Morgunblaðið - 01.02.2008, Side 39

Morgunblaðið - 01.02.2008, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2008 39 árnað heilla ritstjorn@mbl.is Félagsstarf Aflagrandi 40 | Leikfimi kl. 8.30, vinnustofa kl. 9- 16.30, verslunarferð í Bónus kl. 10, stórbingó kl. 14, söngstund við píanóið kl. 15.30. Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla, böðun, handa- vinna, morgunkaffi/dagblöð, fótaaðgerðir, hádeg- isverður, frjálst að spila, kaffi. 5. febrúar verður far- ið á Revíu í Iðnó kl. 14. Rútuferð frá Bólstaðarhlíð kl. 13.10. Miðaverð 2.500 kr., rútugjald 500 kr. Skráning í s. 535 2760. Dalbraut 18-20 | Vinnustofa í handmennt opin kl. 9-16 með leiðb. annan hvorn föstudag kl. 13-16. Félag kennara á eftirlaunum | Fræðslu- og skemmtifundur verður 2. febrúar kl. 13.30, í Ás- garði, sal FEB í Stangarhyl 4. Félagsheimilið Gjábakki | Boccia og málm- og silf- ursmíði kl. 9.30, jóga kl. 10.50, hádegisverður, kaffi á könnunni til kl. 16, og félagsvist kl. 20.30. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Vatnsleikfimi kl. 12, félagsvist og ullarþæfingarklúbbur kl. 13. Munið aðalfund félags eldri borgara í Garðabæ 2. febrúar í Jónshúsi kl. 14-16, kaffiveitingar. Félagsstarf Gerðubergs | Vinnustofur opnar, m.a. bókband kl. 9-16.30, prjónakaffi/Bragakaffi kl. 10, leikfimi í ÍR-heimilinu við Skógarsel kl. 10.30, kaffi og spjall, spilasalur opinn frá hádegi, Herdís Jónsd. hjúkrunarfræðingur kl. 13, kóræfing kl. 14. 20. Kirkjustarf Aðventkirkjan á Suðurnesjum | Biblíurannsókn kl. 11, í safnaðarheimili okkar á Blikabraut 2, Rnb. 2. febrúar. Súpa og brauð að samkomu lokinni. Aðventkirkjan í Árnesi | Dagskrá fyrir börn og Biblíurannsókn hefst kl. 10. Jeffrey Bogans talar í guðþjónustunni sem hefst kl. 11, á Eyravegi 67, Sel- fossi. Aðventkirkjan í Reykjavík | Biblíurannsókn í kirkj- unni 2. feb. kl. 11, umræðuhópur á ensku auk barna- og unglingastarfs, fjölskylduguðþjónusta kl. 12 í umsjón hjónanna Indro Candi og Hebu Magnús- dóttur. Aðventkirkjan í Vestmannaeyjum | Prestur kirkj- unnar, séra Eric Guðmundsson, leiðir Biblíurann- sókn 2. feb. kl. 10.30 og guðþjónustu kl. 11.30. Aðventsöfnuðurinn í Hafnarfirði | Samverustund í kirkjunni 2. feb. kl. 11, í Hólshrauni 3. Sungið og hlustað á hugvekju Stefáns Rafns Stefánssonar, biblíurannsókn, dagskrá fyrir börnin, súpa og brauð að stundinni lokinni. Breiðholtskirkja | Foreldramorgunn kl. 10-12. Hallgrímskirkja | Starf fyrir eldri borgara kl. 11-14, leikfimi, súpa, kaffi og spjall. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Lofgjörðarhópur kl. 20, kirkja unga fólksins leiðir lofgjörð. Uppl. á www.filo.is. Furugerði 1, félagsstarf | Aðst. við böðun, smíðar og útskurður kl. 9, myndbandssýning kl. 13.30, sýnd verður íslenska myndin „Magnús“, kaffi kl. 15. Hraunbær 105 | Kaffi, blöðin og spjall kl. 9, handa- vinna kl. 9, stafganga kl. 10, hádegismatur, þorra- bingó kl. 14, veglegir vinningar og kaffihlaðborð á aðeins 300 kr, bókabíllinn kl. 14.45. ATH.: Þorra- blóti aflýst. Hraunsel | Morgunrabb kl. 9, leikfimi kl. 11.30, brids kl. 13, boccia kl. 13.30. Hvassaleiti 56-58 | Frjáls aðgangur að opinni vinnustofu kl. 9, postulínsmálning. Jóga kl. 9-11, Björg F. Böðun fyrir hádegi, hádegisverður, hár- snyrting. Hæðargarður 31 | Tölvuleiðbeiningar í dag og á fimmtud. kl. 13.15. Þorrablót 1. feb. Veislustjóri: Guðni Ágústsson. Lögreglukórinn syngur o.fl. Miðar seldir í eldhúsinu. Uppl. í s. 568 3132. Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Morgunkaffi – blaða- klúbbur kl. 10, leikfimi kl. 11, opið hús og spilað á spil kl. 13, kaffiveitingar. Norðurbrún 1 | Smíðastofa og handavinnustofa eru opnar kl. 9. Myndlist kl. 9, leikfimi kl. 13. Hár- greiðslustofa, s. 588 1288. Fótaaðgerðarstofa, s. 568 3838. Vesturgata 7 | Hárgreiðsla og fótaaðgerðir, handa- vinna, spænska – byrjendur, hádegisverður, sungið við flygilinn, kaffiveitingar og dansað í Aðalsal. 60ára afmæli. Á morgun,laugardaginn 2. febr- úar, verður Birgir Jóhannes- son sextugur. Hann og eigin- kona hans Kristín Svavars- dóttir taka á móti ættingjum og vinum í félagsheimilinu Garðaholti, Garðabæ, frá kl. 18 til kl. 21 á afmælisdaginn með léttum veitingum. Söfnun | Vinkonurnar Sólrún Liza Guðmundsdóttir og Inga Lilja Ásgeirs- dóttir, sem eru 7 ára og eiga heima á Álftanesi, söfnuðu peningum fyrir ABC- barnahjálp með því að ganga í hús og syngja lag sem þær höfðu samið sjálfar. Söfnuðust 6.166 kr. sem þær fóru með á skrifstofu ABC og er myndin tekin við það tækifæri. Peningarnir munu nýtast við uppbyggingu í Úganda í Afríku. dagbók Í dag er föstudagur 1. febrúar, 32. dagur ársins 2008 Orð dagsins: Nýtt boðorð gef ég yður, að þér elskið hver annan. Eins og ég hef elskað yður, skuluð þér einnig elska hver annan. (Jóh. 13, 34.) Tiina Rosenberg, prófessor viðHáskólann í Lundi, heldurfyrirlestur í stofu 101 í Odda ídag kl. 12.15. Fyrirlesturinn er sá fyrsti í röðinni Með hinsegin aug- um, en í tilefni af 30 ára afmæli sínu hafa Samtökin ‘78, í samstarfi við ýms- ar stofnanir HÍ, fengið til liðs við sig fræðimenn sem bregða munu upp hin- segin gleraugum á heiminn. Þorvaldur Kristinsson er einn af skipuleggjendum dagskrárinnar, en þetta er í þriðja sinn sem Samtökin ’78 efna til fyrirlestraraðar af þessu tagi: „Fyrirlestrarnir hafa notið óvenjumik- illa vinsælda, og vonandi tekst okkur hér að skapa hefð í samstarfi við fræða- samfélagið,“ segir Þorvaldur. „Margar mikilvægustu framfarir í mannrétt- indamálum samkynhneigðra tengjast beinlínis framlagi fræða og rannsókna, og eiga stofnanir HÍ og aðrir sam- starfsaðilar þakkir skildar fyrir stuðn- ing sinn við framtak okkar.“ Erindi sitt kallar Tiina A Queer Feminism – The Lesbian Feminist Heritage in Queer Studies: „Þar lýsir hún sýn sinni á þróun hinsegin fræða frá 1990, og hvernig fræðigreinin hefur á gagnrýninn hátt svipt hulunni af valdbeitingu gagnkynhneigðarinnar,“ útskýrir Þorvaldur. „Sérstaklega ætlar Tiina að skoða þá lesbísku og femínísku arfleið sem hinsegin fræði og hinsegin femínismi hafa þegið.