Morgunblaðið - 01.02.2008, Side 21

Morgunblaðið - 01.02.2008, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2008 21 AUSTURLAND SIGLINGASTOFNUN Stefnumótun í samgöngum Samgönguráð efnir til fimmta fundar í fundaröð sinni um stefnumótun í samgöngum. Fundarefnið að þessu sinni er: Almenningssamgöngur • Sporvagnakerfið í Stuttgart - tekist á við áskoranir 21. aldarinnar. Manfred Bonz fv. yfirmaður almenningsvagna í Stuttgart í Þýskalandi. • Samþætt svæðis- og samgönguskipulag með almenningssamgöngur sem burðarás. Gunnar Eiterjord yfirmaður samgöngumála hjá Rogalandsfylki í Noregi. • Drög að skýrslu um almenningssamgöngur sveitarfélaga. Páll Brynjarsson, formaður nefndar um þetta efni skipaðri af samgönguráðherra . • Umræður og fyrirspurnir. Fundurinn verður haldinn fimmtudaginn 7. febrúar 2008 kl. 15:00-17:00 á Grand Hótel Reykjavík. Aðgangur er ókeypis og öllum er heimill aðgangur. Væntanlegir þátttakendur eru vinsamlegast beðnir að skrá sig á netfangið postur@sam.stjr.is eigi síðar en klukkan 12:00 þann 7. febrúar 2008. Samgönguráð Flugmálastjórn Íslands - Siglingastofnun Íslands - Vegagerðin Samgönguráðuneytið Eftir Steinunni Ásmundsdóttur steinunn@mbl.is DJÚPSTÆTT ósamkomulag er inn- an Austurlandsfjórðungs um gerð nýs heilsársvegar yfir Öxi fyrir árið 2011. Hluti Austfirðinga lítur á vega- gerð upp í 530 metra hæð sem hreina fásinnu. Vegagerðin kynnti nýlega drög að tillögu um matsáætl- un vegna fyrirhugaðra fram- kvæmda. Samband sveitarfélaga á Austurlandi hefur um árabil sam- þykkt ályktanir um samgöngubætur og sent stjórnvöldum, þ.á m. um endurbætur og gerð heilsársvegar um Öxi. Leggja á nýjan 18 km langan veg sem nær frá vegamótum við hring- veg um 5 km sunnan við enda Skriðuvatns í Skriðdal, að hringvegi í botni Berufjarðar. Ákvörðun um að ráðist skyldi í framkvæmdina með opinberu fjármagni árin 2009 til 2011 var tekin í fyrrasumar og er hluti af mótvægisaðgerðum stjórn- valda vegna skerðingar á þorsk- kvóta. Áætlað er að verja 1,5 millj- örðum í lagningu vegarins og gætu framkvæmdir hafist af alvöru á næstu 2-3 árum. Vegurinn styttir hringveginn um 61 km. Liðin tíð að leggja veg um fjöll Ragnhildur Kristjánsdóttir á Eskifirði segir í bréfi til Vegagerð- arinnar í öndverðum janúarmánuði að Kristján Möller samgöngu- ráðherra hafi sagt í útvarpsviðtali, þar sem Héðinsfjarðargöng voru til umræðu, að liðin tíð væri að leggja vegi yfir fjöll og firnindi. Hún minnir í bréfi sínu á að vetrarveður séu hörð á Öxi. „Mönnum sem þekkja vel þessa leið ber saman um að veð- urskilyrði þarna séu sérstaklega erf- ið,“ skrifar Ragnhildur og finnst sér- kennilegt ef geðþóttaákvörðun ráðherra um Axarveg gengur fram- ar samþykkt Alþingis í vegamálum. Í Breiðdal telur fólk hæpið að nýr vegur um Öxi gagnist íbúum Breið- dalshrepps og sveitarstjórinn, Páll Baldursson, segist ekki sjá að hann muni koma fiskvinnslufólki sér- staklega til góða. Þetta þjóni því ekki tilgangi sem mótvægisaðgerð. Sveitarstjórn Djúpavogshrepps er hins vegar afar ánægð með nýjan veg um Öxi og segir Axarveg lífæð íbúa Djúpavogs að þjónustukjarn- anum á Fljótsdalshéraði. Heils- ársvegtenging milli þessara svæða auki til muna líkur á meiri samvinnu og eftir atvikum sameiningu Djúpa- vogshrepps og Fljótdalshéraðs. For- seti bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs, Soffía Lárusdóttir, skorar á Aust- firðinga