Morgunblaðið - 01.02.2008, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2008 17
MIKIÐ hefur
dofnað yfir vin-
sældum Nicol-
asar Sarkozys,
forseta Frakk-
lands, og hafa
þær ekki verið
minni en nú síðan
hann tók við emb-
ætti. Er það eink-
um frammistaða
hans í efnahagsmálum, sem fólk er
óánægt með.
Sarkozy var kosinn forseti fyrir
átta mánuðum og ekki síst vegna
þess, að hann lofaði að láta hendur
standa fram úr ermum í efnahags-
málunum. Mörgum finnst nú sem
hann hafi lítið gert af því og ný könn-
un sýnir, að hann hefur nú stuðning
41% kjósenda en 55% eru óánægð
með hann. Hefur hann hrapað um
átta prósentustig á einum mánuði. Í
mars verða sveitarstjórnarkosning-
ar og leggja sósíalistar áherslu á, að í
þeim muni kjósendur kveða upp sinn
dóm yfir forsetatíð Sarkozys til
þessa.
„Sarkozy í frjálsu falli“ var aðal-
fyrirsögnin í dagblaðinu Le Parisien
í gær og þar sagði, að „tími von-
brigða“ væri runninn upp.
Snemma í síðasta mánuði viður-
kenndi Sarkozy, að hann gæti lítið
gert til að auka almennan kaupmátt
enda væru „allir sjóðir ríkisins tóm-
ir“. Fyrir kosningar lofaði hann hins
vegar að verða forsetinn, sem yki
kaupmátt og hagvöxt og drægi úr at-
vinnuleysi.
Franskir launþegar hafa áhyggjur
af afkomunni og því hafa fréttir og
myndir af því ljúfa lífi, sem Sarkozy
og Carla Bruni, ný vinkona hans, lifa
ekki farið sérstaklega vel í franska
kjósendur.
Sarkozy „í frjálsu
falli“ hjá kjósendum
Nicolas Sarkozy
Brussel. AP. | Framkvæmdastjórn
Evrópusambandsins hefur komið
með tillögur að einföldun merkinga
á matvælaumbúðum.
Áhersla er lögð á að hafa skýrari
upplýsingar um hlutfall fitu, sykurs
og salts í matvælum og er það liður
í að sporna við offitu og neyslu rusl-
fæðis í sambandslöndunum.
Samkvæmt tillögunum verður
skylt að sýna sex innihaldsþætti á
framhlið umbúða: hitaeiningar,
fitu, mettaða fitu, kolvetni, sykur
og sölt. Merkingarnar skulu vera
svo skýrar að neytendur geti valið
holla fæðu vandræðalaust.
CIAA (bandalag matvæla- og
drykkjarframleiðenda á Evrópska
efnahagssvæðinu) hefur mótmælt
tillögunum og segir þær ófram-
kvæmanlegar og ruglingslegar. Of
miklar upplýsingar á framhlið um-
búða rugli viðskiptavini, þeir þurfi
einfaldar upplýsingar. Stórir mat-
vælaframleiðendur vilja hafa val
þegar kemur að merkingum og
færri skyldumerkingar.
Talsmenn framkvæmdastjórnar
ESB vísa þessum mótbárum á bug
og segja, að með þessu sé verið
koma til móts við eitt algengasta
umkvörtunarefni neytenda, sem er
það, að oft vantar nauðsynlegar
upplýsingar um innihald vörunnar.
Evrópusambandið ein-
faldar vörumerkingar
FJÓRIR af hverjum tíu Dönum á
aldrinum 18 og 19 ára vita ekki hvað
vextir eru. Kemur þetta fram í könn-
un, sem gerð var fyrir Danske Bank.
Ljóst þykir, að þekkingu ungs
fólks á efnahagsmálum er mjög
ábótavant en það kom þó fram í
könnuninni, að almennt kann unga
fólkið fótum sínum forráð í fjár-
málum og lifir ekki um efni fram.
Í könnuninni voru ungmennin og
foreldrar þeirra beðin að skoða þrjú
lán og meta hvert þeirra væri hag-
stæðast. Með tveimur fylgdu ýmis
lánatengd gjöld en ekki því þriðja,
sem bar hins vegar nokkru hærri
vexti. Ekki þurfti mikla útreikninga
til að finna, að síðastnefnda lánið var
langhagstæðast á lánstímanum, sem
var hálfur mánuður, en samt gat
rúmur helmingur fólksins ekki
reiknað það út.
Vextir, hvað er nú það?
RÁÐSTEFNA OG VERÐLAUNAAFHENDING
á Hilton Reykjavík Nordica fimmtudaginn 7. febrúar, kl. 9.00-12.00
RÁÐSTEFNAN ER ÖLLUM OPIN!
ÍSLENSKI ÞEKKINGARDAGURINN
DAGSKRÁ
G
un
na
r
Si
gu
rð
ss
on
Þo
rv
al
du
r
L.
