Morgunblaðið - 06.03.2008, Blaðsíða 20
neytendur
20 FIMMTUDAGUR 6. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Bónus
Gildir 6. - 9. mars verð nú verð áður mælie. verð
Bónus ferskir bl./kjúklingabitar ............. 299 404 299 kr. kg
KS ferskur lambabógur......................... 499 639 499 kr. kg
KS ferskt lambaprime ........................... 1.499 1.999 1.499 kr. kg
KF ömmukjötfars, frosið ........................ 299 449 299 kr. kg
KF kofareykt folald m/beini ................... 383 574 383 kr. kg
Ali hamborgarahryggur m/beini............. 1.252 1.610 1.252 kr. kg
Ali svínabógur ...................................... 499 599 499 kr. kg
Danskar svínalundir, frosnar ................. 1.079 1.798 1.079 kr. kg
Sparigrís beikon í bréfum...................... 998 1398 998 kr. kg
Bónus brauð 1 kg. ............................... 98 139 98 kr. kg
Fjarðarkaup
Gildir 6. - 8. mars verð nú verð áður mælie. verð
FK. hamb.hryggur ................................ 998 1.398 998 kr. kg
Nautafile úr kjötborði ........................... 2.398 2.998 2.398 kr. kg
Nauta-piparsteik úr kjötborði ................ 2.398 2.998 2.398 kr. kg
Grillaður kjúklingur ............................... 698 898 698 kr. stk.
Frosin kjúkl.br. m/vængb.2,5 kg ........... 1.199 1.498 1.199 kr. kg
Matfugl kjúkl.læri ................................. 454 699 454 kr. kg
Matfugl kjúkl.vængir............................. 191 319 191 kr. kg
Hamb.m/brauði, 4 stk., 80 g ................ 398 498 398 kr. pk.
Mini-vorrúllur, 50 stk. ........................... 1.289 2.062 1.289 kr. pk.
Krónan
Gildir 6. - 9. mars verð nú verð áður mælie. verð
Krónu þurrkryddað lambalæri................ 998 1.468 998 kr. kg
Dönsk pörusteik, hryggur ...................... 1.169 2.337 1.169 kr. kg
Grísakótilettur, 10 stk. .......................... 979 1.398 979 kr. kg
Nautahakk .......................................... 898 1.298 898 kr. kg
Grillborgarar með brauði, 4 stk.............. 398 499 398 kr. pk.
Naggalínan kjötbollur 450 g ................. 399 534 887 kr. kg
Kartöflukaka 170 g .............................. 168 198 988 kr. kg
Líf Appels/eplasafi, 3 fyrir 2 ................. 178 267 59 kr. ltr
Shop Rite cake mix, 2 teg., 520 g ......... 159 199 306 kr. kg
Super uppþvottal. sítrónu 500ml .......... 79 89 158 kr. ltr
Nóatún
Gildir 6. - 9. mars verð nú verð áður mælie. verð
Nóatúns bayoneskinka ......................... 998 1.669 998 kr. kg
Nóatúns lambalæri m/ferskum kryddj. .. 1.399 1.998 1.399 kr. kg
Grísahnakki úrb., sneiðar...................... 898 1.598 898 kr. kg
Lamba sirloinsneiðar............................ 1.298 1.498 1.298 kr. kg
Lambagrillsteik í tómat/basil ................ 2.398 3.298 2.398 kr. kg
Rose kjúklingabr. danskar, 900 g .......... 1.298 1.498 1.442 kr. kg
Dönsk dósaskinka, 450 g..................... 699 899 1.553 kr. kg
BC Shake pönnukökur 2 teg. ................ 247 309 247 kr. pk.
Brazzi ávaxtasafar 5 teg., ...................... 99 135 99 kr. ltr
Hunts tómatsósa, 1020 g..................... 169 225 166 kr. kg
Samkaup/Úrval
Gildir 6. - 9. mars verð nú verð áður mælie. verð
Kjötborð lamba-innralæri...................... 2.889 3.390 2.889 kr. kg
Goði ofnsteik m/ítölskum blæ............... 1.490 1.862 1.490 kr. kg
Goði grísakótilettur ............................... 1.398 1.699 1.398 kr. kg
Goði skinka, bunkar, 216 g................... 298 415 298 kr. pk.
