Morgunblaðið - 04.02.2008, Síða 2

Morgunblaðið - 04.02.2008, Síða 2
2 F MÁNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ 101 Reykjavík ....................... 20-21 Akkurat ....................................... 55 Ásbyrgi ........................................... 7 Berg .............................................. 23 Borgir ......................................... 4-5 Brynjólfur Jónsson .................. 38 Búmenn .......................................... 9 DP fasteignir .............................. 24 Draumahús .......................... 34-35 Eignaborg ....................................... 9 Eignamiðlunin .................... 28-29 Eik ................................................. 25 Fasteign.is ........................... 42-43 Fasteignakaup ........................... 46 Fasteignamarkaðurinn ..... 40-41 Fasteignamiðlunin .................... 53 Fasteignamiðlun Grafarvogs .. 33 Fasteignamiðstöðin .................. 43 Fasteignasala Íslands ............... 19 Fasteignasala Mosfellsbæjar .. 13 Fasteignastofan ......................... 14 Fjárfesting .................................... 11 Fold ............................................. 8-9 Garðatorg ..................................... 10 Garður .......................................... 52 Gimli ....................................... 30-31 Gimli Hveragerði ....................... 50 Heimili .......................................... 47 Hraunhamar .......................... 16-17 Híbýli ............................................ 36 Hóll ................................................ 56 Húsakaup ....................................... 3 Húsavík ........................................... 6 Höfði ............................................. 22 Kirkjuhvoll .................................. 37 Kjöreign ....................................... 54 Lundur ........................................... 51 Lyngvík ........................................ 48 Miðborg ................................ 26-27 Miklaborg .................................... 32 Neseignir ...................................... 15 Skeifan ......................................... 49 Stakfell Stóreign ............... 44-45 Valhöll ..................................... 12-13 Efnisyfirlit E f þú ert að hugleiða kaup á fasteignum í Flórída eða annars staðar í Bandaríkjum Norður-Ameríku er gott að vinna örlitla heimavinnu og undirbúa sig áður en lagt er af stað, að minnsta kosti ef marka má orð Péturs Sigurðssonar hjá fasteigna- sölunni The Viking Team sem selur fasteignir í sólskinsríkinu. Fasteignasala er flókin í BNA „Í fyrstu þarft þú að ákveða hvar þú vilt eiga fasteign og hvert á að vera notagildi hennar. Síðan þarft þú að finna góðan fasteignasala á staðnum þar sem þú vilt vera á og kanna hvort hann hefur reynslu og þekkingu sem nýtist þér. Reynslan sýnir að ef þú velur rétt þá getur þú sparað milljónir króna,“ segir Pétur. Hann segir að fasteignasala sé flókin og mörg skjöl sem þurfi að út- skýra eins og t.d. yfirlýsingar selj- anda, skoðunarskýrslur, lánaskjöl, tryggingar, kaupsamningar afsöl og fleira. „Í Flórída er lögð sú lagalega skylda á kaupandann að hann kynni sér hlutina sjálfur, til þess getur hann nýtt sér aðstoð fasteignasala (laun fasteignasalans greiðir selj- andinn) og til þess að fá sem mest úr þeirra aðstoð þarft þú að spyrja spurninga til að kanna hvort hann fullnægi þínum þörfum.“ Reynsla er mjög mikilvæg Pétur segir að fyrst verði að at- huga hvaða reynslu fasteignasalinn hafi í fasteignasölu á svæðinu sem verið er að hugsa um að kaupa fast- eign. „Fasteignasali sem hefur starfað lengi hefur fylgst með sveifl- um á markaðnum og getur betur áttað sig á stöðu markaðsins á hverjum tíma. Því lengur sem við- komandi fasteignasali hefur starfað hefur hann meiri reynslu í samn- ingaviðræðum. Næst er að spyrja að því hvernig þjónustuferlið hjá honum er frá því að leit byrjar þangað til gengið er frá kaupunum. Góður fasteignasali getur auðveldleg útskýrt fyrir þér hvað hann gerir fyrir þig og hvers vegna það borgar sig fyrir þig að hafa fasteignasala í vinnu. Gætið einnig að því að það komi fram að viðkomandi geri fyrir ykkur verð- samanburð á húsinu sem þú ert að hugsa um miðað við önnur hús sem selst hafa í hverfinu nýlega,“ segir Pétur. Að sögn Péturs er einnig mik- ilvægt að spyrja fasteignasalann að því hvort hann geti aðstoðað við að finna hagstæð lán. „Í Flórída er boðið upp á margar gerðir af lánum, sum eru við hæfi og önnur ekki. Það er nauðsynlegt að hafa fasteignasala sem hefur ein- hverja þekkingu á lánum og einnig að hann geti aðstoðað þig við að finna lánið sem hentar þér,“ segir Pétur. Mikilvægar spurningar Pétur segir að mikilvægt sé að vita strax um allar hreyfingar í hverfunum sem þú ert að skoða til þess að þú gerir þér betur grein fyr- ir því sem er að gerast í hverfinu. „Það er mikilvægt fyrir þig að vita hvernig fasteignasalinn þinn undirbýr sig fyrir samningagerðina og hvaða reynslu hann hefur í samn- ingum. Því oftar sem hann hefur staðið að samningagerð því betra en aðalatriðið er að vita að fast- eignasalinn undirbýr sig.“ Pétur segir að ein mikilvægasta spurningin sé hvernig fasteignasal- inn geti aðstoðað við að ná sem bestu verði. „Viðkomandi fasteignasali ætti að hafa svar á reiðum höndum og geta útskýrt hvaða aðferð hann notar við að finna fyrir þig hvað er réttlátt verð. En síðan þarf að spyrja hvern- ig hann geti komið í veg fyrir óþarfa kostnað við lántöku, skoðanir og annan kostnað sem fylgir húsnæðis- kaupum? Vanalegt svar er yfirleitt að þetta sé eðlilegur kostnaður. Góður fasteignasali veit hver kostn- aðurinn er og hvaða fyrirtæki á svæðinu bjóða þjónustuna á eðlilegu verði. Síðast en ekki síst þarft þú að spyrja fasteignasalann hvort hann geti fundið fyrir þig nýbyggingar, hús í endursölu eða hús sem eru í nauðungarsölu. Þessu munu allir svara játandi en þá er um að gera að vera örlítið nákvæmari og spyrja til dæmis hvort viðkomandi bygging- araðili á svæðinu hafi mikla reynslu og hafi starfað lengi á markaðnum með nýbyggingar,“ segir Pétur. Hann segir að auðvitað sé það sem að ofan er talið ekki tæmandi, það sem henti einum henti kannski ekki öðrum. „Þess vegna er mik- ilvægt að þú munir að þér er heimilt að spyrja spurninga og að enginn fasteignasali ætti að vera hikandi við að svara þeim. Þó ber að virða okkur til vorkunnar að enginn veit allt um alla hluti og þess vegna ætti góður fasteignasali að vera óhrædd- ur að svara að hann muni finna svar- ið fyrir kúnnann,“ segir Pétur. Með réttu spurningunni getur þú sparað milljónir Frumskógur Lagalegar hliðar fasteignasölu eru öðru vísi ytra en hér heima. Lúxus Auðvitað fylgir saundlaug í garðinum með stærstu villunum. Sólríkt Flórída er eitt sólríkasta ríkið í BNA og eignir þar eftirsóttar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.