Morgunblaðið - 01.02.2008, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2008 27
nýjungar
slu og út-
ætíð verið
á karfa til
nskra
fyr-
nslu hér á
nn hefði
u tog-
5 smiðir
ja upp
ar sem nú
skirí var
löndun
hengdur
afnóðum.
0 tonn af
em 765
Ítalíu- og
svipað
randa er
togarar
n fyrsti
aness
rtímanum
um 1974.
d-
4. Síldar-
á Akra-
d-
urbyggð 1997 og er ein fullkomn-
asta bræðsla landsins en
kostnaðurinn við framkvæmdirnar
var um 1,5 milljarðar króna. Fryst-
ing loðnuhrogna hefur skilað fyr-
irtækinu miklu og var metár í því
efni hjá HB Granda í fyrra.
Kvótaárið 2001-2002 var Har-
aldur Böðvarsson hf. 5. kvótahæsta
útgerðarfélag landsins með 14.294
þorskígildistonn (4,35%), Grandi
var í 6. sæti með 3,78% kvótans og
ÚA kvótahæst með 5,69%. Staðan
var svipuð næstu tvö fiskveiðiár en
í upphafi fiskveiðiársins 2004-2005
var HB Grandi hf. kvótahæsta út-
gerðarfélagið með 27.969 þorsk-
ígildistonn eða 8,08% kvótans. Síð-
an hefur HB Grandi verið
kvótahæsta félagið með 31.567
þorskígildistonn 2005-2006, 35.698
tonn 2006-2007 og 30.305 tonn í
upphafi yfirstandi tímabils. Þess
má geta að HB hefur í gegnum árin
verið launahæsti greiðandi Vest-
urlands og til dæmis greiddi félagið
um 719 milljónir í laun 1993. Næst
kom Íslenska járnblendifélagið með
350 milljónir.
Fjórir bátar eftir
Á hádegi í gær voru íbúar Akraness
6.380. Fyrir um áratug starfaði um
21% íbúa við útgerð og fiskvinnslu
en með nýjustu aðgerðum hefur sú
tala lækkað mjög mikið og ein-
skorðast að mestu við áhafnir á
skipum HB Granda.
Gísli S. Einarsson segir að HB
Grandi sé að velta fyrir sér að vinna
um 1.500 tonn á Akranesi en það sé
aðeins í orði en ekki hendi. Hann
rifjar upp að þegar fiskvinnsla og
útgerð hafi staðið sem hæst á Akra-
nesi frá um 1950 til um 1975 hafi
þar verið fjögur frystihús. Sigurður
Hallbjarnarson hafi verið með um
tvo til þrjá báta í útgerð, Fiskiver
um fjóra til fimm báta, Heimaskagi
um fimm til sex báta og HB og Co
um 20 báta. Nær allar aflaheimildir
hafi síðan verið sameinaðar í fyr-
irtækið Harald Böðvarsson. Nú
stundi fjórir smábátar með einum
til fjórum mönnum um borð útgerð
allt árið með samtals um 450 tonna
kvóta. „Það eru nú öll ósköpin,“
segir hann.
ust trönurnar við Jaðarsbakka á Akranesi jafn-
anna eru búningsklefar fyrir íþróttafólk.
at fyrirtækið eitt að þessari vinnslu hér á landi.
r eftir“
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
Ríkissaksóknari krafðist viðaðalmeðferð Pólstjörnu-málsins svonefnda í gærfangelsisrefsingar yfir
sexmenningunum sem ákærðir eru í
málinu sem varðar tilraun til smygls
á 23,5 kg af amfetamíni, 13,9 kg af
e-töfludufti og loks 1.746 e-töflum til
landsins 20. september. Fíkniefnin
fundust í skútu sem tveir hinna
ákærðu sigldu yfir Atlantshafið.
