Morgunblaðið - 01.02.2008, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 01.02.2008, Qupperneq 8
8 FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR NOKKUÐ er um að ökumenn stingi framenda bíla sinna upp á gang- stétt eða að bílnum sé lagt snyrti- lega með tvö dekk upp á gangstétt- ina. Framkvæmdasvið borgarinnar hvetur ökumenn til að vanda sig við að leggja bílum sínum þannig að snjómoksturstæki geti með auð- veldum hætti rutt gangstéttir. „Þetta skapar slysahættu fyrir gangandi vegfarendur“, er haft eft- ir Steinari Bergmann á heimasíðu framkvæmdasviðs, en hann starfar við að moka snjó af gangstéttum í Þingholtunum. Hann bendir á að gamla fólkið þurfi að klöngrast yfir ruðningana sem eftir verða þegar hann þurfi að bakka frá og svo sé heldur enginn sandur á þeim kafla sem verður útundan. Ástandið er sagt sérstaklega slæmt í nágrenni við Landspít- alann, á Eiríksgötu og Barónsstíg, en þar virðast margir halda að leggja megi upp á gangstétt. Einnig er algengt að koma að bílum í gangi uppi á gangstéttum við leikskóla í hverfinu. „Fólk er að hendast inn með börnin á leikskólann. Því finnst það kannski stoppa stutt við, en fyrir mig þýðir þetta bið í 15 til 20 mínútur,“ er haft eftir Steinari. „Þetta er spurning um að gefa sér örlítið meiri tíma til að leggja bíln- um og taka tillit til samborg- aranna.“ Hindranir Þessum bíl var lagt upp á gangstétt við Eiríksgötu í gærmorgun. Eins og sjá má er illmögulegt að ryðja stéttina. Ökumenn torvelda mokstur af gangstéttum borgarinnar NÝTT veftímarit hefur byrjað göngu sína í tengslum við vefinn stefanjon.is. Stefán Jón Hafstein stendur að tímaritinu og verður útgáfan 8-10 sinnum á ári. Þar birtast dagbækur Steáns Jóns frá Afríku ásamt ljósmyndum og lif- andi myndum. Stefán Jón er nú starfsmaður Þróunarsamvinnu- stofnunar Íslands í Namibíu og er í leyfi frá borgarstjórn Reykjavík- ur 2007-2009. Í upphafi janúarpistils á vef- tímaritinu segir meðal annars: „Álfan heita heilsar nýju ári með blendnum huga. Margvíslegur uppgangur í efnhagsmálum hefur skotið fólki fram á veg miðað við þá hryggilegu stöðnun sem áður ríkti áratugum saman hvað sem leið þróunaraðstoð og heilræðum úr öllum áttum. Hrávörur hækka í verði á heimsmarkaði og það hjálpar ríkjum sem eiga auðlindir í jörðu eða hafsbotni. Ferða- mannastraumur eykst víða. Ný olíuríki auðgast.“ Veftímarit frá Afríku GEIR H. Haarde forsætisráðherra heimsækir Lúxem- borg og Belgíu í síðari hluta febrúar til að ræða við for- sætisráðherra ríkjanna. Hann mun einnig eiga viðræður við fulltrúa í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins og framkvæmdastjóra NATO. Forsætisráðherra mun eiga fund með Jean Claude Juncker, forsætisráðherra Lúxemborgar, þann 26. febr- úar nk. og einnig kynna sér starfsemi íslenskra fjár- málafyrirtækja í stórhertogadæminu. Þaðan fer for- sætisráðherra til Belgíu og mun 26.-27 febrúar eiga fund Guy Verhofstadt, forsætisráðherra Belgíu, Jaap de Hoop Scheffer, framkvæmdastjóra NATO, Jose Manuel Barroso, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, Javier Solana, fulltrúa Evrópu- sambandsins á sviði sameiginlegu utanríkis- og öryggismálastefnunnar, Benita Ferrero-Waldner, framkvæmdastjóra Evrópusambandsins á sviði stækkunarmála, og Olli Rehn, framkvæmdastjóra stækkunarmála. Geir heimsækir Belgíu Geir Haarde TAFLFÉLAGIÐ Hellir stendur fyr- ir alþjóðlegu unglingaskákmóti dagana 1.-3. febrúar. Mótið fer fram í húsakynnum Skákskóla Ís- lands í Faxafeni 12. 