Morgunblaðið - 06.03.2008, Page 23

Morgunblaðið - 06.03.2008, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. MARS 2008 23 Það voru konurnar semurðu verst úti og eru þaðenn. Og börnin,“ sagðiunga konan Eva í Suður- Súdan og hagræddi sér varlega á kollinum þar sem hún sat. „En það er nú held ég ekkert nýtt, er það?“ bætti hún sposk við. Ég var stödd í bænum Juba, nokkr- um mánuðum eftir undirritun frið- arsamninganna sem bundu enda á borgarastyrjöldina milli norður- og suðurhluta landsins og gerðu Suð- ur-Súdan að sjálfsstjórnarsvæði. Mér varð hugsað til Evu þegar ég rakst á netinu á ummæli konu sem er meðlimur í Kvennabanda- lagi hins nýja Súdan. Hún benti á að konur og börn væru þau sem átökin hefðu bitnað mest á. „Þegar tveir fílar berjast, þá er það grasið sem skaðast,“ sagði hún. „Konur og börn í Súdan eru gras- ið.“ Skaðað gras Eftir margra áratuga átök í Suð- ur-Súdan er grasið skaðað. Veru- lega skaðað. Stúlkur og konur á svæðinu urðu fyrir kynferðislegu ofbeldi í stríðinu, verða enn fyrir of- beldi, vinna langan vinnudag og hafa í langflestum tilvikum ekki fengið tækifæri til að ganga í skóla. Áætlað er að 90% kvenna á svæð- inu séu ólæsar. Grasið er hins vegar ekki bara skaðað, jarðvegurinn er það einnig. Átök þýða niðurbrot og þegar nið- urbrotið hefur varað í marga ára- tugi eru innviðir samfélagsins í rúst. Í Suður-Súdan er ekkert raf- magn sem hið opinbera útvegar, engir malbikaðir vegir eða vatn á vegum ríkisins. Þær allra fátækustu Þótt skólum og sjúkrahúsum hafi fjölgað ört eftir stríðslok árið 2005 er framboðið engan veginn nóg. Hvergi í heiminum er mæðradauði álitinn hærri en í Suður-Súdan. Talið er að í 95% tilvika sé hvorki ljósmóðir né læknir viðstödd fæð- ingar. hlæjandi fyrir sér af hverju hárið á mér væri svona ljóst á litinn og spurðu forvitnar hvað Íslendingar ræktuðu, var auðvelt að gleyma of- beldi og nauðgunum í stríðinu. Konurnar töluðu um börnin sín og sýndu mér stoltar útsaum og eigið handverk. Nauðgun sem vopn En þrátt fyrir hlátur og bros höfðu þær auðvitað engu gleymt. Þær höfðu ekki gleymt því sem gerst hafði í stríðinu. Og þrátt fyrir að öflugt uppbyggingarstarf væri hafið voru unglingsstúlkurnar þeirra ennþá mörgum sinnum lík- legri til að láta lífið af völdum barnsburðar og vera beittar of- beldi, en að ljúka grunnskólaprófi. „Þessu þarf að breyta,“ hvísluðu mæðurnar. Og þessu eru kvennasamtök á svæðinu raunar að reyna að breyta. Konur í Suður-Súdan eru ekki bara fórnarlömb, þær eru líka gerendur. Kvennahreyfingar hafa lagt áherslu á að afnám kynbundins of- beldis sé álitið forgangsatriði og stjórn svæðisins hefur viðurkennt þörfina á að takast á við vandann. UNIFEM í Súdan hefur í sam- starfi við stjórnvöld og kvenna- samtök lagt áherslu á að auka þátt- töku kvenna í uppbyggingarferlinu og vinna gegn kynbundnu ofbeldi. Það er til styrktar fleiri slíkum verkefnum sem styrktarsjóður UNIFEM til afnáms ofbeldis gegn konum er hugsaður. Eftir stríð og streð, átök og ein- angrun eru konurnar