S
ig
ur
jó
ns
so
n
Fr
ed
ri
k
H
är
en
Bi
rn
a
Ei
na
rs
dó
tt
ir
Hver er drifkrafturinn að baki árangri? Hægt er að
skoða það á almennu máli og nefna þætti sem eru
mikilvægir: Stefna fyrirtækisins er skýr, leiðtogar innan
fyrirtækja veita innblástur, fyrirtækjamenningin - teymis-
vinna – allir vinna að sama marki, einstaklingsvinna –
sterkir einstaklingar standa upp úr og auka árangur
fyrirtækisins, kerfi sem stuðla að bættum árangri –
hvatakerfi, menntun o.s.frv., sköpunarkraftur, nýbreytni,
innblástur og margt fleira.
FVH efnir til ráðstefnunnar og verðlaunaafhendingar-
innar Íslenska þekkingardagsins, þar sem þemað er
„Drifkraftar árangurs.“ Erlendur gestafyrirlesari er
Fredrik Härén, fyrirlesari ársins 2007 í Svíþjóð. Einnig
flytja Gunnar Sigurðsson, forstjóri Baugs Group, og
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, forstjóri Saga Capital
Fjárfestingarbanka, erindi á ráðstefnunni.
Þrjú fyrirtæki eru tilnefnd til íslensku
Þekkingarver›launanna 2008:
ÖSSUR, NORÐURÁL OG KAFFITÁR
Rá›stefna FVH gefur 4 einingar hjá Endurmenntunarnefnd FLE.
Rá›stefnustjóri er Birna Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Viðskiptabankasviðs Glitnis.
SKRÁÐU ÞIG STRAX
Skráning fer fram á vef FVH, www.fvh.is e›a í síma 551 1317. Ver› 8.450 kr. fyrir félaga FVH
og 16.900 kr. fyrir a›ra. Innifali›: Rá›stefnugögn og léttar veitingar.
Styrktara›ilar íslenska Þekkingardagsins:
DRIFKRAFTAR
ÁRANGURS
8.30-9.00 Afhending ráðstefnugagna og léttur morgunverður
9.00-9.10 Ávarp formanns FVH
Þröstur Olaf Sigurjónsson
9.10-9.30 IT'S A SMALL WORLD
Gunnar Sigurðsson, forstjóri Baugs Group
9.30-9.50 FJÖLBREYTNI: FORSENDA FRAMFARA
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson,
forstjóri Saga Capital Fjárfestingarbanka
9.50-10.10 Hlé
10.10-11.30 IMAGINATION IS MORE IMPORTANT
THAN KNOWLEDGE
Fredrik Härén, fyrirlesari ársins 2007 í Svíþjóð
11.30-12.00 Viðskiptaráðherra, Björgvin G. Sigurðsson, afhendir
Þekkingarverðlaun FVH og kynnir val á viðskipta-
fræðingi/hagfræðingi ársins 2007
Léttar veitingar í lok ráðstefnu.
Dubai. AFP, AP. | Einn af helstu for-
ingjum al-Qaeda í Afganistan, Abu
Laith al-Libi, féll í árás í Pakistan
nýlega, að því er fram kom í tilkynn-
ingu sem birt var í gær á vefsetri
sem al-Qaeda hefur notað.
Breska ríkisútvarpið, BBC, sagði
að vestrænir embættismenn hefðu
staðfest að al-Libi hefði fallið.
Al-Libi fæddist í Líbýu árið 1941
og var lengi leiðtogi líbýskrar hreyf-
ingar sem barðist gegn leiðtoga
landsins, Muammar Gaddafi.
Al-Libi var talsmaður al-Qaeda í
Afganistan og kom fram á nokkrum
myndböndum frá hryðjuverkasam-
tökunum. Á myndbandi, sem birt var
í nóvember, sást hann við hlið Aym-
ans al-Zawahri, næstæðsta leiðtoga
al-Qaeda. Al-Libi tilkynnti á einu
myndbandanna árið 2002 að Osama
bin Laden og leiðtogi talibana, múll-
ann Ómar, hefðu lifað af innrás
bandarískra hersveita í Afganistan.
Al-Libi er á lista yfir þá tólf menn
sem bandarísk yfirvöld leggja mesta
áherslu á að handtaka eða fella. Þau
telja líklegt að hann hafi skipulagt
sprengjuárás á bandaríska herstöð í
Afganistan fyrir tæpu ári þegar Dick
Cheney, varaforseti Bandaríkjanna,
var þar í heimsókn. Árásin kostaði 23
lífið.
Líklegt þykir al-Libi hafi beðið
bana í flugskeytaárás á mánudag á
landamærasvæði í Pakistan þar sem
liðsmenn al-Qaeda hafa leikið laus-
um hala. Hermt er að alls hafi tólf
menn beðið bana í árásinni. Íbúar á
svæðinu segja að mannlaust loftfar,
líklega bandarískt, hafi skotið flug-
skeytinu.
Einn helstu foringja
al-Qaeda beið bana
Reuters
Talsmaður Abu Laith al-Libi kom
fram á myndböndum al-Qaeda.