Morgunblaðið - 06.03.2008, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 06.03.2008, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 65. TBL. 96. ÁRG. FIMMTUDAGUR 6. MARS 2008 LANDSPRENT EHF. mbl.is ENN ER SPENNA CLINTON SNERI VÖRN Í SÓKN EN DUGAR ÞAÐ TIL AÐ NÁ OBAMA? >> 13 FRÉTTASKÝRING Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@mbl.is ATHYGLI hafa vakið tveir uppkveðnir dóm- ar í héraði með stuttu millibili nýverið þar sem dómari beitti svonefndri lögjöfnun. Alla- jafna er lögjöfnun ekki algeng og heimild til notkunar hennar er ekki bundin í lög þótt all- löng hefð sé fyrir heimild dómara til að beita þessu úrræði. Með lögjöfnun er átt við það þegar lagaákvæði er beitt um ólögákveðið atriði sem er efnislega skylt því sem rúmast inn- an ákvæðisins. Með öðr- um orðum er möguleiki á að leysa úr máli með lög- jöfnun þótt hið umdeilda tilvik falli ekki undir ákveðna lagagrein en þykir eigi að síður sam- bærilegt öðrum tilvikum sem lög fjalla um. Dómarnir tveir sem að ofan gat varða ann- ars vegar meiðyrðamálið sem Ómar R. Valdi- marsson höfðaði gegn bloggaranum Gauki Úlfarssyni og vann. Í hinu málinu, svonefndu DC++-máli, var ákæruvaldið málshöfðandi og fékk níu sakborninga sakfellda fyrir brot á höfundalögum. Var það í fyrsta sinn sem reyndi á að dómstóll beitti ákvæðum hegn- ingarlaga um hlutdeild með lögjöfnun. Sambærileg tilvik Í bloggmáli Ómars féllst dómurinn m.a. á kröfu hans um að Gaukur skyldi birta dóms- niðurstöðuna á bloggi sínu og byggðist sú niðurstaða á ákvæði laga um prentrétt. Ákvæðið tekur til birtingar efnis í blöðum eða tímaritum en ekki til efnis sem birt er á vef- síðum. Í dómi sagði að ekki væri til að dreifa laga- ákvæðum um slík tilvik en telja yrði að efn- islega væri um sambærileg tilvik að ræða enda staðreynd að mörg dagblöð væru gefin út á vefmiðlum. Ragnhildur Helgadóttir, lagaprófessor við HR, sagði aðspurð af þessu tilefni að dóm- stóllinn væri að horfast í augu við að blogg félli ekki undir prentrétt – en að hann teldi hins vegar að um væri að ræða fyllilega sam- bærileg tilvik og því ætti sama regla að gilda og um annars konar miðla. Ákvörðun liggur fyrir um áfrýjun blogg- málsins til Hæstaréttar af hálfu stefnda og má þess vænta að bloggsamfélagið bíði spennt eftir niðurstöðu réttarins. Þeirri skoðun hefur verið hreyft meðal lög- fróðra að hæpið sé að beita lögjöfnun í refsi- málum en þess ber að geta að bæði málin sem hér um ræðir eru refsimál, þar af blogg- málið einkaréttarlegt refsimál. Í 69. gr. stjórnarskrárinnar segir að engum verði gert að sæta refsingu nema hann hafi gerst sekur um háttsemi sem var refsiverð samkvæmt lögum á þeim tíma þegar hún átti sér stað eða má fullkomlega jafna til slíkrar háttsemi. Segja má að í þessu ákvæði felist heimild til að beita lögjöfnun en Mannréttindasáttmáli Evrópu gerir hins vegar strangari kröfur til stjórnvalda að þessu leyti. Samkvæmt sátt- málanum verður að vera refsiheimild í lög- um. Tímamóta- mál með lögjöfnun Tvö dómsmál með stuttu millibili Tölvur og blogg eru fyrir dómi. Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is HEIMILIN eru nánast hætt að taka almenn verðtryggð skulda- bréfalán í íslenskum krónum. Á sama tíma vaxa lántökur heimil- anna í erlendri mynt hröðum skrefum. Þetta sýna tölur frá Seðlabanka Íslands. Talsmenn viðskiptabankanna staðfesta að eftirspurn heimilanna eftir lánum í íslenskum krónum hafi dregist mikið saman. Skýringarnar séu m.a. aukinn áhugi á erlendum lán- um og að heimilin séu að fresta lántökum. Frá ágúst í fyrra til janúar á þessu ári hafa verðtryggð skulda- bréfalán