Morgunblaðið - 01.02.2008, Side 30

Morgunblaðið - 01.02.2008, Side 30
30 FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN BLEKIÐ var ekki þornað á samningnum við Ólaf F. Magnússon þegar forystumenn Sjálfstæð- isflokksins í borginni höfðu svikið hann í flugvallarmálinu. Aðalbaráttumál Ólafs og F- listans var að flugvöllurinn yrði áfram í Vatnsmýrinni. Á það benti hann þráfaldlega er hann var spurð- ur um meirihlutaslitin og rökin fyrir samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn Á fundi sjálfstæðismanna á Hótel Sögu sl. laugardag lýstu borg- arfulltrúar flokksins því hins vegar yfir að þetta með flugvöllinn væri allt í plati. „Það er mín eindregna skoðun að það eigi að byggja í Vatnsmýrinni og þar á að vera íbúðabyggð til framtíðar,“ sagði Gísli Marteinn Baldursson og aðrir borgarfulltrúar fylgdu eftir. Sér eru nú hver heil- indin. Þau gátu sýnt nærgætni Ólafur F. Magnússon hefur lagt mikið undir en situr nú fastur í svikamyllu Sjálfstæðisflokksins. Hvers vegna þurftu sjálfstæð- ismenn að ganga á bak orða sinna strax á öðrum degi með þessum yf- irlýsingum? Þeim er greinilega ekk- ert heilagt. Svardagarnir við Ólaf virtust ekki koma borgarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins neitt við. Mér finnst þessi framkoma for- ystumanna Sjálfstæðisflokksins gagnvart Ólafi með eindæmum. Þau gátu að minnsta kosti sýnt þá nær- gætni að bíða með að opinbera pretti sína við Ólaf uns öldurnar lægði vegna makalausra vinnubragða við meiri- hlutamyndunina. Höfuðborg- arflugvöllur í Vatnsmýrinni Ég á samleið með miklum meirihluta Reykvíkinga sem vilja axla ábyrgð höf- uðborgar og hafa inn- anlandsflugvöllinn áfram í Vatnsmýrinni. Ný skoðanakönnun sýnir að yfir 60% borg- arbúa vilja hafa flug- völlinn þar áfram. Það eru nóg verkefni óunn- in í samgöngumálum þó að ekki sé farið að kasta tugum milljarða króna í nýjan flugvöll að óþörfu. Það má vera að menn telji sig hafa þessa tug- milljarða til umráða, sem nýr völlur kostar. Er þá ekki réttari forgangsröðun að hækka laun hjúkrunarfólks og kennara í leik- og grunnskólum sem nú eru í fjár- svelti? Ætli þjóðin vilji ekki heldur að þessir fjármunir renni til velferð- arkerfisins og höfuðborgarflugvöll- urinn standi óhreyfður áfram? Mál allra landsmanna Flugvöllurinn í höfuðborg þjóð- arinnar hefur grundvallarþýðingu fyrir öryggi og skipu- lag samgangna í land- inu. Tilvera hans og staðsetning kemur því landsmönnum öll- um við. Ég geri mér grein fyrir að skoðanir eru skiptar um málið en mér vitanlega hefur enginn stjórn- málaflokkur gert um það samþykkt að flugvöllurinn fari úr Vatnsmýrinni eða frá Reykjavík. Gildir það jafnt um flokks- félögin í Reykjavík sem og landsfundi einstakra stjórn- málaflokka. Þvert á móti liggja fyrir samþykktir og fjöldi áskorana félaga um land allt að flug- völlurinn verði áfram í Vatnsmýrinni. Að mínu mati eru því engar pólitískar forsendur til staðar fyrir því að ýta flug- vellinum út úr Vatns- mýrinni í Reykjavík né heldur sem réttlæta það að láta vinna nýtt skipulag fyrir svæðið án þess að flugvöllurinn sé þar inni. Samkvæmt núgildandi sam- gönguáætlun sem Alþingi hefur samþykkt er flugvöllurinn áfram í Vatnsmýrinni. Prettir Sjálfstæðisflokksins í flugvallarmálinu Jón Bjarnason vill hafa innanlandsflugvöllinn áfram í Vatnsmýrinni Jón Bjarnason »Ég á samleið með miklum meirihluta Reykvíkinga sem vilja axla ábyrgð höf- uðborgar og hafa innan- landsflugvöllinn áfram í