í Suður- Súdan þær fátækustu af þeim fá- tæku, svo notuð sé orð John Gar- angs, fyrrum varaforseta Súdan. Hann benti á að konurnar væru ekki einungis þær sem byggju við sárustu fátæktina, heldur einnig sá hópur sem væri mest gleymdur í samfélaginu. Þótt konur í Suður-Súdan séu margs konar – alveg eins og konur á Íslandi og raunar enn fjölbreytt- ari enda margir tugir ólíkra þjóð- arbrota í Súdan – eiga þær það sameiginlegt að staða þeirra er erf- ið einmitt vegna þess að þær eru konur. Þær verða fyrir svokölluðu kynbundnu ofbeldi: Heimilis- ofbeldi, árásum utan veggja heim- ilisins, kynferðislegu ofbeldi og nauðgunum bæði nú og í stríðinu. Auk þess eru þær oftar en ekki giftar ungar eða erfast til ættingja látins eiginmanns. Almennt ríkir refsileysi varðandi glæpi gegn konum í Suður-Súdan. Í ljósi stöðu kvennanna er athyglis- vert að hafa í huga að þær eru í dag taldar vera um 65% íbúanna. Lok, lok og læs Í Suður-Súdan eftir stríðið er mikið af sjálfskipuðum löggæslu- mönnum, enn meira af vopnum og yfirhöfuð erfitt að halda uppi lögum og reglu á jafnstóru svæði með jafnslæmar samgöngur. Í kjölfar friðarsamninganna hef- ur verið unnið að nýrri stjórnar- skrá, nýjum lögum og dómstólum sem dæma eiga eftir þeim. Hefðin fyrir því að leysa málin öðruvísi er hins vegar rík og hefðarlögin stuðla sjaldan að hagsmunum kvenna. Rödd þeirra verður auðveldlega þögguð niður. Fangavörðurinn fyrir utan fang- elsið í bænum Rumbek þar sem konum var haldið inni fyrir hina og þessa „glæpi“ hristi bara höfuðið þegar ég spurði hann hvenær og hvernig þær myndu sleppa út. Þegar konurnar sem ég dvaldi með í þorpinu Agangrial veltu því Fiðrildavika UNIFEM: Suður-Súdan Morgunblaðið/SVJ Heima Konur í Suður-Súdan snúa aftur heim eftir undirritun friðarsamninganna árið 2005. Samningarnir bundu enda á borgarastyrjöldina milli norður- og suðurhluta landsins. Darfur er aftur í vesturhluta Súdan. Þegar tveir fílar berjast skaðast grasið Stúlka í Suður-Súdan er margfalt líklegri til að láta lífið af völdum barnsburðar eða heimilisofbeldis en að ljúka grunnskólaprófi. UNIFEM á Íslandi safnar nú fé til að styrkja verkefni í Suður-Súdan sem miða að því að draga úr kynbundnu ofbeldi og bæta hag kvenna. Sigríður Víðis Jónsdóttir kynnti sér málið. Í HNOTSKURN »Í Suður-Súdan voru átök frá1956-1972 og aftur frá 1984- 2005. »UNIFEM safnar nú fé til aðstyrkja verkefni sem draga eiga úr kynbundnu ofbeldi í Suður-Súdan, Líberíu og Aust- ur-Kongó. »Þar er kynbundið ofbeldialls staðar útbreitt í kjölfar langvarandi átaka. »Um fjársöfnunina má lesa ávefnum unifem.is sigridurv@mbl.is Á morgun: Líbería – Hvenær lýkur stríði? skylduhugtakið. Við brutumst út úr því. Hér vinna menn 42,86 tíma á viku og þar í felst allt sem þarf að gera. Menn hafa notað kennsluskylduna sem tæki í kjara- baráttunni og því eðlilegt að þeir standi vörð um hugtakið, þó svo að ég telji mjög mikilvægt að mögulegt sé að fara aðrar leiðir.