Morgunblaðið - 06.03.2008, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 06.03.2008, Blaðsíða 4
    ! "   #  - / +   ) )+ )/ ) )-             !" 0- 0-1 0 01 0. 0.1 0+ #  '        #$#% $ & !  ARÐSEMI framkvæmda á gatna- mótum og stokkum við Kringlumýr- arbraut og Miklubraut eru metnar á milli 10–15% að því kemur fram í kynningu verkfræðistofunnar Línu- hönnunar fyrir umhverfis- og sam- gönguráði Reykjavíkurborgar. Þrír þættir búa aðallega til tekjurnar; tímasparnaður, fækkun óhappa og umhverfisáhrif, þ.e. minni hávaði. Í kynningunni kom fram að fyrsta áfanga framkvæmdanna mætti ná á árunum 2009-2011. Í heild er reiknað með fimm ára framkvæmdatíma. „Það má segja að þegar búið er að byggja þetta, græðum við hálfan milljarð króna á ári í tímasparnað,“ segir Baldvin Einarsson, yfirverk- fræðingur hjá Línuhönnun. „Þegar líða tekur á fer sú upphæð að öllum líkindum upp í 800 milljónir kr. á ári.“ Dönsk aðferð notuð Einnig hefur verið reiknað út hvað umferðaröryggi vegna fram- kvæmdanna vegur þungt, en það eru á milli 400-600 milljónir króna á ári. Þá gefa tekjur vegna minni umferð- arhávaða á milli 40 til 70 milljónir króna, samkvæmt spánni. „Þá er reiknað eftir dönskum aðferðum, þ.e. eins og þeir meta ávinning. Það er aðferð sem byggist á breytingum á kaupverði húsnæðis, miðað við ákveðið hávaðastig. Svo er bætt við þá tölu út frá heilbrigðiskostnaði.“ Gert er ráð fyrir að stofn- og við- haldskostnaður nemi um 15 milljörð- um króna en tekjur um 24 milljarðar. Þá er reiknað með að framkvæmdin skili tekjum í 25 ár. Arðsemin tíu til fimm- tán prósent Tímasparnaður um hálfur milljarður árlega 4 FIMMTUDAGUR 6. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Andra Karl andri@mbl.is ENGINN ætti að nota ljósabekki, síst börn og unglingar undir átján ára aldri, ef marka má rann- sókn sem greint er frá í ástralska dagblaðinu Her- ald Sun. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinn- ar eykst áhættan á sortuæxli um 22% við aðeins eitt skipti í ljósabekk. Að mati húðlæknis renna niðurstöðurnar stöðum undir það sem vitað er: að ljósabekkir og notkun þeirra er hættuleg. Nýverið var hrundið af stað átakinu „Hættan er ljós“ og er þetta fimmta árið sem Geislavarnir rík- isins, Krabbameinsfélagið, Landlæknisembættið og Lýðheilsustöð standa saman að því. Átakinu er beint að fermingarbörnum en ekki síður að for- eldrum eða forráðamönnum þeirra. Ástæðan er sú tilhneiging að fermingarbörn verði að vera sól- brún. Færri gera sér hins vegar grein fyrir hætt- unni sem ljósabekkjaböðunum fylgir. Ef vísað er á ný í áströlsku rannsóknina sést að fólk undir 35 ára aldri eykur líkurnar á húð- krabbameini um 98% ef það notar ljósabekki. Þar kemur jafnframt fram skoðun vísindamannsins Louisu Gordon hjá Queensland Institute of Medi- cal Research – sem framkvæmdi rannsóknina – sem er að banna ætti fólki undir átján ára aðgang að slíkum bekkjum. Bárður Sigurgeirsson húðlæknir bendir á þann galla við rannsóknina, að ekki sé búið að birta grunngögnin né vísindagrein sem fjallar um nið- urstöðurnar. „En þetta er virt stofnun sem fram- kvæmdi rannsóknina þannig að ég sé enga ástæðu til að draga hana í efa. Hún byggir jafn- framt á viðameiri gögnum en oft áður,“ segir Bárður. „[Niðurstöðurnar] renna stoðum undir það sem við höfum vitað, að ljósabekkir og notk- un þeirra er hættuleg og eykur sterklega lík- urnar á húðkrabbameini og þá helst alvarlegri tegundinni.