29 keppendur eru skráðir til leiks, þar af tíu er- lendir sem koma frá Danmörku, Svíþjóð, Skotlandi og Þýskalandi. Mótið hefst kl. tíu fyrir hádegi í dag. Um er að ræða stærsta og sterkasta alþjóðlega unglingaskák- mót sem haldið er hérlendis. Flestir af bestu skákmönnum landsins sem fæddir eru 1991 eða síðar taka þátt. Auk fjölda Reykvíkinga koma ís- lenskir þátttakendur m.a. frá Borg- arnesi, Vestmannaeyjum, Akureyri og Kópavogi. Bolli Thoroddsen, nýr formaður Íþrótta- og tómstundaráðs Reykja- víkur, setur mótið og leikur fyrsta leik þess. Aðalstyrktaraðili mótsins er Reykjavíkurborg en einnig styðja Kópavogsbær og Skák- samband Íslands mótshaldið. Alþjóðlegt skák- mót unglinga JAFNRÉTTINDAFÉLAG Íslands var stofnað síðastliðið mánudags- kvöld. Formaður þess er Ólafur Hannesson, samkvæmt frétta- tilkynningu. Þar segir að tími hafi verið kom- inn á nýtt jafnréttisfélag sem vilji hugsa um jafnrétti fyrir alla. Marg- ir séu ekki ánægðir með jafnréttis- umræðuna sem sé frekar einsleit, og ákveðin félög hafi einkaleyfi á umræðunni. „Það er til dæmis ekki til neitt sem heitir jákvæð mis- munun, það er ávallt mismunun, og brýtur hún gegn jafnrétti,“ segir í tilkynningunni. Jafnréttindi STUTT RÁÐSTEFNA í tilefni nýrrar menntaáætlunar Norrænu ráðherra- nefndarinnar, Nordplus, verður hald- in í Norræna húsinu dag kl. 13. Þar verður menntaáætlunin fyrir árin 2008-2011 kynnt ásamt undiráætlun- un og hinni Norrænu tungumála- og menningaráætlun Nordplus. Alls eru til skiptanna um 960 milljónir króna fyrir skólaárið 2008. Ein helsta breyting frá fyrri áætlun er sú að Eystrasaltsríkin; Eistland, Lettland og Litháen, eru með í fyrsta skipti. „Það er mjög spennandi, ekki síst þar sem mikill uppgangur er í Eystrasaltslöndunum,“ segir Guð- mundur Ingi Markússon, verkefna- stjóri hjá Alþjóðaskrifstofu háskóla- stigsins, landsskrifstofu Nordplus. „Það fjölgar möguleikum til muna, en áður var t.a.m. ekki hægt að fá styrki til að fara með nemendur í bekkjar- heimsóknir til ríkjanna, né til kenn- araskipta.“ Ísland tekið virkan þátt Rúmlega 700 skiptistúdentar hafa komið til Háskóla Íslands frá árinu 1995 á vegum áætlunar Nordplus og rúmlega 550 íslenskir skiptistúdentar farið frá HÍ til háskóla annars staðar á Norðurlöndunum. Þá hafa um 220 nemendur og kennarar hafa farið frá Íslandi til Norðurlanda sl. 2 ár í full- orðinsfræðsluverkefninu Nordplus voksen, flestir til náms í lýðháskólum og hátt í 2.000 grunn- og framhalds- skólanemendur og kennarar hafa sl. 3 ár farið í heimsóknir í skóla annars staðar á Norðurlöndunum. Ráðstefnan er ætluð skólum, stofn- unum, félagasamtökum, fyrirtækjum, o.s.frv., sem vinna að menntamálum á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi, á háskólastigi, og á sviði fullorðins- fræðslu og símenntunar; einnig þeim sem vinna að framgangi norrænna tungumála og menningar. Nordplus deilir út um 960 milljónum króna TENGLAR .............................................. www.nordplus.is Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is „VIÐ erum búnir að gera áhættumat fyrir Suðvesturlandið miðað við nú- verandi siglingar. Nú eru að opnast skipasiglingarnar frá Múrmansk í Rússlandi vestur um haf sem breyta áherslum viðbragðsaðila,“ segir Kristján Geirsson, deildarstjóri á sviði umhverfisgæða hjá Umhverfis- stofnun, um breytt siglingamynstur í námunda við Ísland. Verið er að byggja geysistóra gámaflutningahöfn í Múrmansk, en ráðgert er að hún muni geta með- höndlað þrjár milljónir gámaeininga á ári. Höfnin er hugsuð til pólsiglinga og mun anna 500 skipum á ári. Til samanburðar er áætlað að 300.000 til 350.000 gámaeiningar séu afgreiddar hjá íslensku gámafyrir- tækjunum á ári um land allt. Síðar kunni að opnast siglingaleið frá Kyrrahafi um Síberíuströnd. Aðspurður hvort búist sé við mik- illi umferð skipa frá Kína, sökum þess að siglingaleiðin um norður- skautið opnast samfara hopi íssins, segir Kristján óvíst hvort sú leið verði greiðfær og þá hvort umferð fari hjá Íslandi. Bæði Norðmenn og Rússar hafi áætlanir um að reisa stórar