiðandi hærri upphæð í vexti. Hafa ber í huga að hluti af þeim skuldum sem flokkaðar eru sem yf- irdráttarlán eru skuldir hjá kredit- þó betri kjara eins og t.d. náms- menn. Ef öllum yfirdráttarlánum heimilanna er deilt niður á alla Ís- lendinga 18 ára og eldri er niður- 1,2 milljarðar í yfir- dráttarvexti á mánuði Yfirdráttarlán heimilanna jukust um 8,3 milljarða króna á síðasta ári                           ! " !   #  $ % & '   Í HNOTSKURN »Yfirdráttarlán eru dýrustulán sem heimilunum standa til boða. »Vextir af slíkum lánum erunúna 25%. »Einstakir viðskiptamennnjóta þó betri kjara, til dæmis námsmenn. ÞETTA fólk arkaði á móti vindi eftir götum Reykjavíkur í gær. Þau voru þó til allrar hamingju ágætlega búin, bæði vel skædd og í hlýj- um fötum. Veðurstofan spáir töluverðum kulda í dag og á morgun, sjö til ellefu stiga frosti við sjóinn en meiri kulda inn til landsins. Þessu fylgir svo hægur vindur um mestallt land í dag, en þó gæti orðið nokkuð hryssingslegt um sunnan- og austanvert landið. Árvakur/Valdís Thor Kuldaboli bítur í dag Mikið frost í dag og á morgun HAGNAÐUR Exista á síðasta ári nam um 55,6 millj- örðum króna á núvirði og er um 34,5% aukning á milli ára. Miklar sviptingar á fjármálamörkuðum settu svip sinn á rekstur félagsins á fjórða ársfjórðungi en á því tímabili var um 28,5 milljarða króna tap á rekstri félagsins. Hluti tapsins mun vera einskiptiskostnaður sem kemur til vegna skipulagsbreytinga hjá félaginu, en viðskiptum fyrir eigin reikning hefur verið hætt og fjórum starfs- mönnum, sem störfuðu við það, hefur verið sagt upp störf- um. Lýður Guðmundsson, stjórnarformaður Exista, segist ánægður með reikninga félagsins þrátt fyrir að þeir mark- ist vissulega af erfiðu árferði. „Í öllum okkar áætlunum gerum við ráð fyrir því að markaðir geti tekið stefnuna niður á við og vorum því vel búin undir ástandið sem nú ríkir,“ segir hann. Bendir Lýður á að lausafjárstaða Exista sé mjög sterk og geti lausaféð enst félaginu í 69 vikur, gerist þess þörf. „Þetta þýðir að við munum ekki þurfa að selja neinar af okkar kjarnaeign- um og stendur það ekki til. Þá munum við ekki þurfa að leita endurfjármögn- unar fyrr en um mitt næsta ár og munum því geta staðið af okkur óróleikann sem verið hefur á mörkuðum.“ | 15 Viðskiptum fyrir eigin reikn- ing hætt og fjórum sagt upp Lýður Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.