“ Árlega látast átta manns Sortuæxlum hefur fjölgað mikið undanfarna áratugi hér á landi og tíðnin tvöfaldast á einum áratug. Æxlin eru algengari meðal kvenna en karla. Fjölgunin er mest áberandi hjá ungum konum og raunar er sortuæxli orðið algengasta krabbameinið hjá ungum konum í dag. Sam- kvæmt upplýsingum frá Krabbameinsskrá Krabbameinsfélagsins greinast að meðaltali um 50 manns á ári með sortuæxli í húð, rúmlega 50 með önnur húðæxli og um 220 með grunnfrum- æxli. Átta Íslendingar deyja árlega að meðaltali úr sortuæxlum í húð. Börn og ungmenni eru mun næmari fyrir skað- legum áhrifum geislunar ljósabekkja og er notk- un í þeirra hóp allt of mikil. Samkvæmt könnun sem Capacent Gallup framkvæmdi á síðasta ári höfðu 27% stúlkna á aldrinum 12–15 ára farið í ljós undanfarið ár og 13% pilta. Einn ljósatími eykur hættu á krabbameini um 22% Samkvæmt Gallupkönnun fóru um 27% stúlkna á aldrinum 12-15 ára í ljós á sl. ári ÚTIFUNDUR var haldinn á Lækjartorgi í hádeginu í gær þar sem mótmælt var blóðbaðinu á Gaza-strönd undir yfirskriftinni „Stöðvum fjöldamorðin og rjúfum umsátrið um Gaza.“ Katrín Fjeldsted læknir og Ög- mundur Jónasson alþingismaður ávörpuðu fundinn og baráttukveðjur bárust frá utanríkisráðherra sem sagði íslensk stjórnvöld fordæma framferði Ísraelsmanna sem væri óafsakanlegt og skýrt brot á alþjóðalögum. Morgunblaðið/Golli Mótmæltu blóðbaðinu á Gaza-strönd FRÉTTASKÝRING Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is SAMDRÁTTAR virðist enn sem komið er ekki farið að gæta að neinu ráði á at- vinnumarkaði. Raunar hefur verið nóg að gera hjá ráðn- ingarskrifstofum síðustu mánuði, en yfirgnæfandi meirihluti þeirra sem leita að nýrri vinnu er fólk sem er í vinnu en leitar sér að ein- hverri tilbreytingu. Þó að eitthvað sé um uppsagnir sé það ekki meira en í venjulegu árferði. Þetta kemur fram í samtölum blaðamanns við framkvæmdastjóra nokkurra ráðningarfyrirtækja. Guðný Harðardóttir, fram- kvæmdastjóri STRÁ MRI, segir að strax í haust hafi verið spáð samdrætti á vinnumarkaði en að sá sam- dráttur hafi ekki enn komið fram af fullum þunga og þannig hafi febrúar verið al- gjör metmánuður í ráðn- ingum hjá hennar fyrirtæki. Þess ber þó að geta að að- allega var um að ræða ráðn- ingar í skrifstofu-, sérfræði-, millistjórnunar- og stjórn- unarstörf, en að sögn Guð- nýjar eru yfir 70% af ný- skráðum umsækjendum háskólamenntaðir. Stjórnendur hafa brugðist fyrr við Spurð hverju hún spái um framhaldið segist hún standa við fyrri spár um að sam- dráttartímabil sé í aðsigi, en tekur fram að það muni ef til vill aðeins þýða að ákveðið jafnvægi náist á vinnumark- aði sem sé ekki endilega nei- kvætt. Vísar hún þar til þess að minnkandi þensla þýði að erlent vinnuafl sem komið hafi hingað til að vinna í tímabundnum verkefnum snúi aftur