Vatns- mýrinni. Höfundur er þingmaður Vinstri grænna. Bréf til blaðsins Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík  Bréf til blaðsins | mbl.is ÞEGAR líður að námslokum og farið er að huga að atvinnuleit vakna upp margar spurningar um það hvernig skal finna draumastarfið og hvað stendur okk- ur til boða og þá er oft erfitt að finna svör. Hvernig finnum við þann vettvang sem okk- ur langar helst að vinna á? Hvaða eiginleikum sækj- ast fyrirtæki eftir í framtíðarstarfs- mönnum? Hversu mikilvægt er að geta sýnt fram á reynslu og árangur? Hvað hefur vinnumarkaðurinn að bjóða okkur stúdentum? Þú getur náð forskoti við leitina að atvinnu og áframhaldandi námi með því að mæta á Framadaga 2008. Þar geturðu leitað svara við þessum og öðrum spurningum sem þú kannt að hafa um fyrirtækin á atvinnumark- aðnum og fleira. Því langar mig að bjóða þér á Framadaga sem haldnir verða í Háskólabíó í dag, 1. febrúar, kl.11-17. Þar munu helstu fyrirtæki atvinnulífsins kynna starfsemi sína fyrir þér og öðrum nemendum víðs- vegar af landinu. Á Framadögum getur þú:  kynnst því hvaða tækifæri at- vinnulífið býður upp á að námi loknu,  fundið þér framtíðarstarf eða sumarstarf,  kynnst fulltrúum helstu fyr- irtækja á vinnumarkaðnum,  komist í samband við fyrirtæki sem vilja láta vinna lokaverkefni fyrir sig,  skoðað kosti um áframhaldandi nám,  komið þér og þínum hugmyndum á framfæri. Þú getur nálgast frekari upplýs- ingar um Framadaga á www.frama- dagar.is. FREYJA ODDSDÓTTIR, aðstoðarframkvæmdastjóri Framadaga 2008. Kæri námsmaður Frá Freyju Oddsdóttur Freyja Oddsdóttir GUNNAR Ársælsson ritar grein í Mbl. 18. jan. sl. og er ekki sáttur við umfjöllun mína um grein hans þar frá 5. jan. en grein mín birtist í Mbl. 7. jan. Allar þessar greinar fjalla um ástandið í Kosovo. Ekki þykir mér þessi síðari grein Gunnars taka þeirri fyrri fram þó sumt í henni sé ásætt- anlegt. Hann tekur nokkrum sinnum fram að rétt skuli vera rétt. En tilhneiging hans til að fara framhjá þeirri reglu opinberast strax í því að hann getur ekki einu sinni farið rétt með nafnið mitt. Auk þess kýs hann greinilega að misskilja það sem ég skrifaði í veigamiklum atriðum. Ég hef gagnrýnt harðlega þá einstefnu áróðurs sem beitt var gegn Serbum í sambandi við stríðið á Balkanskaga og tel það aldrei vænlegt til að skapa frið að einn aðili sé fordæmdur í öllu en hinir sleppi meira eða minna. Það virtist sem Serbar væru varla taldir til manna í fjölmiðlum á tímabili svo hart var áróð- ursstríðið gegn þeim og bentu ýmsir góðgjarnir menn á að þvílíkar fjölmiðlaofsóknir yrðu bara til þess að auka vandann sem og varð. Í seinni tíð hefur þó skynsemin kom- ist nokkuð að og nú er viðurkennt af flestum að allir stríðsaðilar hafi fram- ið mikil voðaverk. Það eru því gamlar lummur ef menn vilja hanga enn á því að Serbar hafi einir verið sekir. Gunnar játar hinsvegar í þessari seinni grein sinni að allir aðilar stríðs- ins hafi framið hryllileg hermdarverk og það er vissulega framför hjá hon- um, en hann stillir sig ekki um að bæta því við að Serbar hafi þó verið verstir. Ég veit ekki hvort sá er endi- lega verri sem drepur 100 menn en sá sem drepur 50. Það er ekki kjarni málsins. Sá sem drap 50 hefði kannski drepið 150 hefði hann fengið færi á því. Aðalatriðið er að við- urkenna að þeir séu sekir sem sekir eru og dæma alla eftir sama mæli- kvarða – ekki einn í útskúfun og sýkna aðra sem sekir eru um hlið- stæða glæpi. Ég vil líka undirstrika það, að