Ísl.fugl kjúkl.læri m/legg ....................... 454 699 454 kr. kg
Ísfugl kalkúnabollur steiktar .................. 798 1.153 798 kr. kg
Billys Pan pitsa pepp., 170 g ................ 199 239 199 kr. pk.
Trópí appelsínus. 1/4 ltr, 3 pk. .............. 139 199 139 kr. pk.
O&S hvítlauksostur, 150 g.................... 155 190 155 kr. stk.
Bláber Box .......................................... 179 399 179 kr. pk.
Þín verslun
Gildir 6. - 12. mars verð nú verð áður mælie. verð
Finn Crisp multigrain/sesame, 250 g .... 109 135 436 kr. kg
Sacla original 3 teg., 420 g .................. 298 389 710 kr. kg
Freyju hrís, 120 g................................. 159 229 1.325 kr. kg
Homeblest, 300 g................................ 129 155 430 kr. kg
Nescafé gull, 200 g ............................. 679 779 3.395 kr. kg
Hatting Panino Noce, 360 g.................. 359 459 998 kr. kg
Hatting Panino Rustico, 420 g .............. 359 459 998 kr. kg
Emmess heimilis/daimtoppar, 4 stk. ..... 465 569 117 kr. stk.
helgartilboðin
Lamba- eða svínakjöt í helgarsteikina
Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur
khk@mbl.is
Í LJÓSI vaxandi umhverfisvitundar
almennings fer fólk að horfa með
öðrum augum á ýmislegt sem hing-
að til hefur kannski ekki þótt skipta
máli. Eitt af því er plöstun á bókum.
Til hvers þarf að plasta bækur? Það
hlýtur að hækka verð bókarinnar,
því eitthvað kostar bæði plastið og
vinnan við að pakka bókinni inn í
það. Og síðan þarf að farga því
plasti eins og öðrum umbúðum í um-
búðasamfélaginu sem við lifum í. Og
hvers vegna er meira um það hér á
landi að bækur séu plastaðar, en í
mörgum öðrum löndum?
Leitað var svara hjá Kristjáni B.
Jónassyni, formanni Félags ís-
lenskra bókaútgefenda.
„Það er langt í frá einsdæmi að
bækur séu plastaðar. Til dæmis eru
allar harðspjaldabækur í Þýskalandi
plastaðar og einnig var nokkuð um
það á Norðurlöndum. En í Suður-
Evrópu eru það fyrst og fremst
listaverkabækur og ljósmyndabæk-
ur sem eru í plasti og ég minnist
þess ekki að hafa til að mynda nokk-
urntíma séð nýja skáldsögu í plasti í
Frakklandi. Hér heima er nú hafin
þróun í þá átt að plasta ekki kiljur.
Hjá bókaútgáfunni Bjarti eru kiljur
til dæmis ekki lengur plastaðar og
ég sé fyrir mér að eftir kannski tvö
ár verði engar kiljur á íslensku
plastaðar,“ segir Kristján.
