Morgunblaðið - 01.02.2008, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 01.02.2008, Qupperneq 16
16 FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT PER Stig Møller, utanríkisráðherra Danmerkur, sagði í gær að ekkert væri hæft í ásökun um að hann hefði logið að grænlensku landstjórninni og danska þinginu um meint fanga- flug bandarísku leyniþjónustunnar CIA. Danska ríkissjónvarpið hefur sýnt heimildamynd þar sem fram kemur að flugvélar á vegum CIA hafa farið um danska lofthelgi og m.a. millilent á Grænlandi. Grunur leikur á að CIA hafi flutt meinta hryðjuverkamenn í þessum ferðum. Josef Motzfeldt, sem fór með utanríkismál í grænlensku land- stjórninni, kvaðst hafa skrifað danska utanríkisráðherranum bréf 23. nóvember 2005 til að gera honum grein fyrir því að landstjórnin væri andvíg því að vélar CIA millilentu á Grænlandi. Þá þegar hefðu legið fyr- ir upplýsingar, m.a. frá bandarískum fjölmiðlum, um að vélarnar væru notaðar til að flytja fanga. Motzfeldt sagði að Møller hefði svarað, eftir að hafa rætt við bandarísk yfirvöld, að ferðir vélanna brytu ekki í bága við lög. „Mergur málsins er að danska stjórnin með stuðningi Danska þjóðarflokksins hefur logið að þing- inu og grænlensku landstjórninni,“ sagði Motzfeldt. Møller neitaði þessu og kvaðst aðeins hafa svarað að bandarísk yfirvöld hefðu sagt honum að ferðir vélanna væru löglegar og í samræmi við alþjóðlega sáttmála. Annast rannsóknina sjálf Danska stjórnarandstaðan hefur krafist þess að skipuð verði óháð sér- fræðinganefnd til að rannsaka málið en stjórnin hafnaði þeirri kröfu, kvaðst ætla að rannsaka málið sjálf. Møller sagði að stjórnin hefði miklu meiri aðgang að upplýsingum frá CIA en óháð nefnd gæti haft. Kveðst ekki hafa logið Danska stjórnin hafnar óháðri rannsókn á meintu fangaflugi Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is JOHN McCain virðist nú líklegur til að ná því takmarki sínu að verða for- setaefni repúblikana þrátt fyrir ald- urinn, 71 ár, og fortíð sem uppreisn- armaður í flokknum. Rudy Giuliani lýsti í gær yfir stuðningi við hann, eins og búist hafði verið við, enda hefur lengi verið vinátta á milli þeirra. Yfirlýsingin styrkir stöðu McCains meðal miðjurepúblikana í norðausturríkjunum, hann þarf ekki lengur að keppa við Giuliani um stuðning þeirra í forkosningum. McCain mætti keppinautum sín- um í sjónvarpskappræðum í Kali- forníu í gær. Hann ítrekaði m.a. fyrri ásakanir um að Mitt Romney væri ekki nógu traustur í stuðningi við Íraksstríðið, hefði tekið undir til- lögur demókrata um að setja fram tímasetta áætlun um brottflutning herliðsins. George W. Bush forseti og menn hans segja tímasetningu vera hreinræktaða gjöf til uppreisn- armanna sem geti þá miðað áætlanir sínar við væntanlega brottför. McCain er örugglega að mistúlka ummæli Romneys sem voru óljós en sá fyrrnefndi náði markmiði sínu, Romney lét áhlaupið slá sig út af lag- inu. Sakaði hann þá McCain um að nota „óþverrabrögð“ í anda „hefð- bundinna Washington-pólitíkusa“. McCain svaraði með því að minna á rándýrar sjónvarpsherferðir auðkýf- ingsins Romneys sem sumar hafa þótt hálfgert skítkast. „Neikvæðu auglýsingarnar þínar, vinur minn, hafa gefið tóninn í þessari baráttu,“ sagði McCain. Er Romney reyndi að klína stimpli vinstrisinna á keppi- nautinn með því að minna á að The New York Times hefði lýst stuðningi við hann svaraði McCain að tvö blöð í heimaborg Romneys, Boston, styddu sig „og þau þekkja þig best af öllum“. Fleiri vilja fá demókrata í Hvíta húsið en … Kannanir vestra sýna að mun fleiri vilja fá demókrata en repúblik- ana í Hvíta húsið en í nóvember mun fólk kjósa raunverulegan ein- stakling, ekki einhvern ímyndaðan staðaldemókrata. Persónan getur skipt meira máli en flokksliturinn. Grjótharðir flokkshestar repúblik- ana segja margir að McCain sé ekki trúverðugur, hann sé ekki eingöngu fylgjandi slökun gagnvart ólöglegum innflytjendum heldur hafi líka á sín- um tíma greitt atkvæði gegn skatta- lækkunum Bush og sé á öndverðri skoðun við kjarna Repúblikana- flokksins varðandi baráttuna gegn gróðurhúsaáhrifum. McCain vill að Bandaríkin taki forystuna í þeim efnum. Hann rökstuddi andstöðu sína við skattalækkanirnar á sínum tíma með því að segja að hann vildi sjá jafnhliða niðurskurð á útgjöldum. Og gríðarlegur fjárlagahallinn bend- ir til þess að hann hafi haft mikið til síns máls. Jonathan Freedland segir í breska blaðinu The Guardian í gær að um- kvörtunarefni hægrimanna séu ein- mitt þess eðlis að þau geri McCain meira aðlaðandi en ella meðal