Morgunblaðið - 01.02.2008, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 01.02.2008, Qupperneq 32
32 FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Þórdís TinnaAðalsteinsdóttir fæddist í Reykjavík 10. desember 1968. Hún lést á Landspít- alanum 21. janúar síðastliðinn. For- eldrar hennar eru hjónin Kolbrún Þór- isdóttir frá Ak- ureyri, f. 15. júní 1929, og Aðalsteinn Gunnarsson frá Ísa- firði, f. 12. nóv- ember 1930. Bróðir Þórdísar Tinnu er Þorsteinn Gunnar, f. 20. maí 1961. Dóttir Þórdísar Tinnu og Krist- jáns Gissurarsonar, f. 6. júní 1953, er Kolbrún Ragnheiður, f. 24. október 1998. Þórdís Tinna átti alla tíð lög- heimili í Hafnarfirði en að auki bjó hún um skamma hríð í Kópa- vogi og á Selfossi. Hún gekk í Öldu- túnsskóla og lauk þaðan hefðbundnu skyldunámi. Eftir það lá leiðin í Flens- borgarskóla og síð- an út á vinnumark- aðinn. Stærstan hluta starfsævinnar vann hún við hin ýmsu störf í veit- ingageiranum, t.d. á Borginni, Hressó, Kringlukránni og um árabil á Prikinu í Bankastræti. Þegar hún lét af störfum af heilsufarsástæðum var hún starfsmaður heildverslunar- innar Sportís í Austurhrauni í Garðabæ. Útför Þórdísar Tinnu verður gerð frá Víðistaðakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Elsku Didda systir. Það er sárt að sakna en ekkert er sárara en að elska og sakna. Við vorum flott saman. Svo lík hvort öðru en samt svo ólík. Svo sammála en samt svo ósammála. En elskan og virðingin var gegnheil og gagnkvæm. Hvað sem á dundi. Í blíðu og í stríðu. Alltaf. Við lifum og við deyjum. Enginn fær þau örlög flúið. Keppnin á milli vonarinnar og óttans var aldrei harðari. Sagt er að góðir keppn- ismenn verði að kunna að viður- kenna ósigur. Líka þegar þeir berj- ast fyrir lífi sínu. Og það, eins og svo margt annað, gerðir þú með reisn. Það er hægt að lúta í lægra haldi en vera samt sigurvegari. Það varst þú. Hetjuleg barátta við ill- vígan sjúkdóm er nú að baki. Og einhvers staðar stendur skrifað að það sé jafnan dimmast undir dög- unina. Nú boðar nýr dagur komu sína, nýir tímar taka við. Við látum sorgina og mótlætið bara styrkja okkur og efla. Í anda hetjunnar. Í anda þínum. Við virkjum mótbyr- inn til góðra verka og minnumst þess styrks og æðruleysis sem þú sýndir þegar svartnættið var sem dimmast. Í hjörtum okkar mun ætíð bærast sá strengur sem tengir okkur við þig. Guð blessi lífs þíns brautir, þitt banastríð og þrautir og starfs þíns mark og mið. Við hugsum til þín hljóðir. Að hjarta sér vor móðir þig vefur fast og veitir frið. (Einar Ben.) Ég elska þig alltaf og bið algóð- an Guð að blessa þig og okkur öll sem eftir stöndum. Elsku besta uppáhaldsfrænkan mín, Kolbrún Ragnheiður. Þetta er svo sárt. Þetta er svo ósanngjarnt. Þetta er svo óréttlátt. Ég veit það. En því miður er tilveran víst oft þannig. Og við fullorðna fólkið botnum ekki neitt í neinu og hvað þá stór stelpa eins og þú. En nú er mamma farin til Guðs og englanna á himnum. Og í hvert sinn sem þú ferð með bænirnar þínar á kvöldin þá hlusta þau öll á þig. Og hvernig sem allt er og hvernig sem allt verður þá verður mamma þín hjá þér. Hvort sem er dagur eða nótt, sumar eða vetur, meðbyr eða mót- læti. Öllum stundum. Alltaf. Mundu það. Þorsteinn Gunnar (Steini bróðir). Hetjulegri baráttu er lokið. Þór- dís mín Tinna. Þórdís var fædd bróðurdóttir mín en ættleidd af góðum foreldr- um. Ég kynntist henni fyrst full- vaxta ungri konu. Það var eftir- minnileg stund. Bróðir minn, Kristján, leitaði eftir kynnum við hana en hún vildi fá að stjórna slíku sjálf og ráða tímasetningunni. Hún