að sameinast um þessa mik- ilvægu framkvæmd líkt og gerst hafi með jarðgöngin til Fáskrúðsfjarðar og fyrirhuguð jarðgöng til Neskaup- staðar. Vegalengdir á milli byggð- arlaga styttist, sem og á hringveg- inum, byggðir tengist betur og umferðaröryggi aukist. Oddviti Djúpavogshrepps, Andrés Skúlason, hefur sagt að nýr, upp- byggður vegur um Öxi í fullri breidd, með 8% veghalla í stað 17%, verði hindrunarlaus vegur allan árs- ins hring. „Ég geri ráð fyrir að það snjói eitthvað á hann eins og aðra vegi á Íslandi,“ segir Andrés og bæt- ir við að oftar hafi hann lent í vand- ræðum á veginum austur með ströndinni og suður eftir heldur en um Öxi, sem hafi að meðaltali verið lokuð í um einn mánuð árlega vegna færðar. „Eitt af vandamálunum við veginn með ströndinni er að oft og tíðum er þar gríðarleg hálka og mjög er þar sviptivindasamt, sem maður lendir ekki í á leiðinni yfir Öxi.“ Stór ferðaþjónustuaðili á Héraði segir nýjan Axarveg tvímælalaust af hinu góða og að hann gefi aukna möguleika, sérstaklega fyrir ferða- þjónustu á Djúpavogi. Hringferð um Austurland þar sem allir firðir séu teknir fyrir verði og álitlegur kostur. Valdimar O. Hermannsson í bæj- arstjórn Fjarðabyggðar segir að auðvitað beri að fagna öllum vegbót- um á Austurlandi. Það skjóti þó skökku við að meðan sveitarstjórn- armenn um alla firði og héruð berjist við að ná erfiðum fjallvegum niður í hæð; á Oddskarði, Fjarðarheiði, Fagradal og víðar, skuli eiga að byggja fjallveg í 530 m hæð fyrir mörg hundruð milljónir í stað þess að nýta fjármagnið til þarfari sam- göngubóta. Undir þetta tekur Smári Geirsson, sem einnig situr í bæj- arstjórn Fjarðabyggðar. Hann segir að þrátt fyrir áskoranir SSA um Öxi telji hann að eftir á að hyggja sé al- ger tímaskekkja árið 2008 að beina umferð í 530 m hæð að vetrarlagi. „Menn eiga að leggja aðrar áherslur í samgöngumálum og nútíminn felst í að skapa samgönguaðstæður þar sem hugsað er um að menn komist greiða leið og þeir séu öruggir. Hvorugt á við um þessa fram- kvæmd. Auk nauðsynlegra úrbóta á vegum með ströndinni eru jarðgöng framtíðin,“ segir Smári. Vegirnir suður með ónýtir Andstæðingar heilsársvegar um Öxi benda á að menn sitji uppi með ónýta vegi frá Reyðarfirði og nánast suður úr. Nú sé að vísu komin á dag- skrá vegagerð í Hamarsfirði en ekki sé inni í myndinni að þvera fjörðinn að svo komnu máli. Vegurinn beggja vegna fjarðarins sé illa farinn, vegir með suðurströnd Fáskrúðsfjarðar séu sömuleiðis mjög lakir og verið hafi 10 tonna öxulþungi á þeim í vet- ur. Þá segir fólk að fjármagni, sem leggja á í Axarveg, hefði betur verið varið í gangagerð milli Berufjarðar og Breiðdals eða undir Lónsheiði. Framundan hjá Vegagerðinni á næstu misserum eru m.a. vegbætur í botni Berufjarðar og í Hamarsfirði. Þá er gerð sterk krafa um jarðgöng milli Álftafjarðar og Lóns til að losna við akstur um Hvalnes- og Þvott- árskriður sem eru einhver við- haldsfrekasti vegakafli hringveg- arins. Þar á raunar að fara í vegbætur í sumar. Jarðgangagerð milli Eskifjarðar og Norðfjarðar stendur og fyrir dyrum. Heyra má að innan Vegagerð- arinnar á Austurlandi eru einnig skiptar skoðanir um nýjan Axarveg. Ýmist segja menn þar á bæ að fram- kvæmdin sé besti möguleikinn í styttingu hringvegarins í einum áfanga á umferðarlegu og land- fræðilegu miðsvæði Austurlands, eða að laga beri Axarveg fyrir 150 milljónir króna sem sumarveg, og leggja einn og hálfa milljarðinn í brýnni aðgerðir í vegamálum, og fyrst og síðast; forgangsraða. Öxin klýfur Austfirðinga í herðar niður Morgunblaðið/Andrés Skúlason Fjallvegur Talsverður styr stendur innan Austurlandsfjórðungs um gerð heilsársvegar um Öxi.                       !"                # # #     !"  # $   % & # '! (   " #      #    *    ! (   +,-) 6//  7 /8+  ( / 4/  6/8+      !" #$%& % '( "  & % )*& % '+,   ! ! ! - $. #/&   = +  E>  N 2 +  (< Í HNOTSKURN »Áform um uppbyggðan heils-ársveg yfir Öxi valda deilum á Austurlandi. »Andstæðingar framkvæmd-arinnar segja tímaskekkju að beina vetrarumferð í 530 metra h.y.s. og að aðgerðin sé marklaus sem liður í mótvægisaðgerðum stjórnvalda vegna kvótaniður- skurðar. »Þeir sem vilja heilsársveg yf-ir Öxi segja hann til góðs fyr- ir allt Austurland, hann stytti vegalengdir og auki umferðarör- yggi. Þá liðki hann fyrir vöru- flutningum inn á miðsvæðið. SUÐURNES Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is Reykjanesbær | Nemendum í grunnskólum Reykjanesbæjar hefur fjölgað ört í vetur. Metfjölgun var í haust en þá voru nemendur 130 fleiri en haustið áður og 30 til 40 börn bættust svo við nú í upphafi árs. Mest hefur mætt á Njarðvíkurskóla í þessum sviptingum. Nú eru um 2.010 börn í sex grunn- skólum í Reykjanesbæ, að sögn Ei- ríks Hermannssonar fræðslustjóra en haustið 2006 voru 1.845 börn við nám. Aukningin er vegna fjölgunar íbúa, ekki síst í nýja hverfinu, Vall- arheiði á Keflavíkurflugvelli, og í nýju hverfunum í Innri-Njarðvík. Á Vallarheiði var í fyrra opnaður nýr skóli fyrir yngstu börnin á vegum Hjallastefnunnar og Akurskóli í Tjarnahverfi í Innri-Njarðvík er byggður upp smám saman. Þar eru börn úr nýju hverfunum í fyrsta til áttunda bekk og einn árgangur bæt- ist við næsta haust. Tveir elstu ár- gangarnir eru enn í Njarðvíkur- skóla. „Þetta hefur gengið merkilega vel,“ segir Eiríkur þegar hann er spurður að því hvernig gengið hafi að taka við þessum mikla fjölda. Hann segir að mesta fjölgunin hafi verið í Njarðvíkurskóla og þar sé kennt í hverjum krók og kima. Reiknað er með að álagið í Njarð- víkurskóla jafnist út á næstu tveimur árum, að sögn Láru Guðmundsdótt- ur skólastjóra. Er það vegna þess að útlit er fyrir að lítill árgangur hefji nám við skólann í haust í stað stórs tíunda bekkjar og vegna þess að Ak- urskóli tekur smám saman við öllum börnum úr hverfunum í Innri-Njarð- vík. Lára segir að vissulega skapi það erfiðleika hvað fjölgað hafi skyndi- lega. „Sem betur fer hefur þetta gengið ágætlega. Við erum með frá- bært starfsfólk sem hefur tekið á móti krökkunum og lætur þetta ganga,“ segir Lára. Lára hefur tekið eftir því að tölu- vert af nýju börnunum kemur frá út- löndum. Í mörgum tilvikum eru for- eldrarnir að koma heim úr námi og velja að setjast að í nýjum hverfum Reykjanesbæjar eða í stúdentaíbúð- um á Vallarheiði. Þetta er gjarnan ungt fjölskyldufólk. Vegna fjölgunar nemenda hefur starfsfólki verið fjölgað. Þannig hafa bæst við um tuttugu kennarar. Ei- ríkur segir að þrátt fyrir það hafi tekist að halda svipuðu hlutfalli fag- menntaðs fólk og áður, um 85%. Vissulega hafi einnig komið ungir og óreyndir leiðbeinendur til aðstoðar. Fjölgar um 160 börn í grunnskólum bæjarins Í púlti Tveir nemendur Njarðvíkur- skóla kynna Snorra Sturluson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.