Morgunblaðið - 01.02.2008, Síða 41

Morgunblaðið - 01.02.2008, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2008 41 Krossgáta Lárétt | 1 kenndur, 8 mik- ið, 9 þjálfun, 10 set, 11 valska, 13 korns, 15 réttur, 18 sæti, 21 í uppnámi, 22 sporið, 23 framleiðsluvara, 24 griðastaðar. Lóðrétt | 2 fær velgju, 3 gjálfra, 4 borðar allt, 5 klaufdýrið, 6 reykir, 7 vætlar, 12 málmur, 14 megna, 15 hagga, 16 sér eftir, 17 róin, 18 vísa, 19 geðvonska, 20 bylgja. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 snapa, 4 sýtir, 7 annað, 8 ormum, 9 arð, 11 korg, 13 árna, 14 úlfur, 15 skel, 17 ilja, 20 hræ, 22 eimur, 23 geðug, 24 lurks, 25 rausn. Lóðrétt: 1 snakk, 2 arnar, 3 arða, 4 stoð, 5 tímir, 6 rimla, 10 rófur, 12 gúl, 13 ári, 15 svell, 16 Elmar, 18 leðju, 19 augun, 20 hrós, 21 Ægir. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Það er eins og þú sjáir himinn þinn með augum aðkomumanns sem rambaði inn í hann. Vangaveltur um hvar þú sért staddur í lífinu gefa þér drifkraft. (20. apríl - 20. maí)  Naut Eitthvað sem þú hafðir gefist upp á leysist af sjálfu sér því þú ert fullur vonar núna. Vog og sporðdreki hafa frábærar hugmyndir – vertu með þeim. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Þú ert hugrakkur. Þú óttast en lætur það ekki stöðva þig. Líttu á allt fólk- ið sem trúir á þig. Hvernig væri að taka undir með því? (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Til að finna sína einstöku „rödd“ er ekki slæmt að byrja á því að apa upp eftir einhverjum meistaranum. Vatnsberi reynist góður lærifaðir. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Útrás fyrir skapandi hugsun þína gerir þig mjög aðlaðandi. Þegar þú ert ánægður með sjálfan þig eru aðrir það líka. Hlustaðu á hjarta þitt í kvöld. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Þig langar til að eiga mjög skýr samskipti við fólk. Gerðu það með gjörð- um en ekki orðum, þau eiga það til að mis- skiljast. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Á yfirborðinu virðist verk vera auð- velt. En það leynir á sér. Bættu við nokkrum lögum af vinnu. Þú kemst á leið- arenda og færð verðlaunin þín. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Oftast fyllistu ekki valkvíða, en valkostirnir eru nú svo girnilegir að þú verður að hugsa þig vel um. En betra er að taka strax ákvörðun og teysta á innsæ- ið. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Þú gefur þig allan í sambönd. Þú styður við bakið á þínu fólki, og nú af meiri sannfæringu en áður, því þú ert sjálfur fullnægður. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Þú bíður ekki eftir því að vera hamingjusamur. Hægt er að detta inn og út úr hamingjunni án ástæðu. En þú hef- ur margar ástæður. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Tvö svæði í lífi þínu sem þú hefur reynt að halda sundur, meðvitað eða ómeðvitað, tengjast nú á óvæntan hátt. Leyfðu því að gerast. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Að hugsa of mikið um aðstæður sínar getur haft lamandi áhrif, en í dag er það leynivopn þitt í leitinni að velgengni. Skrifaðu allt niður. stjörnuspá Holiday Mathis 1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 e6 4. Bxc6 bxc6 5. d3 Re7 6. De2 d5 7. e5 Rg6 8. 