Sakborningarnir búast allir, nema
einn, við fangelsisrefsingu en um-
ræddur sakborningur krefst þess að
hann verði sýknaður af ákæru. Við
málflutninginn í gær tilgreindi Kol-
brún Sævarsdóttir saksóknari ekki
hversu margra ára fangelsi sak-
borningarnir ættu skilið en nefndi
hins vegar að málið hefði sprengt
þann refsiramma sem væri fyrir
hendi í lögum. Að mati saksóknar-
ans eiga þrír úr hópnum að fá
þyngsta dómana, þ.e. sá sem skipu-
lagði smyglið og þeir tveir sem
sigldu skútunni til landsins. Engu að
síður taldi saksóknari að allir sex-
menningarnir væru aðalmenn í
brotinu, nánar tiltekið væri hér um
að ræða „verkskipta aðalmennsku“
og eðlilegt væri að virða þátt allra
mannanna sem samverknað. Til
refsiþyngingar horfði að efnin hefðu
ógnað heilsu ótiltekins fjölda fólks ef
þau hefðu komist í umferð hér á
landi, að mati saksóknara, auk þess
sem hið mikla magn hefði sitt að
segja. Þá hefði ásetningsstig mann-
anna verið mjög hátt. Hins vegar
mætti virða þeim það til málsbóta að
þeir játuðu sakir, þó með nokkrum
fyrirvörum.
Upplýst var í gær að amfetamínið
var frekar veikt, eða um 10-12% að
styrkleika, en e-töfluduftið var talið
fremur sterkt. E-töflurnar sjálfar
voru hins vegar ekki taldar mjög
sterkar. Til samanburðar má nefna
að meðalstyrkleiki amfetamíns sem
lagt var hald á árið 2006 var 32% að
því er kom fram í vitnisburði Jakobs
Kristinssonar, dósents við HÍ, sem
efnagreindi efnin.
Saksóknari taldi að þrátt fyrir að
amfetamínið hefði verið veikt skipti
það í raun litlu máli fyrir sökina því
mennirnir hefðu ekkert verið að
hugsa um styrkleika góssins.
Fjármögnunaraðili
utan við málið
Enginn af sexmenningunum er
ákærður fyrir fjármögnun brotsins
og sá sem ákærður er fyrir skipu-
lagninguna nefndi við skýrslutöku í
gær að ákveðinn maður hefði fengið
hann til verksins. Ákærði vildi ekki
upplýsa hver þessi maður væri og
því er umræddur aðili utan við mál-
ið. Í framhaldi af þessari verkbeiðni
hóf ákærði skipulagninguna og
skipti verkum með hinum. Verjandi
ákærða krafðist vægustu refsingar
sem lög leyfa fyrir hönd skjólstæð-
ings síns og vakti athygli á því að
hann hefði játað sakir hreinskilnis-
lega og þá væri hann hvorki fjár-
mögnunaraðili né eigandi efnanna.
Sæi ákærði fram á langa fangelsis-
vist og væri hættur í óreglu.
Meðákærði, sem að mati saksókn-
ara ber ekki þyngstu ábyrgðina,
býst sömuleiðis við fangelsi og játaði
að hafa pakkað hluta efnanna fyrir
smyglið. Hann, eins og allir utan
eins, krafðist vægustu refsingar og
taldi verjandi hans að 1-2 ára fang-
elsi væri hæfilegt. Hvað varðar ann-
an þeirra tveggja sem sigldu skút-
unni til landsins var því mótmælt af
hálfu verjanda að hann væri einn af
aðalmönnum í brotinu enda hefði
hann einungis verið burðardýr og
tekið við fyrirmælum. Þótt hann
hefði setið fund á kaffihúsi með
skipuleggjandanum og nokkrum
öðrum og fengið þar fyrirmæli og
farsíma þýddi það ekki að hann væri
aðalmaður. Fimm ára fangelsi væri
hámarksrefsing í hans tilviki.
um nokkrar vikur. Þegar annar
skútusiglarinn var látinn gefa
skýrslu fyrir dóminum gerði hann
ekki mikið úr kennsluþætti skipu-
leggjandans, heldur kannaðist að-
eins við að hafa þegið leiðbeiningar
um kaðla í seglum. Skútusiglararnir
létu það í ljós að þeir væru alls
óhræddir að leggja í svona siglingu
og virtust ekki kippa sér upp við
mögulega áhættu þar að lútandi.
