Morgunblaðið - 06.03.2008, Blaðsíða 24
24 FIMMTUDAGUR 6. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
ÞAÐ getur stundum verið erf-
itt að sitja á forsetastóli Alþingis
og hlusta á umræður, án þess að
eiga þess kost að
bregðast við því sem
til umræðu er hverju
sinni. Í óundirbúnum
fyrirspurnartíma
mánudaginn 3. mars
sl. bar varaþingmaður
Framsóknarflokksins
úr Norðaustur-
kjördæmi upp fyr-
irspurn til samgöngu-
ráðherra.
Þingmaðurinn spurð-
ist fyrir um jarð-
gangagerð á Austur-
landi. Mátti ætla af
málflutningi að í þeim landhluta
hafi nánast ekkert verið gert og
ekkert hafi staðið til að gera í
nánustu framtíð. Af þessu tilefni
er rétt að rifja upp nokkrar stað-
reyndir.
Á síðasta kjörtímabili var lokið
við gerð jarðganga í Almanna-
skarði og einnig jarðgöng milli
Fáskrúðsfjarðar og Reyð-
arfjarðar. Báðar þessar fram-
kvæmdir hafa haft mikla þýðingu
fyrir byggðina á Austurlandi.
Á síðasta kjörtímabili var boð-
in út gerð jarðganga milli Siglu-
fjarðar og Ólafsfjarðar, svokölluð
Héðinsfjarðargöng, sem all-
nokkur umræða hefur orðið um
og ætti því að vera í fersku
minni margra ekki síst þing-
manna. Það verk er í fullum
gangi og sér fyrir enda þess
risavaxna verkefnis á næsta ári.
Í samgönguáætlun fyrir tíma-
bilið 2007–2010, sem samþykkt
var 17. mars 2007, var gert ráð
fyrir fjármögnun Héðinsfjarð-
arganga og einnig Bolungavík-
urganga sem nú er
búið að bjóða út.
Jafnframt var gert
ráð fyrir sérstakri
fjáröflun til jarð-
gangagerðar við svo-
kölluð Vaðlaheið-
argöng sem átti að
verða einka-
framkvæmd kostuð
með veggjaldi með
samningum við
hlutafélag sem hafði
unnið að undirbún-
ingi og lýsti vilja til
þess að bora göngin
og reka þau.
Í samgönguáætlun fyrir tíma-
bilið 2007–2018, svokallaðri lang-
tímaáætlun, sem var lögð fyrir
þingið var jafnframt gert ráð fyr-
ir framkvæmdum við jarðgöng
milli Arnarfjarðar og Dýra-
fjarðar, gerð Norðfjarðarganga í
stað Oddsskarðsganga og svoköll-
uð Lónsheiðargöng. Að auki var
gert var ráð fyrir öðrum göngum
sem áttu að vera á höfuðborg-
arsvæðinu og var þar um að ræða
jarðgöng undir Öskjuhlíðina, en
þá var ekki farið að ræða um
Sundagöng sem nú er eðlilega
gert. Samgöngunefnd Alþingis
hafði lokið umfjöllun um þá áætl-
un sem beið lokaumræðu og at-
kvæðagreiðslu, en hún var stöðv-
uð í þinginu vegna deilna við
þáverandi stjórnarandstöðu við
lok þinghaldsins vorið 2007, í að-
draganda alþingiskosninganna.
Þetta er nauðsynlegt að rifja
upp vegna þess að umræður í
þinginu gáfu ekki rétta mynd af
staðreynd mála. Þingmenn Norð-
austurkjördæmis ættu allra þing-
manna síst að kvarta undan því að
ekki hafi verið hugsað fyrir jarð-
gangagerð í þeim landshluta. Frá
því þessar áætlanir voru til með-
ferðar á síðasta ári hafa stjórn-
arflokkarnir gripið til sérstakra
mótvægisaðgerða, eins og þekkt
er, m.a. með því að auka verulega
fjármuni til vegagerðar. Þær jarð-
gangaframkvæmdir sem fyrr-
nefndar áætlanir gerðu ráð fyrir
ættu því að geta komist í gagnið
enn fyrr en vonir stóðu til. Ný
jarðgangaverkefni á Austurlandi
hljóta að bíða uns lokið hefur ver-
ið við jarðgöngin sem eru í fyrr-
nefndum áætlunum, ekki síst jarð-
göngin milli Arnarfjarðar og
Dýrafjarðar sem munu gjörbreyta
aðstæðum á Vestfjörðum. Því
verkefni má ekki fresta.