“ Sif vildi ekki gera mikið úr mót- byr Kennarasambandsins vegna breyttra starfshátta í Norðlinga- skóla. Hún sagði þessa mótbyrs einkum hafa orðið vart fyrsta vet- urinn en hans hefði hvorki orðið vart í ár né í fyrra. „Hins vegar hefur verið mikill áhugi á þessu fyrirkomulagi af hálfu kennara, skólastjórnenda og sveitarstjórnarmanna,“ sagði Sif og nefndi fjölda heimsókna í Norðlingaskóla til vitnis um það. Í næstu kjarasamningum kenn- ara á að leggja áherslu á að semja um raunverulega kauphækkun í stað þess að breyta nöfnum á mín- útum vinnuvikunnar, að mati Sifjar. Hún benti á að í und- anförnum kjarasamningum hefði kostnaðarauki sveitarfélaganna ekki farið óskertur í vasa kenn- ara. T.d. þegar samið var 2001 var kostnaðaraukinn 26% en kennarar fengu 13,75% launa- hækkun. „Næstum því helmingurinn af kostnaðarauka sveitarfélaga þá fór í að minnka kennsluskylduna. Þá þurfti annaðhvort að greiða yf- irvinnu eða ráða fleiri kennara til að allir fengju kennslu,“ sagði Sif. Þá telur hún út í hött að ganga út frá því að hver 40 mínútna kennslustund krefjist 20 mínútna undirbúnings, eins og gert er í kjarasamningum kennara. Hún segir að í raun þurfi ekkert að undirbúa sumar kennslustundir en aðrar þurfi jafnvel hálfan vinnudag til að undirbúa. „Það er svo margt í þessum kjarasamningum sem ekki er í takt við mjög breyttan veruleika í skólum landsins,“ sagði Sif. ldaði a und- g verið ma tíma. fram- einn p. Það og það ykur á ta sínu tið í Austur- kvaðst rur risu í nnar í um að kilgrein- ngi og nda- r er fólk í verkefni ni,“ sagði mbands- mkvæmt ennslu- ið breyttan veruleika lingaskóla væri við eldhúsborðið heima hjá nemendum. Sif hefði þann háttinn á að starfs- menn skólans færu tveir og tveir og heim- sæktu alla nemendur í upphafi skólaársins. Á liðnu hausti fóru t.d. skólastjórinn og húsvörð- urinn saman í húsvitjanirnar. Þá þótti MPA-nemum athyglisvert að Sif gerði ekki greinarmun á kennurum og öðrum starfsmönnum heldur ræddi ævinlega um starfsfólk skólans sem eina heild. Einna mesta athygli vakti þó að beiting bókunar 5 hefur leitt til umtalsverðrar kjarabótar fyrir starfsmenn Norðlingaskóla, án þess að fram- lög til skólans séu hlutfallslega meiri en til annarra grunnskóla í Reykjavík. Þannig er starfsfólk í Norðlingaskóla með allt að því 35% hærri laun en starfsfólk í öðrum grunn- skólum borgarinnar. Þessi árangur náðist með því að binda viðveru starfsfólksins frá kl. 8-17 hvern vinnudag og nýta vel starfskraft- ana m.a. með teymisvinnu. Í Norðlingaskóla vinna kennarar aldrei einir heldur í teymum sem samanstanda af hópi kennara og stuðn- ingsaðila. Hvert teymi heldur utan um ákveð- inn fjölda nemenda. Við skólann eru 34 starfs- menn, þar af 13 karlmenn, sem ku vera óvenjujafnt kynjahlutfall meðal starfsmanna í grunnskólum. MPA-nemarnir komust að því að þegar Reykjavíkurborg lét greina vellíðan á vinnustöðum borgarinnar skipuðu starfs- menn við Norðlingaskóla sér í næstefsta sæti. Leiðtogar lenda í mótbyr Það felst í forystuhugtakinu að standa fyrir breytingum, og forystumenn og -konur lenda ósjaldan í