umskipunarhafnir og það geti haft áhrif á siglingarmynstrið. Kristján gerði grein fyrir breyttu áhættumati á vel sóttu málþingi á vegum Stofnunar Sæmundar fróða í gær, ásamt Ásgrími L. Ásgrímssyni, yfirmanni vaktstöðvar siglinga hjá Landhelgisgæslunni. Aukin skipaumferð eykur líkur á alvarlegu mengunarslysi við Íslands- strendur, áhætta sem gæti valdið hagkerfinu miklum búsifjum, með tilliti til þess að siglt er um hrygning- arsvæði helstu nytjastofnanna suður af landinu. Það er m.a. af þessu sök- um sem uppi eru hugmyndir um að færa siglingaleiðirnar lengra frá landinu, en Umhverfisstofnun er kölluð til verði stór óhöpp. Miklir flutningar frá Múrmansk Ásgrímur fjallaði um umfang olíu- flutninga frá Múrmansk í erindi sínu og um fyrirhugaða gámaflutninga- höfn í borginni, en talið er að 80-100 milljón tonn af olíu verði flutt þaðan 2015. Miðað við að sama hlutfall olíu- magns fari vestur um haf megi gera ráð fyrir að 17 til 22 milljónir tonna muni fara um íslenska lögsögu, eða 370 til 480 skip að óbreyttu. Við þetta bætist að Rússar áætli að taka Stockman-gasvinnslusvæðið í notk- un 2014, það stærsta í heimi. Þá stefni Norðmenn á að byggja upp gámaflutningahöfn í Narvik, Noregi, og að reikna megi með að 300 gáma- skip fari þaðan til N-Ameríku á ári. Stórauknar siglingar kalla á nýtt áhættumat AP Risar Olíuflutningaskipið The Bright Artemis er 146,463 tonn að stærð, en ráðgert er að umferð um 100.000 tonna olíuskipa muni aukast við Ísland. Í HNOTSKURN »Reiknað er með að olíuskip komi með jarðolíu til vinnslu við fyrir-hugaða olíuhreinsunarstöð á Vestfjörðum á fjögurra daga fresti, og að þrír öflugir dráttarbátar verði við stöðina sem afgreiði skipin og verði til taks hendi eitthvað stór skip við Ísland. » Íslendingar eiga nú í viðræðum við Dani og Norðmenn um að far-þegaskipum verði skylt að sigla tvö og tvö í hafinu norður af Íslandi, svo auka megi líkur á farsælli björgun komi til alvarlegs slyss. Hundruð stórra olíuskipa munu fara um íslensku lögsöguna „ÞAÐ geta skapast þannig aðstæður og þannig sjólag að við ráðum illa við mjög stór skip. Þess vegna ósk- um við eftir því að þessar siglingar verði færðar fjær ströndinni,“ segir Halldór Nellett, yfirmaður aðgerða- sviðs Landhelgisgæslunnar, um þörfina fyrir nýtt skip vegna vax- andi skipaumferðar. „Fjarlægðin gefur okkur meiri tíma til að bregð- ast við óhöppum. Eftir því sem skip- in eru fjær landi hafa skipverjar meiri tíma til að freista viðgerðar, ef mögulegt er.“ Halldór tekur fram að umrætt skip sé enn aðeins á hugmyndastig- inu, en ef af yrði þyrfti jafnstórt skip og nú er í smíðum í Chile og af- hent verður á síðari hluta næsta árs. Skipið sem þörf er á myndi kosta svipað og það sem er verið að smíða, eða um þrjá milljarða króna. Það varðskip hefur um 120 tonna togkraft, eða rúmlega helmingi meiri en Týr og Ægir, sem hafa um 55 tonna togkraft. Er talin þörf á auknum togkrafti eftir því sem um- ferð stórra skipa þyngist við landið. Um yrði að ræða fjölnotaskip sem sinnti fiskveiðieftirliti og almennri löggæslu á hafinu umhverfis Ísland. Það yrði búið fullkomnum sjómæl- ingabúnaði og fjölgeislamæli, en Halldór segir mörg af hafsvæðunum umhverfis landið ómæld og að mikið verk sé óunnið í þeim efnum. Skipið yrði jafnframt búið mjög fullkomnum mengunarvarnabúnaði og varnargirðingu til að hefta út- breiðslu olíu, ásamt góðu tankarými til að dæla 600 til 800 tonnum af olíu um borð í skipið ef aðstæður leyfa. Halldór vildi taka fram að dóms- málaráðuneytið hefði eflt gæslu við Íslandsstrendur, m.a. með nýju varðskipi og flugvél, auk þess sem fyrirhugað væri að efna til sam- starfs við Norðmenn um þyrlukaup. Þörf fyrir nýtt varðskip Árvakur/ÞÖK Gæslan Skipin Týr og Ægir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.