„Plöstunin er ekki dýr og hún er
aldrei tekin fram sem sérstakur til-
tekinn liður í prenttilboðum. En
sparnaðurinn við að plasta ekki er
einhver til langs tíma litið og í út-
gáfu kiljanna munar um hverja
krónu, því útsöluverð þeirra er
lágt.“
Plastið áfram á
harðspjaldabókunum
Kristján segir mjög svo einfalda
ástæðu liggja að baki því að bækur
séu plastaðar. „Þetta er fyrst og
fremst til að vernda bækurnar, svo
það sé ekki blaðað í þeim. En svo
verður líka til einhver hefð sem fólk
spekúlerar kannski ekkert í af
hverju hefur orðið til. Ég held að
enginn hafi lagst yfir fyrirbærið
plöstun á bókum og hugsað það í
grunninn. Ég sé ekki fyrir mér að
við hættum að plasta harð-
spjaldabækur á næstu árum. Harð-
spjaldabækur á erlendum málum
sem verið er að selja hér, eru marg-
ar plastaðar, sérstaklega frá þýska
málsvæðinu. Ef við erum að hugsa
þetta út frá umhverfisáhrifum eru
þau mál betri hérlendis en til dæmis
í Þýskalandi, því þar eru bækur pla-
staðar með mun þykkara plasti en
gert er hér á landi. Við notum að-
eins þunna plastfilmu.“
Kristján segist halda að það færi
ekki vel í kaupendur að hætta að
plasta harðspjaldabækur. „Ég sé
fyrir mér að bókakaupendur yrðu
ekki hrifnir af slíkri þróun. Fólki
finnst þá kannski eins og bókin sé
ekki ný, heldur notuð, og það hentar
ekki til gjafa, en eins og við vitum
eru bækur mikið keyptar til jóla-
gjafa og útskriftargjafa. Fólk upp-
lifir vöruna í raun allt öðruvísi ef
hún er ekki innpökkuð í plast. Þetta
er jú markaður og þá þarf að hugsa
fyrir því hvernig fólk upplifir vör-
una.“
Er nauðsynlegt
að plasta bækur?
Morgunblaðið/Golli
Plast eða ekki plast Sumar bækur eru plastaðar en aðrar ekki.
Þær eru ófáar maskara-auglýsingarnar sem lofalengri og þéttari augnhár-um. Sumar ganga meira að
segja svo langt að gefa í skyn að
vindhviður fylgi augnflökti með
rétta maskaranum. Það vita hins
vegar flestar konur að gervi-
augnhár eru líklegri til að framkalla
augnháralengingu en maskarinn
einn og sér. Og gerviaugnhárunum
barst nýlega liðstyrkur – augnhára-
lengingar.
Snyrtistofan Ágústa er ein þeirra
snyrtistofa sem bjóða upp á augn-
háralengingar hér í borg, þjónustu
sem að sögn Ágústu Kristjánsdóttur,
eiganda stofunnar, nýtur töluverðra
vinsælda meðal íslenskra kvenna.
„Augnháralengingin skerpir augn-
umgjörðina og gerir hana þéttari.
Konur láta því gjarnan lengja á sér
augnhárin fyrir brúðkaup og árshá-
tíðir, sumarfríið og skíðaferðina.
Þetta hentar nefnilega ekkert síður
vel í fríinu en fyrir hátíðleg tæki-
færi, því það er gott að geta sleppt
því að setja á sig augnmálningu þeg-
ar deginum er eytt uppi í skíða-
brekku eða niðri á strönd,“ segir
Ágústa.
Augnháralengingin er nákvæmn-
isvinna sem unnin er að stórum hlut
í gegnum stækkunargler. „Við lím-
um eitt augnhár á hvert augnahár
sem fyrir er til að lengja þau og
þykkja, höfum þau svo aðeins styttri
við enda augans og lengri í miðj-
unni, þannig að þetta tekur vissu-
lega sinn tíma. Ég segi hins vegar
alltaf: Það sem er flott og þarf að
vera vel gert, það tekur tíma.“
Augnháralengingin endist í 4–8
vikur, svo framarlega sem farið er
varlega og passað upp á að nudda
ekki augun. Að sögn Ágústu er tölu-
vert um að konur vilji viðhalda þess-
ari nýju augnháralengd og komi því
aftur í ásetningu.
Morgunblaðið/Golli
Fyrir Augnháralenginguna má nota til að þétta augnumgjörðina.
Ásetningin Ágústa Kristjánsdóttir
segir augnháralenginguna vinsæla.
Eftir Þétt og löng augnhár og því jafnvel hægt að sleppa því að mála sig.
Fyrir skíðin
og brúðkaupið