0-0 Be7 9. b3 0-0 10. Bb2 f6 11. Rbd2 a5 12. a4 Hb8 13. Hae1 Hb4 14. g3 f5 15. Bc3 Hb8 16. Kg2 Bd7 17. h4 Rh8 18. h5 Rf7 19. Hh1 Be8 20. Rf1 d4 21. Bd2 c4 22. dxc4 c5 23. Dd3 Bc6 24. Bf4 Rg5 25. Bxg5 Bxg5 26. Kg1 Be4 27. Hxe4 fxe4 28. Dxe4 Bh6 29. Re1 Dg5 30. Rd3 Hbc8 31. Kg2 Df5 32. De2 Bg5 33. f4 Be7 34. g4 Df7 35. Rg3 De8 36. De4 Dd7 37. Kh3 De8 38. Db7 Hc6 39. Re4 Hf7 40. Db5 Staðan kom upp á öflugu atskákmóti sem lauk fyrir skömmu í Odessa í Úkra- ínu. Sigurvegari mótsins, azerski stór- meistarinn Teimour Radjabov (2.735), hafði svart gegn Dmitry Jakovenko (2.720) frá Rússlandi. 40. … Da8! 41. He1 Hf8! hvíta drottningin er nú inni- króuð og dæmd til þess að falla. 42. b4 Hb8 43. Dxa5 Ha6 og hvítur gafst upp. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is Svartur á leik. Fegurðin í fyrirrúmi. Norður ♠107 ♥Á1096 ♦ÁK ♣KG1082 Vestur Austur ♠Á62 ♠KG9843 ♥74 ♥5 ♦G10974 ♦D532 ♣D74 ♣Á9 Suður ♠D5 ♥KDG832 ♦86 ♣653 Suður spilar 4♥. „Hafa skal það sem fegurra reynist,“ segja spilarar stundum þegar þeir kjósa að spila upp á kastþröng eða inn- kast í staðinn fyrir „ómerkilega“ svín- ingu. Í þessu felst það sjónarmið að fegurðin sé fólgin í flækjunni. Sem ekki er rétt, því hið einfalda er oft fagurt. Lítum á spil úr Reykjavíkurmótinu. Norður opnar á 1♣ og austur hindr- ar með 2♠. Suður ákveður að tuddast beint í 4♥ og allir passa eldsnöggt. Vestur kemur út með ♠Á og austur kallar. Meiri spaði á kóng og tígull til baka. Sagnhafi hreinsar tígulinn og tekur tvisvar tromp. Spilar síðan laufi að blindum og stund fegurðarinnar er runnin upp – kóngur eða gosi? Ef austur á ♣Dx vinnst spilið með því að stinga upp kóng og endaspila vörnina með meira laufi. Það er flókna leiðin og sú sem kitlar fegurðarskynið. En hér dugir einföld svíning og hún er falleg í því ljósi að vestur hugsaði sig ekkert um yfir 4♥ – en hefði kannski íhugað málið betur með tvo ása og spaðastuðning. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is 1 Hvaða skóli sigraði í spurningakeppni grunnskól-anna, Nema hvað? 2 Skipaður hefur verið nýr hagstofustjóri. Hvað heitirhann? 3 Landsvirkjun er að dusta rykið af gömlum virkjunar-áformum. Hvaða virkjun er það? 4 Guðbjörg Gunnarsdóttir, markvörður Vals, hafnaðisamningi við eitt besta knattspyrnulið heims. Hvaða lið er það og í hvaða landi. Svör við spurningum gærdagsins: 1. Hver hefur verið ráðinn framkvæmda- stjóri HydroKraft, fjár- festingarfélags á veg- um Landsbankans Vatnsafls og Lands- virkjunar Power? Svar: Stefán Péturs- son. 2. Örtröð var í Bónus-verslun sem bauð mikinn afslátt þar sem til stendur að rífa húsið sem hýsir verslunina. Hvar er þessi verslun? Svar: Á Seltjarnarnesi. 3. Iðn- fyrirtæki í Reykjavík ætlar að framleiða Manchester United- peysur til minningar um flugslysið í München fyrir 50 árum. Hvert er fyrirtækið? Svar: Henson. 4. Hver er nýr stjórnarformaður Sjúkratryggingastofnunar? Svar: Benedikt Jóhannesson. Spurter… ritstjorn@mbl.is Árvakur/Kristinn dagbók|dægradvöl Sudoku Miðstig Lausnir síðustu Sudoku Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com Frumstig Miðstig Efstastig Frumstig © Puzzles by Pappocom Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Efstastig FRÉTTIR VEIÐISAFNIÐ á Stokkseyri byjar nýtt starfsár á laugardag með með árlegri byssu- sýningu. Sýningin er haldin í samvinnu við verslunina Vesturröst í Reykjavík og stendur 2.