fjöl- margra hófsamra Bandaríkjamanna. „Það er rétt að hann er mikill haukur í utanríkismálum, hvikar hvergi í stuðningi sínum við Íraks- stríðið, en hann er enginn Dick Cheney – ekki hataður eins og hann og því mun hann ekki hræða demó- krata til að gera hvað sem er til að stöðva hann. Hvað snertir afstöðu hans til loftslagsmála þá hitti ég græningja í Flórída sem kaus Al Gore en styður nú McCain,“ segir Freedland. Verður „óþekkt“ McCains leynivopnið? Ímynd repúblikanans sem manns er ekki lýtur flokksaga og stuðningurinn við ýmis mál demókrata gæti skipt sköpum Í HNOTSKURN »Arnold Schwarzenegger,ríkisstjóri Kaliforníu, lýsti í gær yfir stuðningi við McCain í forkosningum repúblikana. »Skoðanakönnun á landsvísusýndi nýlega að McCain myndi sigra bæði Hillary Clinton og Barack Obama í haust. KJÖTKVEÐJUHÁTÍÐIN í Köln hófst í gær með því að þúsundir kvenna söfnuðust saman í miðborginni í skrautlegum búningum, vopnaðar stórum skærum sem þær notuðu til að klippa bindi af körlum. Þessi siður var tekinn upp í Þýskalandi árið 1823 þegar þvottakon- ur í Bonn gerðu uppreisn gegn körlum sem skildu þær eftir og ætluðust til þess að þær héldu áfram að vinna meðan þeir skemmtu sér á kjötkveðjuhátíðinni. AP Risu upp gegn körlunum „ALLT er best í hófi“ er gamalt máltæki og það virðist ekki síður eiga við um líkamsrækt en annað. Í Danmörku eru ýmsir læknar og sérfræðingar farnir að vara við því, sem þeir kalla ofþjálfun, nokkurs konar líkamsræktarnauðung eða -fíkn, sem geti síðar leitt til slitgigt- ar og annarra kvilla. Morten Zacho, lektor við Syd- dansk Universitet og áhugamaður um holla hreyfingu, segir, að marg- ir misskilji áróðurinn fyrir líkams- rækt og hollri hreyfingu. Líkams- ræktin verði því að eins konar nauðung, sem geti að lokum leitt til minni lífsgæða en ekki meiri. Zacho, sem heldur úti vefsíðunni motion-online.dk, segir, að ekki sé óalgengt, að fólk stundi líkams- ræktina í 15 til 20 klukkustundir á viku. Augljóst sé, að hjá sumum sé ræktin orðin að fíkn, sem þeir eða þær ráði ekki við. „Líkaminn þolir mikið álag en þegar fram líða stundir geldur hann fyrir það á ýmsan hátt, til dæmis með slitgigt,“ segir Morten Zacho. Engar tölur eru til um fjölda þeirra, sem hafa komið sér upp lík- amsræktarfíkn, en Birgit Peters- son, sálfræðingur og lektor við Medicinisk Kvinde- og Køns- forskning við Kaupmannahafnar- háskóla, segist hafa forvitnast um það mál á nokkrum líkamsræktar- stöðum með raunverulega rann- sókn í huga. Er það bráðabirgða- niðurstaða hennar, að 20% kvenna og karla í líkamsrækt séu haldin fíkn. Þá segir hún, að um 20% þeirra kvenna, sem stundi líkams- ræktina, séu með átraskanir af ein- hverju tagi. Árvakur/Þorkell Ofþjálfun Allt er best í hófi. Líkamsræktarfíkn vaxandi vandamál London. AFP. | Sendifulltrúi í Mið- Austurlöndum, ráðgjafi svissnesks tryggingafyrirtækis og bandarísks hlutabréfabanka, eftirsóttur fyrir- lesari. Tony Blair hefur ekki hægt ferðina frá því hann lét af embætti forsætisráðherra Bretlands. Verkefnin hlaðast upp og er Blair talinn vera á góðri leið með að verða ríkasti fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands frá upphafi. Laun hans fyrir ráðgjafastörf hjá Zurich-trygg- ingafyrirtækinu og bankanum JPMorgan, auk launaðra fyrirlestra, eru áætluð yfir 13,4 milljónum evra á tæpu ári, 125 milljónum íslenskra króna. Blair sinnir einnig fulltrúastarfi hjá Mið-Austurlandakvartettinum svokallaða, sem miðlar málum í frið- arumleitunum Ísraels og Palestínu. Breska dagblaðið Financial Times efast í leiðara um að Blair geti haldið aðskildum ímynd sinni sem alþjóð- legs fulltrúa annars vegar og ímynd sinni sem viðskiptamanns hins veg- ar. Tony Travers, prófessor við Lond- on School of Economics, hefur vísað slíkum ásökunum á hendur Blair á bug. Hann segir stöðu Blairs gegn- sæja, það sé ekkert leyndarmál fyrir hverja hann starfi og því engin hætta á misferli. Fjölmiðlar hafa sýnt fram á að fjárþörf Blairs sé rík. Eftir að hann fluttist úr Downingstræti í júní á síðasta ári hafi hann flutt ásamt fjölskyldunni í glæsilegt hús í miðri Lundúnaborg með veði upp á um 4,7 milljónir evra. Blair hefur verið orðaður við emb- ætti forseta Evrópusambandsins og segir Travers ekki ólíklegt að Blair sé nú að baktryggja sig, skyldi hann verða af því embætti. Brátt ríkasti fyrrverandi forsætisráðherrann AP Eftirsóttur Blair sinnir margvís- legum störfum á alþjóðavettvangi. Tvöfaldir Vildarpunktar T B W A \R E Y K JA V ÍK \ S ÍA \ 9 08 00 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.