“ Alls verða fluttir sex fyrirlestrar næstu mánuði. „Næstur er Björn Þor- steinsson heimspekingur, sem 15. febr- úar varpar fram þeirri spurningu hvort hægt sé að vera hinsegin innan sam- félagsgerðar sem breytir mótþróa jafn- óðum í stuðning við ríkjandi ástand,“ segir Þorvaldur. „Árni Heimir Ingólfs- son flytur erindi 29. febrúar um fjögur heimsfræg tónskáld og spyr hvort kyn- vitund þeirra endurspeglist í tónlistinni sem þau sköpuðu.“ Þann 14. mars ætlar Sigrún Svein- björnsdóttir að fjalla um gagnkyn- hneigðarviðmið í skólum, og 29. mars ræðir dr. Oliver Phillips um tengsl kyn- hneigðar, þjóðernisvitundar og mann- réttinda. „Loks mun Annadís Greta Rúdolfsdóttir flytja erindi 11. apríl, þar sem hún segir frá rannsóknum sínum á stuðnings- og sjálfshjálparbókum sem ætlaðar eru aðstandendum lesbía og homma,“ segir Þorvaldur að lokum. Upplýsingar á: www.samtokin78.is. Samfélag | Fyrirlestur um framlag femínisma til hinsegin fræða kl. 12.15 Með hinsegin augum  Þorvaldur Krist- insson er fæddur í Hrísey 19. júní 1950. Hann nam ís- lensku og almenna bókmenntafræði við HÍ og Háskól- ann í Kaupmanna- höfn og hefur í ald- arfjórðung starfað sem bókmenntaritstjóri, fyrst við ýmis forlög í Reykjavík, en nú sem sjálf- stæður ritstjóri og rithöfundur. Frá árinu 1982 hefur Þorvaldur starfað með hreyfingu samkynhneigðra á Ís- landi, hann hefur þrívegis gegnt for- mennsku í Samtökunum ’78, sinnt fræðastarfi og kennslu. Myndlist Gallerí Fold | Listmunauppboð Gallerís Foldar fer fram 3. febrúar á Hótel Sögu og hefst kl. 19. Hægt er að skoða verkin í Galleríi Fold við Rauðarárstíg 14 á föstu- dag kl. 10-18, laugardag kl. 11-17 og sunnudag kl. 12-17. Uppboðs- skrá á www.myndlist.is. Bækur Bóksala stúdenta | Sögur heilags Nikulásar, Marteins, Rochusar og Ágústínusar kirkjuföður og písl- arsögur Ólafs helga, Vitusar og Stefáns frumvottar og einsetu- mannanna Páls og Maurusar. Í bókarlok er svo sagan af fræg- asta syndara miðalda, Gregoríusi á klettinum. Sögurnar eru allar með nútímastafsetningu. 364 bls. Skemmtanir Vélsmiðjan Akureyri | Hljóm- sveitin Vítamín leikur fyrir dansi um helgina, á föstud. og laugard. Húsið opnar kl. 22, frítt inn til miðnættis. Fyrirlestrar og fundir Nafnfræðifélagið | Baldur Sig- urðsson, dósent við Kennarahá- skóla Íslands, flytur fyrirlestur á vegum Nafnfræðifélagsins 2. febrúar kl. 13.15 í Neshaga 16, 3. hæð. Fyrirlesturinn nefnist Nöfn og ónefni samkvæmt íslenskum mannanafnalögum. Í GÆR fór fram í Burgos á Norður-Spáni karnival er nefn- ist feitur fimmtudagur. Þetta barn var klætt upp sem kýr og virtist skemmta sér hið besta. Það má líkja feitum fimmtudegi við sprengidag og bolludag hjá okkur en þá eiga allir að borða eins og þeir geta í sig látið fyrir föstutímann. Krakki klæddur upp sem kýr Feitur fimmtudagur á Spáni Reuters FRÉTTIR NÝVERIÐ gerðu Lyfjafræðideild HÍ, Rannsóknastofnun um lyfja- mál (RUL) og Endurmenntun HÍ með sér samning til tveggja ára sem felur í sér samstarf um símenntun lyfjafræðinga og starfsfólks í lyfjaiðnaði. Meðal samstarfsverkefna er nýtt meistaranám í lyfja- skráningum. Námið er 12 einingar á meistarastigi og nær yfir þrjú misseri. Námið samanstendur af fjórum námskeiðum sem taka