-3. febrúar frá kl. 11-18 í húsakynnum Veiðisafnsins á Eyrarbraut 49 á Stokkseyri. Á sýningunni verður fjölbreytt úrval skotvopna svo sem haglabyssur, rifflar, vélbyssur, skamm- byssur og herrifflar ásamt ýmsu frá seinni heims- styrjöld. Einnig verða sýndir framhlaðningar og byssur frá Veiðisafninu sem ekki tilheyra grunn- sýningu safnsins. Þá verða til sýnis skotvopn úr einkasöfnum, m.a. annars frá Sverri Scheving Thorsteinssyni, Guðjóni Valdimarssyni, Sigur- finni Jónssyni, Páli Reynissyni og fjölmörgum öðrum að ógleymdum íslensku Drífu-haglabyss- unum frá Jóni Björnssyni heitnum frá Dalvík. Sýningin verður í báðum sýningarsölum Veiði- safnsins en þar var opnaður nýr 260 m2 sýning- arsalur á liðnu sumri. Hvergi á landinu má sjá fleiri tegundir uppstoppaðra innlendra og er- lendra dýra, m.a. margra Afríkudýra, áhalda til veiða og annað tengt veiðum. Veiðisafnið hefur nýtt starfsár „MIÐSTJÓRN Alþýðusambands Íslands mót- mælir því harðlega að ekki skuli farið að leik- reglum við framkvæmd hópuppsagna 59 starfs- manna HB Granda hf. á Akranesi en athygli ASÍ hefur verið vakin á því, að mjög alvarlega hafi verið brotið gegn málsmeðferðarreglum laga um hópuppsagnir nr. 63/2000,“ segir í ályktun frá miðstjórninni, sem samþykkt var á fundi hennar á miðvikudaginn. „Samkvæmt þeim upplýsingum sem ASÍ hefur aflað sér hefur fyrirtækið ekki viðhaft lögbundið samráð eða látið trúnaðarmönnum starfsmanna í té skriflegar upplýsingar um fyrirhugaðar upp- sagnir. Meðan svo er er óheimilt að tilkynna starfsmönnum um uppsagnir á ráðningarsamn- ingum. Miðstjórn ASÍ leggur áherslu á að lögbundinn réttur starfsmanna til upplýsinga og samráðs í tengslum við hópuppsagnir telst til mikilvægra réttinda launafólks og ASÍ lítur það alvarlegum augum þegar þau eru ekki virt. Miðstjórnin telur mikilvægt að samstaða náist í atvinnulífinu nú þegar mæta þarf erfiðleikum vegna niðurskurð- ar á aflaheimildum og þegar þeim erfiðleikum sé mætt verði í hvívetna farið að þeim samningum og lögum sem í gildi eru,“ segir í ályktuninni frá miðstjórn ASÍ. ASÍ segir uppsagnir vera ólögmætar FÉLAGIÐ MÍR – Menningartengsl Íslands og Rússlands, boðar til almenns borgarafundar í sal félagsins Hverfisgötu 105, Rvk. miðvikudaginn 6. febrúar kl. 17. Haukur Hauksson, magister í alþjóðamálum frá Moskvuháskóla, heldur fyrirlestur þar sem aðalefnið er staða milljarðamæringa Rússlands, hvernig þeir komust yfir sín gríðarlegu auðæfi á einni nóttu; hvaða brögðum og klækjum var beitt; viðskiptaumhverfi Rússlands á 10. ára- tugnum og afstaða núverandi stjórnvalda til oligarkhanna svonefndu. Leiknar verða upp- tökur af leyniviðræðum þeirra sem Haukur hef- ur komist yfir. Einnig verður farið yfir stöðu mála og horfur í Rússlandi í ljósi forsetakosninga sem áformað er að fari í landinu sunnudaginn 2. mars 2008 næst- komandi. Hvað ætlast Pútín forseti fyrir í stjórnmálum? Hver er eftirmaður hans, krónprins eða sjálf- stæður stjórnmálamaður; möguleikar stjórnar- andstöðunnar í núverandi ástandi; hvers vegna óttast Kremlverjar stjórnarandstæðing með minna en 1% raunfylgi? Fleiri spurningum verður svarað, m.a. frá fundarmönnum í sal, segir í fréttatilkynningu frá félaginu. Ræðir stöðu milljarða- mæringa í Rússlandi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.