mótbyr þegar þeir reyna að ná fram breytingum sem rekast á ríka hagsmuni eða viðteknar venjur og vanahugsun. MPA- nemarnir sögðu þetta hafa gerst í tilviki Sifjar. Þannig hefðu samtök kennara á Austur- landi, að áeggjan kennaraforystunnar, sent frá sér ályktun um að Kennarasambandið „mótmæli öllum tilraunum sem fela í sér af- nám kennsluskyldunnar á grundvelli bókunar 5“. Þá urðu Sif og samstarfsfólk hennar fyrir ýmsum persónulegum árásum og aðkasti. Kennarar skólans fengu ekki stuðning frá fag- félagi sínu en birtu sjálfir yfirlýsingu þar sem þeir fögnuðu tilrauninni sem fram fer í Norð- lingaskóla. Vinnuhópnum fannst mjög athyglisvert að kynnast störfum skólastjórnanda sem hefur náð frábærum árangri í rekstri, sem ekki er vandalaus, og passaði auk þess vel inn í marg- ar kenningar um breytingastjórnun, forystu og vanda þess að taka forystu, einkum í op- inberum rekstri. Þau töldu Sif hafa til að bera mikla hæfileika til að vera leiðtogi, ekki síður en stjórnandi. Hún væri sterkur persónuleiki sem ætti auðvelt með að hrífa fólk með sér. Það eitt væri þó ekki nóg til að ná árangri, enda væri það alltaf samspil margra þátta sem gerði einstakling að afburðagóðum for- ystumanni, samkvæmt kenningum þeirra sem um þau mál fjölluðu. Slíkt væri ávallt samspil margvíslegra eiginleika bæði leiðtogans og samverkamanna hans, tengsla þeirra og sam- starfs, en einnig yrðu réttar aðstæður að vera fyrir hendi. msstað en var ráðin til að stýra þessum kóla. Fræðsluyfirvöld í Reykjavík ráð- þegar í upphafi að við Norðlingaskóla erð tilraun til að beita svonefndri bókun rasamningi Kennarasambandsins og nefndar sveitarfélaga. Þar segir m.a. að naskyni megi taka upp, til eins árs í hliðstæð vinnutímaákvæði og gilda hjá háskólamenntuðum starfsmönnum rfélaga, þ.e. á bilinu kl. 08.00 til 17.00 og þeirra tímamarka sé öll vinnuskylda ra (kennsla, undirbúningstími, verk- artími og tími vegna símenntunar)“. Páll og Kristín sögðu þetta þýða að við reiðslur í Norðlingaskóla væri ekki ver- na til atriði eins og undirbúning, gæslu, jórn, viðveru í frímínútum og að matast emendum svo dæmi séu tekin. MPA- nir studdust m.a. við matsskýrslu Krist- rlu Harðardóttur o.fl. frá 2006 um þessa í Norðlingaskóla sem Félagsvís- ofnun HÍ gaf út. al atriða sem skoðuð voru var starfs- avelta. Sif hefur gengið vel að fá starfs- haldist vel á því. Raunar hefur hún get- ð úr umsækjendum og má nefna að á austi voru um 60 umsækjendur um átta við skólann. r nemendur með nafni tarfið í Norðlingaskóla er einstaklings- og voru skólinn og Sif tilnefnd til hvatn- erðlauna Öryrkjabandalags Íslands fyr- byggingu skólastarfsins í desember iðnum. Samkvæmt hugmyndum Sifjar ir nemendur með sérþarfir og er reynt ma til móts við þær eftir bestu getu. Það ína sögu að hún þekkir alla 200 nem- skólans með nafni. tín nefndi að fyrsti skóladagur í Norð- iningu á skólastjóra sem fer nýjar leiðir i á réttum stað Morgunblaðið/Valdís Thor on meistaranemar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.