Um borð höfðu þeir tvö GPS-tæki
og það þriðja til vara. Annar þeirra
sagði þá hafa hreppt vont veður
meðfram ströndum Skandinavíu og
þar hefði seglið rifnað og hefði hann
myndast við saumaskap til að gera
við það. Þeir hefðu hins vegar sett
seglið í viðgerð og haldið áfram för-
inni að því loknu.
Í skýrslutökum gærdagsins
fékkst aldrei upplýst hvað sexmenn-
ingarnir áttu að fá borgað fyrir þátt-
töku sína í smyglinu, en ýmsir sögðu
að launin hefðu átt að vera góð og
ekki var á þeim að skilja að svikist
yrði um að borga þeim fyrir verkið.
Skipuleggjandinn sjálfur sagði að
eitthvað hefði verið minnst á það við
sig að greitt yrði í prósentum þegar
til Íslands yrði komið en að því frá-
töldu var á sakborningunum að
skilja að þessi mál hefðu verið öll
mjög í lausum reipum.
Átti að útvega
bland í poka
Eins og fram hefur komið tók
skipuleggjandinn við verkbeiðni frá
hinum óþekkta fjármögnunaraðila
sem telst vera aðalhöfuðpaurinn í
málinu en ber enga sök þar sem
skipuleggjandinn hefur ekki viljað
benda á hann. Skipuleggjandinn
sagði aðeins að verkbeiðnin hafi fal-
ist í að útvega fíkniefni af mismun-
andi tegundum, „bland í poka,“ eins
og hann orðaði það. Vandlega virðist
hafa verið gengið frá efnunum fyrir
smyglið, enda voru þau ekki aðeins
sett í töskur, heldur í þar til gerð frí-
holt í þeim tilgangi að hægt yrði að
henda töskunum í sjóinn ef löggæsla
eða strandgæsla gripu inn í smyglið
í miðjum klíðum. Einnig var settur
sandur í töskurnar til að þyngja þær
nægilega til að þær flytu ekki uppi.
Skipuleggjandi málsins tjáði
dómara að hann væri nú að taka sig
á í lífinu og sækti AA-fundi og hefði
skráð sig í fjölbrautaskóla sem hann
gæti sótt sem fangi á Litla-Hrauni.
Dóms má vænta í febrúar.
Nokkra athygli vakti þegar
skipuleggjandinn sagði frá sam-
skiptum sínum við þann sem pakk-
aði inn hluta efnanna í íbúð í Kaup-
mannahöfn. Þeir tveir þekktust frá
fyrri tíð og sagðist skipuleggjandinn
hafa hitt þennan félaga sinn í Kaup-
mannahöfn og orðaði það svo að
hann hefði legið vel við höggi, í
þeirri merkingu að hann hefði verið
ákjósanlegur til samstarfs með
mjög skömmum fyrirvara. Hann
hefði því beðið félagann um að
pakka inn fíkniefnum og úr varð að
félaginn mætti í tilgreinda íbúð og
fór að pakka nokkrum pakkningum
sem verjandi hans sagði að væru
rúm ellefu kg. Sjálfur sagðist pakk-
arinn hafa yfirgefið íbúðina áður en
efnin voru öll komin í umbúðir en
hann hefði beðið vissan aðila sem
var í íbúðinni að ljúka verkinu og
þar með var hann farinn. Sagði hann
að sér hefði verið farið að líða illa á
þessum tímapunkti og reyndar iðr-
ast að hafa tekið að sér þetta verk-
efni. Ákvörðuninni um að taka að
sér pökkunina lýsti hann sem
skyndiákvörðun. Hann tjáði dómara
að hann hefði verið í óreglu á þess-
um tíma, þ.e. síðsumars 2007, og
bætti raunar við að hann hefði verið
í óreglu allt frá unglingsárum. Hann
væri hins vegar að taka sig á og væri
skráður í Stýrimannaskólann. Hans
útgáfa af frásögn skipuleggjandans
um að hann hefði „legið vel við
höggi“ var á þá leið að hann hefði
verið nærtækastur á þeim tíma sem
þurfti að fá einhvern í að pakka efn-
unum.