Umræður um jarðgöng
Sturla Böðvarsson skrifar um
samgönguáætlanir » Þingmenn Norðaust-
urkjördæmis ættu
allra þingmanna síst að
kvarta undan því að
ekki hafi verið hugsað
fyrir jarðgangagerð í
þeim landshluta.
Sturla Böðvarsson
Höfundur er forseti Alþingis.
Í DAG, 6. mars, er haldinn al-
þjóðlegur dagur gláku (World
Glaucoma Day) í fyrsta sinn um all-
an heim. Glákudagurinn er sam-
starfsverkefni Alþjóðasamtaka
lækna sem fást við
gláku (World Glau-
coma Association) og
samtaka sjúklinga sem
glíma við gláku (World
Glaucoma Patient
Association). Til-
gangur þessa dags er
að vekja athygli á
gláku og vaxandi
fjölda fólks sem fær
gláku, með aukinni
fólksfjölgun og hækk-
andi meðalaldri.
Gláka er flokkur
sjúkdóma sem veldur
óafturkræfum
skemmdum í sjóntaug og síðar á
sjón og sjónsviði. Með tímanum
myndast skuggar í sjónsviði sem
renna síðan saman í stærri og
dekkri skugga þannig að sjónsviðið
þrengist. Yfirleitt er skarpa sjónin
beint fram góð þar til á lokastigum
sjúkdómsins og því er hætta á að
sjúkdómurinn greinist seint. Því
miður gefur gláka ekki einkenni
fyrr en sjúkdómurinn er kominn á
alvarlegt stig og hefur valdið óaft-
urkræfum skemmdum.
Til eru margar gerðir af gláku.
Algengasta tegundin og sú sem al-
menningur þekkir best er hægfara,
krónísk gláka. Sú tegund gláku
sýnir yfirleitt engin einkenni fyrr
en sjúkdómurinn er kominn langt
eða á lokastig. Önnur tegund
gláku, sem er tiltölulega sjaldgæf á
Íslandi en algeng í Asíu, er þröng-
horns-gláka og bráðagláka. Þá
hækkar augnþrýstingur skyndilega
og yfirleitt upplifir sjúklingurinn
mikla verki og vanlíðan. Þessi teg-
und gláku getur leitt til blindu á
mjög skömmum tíma. Aðrar teg-
undir gláku eru meðfædd gláka
(congenital glaucoma), gláka hjá
börnum og unglingum (juvenile
glaucoma) og gláka í tengslum við
aðra sjúkdóma (secondary glau-
coma). Þannig geta í raun allir ald-
urshópar fengið gláku en algeng-
asta glákan, hægfara krónísk
gláka, kemur yfirleitt ekki fram
fyrr en um og eftir miðjan aldur.
Glákutíðni er um
2% á Íslandi eða um
6.000 manns og fer
tíðni gláku hækkandi
með aldri. Tíðni gláku
hefur ekki minnkað
en hins vegar hefur
blindutilfellum fækk-
að mikið frá því sem
var. Fram yfir miðja
20. öldina var blinda
af völdum hægfara
gláku langalgengasta
blinduorsökin hér á
landi. Í fyrstu blindu-
könnun sem gerð var
hér á landi árið 1940
voru rúmlega 70% blindra blindir
vegna hægfara gláku. Um 1950
voru blindir af völdum gláku yfir
50% af öllum blindum hér á landi
og gláka enn langalgengasta
blinduorsökin. Árið 1979 var gláka
komin niður í annað sæti af blindu-
valdandi sjúkdómum eða 19% af
öllum blindum. Í dag er blindutíðni
af völdum gláku á Íslandi um 6% af
blindum og er gláka enn í öðru sæti
yfir blinduvaldandi sjúkdóma hér á
landi. Í vanþróaðri löndum er
blindutíðni mun hærri og blind-
utíðni allt að 90% á ákveðnum
svæðum í Afríku. Á alþjóðavísu er
gláka í öðru sæti yfir blinduvald-
andi sjúkdóma og er talið að tæp-
lega 5 milljónir manna séu blindir
af völdum gláku og að þessi tala
eigi eftir að hækka í 11–12 milljónir
árið 2020.
