Morgunblaðið - 06.03.2008, Side 9
JÚLÍUS Vífill Ingvarsson, borgar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, gagn-
rýndi skýrslu stýrihóps borgarráðs
um málefni Reykjavik Energy Invest
og Orkuveitu
Reykjavíkur á
fundi borgar-
stjórnar í fyrri-
nótt og sagði jafn-
framt að Svandís
Svavarsdóttir,
oddviti Vinstri
grænna, og Sig-
rún Elsa Smára-
dóttir, borgar-
fulltrúi Samfylk-
ingarinnar, hefðu
verið vanhæfar að hans mati til að
vera í stýrihópnum.
Að sögn Júlíusar Vífils Ingvars-
sonar fór hann yfir skýrsluna og benti
á að í hana vantaði ýmsar upplýsingar
sem eðlilegt væri að fylgdu skýrslu
sem þessari. Til dæmis upplýsingar
um hvernig stýrihópurinn hefði
fundað, hverjir hefðu mætt á fundi
nefndarinnar, hvaða gögn hefðu verið
skoðuð af nefndinni og hver kostnað-
ur við vinnu hennar væri. Auk þess
hefði hann bent á að það vantaði ýms-
ar lögfræðilegar skýringar eins og
t.d. varðandi samrunann. Skýrslan
fjallaði um viðskipti frekar en stjórn-
mál en hina viðskiptalegu hugmynd
vantaði í hana. Ekkert væri fjallað um
verðmat á REI og Geysir Green og
hvernig það verðmat væri hugsað eft-
ir sameiningu. Eins hefði hann bent á
að Svandís Svavarsdóttir og Sigrún
Elsa Smáradóttir hefðu báðar verið í
stjórn OR og komið að málinu á ýms-
um stigum. Því væri það umhugsun-
arefni og leiddi til vanhæfni að þær
sætu í nefnd sem rannsakaði sérstak-
lega mál þar sem þær væru gerendur
og kæmust að niðurstöðu um það
hvernig að málinu væri staðið, meðal
annars með tilliti til lagareglna og
stjórnsýsluréttar. Hann hefði óskað
eftir því að Svandís Svavarsdóttir
gerði grein fyrir því hvort hún hefði
tekið þátt í því að búa til lista yfir
valda starfsmenn sem hefðu átt að
njóta þeirra forréttinda að kaupa hlut
í hinu sameiginlega félagi á sérstak-
lega hagstæðu gengi. Hún hefði lýst
því hvernig hún, Sigrún Elsa og Dag-
ur B. Eggertsson hefðu farið yfir
þessa lista og breytt þeim og þannig
hefðu þeir farið frá þeim. Þessir
samningar hefðu verið gagnrýndir í
skýrslunni, en ekki væri minnst á þátt
þessara þriggja borgarfulltrúa varð-
andi þetta atriði og það væri ekki til að
auka trúverðugleika skýrslunnar.
Upphaflega hefði nefndin verið hugs-
uð sem nefnd oddvita en oddvitar
Sjálfstæðisflokks, Samfylkingar og
Framsóknarflokks hefðu séð að það
gengi ekki, þar sem þeir hefðu komið
að málinu á ákveðnum stigum. Oddviti
Vinstri grænna hefði hins vegar ekki
aðeins ákveðið að sitja í nefndinni
heldur taka einnig að sér formennsk-
una. „Það finnst mér að oddvitinn
hefði átt að hugsa betur,“ segir hann.
Rétti vettvangurinn
Spurður hvort gagnrýnin á skýrsl-
una og tiltekna nefndarmenn sé ekki
of seint á ferðinni segir Júlíus Vífill
Ingvarsson svo ekki vera. Í fyrsta lagi
hafi gilt algjör trúnaður um vinnu
stýrihópsins og hann hafi haft tak-
markaðar upplýsingar um störfin sem
hafi farið fram með mikilli leynd.
Hann hafi gagnrýnt nefndina strax í
byrjun en borgarfulltrúar Sjálfstæð-
isflokksins hafi ákveðið að starfa með
nefndinni og fulltrúar flokksins hafi
starfað vel og af heilindum í nefndinni.
Margt sé gagnlegt og gott í skýrsl-
unni og sjálfsagt að borgarkerfið fari
yfir það. Borgarstjórn sé hins vegar
rétti vettvangurinn til að gera athuga-
semdir því þar hafi hún verið lögð
fram til umræðu í fyrsta skipti í fyrra-
dag.
Gagnrýnir skýrslu um REI
og segir fulltrúa vanhæfa
Júlíus Vífill
Ingvarsson
Júlíus Vífill Ingvarsson segir samt margt gott í skýrslunni
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. MARS 2008 9
FRÉTTIR
KRINGLUNNI - Sími: 568 9955
OPIÐ
TIL 9
SKARTGRIPATRÉ
TILBOÐSVERÐ
KR. 4.990.-
NÝ SENDING
SP
A
RI
BA
U
K
U
R
Skartgripaskrín
yfir 20 teg.
stelpu&stráka
www.tk.is
FERMINGAR
GJAFIR
Ný sending
Einnig í stórum
stærðum
Laugavegi 82,
á horni Barónsstígs
sími 551 4473
Nýjar vörur
Kjólar, mussur,
ermar og leggings
Str. S-XXL.
www.feminin.is • feminin@feminin.is
Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222
Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16
frá
iðunn
tískuverslun
Kringlunni, s. 588 1680
Glæsilegt
úrval af
vorfatnaði
frá
Páskavörur
Páskaeggjamót (5 stærðir) og kransakökuform
495 kr. settið
895 kr.
895 kr.
195 kr.
195 kr.
595 kr.
750 kr.
995 kr.
295 kr.
Klappastíg 44 - Sími 562 3614 Laugavegi 63 • S: 551 4422
GLÆSILEGT
ÚRVAL
AF SPARIFATNAÐI
SKOÐIÐ BÆKLINGINN Á WWW. LAXDAL.IS
SVANDÍS Svavarsdóttir telur allar
athugasemdir Júlíusar Vífils Ingv-
arssonar eiga jafnframt við um full-
trúa Sjálfstæðisflokksins í stýri-
hópnum og auk þess veki undrun
hvað þær komi seint fram.
Svandís segir að Júlíus Vífill hafi
ekki fyrr gert athugasemdir við
mönnun stýrihópsins, sem hafi ver-
ið skipaður þverpólitískt 18. októ-
ber. Enginn hafi reyndar gert at-
hugasemdir við setu sína og
Sigrúnar Elsu Smáradóttur í stýri-
hópnum. Hefðu komið fram at-
hugasemdir hefði hún skoðað þær.
Júlíus Vífill hafi gert ýmsar góðar
athugasemdir við innihald skýrsl-
unnar, en þessar athugasemdir
komi seint fram og hann hljóti að
hafa getað komið þeim fyrr á fram-
færi við fulltrúa sína í stýrihópnum.
6. febrúar hafi til dæmis allir borg-
arfulltrúar Sjálfstæðisflokksins set-
ið yfir skýrslunni og samþykkt
hana fyrir sitt leyti og þar á meðal
Júlíus.
Í seinni ræðu sinni á borg-
arstjórnarfundinum í fyrrinótt seg-
ist Svandís hafa tekið undir ýmsar
athugasemdir Júlíusar á skýrsl-
unni, eins og til dæmis að ástæða
hefði verið að greina sérstaklega
frá efni einstakra funda.
Seint á
ferðinni
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Fréttir á SMS