bankanna dregist saman um 3% eða um fjóra milljarða, en í þessari tölu eru húsnæðislánin undanþegin. Á sama tíma hafa lán bankanna í erlendri mynt aukist um 25 milljarða (húsnæðislán ekki talin með). „Það er miklu minni ásókn í ís- lensk lán en verið hefur,“ segir Benedikt Sigurðsson, upplýsinga- fulltrúi hjá Kaupþingi. Hann telur að skýringin á þessu sé tvíþætt. Annars vegar hafi margir ákveðið að fresta fjárfestingum og neyslu m.a. vegna óvissu í efnahagsmál- um. Hins vegar hafi fólk í auknum mæli snúið sér að erlendum lán- um. Benedikt segir að almennt sé Kaupþing fastheldnara á fé en áð- ur þegar kemur að útlánum. Bankinn hafi hins vegar ekki gert breytingar á lánareglum. Birna Einarsdóttir, fram- kvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Glitnis, sagði að lánaumsóknum hefði fækkað, en bankinn sinnti áfram venjulegum beiðnum ein- staklinga. Þegar krónan veiktist væri alltaf einhver færsla yfir í er- lend lán, þá helst húsnæðislán. Aðrir stjórnendur í bankakerf- inu sem rætt var við höfðu sömu sögu að segja. Eftirspurn eftir lán- um hefði minnkað. Greinilegt væri að margir hefðu ákveðið að bíða og sjá til með hver þróunin yrði í efnahagsmálum. Sumir sem væru að hugleiða fjárfestingar væru að vonast eftir vaxtalækkun og lækk- un á fasteignaverði. Yfir í erlend lán Kristinn Bjarnason, fram- kvæmdastjóri Frjálsa fjárfest- ingabankans, segir að eftirspurn eftir lánum í erlendri mynt sé mik- il. Bankinn hafi um áramót ákveð- ið að lækka veðsetningarhlutfall úr 70% í 50% og hann segist vita að bankarnir hafi sömuleiðis verið að gera strangari kröfu um veð. Frjálsi fjárfestingabankinn hafi einnig hækkað vaxtaálag, sem kemur ofan á Libor-vexti, úr 3% í 4%. „Samt er eftirspurn eftir þess- um lánum enn ótrúlega mikil,“ segir Kristinn. Heimilin hætta að taka almenn verðtryggð lán                                  !      "# $ % & ' (        )*+, -*+, --* ./*+, FIÐRILDAGANGA UNIFEM og BAS, þar sem vakin er athygli á ofbeldi gegn konum í þróun- arlöndum og á stríðshrjáðum svæðum, var farin í gærkvöldi og var gengið frá húsakynnum UNI- FEM á horni Laugavegar og Frakkastígs og niður á Austurvöll. Þjóðþekktir einstaklingar fóru fyr- ir göngunni með kyndla. | Miðopna Morgunblaðið/Ómar Ofbeldi gegn konum mótmælt NÆSTA skref fataframleiðandans 66° Norður er að reisa eigin verksmiðju í Kína, en hluti af fatalínu fyrirtækisins er nú þegar framleiddur í verksmiðjum þar í landi. Sigurjón Sig- hvatsson, stjórnar- formaður fyrirtækisins, segir í samtali við Morgunblaðið að stefna 66° Norður sé að hafa sem flesta þætti starf- seminnar á eigin hendi, enda fylgi því betri yf- irsýn og stjórn á fram- leiðslu og gæðaeftirliti. Því sé bygging verksmiðju í Kína eðlilegt næsta skref fyr- ir fyrirtækið og ætti ekki að kosta mikið. Segir hann að núverandi verksmiðjur 66° Norður í Litháen verði starfræktar áfram. Velta fyrirtækisins tvöfaldaðist á milli áranna 2005 og 2007 úr einum í tvo millj- arða króna og gert er ráð fyrir áframhald- andi vexti og veltu upp á 2,5 milljarða króna í ár. | Viðskipti 66° Norður reisa verk- smiðju í Kína Sigurjón Sighvatsson VERÐLAGNING á Skiptum er ívið hærri en á öðrum fjarskiptafélögum af sambæri- legri stærð, segja greiningardeildir Glitn- is og Landsbankans. Til samanburðar má nefna Teymi, Tele- nor í Noregi, Elisa í Finnlandi og Belge- com í Belgíu, en miðað við hlutfall útboðs- gengis af skuldum og hagnaði eru Skipti dýrari en þessi félög. | Viðskipti Skipti hf. í dýrara lagi Kommúnan >> 37 Magnaðar stundir í leikhúsinu Leikhúsin í landinu ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.