Lengi hefur verið vitað að gláka
lægi í ættum og er talið að ætt-
arsaga sé einn sterkasti áhættu-
þátturinn fyrir glákumyndun.
Elstu greinar sem lýsa ættum með
gláku eru frá miðri 19. öld. Stöð-
ugar rannsóknir á gláku og erfðum
gláku eiga sér stað um allan heim
og hafa m.a. nýlegar rannsóknir ís-
lenskra augnlækna og vísinda-
manna hjá Íslenskri erfðagreiningu
vakið athygli.
Þrátt fyrir geysimiklar framfarir
á síðustu áratugum er enn engin
lækning til við gláku. Hins vegar er
hægt að halda sjúkdómnum niðri og
stöðva skemmdir. Meðferð við gláku
má skipta í þrennt, lyfjameðferð,
leysimeðferð og skurðaðgerðir. Oft-
ast er lyfjameðferð beitt fyrst en
skurðaðgerðum í alvarlegri tilfellum
og þegar önnur meðferð dugar ekki.
Árlega eru gerðar um 100 skurð-
aðgerðir vegna gláku á Íslandi.
Gláku geta einstaklingar ekki
greint sjálfir, en eins og að framan
greinir er mikilvægt að greina gláku
snemma til þess að forðast alvar-
legar afleiðingar sjúkdómsins. Mælt
er með að þeir sem komnir eru yfir
fertugt fari í almenna augnskoðun
þar sem augnlæknir leitar m.a. að
gláku og ýmsum öðrum augnsjúk-
dómum. Viðkomandi augnlæknir
metur síðan hvernig eftirliti skuli
háttað. Mikilvægt er að hafa í huga
á þessum degi að þrátt fyrir miklar
framfarir í greiningu og meðferð á
síðustu áratugum er gláka enn í dag
alvarlegur blinduvaldandi sjúkdóm-
ur á Íslandi sem og annars staðar.
Nánari upplýsingar á
www.wgday.net
Alþjóðadagur gláku
Vaxandi fjöldi fólks fær gláku
segir María Soffía Gottfreðs-
dóttir
» Þrátt fyrir miklar
framfarir í grein-
ingu og meðferð á síð-
ustu áratugum er gláka
enn í dag alvarlegur
blinduvaldandi sjúk-
dómur á Íslandi
María Soffía
Gottfreðsdóttir
Höfundur er sérfræðilæknir við augn-
deild Landspítalans og formaður
Augnlæknafélags Íslands.
SÍÐUSTU daga hafa verið að
berast inn um bréfalúgur fé-
lagsmanna í stéttarfélögunum á
almennum vinnu-
markaði kjörseðlar í
atkvæðagreiðslunni
sem nú stendur um
nýgerða kjarasamn-
inga. Því miður er
það reynsla okkar á
undangengnum árum
að allt of stór hópur
nýtir ekki lýðræð-
islegan rétt til að
hafa áhrif á nið-
urstöður samninga.
Það er ekki alltaf
djúp hugsun að baki
því, stundum jafnvel
hugsunarleysi,
stundum fullyrðingar
um að atkvæðið
skipti ekki máli, aðr-
ir hafi ákveðið þetta
fyrir mann hvort eð
er. Sannarlega er
það mikill misskiln-
ingur. Benda má á
dæmi frá síðustu ár-
um við afgreiðslu
kjarasamninga þar
sem aðeins munaði
örfáum tugum at-
kvæða til að kjara-
samningur félli í at-
kvæðagreiðslu.
Þess vegna er það
meginatriði að greiða atkvæði um
samninginn. Við sem bárum hit-
ann og þungann af samningsgerð-
inni erum þess fullviss að ekki
var hægt að ná lengra að þessu
sinni í launa- eða réttindamálum.
Það var deginum ljósara að efna-
hagsumhverfi kjarasamninganna
nú var erfiðara en oftast áður. Há
verðbólga og versnandi atvinnu-
ástand framundan er ekki ósk-
astaða samningamanna við kjara-
samningsborðið. Eftir nærri hálfs
árs þref töldum við okkur hafa
fengið því framgengt sem hægt
var án átaka.