ef Albanir fá sjálfstæði í Kosovo og seinna meir verði svo héraðið sam- einað Albaníu, eins og Gunnar nefnir sem möguleika, þá hljóta að opnast mjög var- hugaverðir landvinn- ingamöguleikar um alla Evrópu. Tyrkneskir inn- flytjendur gætu til dæmis eignast Þýska- land með tímanum o.s.frv. Gunnar segir að flest bendi til þess að Albanir séu uppruna- legir íbúar Kosovo og Serbar hafi komið þangað mun síðar. Ég kannast ekki við þessa söguskýringu og veit ekki til þess að albanskt ríkisvald hafi nokkurntíma verið við lýði í Kosovo. Hygg ég að Gunnar segi þarna of mikið með tilliti til þess að rétt skuli vera rétt. Í fyrri grein sinni virtist Gunnar setja Tító upp sem einhverskonar vörslu- mann serbneskra þjóðarhagsmuna. Ég benti því á að Tító hefði verið Kró- ati og alla tíð reynt að draga úr áhrif- um Serba í ríkinu og þjóðerni hans skiptir auðvitað heilmiklu máli þegar reynt er að skilja hvernig hann hélt á málum. Martti Athisaari er ef til vill á því að Albanir eigi að fá sjálfstæði í Kos- ovo, en hvað ef Samar í Finnlandi krefðust sjálfstæðis, skyldi honum verða sama um það? Af hverju fá Baskar ekki sjálfstæði á Spáni eða Flæmingjar í Belgíu o.s.frv.? Hvernig yrðu ríkisheildir Evrópu leiknar ef öll þjóðabrot heimtuðu sjálfstæði? Það er áreiðanlega mikill skoð- anamunur á milli okkar Gunnars Ár- sælssonar. Hann er eftir því sem ég best veit Evrópusambandssinni, en ég íslenskur sjálfstæðissinni, hann er líklega fjölmenningarsinni en ég er alfarið á móti fjölmenningu. Í fyrri grein sinni fordæmir hann ríkja- sambandið Júgóslavíu sem hann telur hafa verið vonlausa tilraun til að bræða saman ólíkar þjóðir í einu ríki. Sú tilraun hafi m.a. leitt til vandamál- anna í Kosovo. En er þetta ekki ein- mitt það sem fjölmenningin snýst um, að safna allskonar ósamhæfu liði saman og segja því að allir eigi að vera vinir þó allt stefni með því móti í bullandi ágreining? Það mun alls staðar leiða til viðlíkra vandamála og á Balkanskaga því þjóðlegar rætur manna verða ekki skornar þeim úr brjósti og sumir eiga bara ekki sam- leið. Gunnar ásakar Serba réttilega fyr- ir þjóðernishreinsanir, en Króatar stunduðu þær líka og Gunnar segir sjálfur að 75% Serba í Kosovo hafi verið hraktir þaðan á brott og slíkt er auðvitað þjóðernishreinsun. Ég segi enn og aftur, látum sama mælikvarða gilda gagnvart öllum þessum aðilum. Segjum ekki eins og sagt var í Bretlandi þegar krafist var framsals Pinochets: „Jú, maðurinn er óþokki, en það verður að hlífa honum af því að hann er okkar óþokki!“ Ég segi óþokki er óþokki og leiðin til samninga liggur í gegnum það sjón- armið að allir fái að sitja við sama borð þegar unnið er að lausn mála. Ég vara við afleiðingum þess að Kosovo fái fullt einhliða sjálfstæði, en það er engin niðurstaða miðað við þann veruleika sem Evrópuríkin búa við og gæti valdið gífurlegri upplausn um alla álfuna. Að vara við í því sam- bandi er því ekki dæmi um aft- urhaldssemi heldur framsýni með til- liti til raunverulegrar ógnar sem gæti skapast og valdið miklum hörm- ungum. Enn um málefni Kosovo Rúnar Kristjánsson svarar Gunnari Ársælssyni »Ég segi enn og aftur, lát- um sama mæli- kvarða gilda gagnvart öllum þessum aðilum. Rúnar Kristjánsson Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd. STJÓRNMÁL á Íslandi hafa lifað eina af sínum verstu vikum og víst er að við framsóknarmenn höfum þar ekki farið varhluta af ómálefnalegri og rætinni umræðu. Umræðu sem kemur stjórnmálum í raun og