kæmi þegar hún væri tilbúin. Og það gerði hún einmitt. Ég sá hana koma gangandi við hlið bróð- ur míns. Eitt andartak fannst mér yngsta systir mín vera þarna á ferðinni, þvínæst miðsystir mín og svo var mér allri lokið er ég sá svip af sjálfri mér. Þarna fór þá Þórdís með eigið fas og persónu- leika. Þetta er góð stund í end- urminningunni. Ég bjó í nokkur ár í Kaupmannahöfn fyrst í íbúð bróður míns og síðar bjuggum við hvort í sinni íbúðinni í sama húsi. Þangað kom Þórdís með Kolbrúnu dóttur sína. Þessar heimsóknir þeirra mæðgna styrktu tengslin við okkur. Eitt sumarið dvöldu þær hjá bróður mínum í nokkrar vikur og húsið varð að eins konar stórfjölskyldusambýli. Þetta var eitt af þessum indælu dönsku sumrum með sól og hita og garð- veislum. Morgunkaffið drukkið úti í sólinni undir gamla eplatrénu um helgar. Stundum vorum við Þórdís bara tvær um morgunkaffið og nutum félagsskapar hvor annarrar. Á kvöldin grillaði svo stórfjölskyld- an gjarnan saman. Þetta var góður tími sem allir nutu vel. Þegar Þórdís greindist með krabbamein var ég nýflutt til Ís- lands. Við áttum oft góðar stundir þar sem við ræddum mátt bæn- arinnar og dauðann. En við rædd- um líka lífið og tilveruna og smá- vægilegri hluti líðandi stundar. Eitt sinn spurði ég hana hvort það hefði reynst henni erfitt að vera ættleidd. Hún sagði svo ekki vera. Þvert á móti væri dásamlegt að eiga tvær svona góðar fjölskyldur. Þetta jákvæða svar var einkenn- andi fyrir lífsviðhorf hennar. Hún tókst á við ótímabær veikindin af mikill djörfung og kjarki. Eitt það síðasta sem hún sagði við mig var að hún væri svo þakklát. Þegar ég spurði „fyrir hvað Þórdís mín?“ svaraði hún: „Fyrir það að æxlið í heilanum hefur ekki gert mig árás- argjarna og erfiða, það hefði verið svo hræðilegt fyrir hana Kolbrúnu litlu.“ Hugurinn er hjá ykkur, elsku Kolbrún, Sigrún Lilja og Benedikt, á þessum erfiða tíma. Öldruðum foreldrum og bróður Þórdísar sendi ég innilegar samúðarkveðjur. Guðrún Svava Svavarsdóttir. Elsku Þórdís Tinnan mín. Elsku fallega frænkan mín. Nú ertu far- in, farin í langt langt ferðalag, far- in á nýjar ókunnar slóðir. Þar muntu finna loksins frið, frið í þína fallegu sál, finna frið í þínu fallega hjarta. Svo ertu laus við þetta ljóta ljóta krabbamein sem illa fór með þig, en nú líður þér betur og nú finnur þú ekki svona til. Þú skildir eftir þig yndislegan fallegan demant, hana litlu Kol- brúnu Ragnheiði sem mun minnast mömmu sinnar með bros í hjarta og gleði, fallegar minningar sem munu verða henni mjög dýrmætar. Hún fékk mikið og gott veganesti frá sinni góðu elskandi móður og það mun fylgja henni, veita henni styrk um aldur og ævi. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka Guði sé lof fyrir fyrir liðna tíð. Margs er að minnast margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt, gekkst þú með Guði. Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. Grátnir til grafar, göngum vér nú héðan, fylgjum þér, vinur, far vel á braut. Guðs oss það gefi, glaðir vér megum þér síðar fylgja í friðarskaut. (Valdimar Briem) Elsku Kolbrún Ragnheiður, for- eldrar Þórdísar Tinnu, systkini og aðrir ættingjar og ástvinir. Við sendum ykkur okkar dýpstu sam- úð vegna fráfalls okkar elskulegu Þórdísar Tinnu og megi Guð og guðsenglar yfir ykkur vaka, Þórdís Tinna Aðalsteinsdóttir Ég skrifa þessi orð til þín, þú sem ert núna uppi. Ég vildi ekki trúa því, en tími þinn var kominn, líkami þinn var þreyttur og andi þinn uppgefinn. Ég get ekki gert neitt nema grátið, áður en við gátum litið við var þessu lokið, andi