Förin tafðist yfir hafið
Þegar kom að siglingaþætti þessa
sérstæða fíkniefnamáls var dómari
málsins, Guðjón St. Marteinsson,
með ýmsar spurningar um öryggi til
sjós og spurði m.a. skipuleggjand-
ann um áhættu sem væri því sam-
fara að sigla skútu yfir Atlantshafið
í september þegar allra veðra væri
von. Ákærði viðurkenndi að vissu-
lega væri áhætta fólgin í þessu en
bætti við að skútur þyldu margt og
auk þess væri hægt að fylgjast með
veðurspám. Sagðist hann hafa
kennt tvímenningunum á skútuna
áður en þeir lögðu af stað en í máli
annars þeirra var þó aðeins um að
ræða leiðbeiningar um kaðlavinnu.
Skipuleggjandinn tók fram í skýrslu
sinni að reyndar hefði átt að sigla til
Íslands í ágúst en förin hefði tafist
Skútufélagi hans var með sömu
kröfur fyrir dómi og sagðist hafa
fengið fyrirmæli um að afhenda
pakkasendinguna á Fáskrúðsfirði
og sigla skútunni síðan aftur til baka
yfir Atlantshafið. Verjandi hans dró
í efa að málið væri stærsta fíkni-
efnamálið hérlendis því horfa þyrfti
til styrkleika efnanna sem, eins og
upplýst hefur verið, var ekki mjög
mikill hvað amfetamínið og e-töfl-
urnar áhrærði.
Sá sem átti að taka við fíkniefn-
unum játaði sína sök en neitaði
þætti um söludreifingu. Verjandi
hans taldi hámarksrefsingu hans
þriggja ára fangelsi enda hefði hann
eingöngu verið burðardýr. Hefði
hann fengið fyrirmæli frá skipu-
leggjandanum og hann hefði ekki
haft ásetning til að fremja svo stórt
brot sem raunin varð. Einnig þyrfti
að taka tillit til þess að hann er ung-
ur árum, fæddur árið 1984.
Sá þeirra ákærðu sem krafðist
sýknu, og sker sig þannig úr hópn-
um, bar fyrir sig að hann hefði
hvergi komið nærri undirbúningi
brotsins en viðurkenndi að hafa lof-
að skipuleggjandanum að geyma
mætti pakkasendinguna í sumarbú-
staðalandi foreldra kærustunnar
sinnar. Ákærði hefði ekki getað
neitað félaga sínum um þessa bón.
Verjandi hans tilgreindi að skjól-
stæðingur sinn hefði verið skýr í
framburði hjá lögreglunni og verið
sleppt fljótlega. Þá hefði þáttur
mannsins ekki verið nauðsynlegur
til að brotið yrði fullframið og þáttur
hans gæti í mesta lagi talist tilraun
til hlutdeildar. Aðalkrafan var því
sýkna og til vara skilorðsbundin
refsing.
Saksóknari segir málið
sprengja refsirammann
Árvakur/Kristinn
Fíkniefnamál Sakborningar í Pólstjörnumálinu gættu þess mjög vandlega að andlit sitt þekktist ekki þegar
ljósmyndarar voru í dómhúsinu og tóku ekki af sér húfurnar fyrr en dyrum dómsalarins hafði verið lokað.
Í HNOTSKURN
»Pólstjörnumálið svonefndavarð opinbert 20. september
eftir margra mánaða rannsókn-
arvinnu íslenskra og erlendra
lögregluliða. Fylgst hafði verið
með sakborningum hér heima
og erlendis og var Landhelgis-
gæslan fengin til að aðstoða við
rannsóknina.
»Sakarkostnaður í málinu errúmlega 2 milljónir króna
sem ákæruvaldið krefst að sak-
borningarnir sex borgi ásamt
því að fíkniefnin verði gerð upp-
tæk með dómi.