veru ekki við. Flest var þar að vonum ef frá er talin þátttaka nokkurra kjör- inna þingmanna í sjónarspili sem í reynd var langt fyrir neðan þeirra virðingu. Skrif hæstvirts byggðamálaráð- herra Össurar Skarphéðinssonar komu ekki stórlega á óvart enda varðveitir hann sína unglingslegu uppreisn- arsál með næturbloggi sínu og slettir þá jafnt á eigið stjórnarráð og annarra verk. Vita- skuld eru fullyrðingar hans um að vinnubrögð örfárra framsókn- armanna í Reykjavík séu á ábyrgð Fram- sóknarflokksins ekki svaraverð og sambæri- leg sumu því versta sem birtist hér í síðdegispressu. En fyrr hélt ég að fiskar gengju á land en ég sæi dómsmálaráðherra Björn Bjarnason skipa sér í þennan flokk með umræðu um fatamál Framsóknarflokksins. Björn hefur í senn verið og er í mínum huga einn besti ráðherra ríkisstjórnarinnar og í röð fremstu bloggara landsins. Það er því með miklum ólíkindum að lesa inni á síðu dómsmálaráðherrans í pistli 19. janúar að hann telji endem- isumræðu Guðjóns Ólafs Jónssonar sýna að Framsóknarflokkurinn eigi ekki lengur pólitískt erindi á Íslandi. Í framhaldi af því rifjar ráðherrann upp öll ummæli helstu leikenda í Reykjavík, þeirra Guðjóns, Björns Inga og Önnu Kristinsdóttur. Með myndskreytingum gæti pistillinn sómt sér vel á síðum Séð og heyrt en stingur í stúf á hinni um margt góðu heimasíðu ráðherrans. Í pistlinum 19. janúar vitnar Björn í áramótapistil um pólitíkina þar sem hann ræðir um meint erindisleysi Framsóknarflokksins í stjórnmálum. Öll er sú umræðu lituð af sárindum vegna meirihlutasamstarfs í Reykja- vík sem sprakk á síðasta ári. Hvergi er vikið að málefnaafstöðu flokksins á landsvísu. Með sömu rökum mætti taka undir með æstum sósíalistum sem segja atburði síðustu daga í borgarmálum sanna að Sjálfstæð- isflokkurinn í heild sé ómerkileg valdaklíka. Kannski er hægt að rökstyðja það en gjörðir einnar sveit- arstjórnar í landinu sanna ekkert né af- sanna í þeim efnum. Sjálfstæðisflokkurinn er stærri en svo. Sá sem hér skrifar hefur margoft skrifað um hugsjónir Fram- sóknarflokksins, skilin milli stjórnmálaflokk- anna á Íslandi og nauð- synlegt hlutverk fram- sóknarmanna í þeirri mynd. Miðjuflokkarnir á Íslandi eru tveir, Framsóknarflokkur og Sam- fylking. Framsókn er ábyrgt stjórn- málaafl með þjóðlega taug og tengsl við bæði landsbyggðina og atvinnu- lífið í landinu. Björn Bjarnason og fé- lagar hans í Sjálfstæðisflokki komast nú að því fullkeyptu að allt þetta eru eiginleikar sem skortir á í Samfylk- ingunni þar sem tengsl þess flokks við atvinnulífið eru jafnvel minni en var í gamla Alþýðubandalaginu. Ekk- ert er nú gert í efnahagsmálum í samstarfi Sjálfstæðisflokks og Sam- fylkingar og það eitt sýnir þá þörf sem er fyrir ábyrgan og traustan miðjuflokk. Tímabundin fylgislægð er ekki dauðadómur í lífi Framsókn- arflokksins. Framsóknarflokki verður ekki skákað út úr þessari mynd með um- ræðu um fatareikninga og það jaðrar við pólitíska lágkúru að notast við slíkan málflutning. Það er nöturlegt að jafnvel ráðherrar annarra flokka skuli að þarflausu óhreinka sig hér á þarflítilli fataumræðu. Ráðherrar og fatapólitík Bjarni Harðarson segir pólitíska umræðu hafa verið ómálefnalega og rætna að ndanförnu » Fyrr hélt ég að fiskar gengju á land en ég sæi dómsmála- ráðherra Björn Bjarna- son skipa sér í þennan flokk með umræðu um fatamál Framsóknar- flokksins. Bjarni Harðarson Höfundur er alþingismaður.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.