á meginviðfangsefnum lyfjaskráninga. Einnig eru í boði tvö styttri námskeið á vormisseri; náttúrulyf og þróun nýrra lyfja. RUL var stofnuð á síðasta ári, en stofnunin er sú fyrsta einbeitir sér að rannsóknum og úttektum á lyfjamálum. Markmiðið er að auka rannsóknir og fræðslu um lyfjanotkun og lyfjastefnu á Íslandi og í alþjóðlegu samhengi. Sérstök áhersla er lögð á rannsóknir er lúta að skynsamlegri ákvarðanatöku um lyfjanotkun, lyfjafaralds- fræði og lyfjahagfræði, segir í fréttatilkynningu. Samstarf um símenntun fólks í lyfjagreinum UNIFEM á Íslandi mun halda annan fundinn í fundaröðinni UNIFEM-umræðum næstkomandi laugardag, 2. febrúar. Markmið fundanna er að varpa ljósi á stöðu kvenna í þróunar- ríkjum og á stríðshrjáðum svæðum sem og að kynna starf UNIFEM. Fundurinn, sem stendur í um klukkutíma, verður haldinn í Mið- stöð Sameinuðu þjóðanna á Lauga- vegi 42 og hefst kl. 13. Á fundinum munu tvær konur varpa ljósi á söguna, pólitíkina, jafnrétti kynjanna og ástand samfélaganna í Suður-Súdan og Kongó út frá eigin reynslu, þær Sigríður Víðis Jónsdóttir, blaða- maður og þróunarfræðingur, og Bergljót Arnalds, rithöfundur og leikkona. UNIFEM- umræður á morgun GUÐLAUGUR Þórðarson heil- brigðisráðherra hefur fallist á tillögu samstarfsnefndar um málefni aldraðra um úthlutun úr Framkvæmdasjóði aldraðra. Ásta Möller alþingismaður var formaður samstarfsnefndarinn- ar sem fer með stjórn Fram- kvæmdasjóðsins. Samtals var úthlutað 164 milljónum króna, en sex aðilar fengu styrki úr Framkvæmdasjóðnum að þessu sinni. Þeir sem hlutu styrki voru: Akraneskaupstaður fékk 27,2 milljónir sem framlag til að kaupa fasteign fyrir félagsstarf aldraðra. Hjúkrunarheimilið Eir fékk 15 milljónir króna til að reisa dagdeild fyrir 20 gesti í Spöng- inni í Reykjavík. Snæfellsbær fékk 30 milljóna króna styrk til að byggja 12 rýma hjúkrunarheimili við Hjarðartún 3 í Snæfellsbæ. Reykjavíkurborg fékk 18 milljónir til að kaupa fasteign fyrir dagvistarúrræði fyrir heila- bilaða og 3 milljónir til að breyta húsnæðinu. Hafnarfjarðarbær fékk 4,5 milljónir til að breyta fasteign vegna dagvistunar fyrir Alz- heimerssjúklinga og 2,8 milljón- ir vegna hvíldarinnlagna fyrir sama sjúklingahóp. Kópavogsbær fékk 60 milljón- ir króna til að reisa nýtt hjúkr- unarheimili í Kópavogi. Í fréttatillkynningu kemur fram að hér sé um að ræða síð- ustu úthlutun heilbrigðisráð- herra úr Framkvæmdasjóði aldraðra þar sem hann hefur verið fluttur til félags- og trygg- ingamálaráðuneytis í samræmi við breytingar á verkaskiptingu í stjórnarráðinu. Þegar heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðuneytið tók við fjár- málastjórn sjóðsins á sínum tíma var eiginfjárstaða sjóðsins nei- kvæð um 128 milljónir króna og skuld við TR var rúmar 156 milljónir. Við úthlutunina fyrir árið 2007 var gengið út frá því að lækka skuldir við TR og gera stöðu eigin fjár sjóðsins já- kvæða. Þetta var gert og þegar sjóðurinn var fluttur var hann skuldlaus og eigið fé jákvætt. Framkvæmdir í þágu aldraðra styrktar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.