Mikilvægast af öllu var að ná
fram hækkun lægri launa. Annar
mikill ávinningur var að fá fram
hækkun gagnvart þeim sem setið
hafa eftir í launaskriði undanfar-
inna ára. Það á við um fjölda
fólks á almennum vinnumarkaði.
Jafnframt var okkur mikil nauð-
syn á því að binda samninginn
verðbólguviðmiðum til
að geta framlengt
hann ef vel gengur en
sagt honum upp ef
allt fer á verra veg.
Af öðrum atriðum
sem má nefna er
verulega bættur or-
lofsréttur, stórhækk-
aðar tryggingabætur,
aukin réttindi vegna
veikra barna, meira fé
til menntunar og stór-
átak til að takast á
við vaxandi örorku í
landinu. Þá getur
framlag stjórnvalda í
skattamálum, vaxta-
bótum, barnabótum
og húsaleigubótum
skipt miklu máli fyrir
fjölskyldur sem sam-
hliða eru að fá kjara-
bætur í þessum samn-
ingum þó að þessar
aðgerðir stjórnvalda
séu ekki hluti kjara-
samningsins.
En kjarasamning-
urinn er bara áfangi á
leiðinni. Fyrsta árið
er prófsteinn á hvort
hann dugar út samn-
ingstímann. Þess
vegna biðjum við nú launamenn
að kynna sér samninginn og taka
upplýsta afstöðu. Við vonumst
auðvitað til þess að sem flestir
verði okkur sammála. Fyrsti
áfanginn er að búa til skjól fyrir
þá sem minnst hafa og síðan
áframhaldandi ávinning fyrir okk-
ur öll með því að takast á við
verðbólguna. Þetta á ekki síst við
um fyrirtækin og þá umræðu sem
þar hefur átt sér stað um að velta
öllum kostnaði út í verðlagið. Ef
við missum tök á efnahagsmál-
unum þá tapa allir.
Þess vegna er svo mikilvægt að
þú nýtir þér atkvæðisrétt þinn.
Hver er
afstaða þín?
Sigurður Bessason skrifar
um nýgerða kjarasmninga
Sigurður Bessason
» Fyrsta árið
er próf-
steinn á hvort
hann dugar út
samningstím-
ann. Þess vegna
biðjum við nú
launamenn að
kynna sér
samninginn og
taka upplýsta
afstöðu.
Höfundur er formaður Eflingar.
GUÐMUNDUR G. Gunnarsson,
sem mun vera fyrr-
verandi bæjarstjóri
Álftaness og núver-
andi bæjarfulltrúi í
minnihluta sjálfstæð-
ismanna sendir
almannatengsla-
fyrirtæki mínu tóninn
í nýlegu lesendabréfi
í Morgunblaðinu.
Hann segir meðal
annars „Útgerð þessi
sér um að koma
skrumskældum frétt-
um úr bæjarlífinu á
framfæri við íbúa, á
heimasíðunni alfta-
nes.is …“
Í starfi mínu við almannatengsl
undir merkjum Bæjarútgerð-
arinnar ehf. velti ég öðru hverju
vöngum með viðskiptavinum um
hvernig bregðast eigi við rang-
færslum sem fram koma um þá
eða fyrirtæki þeirra. Almennt er
það svo að betra er að svara en
láta ósannindi standa. Stundum er
þó málflutningur andstæðingsins
þannig að maður
ályktar að hann hljóti
að dæma sig sjálfur.
Ég hef ákveðið að
svara Guðmundi ekki.
Þeirri ákvörðun minni
til stuðnings langar
mig til að birta vísu
sem hann gerir að
lokaorðum sínum í
lesendabréfinu sem
ég hef hér vitnað til.
Vísa Guðmundar er
svona:
Lifandi og linnulaus hamingja,
lætin eru rétt að byrja,
þúsundir peninga látlaust dyngja,
þá er ekki að lokum að spyrja.
Ég held að það sé ekki ráðlegt
að rökræða við mann sem sendir
svona nokkuð frá sér á prenti.
Bragur
bæjarfulltrúa
Sigurður G. Valgeirsson skrifar
vegna greinar Guðmundar
G. Gunnarssonar
Sigurður G.
Valgeirsson
»Hér er fjallað
um hvenær á að
svara rangfærslum
og hvenær ekki.
Höfundur rekur almannatengsla-
fyrirtækið Bæjarútgerðina.