heim, minni hreyf- ing verði á vinnumarkaði og hinar miklu launakröfur fari minnkandi. Annar viðmæl- andi blaðamanns sagðist bú- ast við því að undirliggjandi samdráttar á vinnumarkaði fari ekki að gæta fyrir alvöru fyrr en með vorinu. Að mati Guðnýjar, sem starfað hefur í bransanum í nær aldarfjórðung og því oft áður orðið vitni að uppgangi og samdrætti á vinnumark- aði, er margt sem bendir til þess að atvinnurekendur séu betur í stakk búnir nú til að mæta yfirvofandi samdrátt- arskeiði sökum þess hversu stutt er síðan síðasta sam- dráttarskeið gekk yfir, þ.e. á árunum 2001-2004. Það þýði að stjórnendur bregðist hraðar og öruggar við ástandinu, sem geti vonandi þýtt að núverandi samdrátt- arskeið verði ekki jafn harkalegt og langdregið og það síðasta. Gríðarleg eftirspurn eftir fólki til starfa Undir þetta taka fleiri við- mælendur blaðamanns og benda á að forsvarsmenn fyr- irtækja séu þegar byrjaðir að hagræða í rekstri sínum, af- nema ýmis fríðindi sem þóttu sjálfsögð á uppgangstímum, horfa í auknum mæli á fram- leiðni starfsmanna sinna og halda frekar í það starfsfólk sem skili meiri framleiðni, draga saman í deildum eða leggja niður störf innan fyr- irtækjanna sem ekki skili beinum hagnaði auk þess sem það sé liðin tíð að verið sé að bjóða fólki ofurlaun í nýráðningum. „Staðan er góð. Við finnum ekki mikið fyrir samdrætti enn sem komið er a.m.k. Það er gríðarlega mikil eftirspurn eftir fólki til starfa og fram- boðið af starfskröftum hefur ekki aukist óeðlilega mikið,“ segir Katrín S. Óladóttir, framkvæmdastjóri Hag- vangs, og tekur fram að það sé eftirspurn eftir fólki í flestöll störf. Aðspurð segist hún vissulega heyra af ein- staka uppsögnum hér og þar, en ekkert í tuga- eða hundr- aðavís nema í einstaka til- fellum. Segir hún algjörlega eðlilegt að ákveðin hreyfing sé á vinnumarkaði. Eftir því sem blaðamaður kemst næst virðist alltaf vera eftirspurn eftir reyndum bókurum, verkfræðingum, iðnmenntuðu fólki, lagerfólki og starfsfólki í veitingageir- anum. Þegar viðmælendur eru spurðir hvar helst sé of- framboð á vinnukröfum nefna flestir annars vegar viðskiptafræðinga og hins vegar ófaglært starfsfólk. Samdráttartímabil í spilunum Morgunblaðið/Ómar Hreyfing Ákveðin hreyfing á vinnumarkaði þykir eðlileg. „ÞAÐ eru ýmsir samningar í gangi,“ segir Ásmundur Stefánsson ríkis- sáttasemjari um stöðuna í gerð kjara- samninga, en yfir 200 samningar eru lausir á árinu. Alþýðusambandið hef- ur gengið frá sínum kjarasamningum, en enn eiga stórir hópar eftir að ljúka samningum. Þar á meðal er starfsfólk heilbrigðisstofnana og fleiri hópar. Ásmundur segir flesta samningana vera lausa núna á vormánuðum. Hóp- ar á vegum hins opinbera sé um þess- ar mundir að byrja á sínum viðræðum þótt þær séu ekki komnar á borð rík- issáttasemjara. Ásmundur segir erfitt að átta sig á því hversu erfiðir samningar, sem ekki lúta að hinu opinbera, verði í framhaldi af samningum Alþýðusam- bandsins, en um þessar mundir er unnið að samningum við starfsfólk flugfélaga. Stórir hópar eftir að semja Flestir lausir í vor

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.