þinn var farinn og tárin byrjuðu að flæða, radd- ir okkar urðu hásar og daprar. Allt gerðist svo fljótt, eins og blað- síðu hefði verið flett snögglega, kannski vildirðu fá hvítan kodda, vildir hvíla þig um alla eilífð. Ég mun aldrei finna orðin til að lýsa þér, hver þú varst, allt sem þú gerðir fyrir mig, hvernig við sáum þig, hvern- ig ég elskaði þig. Þú átt alltaf stað í hjarta mínu, þú ert þar til að þerra tár- in mín, kveðjuorð og milljónir vasa- Eðvald Gunnlaugsson ✝ Eðvald Gunn-laugsson fædd- ist á Siglufirði 31. ágúst 1923. Hann lést í Reykjavík 5. nóvember síðastlið- inn og var útför hans gerð frá Foss- vogskirkju 12. nóv- ember. klúta af því að þú varst einstakur maður. Því miður sjáumst við ekki aftur í þessu lífi, en minning þín lifir í hjörtum okkar, ég veit þú heyrir í mér, ég elska þig svo mikið. Ég tala fyrir alla sem elskuðu þig, ég vil ekki trúa að þú sért farinn, því þú áttir ekki að fara … Ég þarf tíma til að venjast þessu, þessu tómarúmi sem aldrei mun fyllast. Þegar ég kem aftur til þessa ískalda lands mun brosið þitt ekki lengur hlýja mér, mun enginn kalla mig „Dodo“, sterka röddin þín horfin og dillandi hláturinn. Mikið sakna ég þín. Aðeins þögnin dvelur í hugsunum mínum, þótt enginn megi sjá það. Í dag ertu hinum megin og ég veit að þú munt passa upp á okkur, ég veit að þú vakir yfir okkur nótt sem dag að eilífu. Paradís opnaði dyr sínar fyrir þér og vængir þínir hófu þig til flugs svo þú mættir anda. Þín alltaf, Dodo. Þórdís Þórsdóttir. ✝ Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna fráfalls og jarðar- farar ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÞÓREYJAR JÓNSDÓTTUR, Dalbæ, Dalvík, áður Gilsbakka á Hauganesi. Sérstakar þakkir til starfsfólks Dalbæjar fyrir ein- staka umönnun. Margrét Soffía Kristjánsdóttir, Gunnar Jakobsson, Jón Stefán Kristjánsson, Kolbrún Kristjánsdóttir, Dagmar Kristjánsdóttir, Hallgrímur Hreiðarsson, Þorvaldur Eyfjörð Kristjánsson, Helena Ragna Frímannsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, RAGNHEIÐUR HERA GÍSLADÓTTIR, andaðist á Hrafnistu í Hafnarfirði þriðjudaginn 29. janúar. Jarðarförin verður auglýst síðar. Sigurður Sigurðsson, Steiney Halldórsdóttir, Hrönn Sigurðardóttir, Sigurjón G. Sigurðsson, Sigrún Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur faðir minn, sonur okkar og bróðir, HAUKUR GÍSLASON, Kolbeinsgötu 5, Vopnafirði, er látinn. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Hjörtur Hauksson, Jóhanna Aðalsteinsdóttir, Guðni Ásgrímsson, systkini og aðrir aðstandendur hins látna. ✝ Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, stjúpfaðir, afi og langafi, JÓN BJÖRGVIN RÖGNVALDSSON, fyrrverandi hafnarvörður, lést á Hjúkrunarheimilinu Garðvangi, Garði, miðvikudaginn 30. janúar. Jarðarförin verður auglýst síðar. Hrafnhildur Jónsdóttir, Kristján Fredriksen, Kristín S. Jónsdóttir, Guðbjörn Garðarsson, Ragnhildur Skjaldar, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskuleg móðir mín og tengdamamma, amma og langamma, BRYNDÍS JÓNSDÓTTIR frá Siglufirði, lést á Heilbrigðisstofnuninni á Siglufirði miðviku- daginn 30. janúar. Útförin auglýst síðar. Gunnar Trausti Guðbjörnsson, Halldóra Jónasdóttir, Edda Rósa Gunnarsdóttir, David Jarron, Bettý Gunnarsdóttir, Óðinn Gústavsson, Adam Jarron, Andri Jarron, Arna Mjöll Óðinsdóttir, Freyja Óðinsdóttir, Embla Óðinsdóttir. ✝ Elskuleg systir, mágkona og frænka, LILJA JÓNSDÓTTIR frá Ásmúla, er látin. Dagbjört Jónsdóttir, María Guðbjartsdóttir og systkinabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.